Tíminn - 15.02.1991, Síða 4
4 Tíminn
Föstudagur 15. febrúar 1991
í ÚTLÖND
Aðalstjórnstöð íraska hersins:
Undir kjallara hótels
fréttamanna í Bagdad
íraski herinn hefur aöalstjómstöð sína undir kjallara Rashid-hótelsins í Bagdad, en á því hót-
eli gista nær allir útlendingar sem eftir eru í Bagdad, aðallega fréttamenn. Þetta sagði dagblað-
ið New York Times í gær.
Dagblaðið hafði fréttina eftir emb-
ættismönnum innan Bandaríkja-
hers. f henni kemur fram að þetta sé
eina samskiptastöðin sem enn er
heil og getur náð öruggu sambandi
við íraskar hersveitir. Símalínur
liggja frá stjórnstöðinni eftir tveim
brúm yfir ána Tígris sem liggur í
gegnum Bagdad. Bandamenn hafa
veigrað sér við að varpa sprengjum á
hótelið eða brýrnar af ótta við að
margir óbreyttir borgarar geti látið
lífið og það orðið til að skaða al-
menningsálitið.
Bandarískir embættismenn í Riy-
adh og Washington sögðu í viðtali
við blaðið að ef samband þessarar
stöðvar yrði rofið, yrði Saddam ír-
aksforseti að treysta á langbylgju-
sendingar til að hafa samband við
hersveitir sínar og það væri auðvelt
að hlera og jafnvel trufla. Þeir sögðu
að það mundi einnig leiða til þess að
írakar ættu erfiðara með að gera
Scudárásir á ísrael og auðveldara
yrði fyrir bandamenn að finna eld-
flaugapallana og eyða þeim.
Bandarískar sprengjuflugvélar hafa
þegar eyðilagt þrjár af þeim átta
brúm, sem lágu yfir Tígrisfljótið, og
um eina þeirra lágu símalínur frá
Rashid-hótelinu. Herinn hætti við
fyrirhugaðar áætlanir um að
sprengja hinar tvær vegna þrýstings
frá stjórnvöldum í Bandaríkjunum,
því þau óttast um líf óbreyttra borg-
ara.
í upphafi stríðsins munu írakar
hafa treyst á fjórar meginsamskipta-
stöðvar. Hinar þrjár voru sprengdar
á fyrstu þremur dögum stríðsins, að
sögn embættismannanna sem blað-
ið hafði fréttina eftir.
Stuttu eftir að fréttin birtist í New
York Times var farið með erlenda
fréttamenn niður í kjallara hótelsins
til að sýna fram á að fréttin væri ekki
sönn. Fréttamennirnir sögðust ekki
hafa séð neitt sem benti til að þarna
væri stjórnstöð írakshers, en þess
ber að geta að samkvæmt fréttinni í
N.Y. Times á hún að vera falin undir
kjallaranum.
írakar vara við gereyð-
ingarvopnum
Útvarpið í Bagdad sagði í gær að ír-
akar ættu eftir að koma á óvart og
valda gereyðingu og að aðeins
nokkrir dagar væru í lokasigur
þeirra.
„Eftir fjögurra vikna stórfelldar
loftárásir hafa leiðtogar árásar-
mannanna fyllst örvæntingu og
vonleysi," sagði útvarpið í Bagdad
þegar það íjallaði um árás banda-
manna á loftvarnabyrgið með þeim
afleiðingum að um hundrað
óbreyttir borgarar létust. Banda-
menn segja að byrgið hafi verið
stjórnstöð íraska hersins. Útvarpið
sagði að loftárásir bandamanna
hefðu einungis orðið til þess að
styrkja þjóðina og auka staðfestu
hennar. „... írak mun halda áfram að
koma með óvæntar aðgerðir... þeim
mun fjölga. Þetta verða gjöreyðandi
aðgerðir.“ „Við munum brátt láta til
skarar skríða. Aðeins nokkrir dagar
eru til lokasigurs," sagði útvarpið.
Sendifulltrúi íraks í Japan endur-
tók hótun fraka í gær um aö nota
efna- og sýklavopn. „Við megum
nota hvaða vopn sem er til aö verja
landið okkar," sagði hann.
Reuter-SÞJ
Stríöið hefúr komið hart niður á óbreyttum borgurum.
Rettarholdin yfir fru Mandela:
Frestað til sjötta mars
Dómarínn sem dæmir í máli VVinnie
Mandela, sem er ákærö fyrir mann-
rán og misþyrmingu fjögurra manna
fyrír tveimur árum, frestaði réttar-
höldunum í gær til sjötta mars til að
gefa lögreglunni tíma til að fínna eitt
af lykik’itnum ákæruvaldsins, sem
talið er að hafi veríð rænt.
Önnur tvö lykilvitni hafa ekki þorað
að vitna eftir að því þriðja var rænt og
geta þau átt yfir höfði sér allt að
tveggja ára fangelsisvist vegna þess.
Dómarinn sagðist ætla að bíða til
sjötta mars með að dæma í máli vitn-
anna tveggja sem neituðu að bera
vitni.
Þessi þrjú vitni eru meðal þeirra
fjögurra manna, sem frú Mandela
ásamt lífvörðum sínum er sökuð um
að hafa rænt og misþyrmt fyrir tveim-
ur árum. Fjórði maðurinn fannst lát-
inn skömmu síðar og var einn af líf-
vörðunum dæmdur til dauða á sein-
asta ári fyrir að myrða hann.
