Tíminn - 07.02.1991, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 7. janúar 1991
-T.ímino 19
Stórmót SÍ:
KR-INGAR
SIGRUÐU
KR-ingar sigruðu á stórmóti
Samtaka íþróttafréttamanna í
innanhússknattspyrnu, sem
haldið var í íþróttahúsinu í
Kaplakrika í fyrrakvöld. í síðasta
leik mótsins gerðu KR og Fram
jafntefli 4-4 og það dugði Vestur-
bæingunum til sigurs, þar sem
Fram hafði gert jafntefli við FH.
Úrslit Ieikja á mótinu urðu sem
hér segir:
FH-Fram........4- 4
KR-Valur................6- 0
FH-KR...................2- 9
Fram-Valur .............7- 1
FH-Valur................5-11
Fram-Valur...............4-4
Fram varð því í öðru sæti, Valur
í þriðja og FH í fjórða sæti.
Körfuknattleikur — Úrvalsdeild:
Haukar án Vance
stóðu í UMFG
Grindvíkingar sigruðu Hauka
89-79 í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í Grindavík í íyrrakvöld.
Leikurinn hófst ekki fyrr en síðla
kvölds vegna rafmagnsleysis í
Grindavík.
Haukar léku án Bandaríkja-
mannsins Damon Vance sem var
í leikbanni, en þrátt fyrir það
stóðu gestirnir nokkuð í heima-
mönnum. í leikhléi var staðan
42-34.
Stigin UMFG: Krebbs 26, Guð-
mundur 16, Jóhannes 15, Stein-
þór 10, Rúnar 7, Marel 7, Ellert 4
og Sveinbjörn 4. Haukar: ívar 18,
Jón Arnar 18, Pálmar 14, Henn-
ing 14, Pétur 11 og Ingimar 4.
BL
[ kvöld:
KR-Valur leika í
Laugardalshöll
í kvöld er einn leikur á dagskrá
úrvalsdeildarinnar í körfuknatt-
leik. Reykjavíkurliðin KR og Val-
ur mætast í Laugardalshöllinni
kl. 20.00. BL
Körfuknattieikur
Tindastóll
rétt
marði
Snæfell
Tindastólsmenn unnu sinn ann-
an leik í röð í gærkvöld er þeir
sóttu Snæfellinga heim í Stykkis-
hólm. Gestirnir sigruðu með að-
eins þriggja stiga mun, 83-86.
Stigahæstir Snæfellinga voru
Tim Harvey með 29 stig og Bárð-
ur Eyþórsson með 18. Fyrir
Tindastól skoraði Ivan Jonas 29
stig, Valur Ingimundarson 24 og
Pétur Guðmundsson 18.
Staðan í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik:
A-riðill:
Njarðvík 20 16 4 1870-1507 32
KR 19 11 8 1561-1507 22
Haukar 20 9 11 1667-1702 18
Snæfell 19 4151475-1702 8
ÍR 19 415 1518-1765 8
B-riðill:
Keflavík 19 15 4 1868-1702 30
Tindastóll 20 14 6 1903-1808 28
Grindavík 20 13 71629-155626
Valur 20 6 14 1661-1767 12
Þór 18 5 13 1675-1734 10
NBA-deildin:
Lakers-sigur
gegn Clippers
Leikmenn Los Angeles Lakers
unnu enn einn sigurinn í fyrri-
nótt er þeir lögðu granna sína f
Los Angeles Clippers að velli í
Forum-höllinni 116-102.
Úrslitin í fyrrinótt urðu annars
þessi:
Orlando Magic-NY Knicks.118-116
Atlanda Hawks-CIeveland Cav. 118-114
Detroit Pistons-Philadelphia ..107- 98
Minnesota Timberw.-Utah Jazz .94- 93
Dallas Mavericks-Indiana Pac. 114-109
SA Spurs-Golden State Warr.. 106-112
Phoenix Suns-Denver Nuggets ..126-103
LA Lakers-LA Clippers.116-102
Þekktasta lið Bandaríkjanna
reyndist vera San Francisco
49ers, en næst kom Chicago
Bulls.
