Tíminn - 15.02.1991, Qupperneq 5

Tíminn - 15.02.1991, Qupperneq 5
Föstudagur 15. febrúar 1991 Tíminn 5 Sovésk stjórnvöld kalla sendiherra sinn á íslandi heim vegna Eystrasaltsmálsins: Kröftug mótmæli gegn afskiptum íslendinga í annað sinn á nokkrum dögum hafa stjóravöld í Sovétríkjunum mótmælt afskiptum íslendinga af málefnum Litháen. í fyrrakvöld var Ólafur Egilsson, sendiherra íslands í Sovétríkjunum, kallaður á fund aðstoðarutanríkisráðherra Sovétríkjanna og honum formlega afhent mótmæli sovétstjóraarínnar gegn ályktun Alþingis um að viðurkenna bærí svo fljótt sem verða mætti sjálfstæði Litháen. Jafn- framt var tilkynnt að sendiherra Sovétríkjanna á íslandi hafi veríð kallaður heim til Moskvu til að ráða ráðum sínum við yfirboðara sína og að hann yrði ekki sendur aftur til íslands fyrr en skýríngar íslenskra stjóravalda lægju fyrir. Það að tilkynna með þessum hætti að sendiherra einhvers ríkis hafi verið kallaður heim eru mjög ákveðin og alvarleg diplómatísk mótmæli og eftir því sem næst verður komist hefur ekkert erlent ríki beitt slíkum aðferðum hér á landi að fyrrabragði á lýðveldistfm- anum. Islendingar kölluðu þó sendiherra sinn í Bretlandi heim í þorskastríðunum og gengu raunar alla leið og slitu stjórnmálasam- bandi. Steingrímur Hermannsson sagði í samtali við Tímann í gær að sér kæmi á óvart að Sovétmenn skuli bregðast svo fljótt við. Hann sagðist ekki vilja gera því skóna að þessi viðbrögð sovéskra stjórnvalda séu fyrsta skrefið að því að þeir slíti við okkur stjórnmálasambandi. „Ég held að það sé full ástæða til að spyrja sig hvað Sovétmenn muni gera þegar og ef við tökum upp formlegt stjórnmálasamband við Litháen," sagði Steingrímur. Er ástæða fyrir okkur að endur- skoða okkar fýrri afstöðu til máls- ins? „Teningunum var kastað með sam- þykkt Alþingis. Menn verða náttúr- lega að meta hvenær er hægt að koma á stjórnmálasambandi við Lit- háen. Utanríkisráðherra er með málið í sínum höndum og hann hefur lagt áherslu á að ræða málið við utanríkisráðherra vestrænna ríkja. Með þessu er ætlunin að vinna Litháen gagn og það verður að mínu mati aðeins gert að aðrar þjóðir fylgi í kjölfarið. Að þessu máli verður að vinna innan þeirra sam- taka sem við störfum í. Það er mik- ilvægast í okkar aðstoð við Litháa," sagði forsætisráðherra. Jón Baldvin Hannibalsson, utan- ríkisráðherra sagði í gær að Ólafi Egilssyni sendiherra hafi þegar ver- ið falið að óska formlega eftir við- ræðum við sovésk stjórnvöld um málið, en tók fram að hann sæi þess engin merki í mótmælum Sovét- manna að von væri á að mótmæli þeirra gengju enn lengra en orðið er og slit á stjórnmálasambandi væri yfirvofandi. Jón bendir á að mótmæli Sovétmanna snúist um það að íslendingar hafi verið að blanda sér í sovésk innanríkismál, sem sé túlkum sem íslendingar séu ósammála. íslensku sjónarmiðin hafi margsinnis komið fram á al- þjóðlegum vettvangi og raunar hafi legið fyrir í sovéska utanríkisráðu- neytinu, áður en mótmæla Sovét- manna hafi komið til, óformleg beiðni um að viðræður um þennan skoðanaágreining stjórnvalda í Sov- étríkjunum og á íslandi um stöðu Eystrasaltsríkjanna. Hugmyndin að baki því að óska eftir slíkum fundi var að sögn Jón Baldvins sú að skýra sjónarmið og rökstuðning íslend- inga. Jóhann Einvarðsson, formaður ut- anríkismálanefndar Alþingis, sagði að þessi viðbrögð hefðu komið sér á óvart, einkum vegna þess að fyrir dyrum stóðu viðræður