Maður, sem sagöist vera týnda
vitnið, hringdi til dagblaða í Suður-
Afríku í gær og sagðist hafa farið
sjálfviljugur til Zimbabwe. Hann
sagðist vilja bera vitni gegn frú
Mandela og lífvörðum hennar, en
ekki í Suður-Afríku, því þar óttaðist
hann um líf sitt.
Reuter-SÞJ
Troðningur í mexíkanskri kirkju:
Fjörutíu og tveir kafna
Reutermynd
Fjörutíu og tveir Mexíkanar, mest
konur og böm, létu lífið þegar
mannfjöldi reyndi að komast að
fomfrægrí helgimynd í kirkju í bæn-
um Chalma, sem er smábær um 50
km suðvestur af höfuðborginni
Mexíkó. Á öskudegi ár hvert fara
margir Mexíkanar til bæjaríns og
reyna að komast í snertingu við
myndina, en margir trúa því að hún
hafi lækningamátt. Talsmenn Rauða
krossins sögðu að 25 menn hefðu að
auki slasast.
Talsmaður kaþólsku kirkjunnar í
Mexíkó sagði að þetta væri hörmu-
legasti atburður, sem hefði átt sér
stað innan kaþólsku kirkjunnar í
Mexíkó á seinni tímum.
Mikill mannfjöldi hafði komið til
bæjarins í gær í þeim tilgangi að
nálgast myndina helgu. Ákafinn varð
svo mikill að troðningurinn varð að
„mannlegu flóði“, eins og einn sjón-
arvottur orðaði það. „Allir sem koma
hingað, koma í mikilli trú,“ sagði
umsjónarmaður kirkjunnar. „Það
sem gerðist verður ekki aftur tekið.
Þetta er vilji Drottins,“ bætti hann
við. Sjö menn létu lífið við svipaðar
aðstæður fyrir sjö árum síðan að
sögn bæjarbúa. Reuter-SÞJ
Frönsku Alparnir:
Níu láta lífið
í snjóflóði
Níu hollenskir skíðamenn létu lífið
í snjóflóði í suðurhluta Alpafjalla í
Frakklandi á miðvikudag, að sögn
lögreglunnar í gær.
Björgunarmenn voru margar klst.
að grafa líkin upp úr snjónum, en
atburðurinn átti sér stað í Queyras-
fjöllum nálægt ítölsku landamær-
unum. Hollendingamir skíðuðu
niður 2.500 metra hátt fjallið á
miðvikudag, þrátt fyrir þunga snjó-
komu undanfama daga og mikla
hættu á snjóflóðum.
„Þetta var óviturlegt hjá þeim.
Þetta var mjög afskekkt svæði,
þetta var mjög áhættusamt," sagði
forstöðumaður skíðaskálans þar
sem Hollendingamir höfðu aðset-
ur, en hann gerði björgunarmönn-
um og lögreglu viðvart þegar skíða-
mennirnir skiluðu sér ekki heim á
miðvikudagskvöldið.
Lögreglan útilokaði ekki þann
möguleika að jarðskjálfti hefði vald-
ið snjóflóðinu. Jarðskjálfti, sem
mældist 3.8 á Richter, varð á þessu
svæði um það leyti sem síðast sást
til Hollendinganna. Reuter-SÞJ
Fréttayfirlit
BAGDAD - Fyrstu fömariömb
árásar bandarískra flugvéla á loft-
vamabyrgiö I (rak voru jarösett f
gær. Snerist likfylgdin upp I mót-
mælagöngu gegn Bandaríkjunum.
Taliö var að um hundrað manns
hafi látiö llfið og fjölmargir særst.
NIKÓSÍA - frakar vöruðu banda-
menn við að þeir ættu eftir að
koma á óvart og valda gereyðingu
og aðeins nokkrir dagar væoi I
lokasigur.
HAFR AL-BATEN, Saudi-Ar-
abfu - (rakar skutu a.m.k. einni
Scudeldflaug á Hafr al-Baten, bæ f
norðurhluta Saudi-Arabfu. Ein-
hverjar skemmdir urðu og nokkrir
særðust. Fyrstu fréttir sögðu að
tveimur eldflaugum hefði verið
skotið.
TOKYO - Sovéski sendifulltrúinn,
Jevgeny Primakov, sem átti við-
ræður við Saddam f Bagdad, kem-
ur til Tokyo á föstudag og þar mun
hann eiga viðræður við japanska
leiðtoga. I Moskvu sagði utanrfkis-
ráðhenra Kúvæts að Primakov
hefði komið auga á möguleika,
sem gæti boriö árangur I friðarviö-
raeðum við stjómvöld f Bagdad.
GENF - Utanrfkisráðherra frans
sagði að sumir frösku flugmann-
anna, sem hefðu floglð frösku flug-
vélunum til Irans, hefðu beðið um
pólitlskt hæli I Iran. Hann sagöist
vera á leið til Moskvu til að ræða
um möguleika á að binda enda á
stríðlö.
JERÚSALEM - fsraelska lögregl-
an hefur mælt með að tveir ráð-
herrar f ríkisstjóminni verði ákærð-
ir fyrir fjármálasvlk, að sögn fsra-
elska útvarpsins.
JÓHANNESARBORG - Réttar-
höldunum yfir Winnie Mandeia,
sem sökuð er ásamt þremur líf-
vörðum sínum um að ræna og
misþyrma fjórum mönnum, var
frestað f gær til sjötta mars til að
gefa lögreglunni tlma til að finna
vitni, sem talið er að hafi verið
rænt. Reuter-SÞJ