Tíminn - 21.02.1991, Blaðsíða 4

Tíminn - 21.02.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn Fimmtúdagur 21. febrúar 1991 Nú stefnir allt I aö landhemaður hefjist innan örfárra daga. Hér „sjást" læknar í liði bandamanna æfa sig í búningum sem eiga að verja þá fyrír eit- urefríum. Friðsamleg lausn ekki líkleg: LANDBARDAGAR YFIRVOFANDI Líkur á að friðaráætlun Sovétmanna nái fram að ganga minnkuðu allverulega í gær. írakar hétu því að berjast áfram og Sovétmenn fengu ekkert svar frá þeim við friðartillögunum. Talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, Vitaly Churkin, sagði að ekki hefðu veríð sett nein tímamörk á svar íraka. í opinberrí til- kynningu frá íröskum stjórnvöldum í gær kom fram að bandamenn undir forystu Bandaríkjamanna hefðu hafnað öllum fríðartilraun- um þeirra. Bandarísk og bresk stjórnvöld hafa lýst yfír að þau geti ekki sætt sig við þær tillögur sem Sovétmenn hafa lagt fyrir íraka, þar sem þær uppfylli ekki kröfur Öryggisráðsins og segjast munu halda bardögum áfram. Norman Schwarzkopf, hershöfðingi í Bandaríkjaher, sagðist í viðtali við Los Angeles Times halda að allur kraftur væri farinn úr íraska hem- um. Hann sagði að írakar misstu um hundrað skriðdreka á dag eða tvö herfylki og það gæti enginn her hald- ið það út. Fréttamenn, sem eru í fremstu víg- línu í Saudi-Arabíu, sögðu í gær að bandarískir herflokkar héldu uppi stöðugum skærum á íraska herinn. Þeir sögðu ennfremur að bandarískir landgönguliðar hefðu sótt fram og komið sér upp bækistöð á svæði sem var áður undir yfirráðum íraka. Hátt- settur bandarískur hershöfðingi staðfesti þetta og sagði að þeir hefðu sótt eitthvað fram. í gær vom gerðar harðar loftárásir á Bagdad og á tímabili féllu sprengjur þar með fimm mínútna millibili. Annars einbeitti flugherinn sér að flugvöllum, Lýðveldishernum (sér- þjálfuðum sveitum á landamærum Iraks og Kúvæts) og íröskum sveit- um sem eru við landamæri Saudi-Ar- abíu. Tom Kelly, háttsettur lautinant í her Bandaríkjamanna, sagði í gær að landherinn væri tilbúinn og biði bara eftir skipun um að sækja fram. „Ef kemur til bardaga munum við sigra íraka á skömmum tíma,“ sagði Kelly. ítalir styðja tillögur Sovétmanna Talsmaður Giulio Andreotti, utan- ríkisráðherra Ítalíu, sagði í gær að tillögur Sovétmanna, sem gerðu ráð fyrir að írakar hæfu brottför sína frá Kúvæt einum degi eftir umsamið vopnahlé og tryggðu að ekki yrði á þá ráðist, væru í fullu samræmi við samþykkt Öryggisráðsins. Hann sagði að ítalska stjórnin styddi tillög- ur Sovétmanna, andstætt stjórnum Bandaríkjanna og Bretlands. Aðstoðarforsætisráðherra íraks, Sa- adoun Hammadi, fór í óvænta opin- bera heimsókn til Kína seint á þriðju- dag til viðræðna við þarlend stjórn- völd um Persaflóastríðið. Li Peng, forsætisráðherra Kína, átti viðræður við Hammadi. Að sögn Nýja Kína, op- inberrar fréttastofu í Kína, þá hvatti Peng til að írakar færu tafarlaust með her sinn frá Kúvæt. íraski að- stoðarforsætisráðherrann sneri aftur til íraks í