Ahorfendur á NBA-leikjunum
hafa valið byrjunarliðin sem
mætast í stjörnuleiknum á
sunnudaginn kemur. Að þessu
sinni fer leikurinn fram í Charl-
otte í N-Karólínu.
NBA-stjömuleikurinn:
Byrjunarliðin
þegar valin
Byrjunarlið austurliðsins er
þannig skipað: Bakverðir verða
Isiah Thomas Detroit og Michael
Jordan Chicago. Framverðir
verða: Larry Bird Boston og
Charles Barkley Philadelphia.
Miðherji verður Patrick Ewing
New York. Þeir Isiah Thomas og
Larry Bird eru meiddir og geta
ekki leikið með.
Byrjunarlið vesturliðsins er
þannig skipað: Bakverðir verða
Earwin „Magic“ Johnson LA La-
kers og Kevin Johnson Phoenix.
Framverðir verða James Worthy
LA Lakers og Karl Malone Utah.
Miðherji verður David Robinson
San Antonio.
Þjálfari austurliðsins verður
Chris Ford frá Boston og vestur-
liðið verður undir stjórn Ricks
Edelman frá Portland. Þeir velja
síðan aðra leikmenn í liðin.
Jordan þekktastur
Evrópska íþróttablaðið New-
sport, sem staðsett er í Frakk-
Iandi, hélt uppá árs afmæli sitt
fyrir skömmu með því að spyrja
lesendur sína hvaða bandáríska
íþróttamenn þeir héldu mest
uppá og hvaða lið væri þekktast.
Meira en 9 þúsund lesendur
blaðsins svöruðu. Niðurstöður
urðu þær að Michael Jordan,
körfuknattleiksmaður hjá Chic-
ago Bulls, var valinn vinsælastur.
Á eftir honum kom Joe Montana
fótboltakappi hjá San Francisoco
49ers, þriðji varð Bo Jackson fót-
boltakappi hjá LA Raiders og KC
Royals og fjórði varð Magic John-
son körfuboltakappi hjá LA La-
kers.
Þekktasta lið Bandaríkjanna
reyndist vera San Francisco
49ers, en næst kom Chicago
Bulls.
Gallis kominn yfir
10 þúsund stigin
Gríski landsliðsmaðurinn í
körfuknattleik, Nikos Gallis, sem
leikur með Aris Salonika í
heimalandi sínu, hefur náð þeim
áfanga að skora yfir 10 þúsund
stig á ferlinum.
Stutt er í sama áfanga hjá Bras-
ilíumanninum Oscar Schmidt,
en hann varð stigahæsti leikmað-
ur ítölsku 1. deildarinnar frá
upphafi, fyrir skömmu, er hann
komst í 9.787 stig. Schmidt, sem
leikur með Fernet Branco, ætti
því ekki að vera í vandræðum
með að fara yfir 10 þúsund stigin.
Ólafúr Gytfason ÍR-ingur tekur einn leikmanna Hauka heldur föstum tökum, en Ólafúr fékk gult spjald fýrír vikið.
Tímamynd: Pjetur.
Handknattleikur-Bikarkeppnin: _
Botninn úr hjá ÍR er
Bamruk fór í gang
Haukar komnir í undanúrslitin
Það var hart barist í Seljaskóla þegar
ÍR og Haukar áttust við í fjórðungsúr-
slitum bikarkeppninnar í handknatt-
Ieik. Haukar fóru með sigur af hólmi
í hörkuleik, 21-23, en staðan í leikhléi
var 10-8 ÍR ívil.
Haukar skoraðu þrjú iyrstu mörkin í
leiknum, áður en IR-ingar fundu leið-
ina í Haukamarkið. ÍR jafhaði 4- 4 og
eftir það var jafnt á flestum tölum. ÍR-
ingar áttu tvö síðustu mörkin í fyrri
hálfleik og voru því yfir, 10-8, í leik-
hléi.