íslenskra og sovéskra stjórnvalda um Litháen- málið. Hann sagðist hafa talið að Sovétmenn myndu ekki grípa til að- gerða fyrr en eftir að þessar viðræður hefðu farið fram. Jóhann sagði að utanríkismálanefnd hefði að sjálfsögðu velt því fyrir sér hver viðbrögð Sovétmanna yrðu við þessari síðustu samþykkt Alþingis. Á blaðamannafundi í Moskvu í gær greindi talsmaður sovésku stjórnar- innar, Vitaly Churkin, frá mótmæl- unum og sagði m.a. við það tæki- færi: „Sovéska utanríkisráðuneytið harmar mjög óvinsamlegar aðgerð- ir fslendinga og bíður eftir að fá við- hlítandi skýringar á þeim.“ í mót- mælum Sovétmanna kemur fram að þeir telja samþykkt Alþingis af- skipti af innanríkismálum þeirra. Churkin lagði áherslu á að Litháen væri hluti af Sovétríkjunum. Igor Krasavin, sendiherra Sovét- ríkjanna á íslandi, fór til Moskvu í síðustu viku í reglulega heimsókn og var fyrirhugað að hann sneri aft- ur til íslands í þessari viku. -BG/EÓ Harður flögurra bíla árekstur varð á Reykjanesbrautinni undir Elliðaárbrúnni um hádegisbilið í gær. Þrír voru fiuttir á slysadeild, en voru ekki taldir mikið slasaðir. Áreksturínn varð með þeim hætti að bfll, sem var á vinstrí akrein, hugðist skipta um akrein til að komast upp á Miklubraut og upp Ártúnsbrekku. Bfll á hægrí akrein hægði á sér til að hleypa bílnum yfir og skipti þá engum togum að næsti bíll fýrír aftan ók á hann með þeim afieiðingum að fremsti bfllinn kastaðist á bflinn sem ætlaði upp Ártúnsbrekkuna. Fjórði bfllinn ók síðan aftan á alla kösina. Þá var ekið á gangandi vegfaranda við Auðarstræti seinni partinn í gær og var hann fluttur á slysadeild mikið slasaður. —SE Tfmamynd: Ami Bjama Alþingismenn ekki áhugalausir um umbótaviðleitni viðskiptalífsins: Nefndarmenn voru störfum hlaðnir Ummæli Herberts Guðmundssonar hjá Verslunarráði íslands íTímanum í gær, um áhugaleysi þingmanna á umbótaviðleitni viðskiptalífsins, vöktu ekki ánægju hjá nefndar- mönnum í fjárhags- og viðskipta- nefndum efri og neðri deildar. Ástæða ummælana er sú að fáir af þeim þingmönnum, sem var boðið, létu sjá sig á Viðskiptaþingi Verslun- arráðs, sem haldið var á miðvikudag- inn. Páll Pétursson, formaður fjárhags- og viðskiptadeildar neðri deildar, sagði að nefndinni hefði verið boðið á þingið, en það hefði borið upp á fastan fundartíma nefndarinnar. „Það var ekki af því að við höfðum ekki áhuga á þinginu sem við kom- um ekki, heidur vorum við störfum Hugmyndir um framboð Borgaraflokksins og ýmissa einstaklinga í vor: „Borgaraflokkurinn einn getur stofnað svona flokk“ „Þaö, sem viö erum að benda á, er að bjóöa fram í samstarfi viö ýmsa hópa undir merkjum frjáislyndra kjósenda," sagði Júlíus Sólnes, formaður Borgara- flokksins, um hugsanlegt framboð flokksins og ýmissa einstaklmga víða um land með sameiginlegum hætti. Júlíus segist vilja stuðla að myndun stórs, öfl- ugs, fijálslynds flokks sem yrði hægra megin við miðju. Hugmyndir um þetta hafa verið í gangi að undanfómu og þá um að bjóða fram í komandi alþingis- kosningum. Júlíus sagði að auk Borgaraflokksmanna tækju þátt í að vinna þessu verkefhi brautargengi einstaklingar víða um land. „Þeir hafa leitað eftir samstarfi við okkur og við við þá. Það eru ekki nein formleg samtök, utan Borgaraflokksins, sem taka þátt í þessu, heldur eru þetta einstakling- ar og skoðanabræður," sagði Júlíus. „Stofnun Borgaraflokksins var kannski bara fyrsta skrefið í átt að ffjálslyndum flokki, hægra