gær. Reuter-SÞJ Fréttayfirlit BAGDAD - (rakar sögðu I gær að bandamenn undir forystu Bandarfkjamanna hefðu hafnað öllum friðartilraunum þeirra. Þeir sögöu ekkert um hvort og þá hvenær þeir hygðust svara frið- artillögum Sovétmanna. I Moskvu sagði talsmaður sov- éskra stjórnvalda að enginn tfmi hefði verið ákveöinn á endur- komu Tareq Aziz, utanrfkisráð- herra íraks, til Moskvu, en búist var við að hann færði Moskvu- stjórninni svar Saddams við frið- artillögum hennar. NIKÓSÍA/RIYADH - Irakar sögðust hafa fellt marga land- gönguliða bandamanna þegar bandamenn gerðu skærur á þá, en bandamenn segjast ekki hafa misst neinn, en eyðilagt varöstöð fraka f írak og nokkur brynvarin farartæki. LONDON - Bretar svörnðu frið- artillögum Sovótmanna og sögðu að þær uppfylltu ekki kröf- ur Óryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna og hemaðaraðgerðir myndu halda áfram. LOS ANGELES - Norman Schwarzkopf, hershöfðingi í Bandaríkjaher, sagðist halda að íraski herinn væri búinn að vera. MOSKVA - Leiðtogar Riddar- anna, óopinberrar þjóðvarðliða- hreyfingar f Georgíu f Sovétríkj- unum, segja að tveir meðlimif samtakanna og einn prestur hafi látið Iffið f árás sovéska hersins á eina af bækistöðvum þeirra á mánudag. VÍN - Yfir 7Q0 albanskir stúdent- ar eru nú í hungurverkfalli og krefjast þess að fyrrverandi harð- stjóri landsins, Enver Hoxha, verði ekki kenndur við eina há- skóla landsins. Stúdentamir veltu risastórri styttu af kommún- istaleiðtoganum af staili sfnum í miðborg Tirana f gær. PARÍS - Frönsk lögreglukona var skotin til bana í París í gær. Þetta er f fyrsta sinn sem lög- reglukona er myrt f Frakkfandl síðan konum var leyft að ganga f lögregluna árið 1975. Engin sjá- anleg ástæða var fyrir verknaðin- um. Starfsfélagi hennar, sem var karimaður, særðist f árásinni. Þau vom að fylgjast með hrað- akstri. Reuter-SÞJ GATT-viðræðurn- ar hefjast að nýju Evrópubandalagiö setti í gær fram nýjar tillögur um aö draga úr vemdun landbúnaðarafurða sinna gagnvart landbúnaöarvör- um annarra þjóöa. Aöilar komust aö samkomulagi um aö heija viö- ræðumar aö nýju á grundvelli þessara tillagna og er búist við að GATT-viðræöurnar hefjist form- lega næsta þríðjudag. I þessum nýju tillögum skuldbindur EB sig formiega til að komast að sam- komulagi við hin aðildarríkin um að draga úr vemdun eigin land- búnaðar á þremur sviðum, þ.e. draga úr innflutningstollum og styrkjum til innaniands- og út- flutningsframieiðsiu. Bandaríkjamenn vildu ekki hefja viðræður á öðmm sviðum við- skipta fyrr en einhver viðræðu- gmndvöllur værí fundinn í iand- búnaðarmálunum. Nú telja þeir að þessi gmndvöliur sé fundinn. „Ég heid að nú sjáum við í fyrsta skipti fram á einhvem árangur í landbúnaðarviðræðunum,“ sagði einn af fulitrúum Bandaríkja- manna. Fleirí fulltrúar utan EB tóku í sama streng og Iögðu áherslu á formlegar skuidbind- ingar EB. Fulltrúar EB sÖgðust ekki halda að þeir hefðu gert einhverja stóra breytingu á tillögum sínum. Þessar tillögur væm í