Tíminn - 07.02.1991, Qupperneq 3

Tíminn - 07.02.1991, Qupperneq 3
Fimmtudagur 7. febrúar 1991 Tíminn 3 Höfundar Ijóðanna 25 í Ijóðasamkeppni Stúdentaráðs. Tfmamynd: Pjetur Lindarmosi verölaunaljóð í samkeppni Stúdentaráðs Síðastliðinn föstudag fór fram á vegum Stúdentaráðs verðlaunaaf- hending í ljóðasamkeppni Stúdenta- ráðs, sem haldin var á meðal stúd- enta við Háskóla íslands á haust- misseri. Alis bárust 213 ljóð í keppn- ina undir 109 dulnefnum. Sérstök dómnefnd skipuð þrem skáldum, þeim Matthíasi Johannes- sen, Steinunni Sigurðardóttur og Sigurði Pálssyni, fór yfir Ijóðin og valdi úr 25 þeirra, þar af eitt verð- launaljóð. Hefur nú komið út sér- stök ljóðabók með verðlaunaljóðum stúdentanna og ber hún nafnið: Þessi ást, þessi ást. Sigurljóð keppninnar átti Þórdís Guðjónsdóttir íslenskunemi og heit- ir ljóð hennar Lindarmosi og er svo- hljóðandi: Langt inni á heiðinni vaka heitar lindir. Hélumosi á bakka. Héðan renna engir lækir. -sbs. Framganga íslands í málefnum Eystrasalts- ríkjanna lofuð í New York Times: Framganga íslands setur smánarblett á önnur Vesturlönd í lesendabréfí, sem birtist sl. mánudag í stórblaðinu New York Times, segir John Budris, blaða- maður og fyrrum starfsmaður Radio Vilnius World Service, að framganga íslendinga í málefnum Eystrasaltsríkjanna sé lofsverð, meðan önnur Vesturlönd gráti krókódílatárum yfír hetjuskap íbúa landanna. í bréfinu segir að flatarmál sé ekki maelieining á mikilleika þjóða, heldur sé það heiðarleiki, og að litla ísland standi nú fremst í því af öll- um vestrænum þjóðum að viður- kenna sjálfstæði Lithaugalands. f bréfinu segir að pólitísk viðurkenn- ing á sjálfstæði landsins sé mun meira en einföld skipti á sendiherr- um og sendiráðum. Það þýði að ís- land viðurkenni ekki lengur yfirráð Sovétríkjanna yfir landinu og einn- ig að innrás sovéskra hersveita í landið í janúar sé sambærileg við innrás íraka í Kúvæt. í bréfinu segir að Vesturlönd hefðu átt að viðurkenna sjálfstæði Eystra- saltslandanna þegar uppstokkunin átti sér stað í Evrópu fyrir um ári síðan. Þess í stað hefðu þau frið- mælst við Sovétríkin og skilið Eystrasaltsríkin eftir í höndunum á Gorbatsjov Sovétleiðtoga, sem allt- af hefur sagt að sjálfstæði þeirra kæmi ekki til greina. íslenska ríkis- stjórnin hefði gert sér grein fyrir, að þegar skriðdrekar komu til höf- uðborgar Lithaugalands eftir að sjálfstæðisyfirlýsingin var gefin út í mars á sl. ári og komið var á við- skiptaþvingunum, að þá hefðu vest- rænar þjóðir átt að sameinast um aðgerðir f stað þess að friðmælast við Sovétríkin. Því sé það smán fyr- ir Vesturlönd að sitja hjá aðgerðar- laus meðan ísland eitt standi upp og segi að eina leiðin sé að viður- kenna sjálfstæði landanna. —SE Málefni Eystrasaltsríkjanna: Möguleikar á formlegu sambandi kannaðir í yfirlýsingu, sem dr. Gunnar Pálsson sendiherra flutti á fundi embættismannanefndar RÖSE í síðustu viku, kemur fram að með- al þeirra aðgerða, sem íslenska ríkisstjórnin hefur ákveðið til stuðnings sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna, sé ákvörðun um að hefja viðræður milli ís- lands og Lithaugalands til að kanna möguleika á því að taka upp formlegt stjórnmálasamband milli ríkjanna. Gunnar tók það skýrt fram að þeirri aðgerð væri ekki ætlað að spilla ástandinu innan Sovétríkj- anna, heldur beri að líta á hana sem endurnýjaða staðfestingu á þeirri stefnu íslands að viður- kenna ekki