Tíminn - 15.02.1991, Blaðsíða 1
Sovésk stjórnvöld bregðast hart við stuöningi íslend-
inga viö lýðræöisþróunina í Eystrasaltsríkjunum:
KRASAVIN
KALLAH
r
Igor Krasavin sendiherra hefur verið
kallaður heim.
SOVET
Seint í fyrrakvöld var Ólafur Egilsson,
sendiherra íslands í Moskvu, kallaður
á fund aðstoðarutanríkisráðherra Sov-
étríkjanna þarsem honum voru afhent
mótmæli sovétstjómarinnar gegn
samþykkt Alþingis um að taka upp
stjórnmálasamband við Litháen svo
fljótt sem auðið væri. Jafnframt var Ól-
afi tilkynnt að sendiherra Sovétríkj-
anna á íslandi, Igor Krasavin, hafi ver-
ið kallaður heim til Moskvu til skrafs og
ráðagerða. Forsætisráðherra, utanrík-
isráðherra og formaður utanríkismála-
nefndar Alþingis eru sammála um að
þessi viðbrögð Sovétmanna komi á
óvart, en sendiherra íslands í Sovét-
ríkjunum hefur þegar veríð falið að
óska eftir viðræðum milli utanríkisráð-
herra landanna.
Blaðsíða 5
Sovéska sendiráðið (Reykjavtk.