gmndvall- aratriðum eins og þær sem þeir settu fram í desember í Briissel. Reuter-SÞJ Holland: Hryðjuverkamenn IRA dregnir fyrir rétt Réttarhöld yfír fjórum meintum hryðjuverkamönnum IRA hófust í Hollandi í gær. Þeir em ákærðir fyrir morð á tveimur áströlskum ferðamönnum í júní í fyrra. Þetta munu verða ein stærstu réttarhöld, sem hafa veríð haldin á meginland- inu yflr hryðjuverkamönnum IRA. Gífurieg öryggisgæsla er vegna réttarhaldanna. Áströlsku ferðamennirnir, Stephen Melrose og Nick Spanos, voru drepnir í hollenska bænum Roerm- ond í júní í fyrra. írski lýðveldisher- inn (IRA) lýsti sig ábyrgan fyrir verknaðinum, en baðst afsökunar, því samtökin héldu að þeir væru breskir hermenn í sumarfríi. Saksóknarinn sagði að fjórmenn- ingarnir, Paul Hughes 27 ára, Sean Hick 30 ára, Gerard Harte 27 ára og Donna Maguire 24 ára, væru öll ákærð fyrir morð eða aðild að morði og fyrir að vera meðlimir ólöglegra samtaka. Öryggisgæsla við réttarhöldin er mikil. Ekið var með sakborningana til dómhússins í gær í skotheldum bifreiðum og bundið var fyrir augu þeirra. Um 150 lögreglumenn mynduðu varðhring kringum svæð- ið og leitað var á öllum sem fóru inn FINNLAND STYRKIR EGYPTALAND Finnar hafa ákveðið að breyta 78 milljóna dollara skuld Egypta í styrk tii að hjálpa þeim að komast yfir tapið, sem þeir hafa orðið fyrir vegna Persa- flóastríðsins. Finnska sendiráðið í Kairó til- kynnti þetta í gær. Tálsmaður sendiráðsins sagði að þeim lánum, sem Finnar hafa veitt Egyptum á síðastliðnum áratug, og vöxtum sem hefðu komið á þau, yrði breytt í styrki. Hann sagði að ákvörðun finnsku stjórnarinnar næði til 1. janúar 1991. Þetta munu vera um 78 milljónir dollara. Þá sagði talsmaður- inn að finnska stjórnin hefði einnig ákveðið að leggja 85 milljónir dollara næstu fjögur árin í styrk til þróunarverkefna í Egyptalandi. Egyptar, sem eru mikilvægir aðilar fjölþjóða- hersins í Saudi-Arabíu, hafa orðið illa úti fjárhags- lega í þessari deilu. Bandaríkjamenn hafa þegar breytt 7 milljarða skuld Egypta í styrk og nokkur ríki við Persaflóa hafa afskrifað skuldir af svipaðri upphæð. Reuter-SÞJ í dómhúsið. Eiginkona Melroses og unnusta Spanos voru með þeim þegar þeir voru skotnir. Þær hafa þegar borið vitni, en munu ekki koma fýrir rétt- inn. Búist er við að réttarhöldin standi yfir í fjórar vikur. Hollenska lögreglan, sem hefur unnið að þessu máli með lögregl- unni í Belgíu, Þýskalandi, Bretlandi og írlandi, telur að fjórmenningarn- ir tilheyri deild innan IRA sem sé ábyrg fyrir fjölmörgum öðrum hryðjuverkum á meginlandinu. Lögreglan handtók fjórmenningana stuttu eftir verknaðinn, eða í júní á síðasta ári. Yfirvöld í Þýskalandi hafa óskað eftir að Hick, Hughes og Maguire verði framseld, en þau eru grunuð um hryðjuverk í Þýskalandi. Roermond er lítill bær nálægt þýsku landamærunum. Hann er mjög vinsæll ferðabær meðal breskra hermanna. IRA myrti einn breskan hermann og særði tvo í þessum bæ árið 1988. Reuter-SÞJ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.