innlimun Eystrasalts- ríkjanna með valdi í Sovétríkin fyrir fimmtíu árum. Gunnar sagði að íslensk stjórnvöld hörmuðu að tillaga Austurríkis, um að kalla saman sérstakan fund til að ræða ástandið í löndunum við Eystra- salt, hafi ekki hlotið stuðning allra þeirra ríkja sem væru á fundinum. Hann sagðist einnig taka heilshugar undir það sjónar- mið, sem komið hafi fram hjá Norðmönnum, að ef við kjósum að líta á ágreininginn um Eystra- saltsríkin sem innanríkismál Sov- étríkjanna, þá tökum við um leið þá áhættu að Ráðstefna um öiyggi og samvinnu í Evrópu, RÖSE, gegni ekki því hlutverki sem henni er ætlað. —SE Fjárhagsáætlun Garðabæjar: 25% af rekstrargjöld- um til fræðslumála Fjárhagsáætlun Garðabæjar íyrir árið 1991 var samþykkt nýlega á fúndi bæjarstjómar. Þar kemur fram að stærsta framkvæmd ársins er nýbygg- ing gatna í Hæðarhverfi, en þar hefur að undanfömu verið úthlutað lóðum íyrir ibúðarhús. Aætlaður kostnaður við þá framkvæmd er á þessu ári 119 milljónir. Sameiginlegar tekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 602,7 milljónir. Aðaltekju- stofn bæjarsjóðs eru útsvör og eru þau áætluð 455 milljónir eða 75,5% af sameiginlegum tekjum. Mestum hluta útgjalda er varið til fræðslumála, 102,9 milljónum, eða 25% af rekstrar- gjöldum í heild. Framlög til almanna- trygginga og félagshjálpar koma þar næst, 63,4 milljónir, eða 16% af rekstrargjöldum. Meðal stórfram- kvæmda á vegum bæjarins má nefna gerð undirganga og endurbóta á Vífils- staðavegi, byggingu undirganga við Hafnarfiarðarveg á móts við Bitabæ og lokaframkvæmdir við íþróttamiðstöð. í fiárhagsáætluninni er gert ráð fyrir að hafnar verði framkvæmdir við hol- Jóhanna B. Magnúsdóttir hefúr verið ráðinn umhverfisfulltrúi hjá Ferðamálaráði. Staða umhverfisfulltrúa er ný hjá Ferðamálaráði. Starfið er meðal annars fólgið í að sinna ýmsum ræsaútrásir, en á undanfömum árum hafa verið lagðir í sjóð fiármunir til að standa undir nauðsynlegum og viða- miklum framkvæmdum í þeim mál- um, sem ráðast þarf í á árinu og næstu árum, segir í fréttatilkynningu frá bæj- arstjóminni. —SE verkefnum á sviði umhverfismála og þá sérstaklega vegna uppbyggingar og úrbóta á ferðamannastöðum. Einnig mun umhverfisfulltrúi sinna ráðgjöf vegna uppbyggingar og úr- bóta á ferðmannastöðum. -sbs. Umhverfisfulltrúi hjá Feröamálaráöi LONDON KR. 14.700 ÍVIKAKR. 14.700 2 VIKUR KR. 15.800 3 VIKUR KR. 16.900 M KAUPMANNAHOFN KR. 15.800 ÍVIKAKR. 15.800 2VIKURKR. 16.900 3 VIKUR KR. 17.700 AÐEINS 370 SÆTI Á AFMÆLISVERÐI BROTTFARARDAGAR maí 1. 8.15. 22. 29. júní 5. 12. 19. 26. júlí 3. 10.17.24.31. ágúst 7. 14. 21. 28. sept. 4. 11. 18. 25. LON KL. 1600 CPH KL. 800 Ofangreind verð eru afmælisverðin á flugkostnaði, fram og til baka. Síðan bætast við fjölbrey ttir gistimöguleikar að eigin vali, bílaleiga og margt fleira. íslenskt starfsfólk okkar í Kaupmannahöfn og London annast fyrirgreiðslu farþega á flugvöllum. Þeir sem missa af afmælissætunum geta bókað sig í leiguflug á 12-16 % hærra gjaldi og samt komist miklu ódýrara yfir Atlandshafið en almennt gerist. Leiguflug okkar, sem opið er öllum íslendingum, er sannkölluö kjarabót í anda þjóðarsáttar. Sætaframboð er takmarkaö, svo nú gildir að nota þetta einstaka tækifæri strax, því afmælissætin okkar til útlanda eru ódýrari en flugfar til Egilsstaöa. FLUGFEROIR SOLRRFLUG Vesturgötu 12 - Sími 620066 og 15331

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.