megin við miðju. Næsta skref verður að bjóða öllum frjálslyndum kjósendum þátttöku. Síðan verður kannski eitthvert viðbótarskref stigið á næstunni með því að reyna að sameina þessar fylkingar undir öðru nafni. Ég tal- aði um að það geti tekið 2 til 3 kjörtíma- bil að koma þessu í kring,“ sagði Júlíus. Hann segist binda vonir við að svona flokkur geti tekið þriðjung af fylgi Sjálf- stæðisflokksins og dijúgan skerf að fylgi Framsóknarflokks og Alþýðuflokks. Nú segir DV að Borgaraflokkurinn eigi peninga og þess vegna getið þið boðið fjárvana flokkum og samtökum til svona samstarfs? „Það eru þeirra orð. Sannleikurinn er sá að Borgaraflokkurinn einn getur tekið að sér það hlutverk að stofna svona flokk. í þeirri aðstöðu, sem við erum í dag, erum við til dæmis með 2 ráðherra, 3 þing- menn og skrifstofur og starfsfólk úti um allt land. Það getur vel verið að eitthvert fólk trúi að 10 manna hópur komi saman á kaffihúsi og geti búið til stjómmála- flokk. Það má alveg trúa því. En mér þyk- ir það út í bláinn að einhverjir smáhópar ætli að fara að bjóða hér fram. Eftir kosn- ingamar 1987 stóðum við, 7 þingmenn, í þeim sporum að skulda tæpar 10 milljón- ir. Ef við hefðum ekki komist inn á þing, hlaðnir á Alþingi," sagði Páll. Hann ritaði Vilhjálmi Egilssyni, fram- kvæmdastjóra Verslunarráðs, bréf og skýrði honum frá að þeir gætu ekki þegið boðið og þakkaði honum fyrir áhugavert boð. Páll sagði að það hefði farið illa í suma nefndarmenn að vera borið það á brýn að hafa ekki áhuga á þessum málum. —SE hefðum við líklega orðið að selja húsin okkar. Menn geta hugleitt sérframboð á grundvelli þessa: hve dýrt þetta er,“ sagði Júlíus. Hann segist telja afar æskilegt ef aðeins verði um eitt framboð að ræða, fyrir utan fjórflokkana og Kvennalistann. Ef allir ætli að rjúka af stað með einhver framboð náist enginn árangur. „Staðreynd málsins er líka sú að fólk er orðið varfæmara en áður. Vorið 1987 voru þjóðfélagsaðstæður þannig að mikill uppgangur var í þjóðfé- laginu og menn miklu frekar tilbúnir að bregða á leik. Núna hefur fólk áhyggjur af afkomu sinni og mörgu fleiru og hugsar sig því um áður en það blandar sér í pólít- ík með mjög áberandi hætti." -sbs. bindindi? Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú sent út bréf tll þeirra flokka, sem bjóða munu fram í komandi al- þíngiskosningum, og lagt tii að flokkarnir auglýsi ekki f ijósvaka- fjölmiðlum fyrir kosningamar. „Við höfðum forgöngu um svona samkomulag fyrir síöustu sveitar- stjómarkosningar og ætlum með þessu að kanna hvort áhugi væri á að gera samskonar samkomulag aftur,“ sagði Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjáifstæðis- flokksins. „Okkur myndi ekki þykja gefast vel ef að kosnlngabar- áttan myndi fara að færast inn í sjónvarpsaugiýsingar. Við teljum aö flokkamir hafi ekki fjárhags- legt bolmagn til að gera slðct með sæmilegum hætti, öðruvisi en að stofna sér í stórkoslegan fjárhags- vanda.“ Eins segist Kjartan tcfja að stutt sé í að settar verði elnhveijar regl- ur um auglýsingar, sem segja murú til um mnihald þeirra og fjölda. Takmarki þessar reglur mjög svigrúm til að auglýsa á ijós- vakanum. „Þá tefjum við miklu heppilegra að menn komi sér saman um að nota ekki þennan vettvang,“ bætti hann við. Talsmenn hinna flokkanna, sem Tíminn ræddi við, sögðu að erindi Sjálfstæðisflokksins væri í skoð- nn. -sbs.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.