Munurinn fór í þrjú mörk í upphafi
síðari hálfleiks, 11-8 og 12-9, en Ró-
bert Rafnsson fór þá á kostum í liði
ÍR, eftir daufan fyrri hálfleik. En fleiri
leikmenn tóku við sér, Tékkinn í liði
Hauka vaknaði heldur betur til lífsins
í síðari hálfleik og skoraði 6 mörk, en
hann gerði ekki mark í fyrri hálfleik.
Smám saman dró af ÍR- ingum,
Haukar jöfnuðu 13-13. Síðan var
jafnt, 14-14 og 15-15, en upp úr því
sigu Haukar fram úr og sigruðu með
tveggja marka mun, 21-23.
Varnarleikurinn var góður hjá
Haukum í þessum leik og það gerði
gæfumuninn á liðunum. Bamruk átti
stórleik í síðari hálfleik og Pétur Ingi
Arnarson átti einnig góðan leik.
Magnús Ámason, markvörður
Hauka, varði vel, eða 15 skot.
Knattspyrna:
Lineker sá
um Kamerún
Englendingar sigruðu Kamerún 2-0
í vináttulandsleik í knattspyrnu á
Wembley í gærkvöld að viðstöddum
rúmlega 61 þúsund áhorfendum.
Gary Lineker skoraði bæði mörk
Englendinga. það fyrra á 20. mín. og
það síðara úr vítaspyrnu á 61. mín.
Kamerúnmðaurinn Roger Milla
sem ferði garðinn frægan á HM á
Ítalíu í sumar, lék ekki með Kame-
rún í leiknum, þar sem hann fékk
ekki sérstaklega greitt fyrir að leika.
Milla er 38 ára gamall og dagar hans
með landsliðinu eru að öllum líkind-
um taldir.
Njáll líka meö tvö
Niall (Njáll) Quinn skoraði tvö mörk
fyrir íra sem unnu Wales í vináttu-
landsleik í Wrexham 0-3. Þriðja
Skotar töpuðu
Sovétmenn fóru með sigur af hólmi
í vináttulandsleik gegn Skotum í
Glagow í gærkvöld 0-1. Sigurmark
Sovétmanna gerði Dimitri Kouz-
netsov á 88. mín. BL
Hjá ÍR var Jóhann Ásgeirsson lang-
bestur, en Hallgrímur Jónasson í
markinu stóð fyrir sínu og varði 12
skot. Aðrir voru aðeins í meðallagi
eða slakir.
Góðir dómarar leiksins voru Rögn-
vald Erlingsson og Stefán Amaldsson.
Mörkin ÍR: Jóhann 9/3, Róbert 3, Ól-
afur 3/1, Guðmundur 2, Þorsteinn 1,
Magnús 1, Frosti 1 og Matthías 1.
Haukar: Pétur 7, Bamruk 6/1, Óskar
3, Snorri 3/1, Sigurjón 2, Sveinberg 1
og Steinar 1.
Bikarmeistararnir úr leik
Bikarmeistarar Vals féllu úr bikar-
keppninni í gærkvöld, en liðið tapaði
með 7 marka mun fyrir íslandsmeist-
urum FH í Kaplakrika, 32-25.
Markahæstir voru FH: Óskar Ár-
mannsson 8, Hálfdán Þórðarson 6,
Guðjón Ámason 5, Stefán Kristjáns-
son 5 og Pétur Petersen 5. Valur: Jak-
ob Sigurðsson 8 og Valdimar Gríms-
son 4.
Góður endasprettur Víkinga
Víkingar slógu KA-menn út úr bik-
arkeppninni nyrðra með því að keyra
yfir norðanmenn á síðustu 15 mín.
leiksins. Lokatölur voru 18- 26.
Markahæstur hjá KA var Hans Guð-
mundsson með 6 mörk, en Dagur
Jónasson skoraði 6 mörk fyrir Vík-
inga. BL