Tíminn - 21.02.1991, Blaðsíða 19

Tíminn - 21.02.1991, Blaðsíða 19
Tíminn 19 Fimmtudagur21. febrúar 1991 Bikarkeppnin í handknattleik: Hafnarfjarðarliðin fengu slæma útreið Víkingur og ÍBV leika til úrslita í bikarkeppninni 2. mars Birgir Sigurösson skorar eitt marka sinna í gærkvöld framhjá Þorláki Kjartanssyni, markveröi Hauka. Birgir hefur átt viö meiösl aö stríða að undanfömu, en þaö var ekki á honum aö sjá í gær- kVÖId. Tlmamynd Áml Bjama EM U-21 árs: Spánverjar sigruðu Frakka Frakkar biðu lægri hlut á heima- velli í fyrrakvöld er þeir mættu Spánverjum í Evrópukeppni 21 árs landsliða í Tours. Manjarih skoraði sigurmark Spánverja í 1-0 sigri þeirra. Tékkar eru efstir í riðlinum með 6 stig úr 3 leikjum, Spán- verjar hafa 6 stig úr 4 leikjum, Frakkar 3 stig úr 4 leikjum, AI- banir 2 stig úr 3 leikjum og ís- lendingar hafa 1 stig úr 4 leikj- um. í sömu keppni unnu Portúgalir Möltubúa 2-0 í fyrrakvöld. Portú- galir hafa góða stöðu í efsta sæti síns riðils með 7 stig úr 4 leikj- um. BL Vináttulandsleikur: Nýtt lió Argentínu lék vel gegn Rúmenum Argentínska landsliðið, með að- eins 3 leikmenn eftir úr liðinu sem tapaði 0-1 fynr V-Þjóðverjum í úr- slitaleik HM í knattspymu á Ítalíu sL sumar, lék vel gegn Rúmenum í vináttulandsleik í Argentmu í fyrrakvöld og sigraði 2-0. Góð markvarsla rúmenska mark- varðarins Solt Petry, kom í veg fyr- ir að heimamenn skoruðu fyrr en á 38. mín. að miðvallarleikmaðurinn Dario Franco skallaði í markið eftir aukaspymu Davids Biscontis af 40 metra færi. Þegar tvær mínútur voru liðnar af síðari hálfleik bætti Antonio Mohamed öðru marki við eftir góða sendingu frá Diego La- torre. Þjálfari argentínska liðsins, Alfio Basile, sem er eftirmaður Carlos Bilardos, sagði eftir leikinn: „Strák- amir léku eins og þeir hefðu alltaf verið í landsliðinu. En það er enn mikil vinna fyrir höndum." BL Deildarmeistarar Víkinga bökkuðu hreinlega yfir Hauka og spóluðu, er liðin léku til undanúrslita í bikar- keppninni í handknattleik í Hafnar- firði í gærkvöld. Víkingar tóku leik- inn í sínar hendur þegar í upphafi og unnu stóran sigur 21-32. Varnarleikur Hauka gekk engan veginn upp í gærkvöld. Þeir léku mjög framarlega og reyndu að stöðva skyttur Víkinga. Víkingar nýttu sér eyðurnar sem mynduðust í vörninni og prjónuðu sig hvað eftir annað í gegn og skoruðu. Hæðargarðsdreng- irnir náðu þegar 4 marka forystu í upphafi leiksins 4-8 og voru 8 mörk- um yfir í leikhléi 9-17. í upphafi síð- ari hálfleiks náðu Víkingar 11 marka forystu 9-20, en eftir það slökuðu þeir á og Haukar náðu að komast hjá algjörri niðurlægingu. Lokatölur vom 21-32. Vamarleikur Víkinga var sterkur. Hilmar Sigurgíslason tók Petr Bamr- uk úr umferð með góðum árangri. Bamruk skoraði 2 mörk í leiknum, það fyrra um miðjan síðari hálfleik. Mótlætið fór í skapið á Tékkanum, sem greinilega var ekki sáttur við dómgæsluna í leiknum. Leikurinn var mjög harður og til merkis um Enska knattspyrnan: Enn jafntefli! Everton og Liverpool verða að mæt- ast í þriðja sinn í 5. umferð ensku bikarkeppninnar. í gærkvöld skildu liðin jöfn á Goodison Park 4-4 í framlengdum leik. Mörkin. Everton: Sharp 46. mín. og 73. mín. Cottee á 89. mín. og 114. mín. Liverpool: Beardsley 32. mín. og 71. mín. Rush 77. mín og Barnes 102 mín. Það lið, sem sigrar að lokum, mæt- ir West Ham í fjórðungsúrslitum. í 2. deild sigraði Brighton Leicest- er 3-0 í gærkvöld. BL það var skyrta Birgis Sigurðssonar, línumanns Víkinga, gauðrifin eftir leikinn. Ráð væri fyrir Birgi að leika í skotheldu vesti í næsta leik. Ekki veitir af, lætin eru svo mikil í kring- um hann. Leikurinn var fjörugur, en munur- inn á getu liðanna var of mikill og spenna því engin. Haukar gerðu ara- grúa mistaka meðan Víkingar léku eins og þeir sem valdið hafa. Allt Vík- ingsliðið lék glimrandi vel og ekki er hægt að taka neinn leikmann út úr. Hjá Haukum var fátt um fína drætti, en skástir í slöku liði voru þeir Óskar Sigurðsson og Sveinberg Gíslason. Mörkin Haukar: Óskar 5, Sveinberg 5, Sigurjón 3, Steinar 2, Bamruk 2, Sigurður 2, Snorri 1/1, og Pétur 1. Víkingur: TVufan 8/1, Árni 6/3, Karl 5, Birgir 4, Bjarki 3, Dagur 2, Björgvin 2, Hilmar 1 og Ingimundur 1. Enska knattspyrnan: Markvörður WBA í eplakasti Mel Recs, markvörður enska 2. deildarliösins West Bromwich Albion, hefur verið kærður til knattspymusambandsins og lögreglunnar fyrir að henda epli í áhorfanda á þriðjudags- kvöldið þegar WBA tapaði 2-3 fyrir Middlesbrough. Stuart Pearson, starfandi framkvæmdastjóri WBA, segir að Rees hafi hent eplinu upp í stúku eftir að því hafði verið fleygt inn á völlinn. En áhorf- andi varð fyrir eplinu og kærði markvörðinn. Rees færði Midd- lesbrough sigurinn er hann fór með boltann inn fyrir marklín- una þremur mínútum fyrir leikslok. Úrslitin í 2. deild í fyrrakvöld: Middlesbrough-WBA ......3-2 Swindon-Sheffield Wednesday .2-1 ÍBV í úrslit í fyrsta sinn Vestmannaeyingar sigruðu FH-inga 29-25 í hinum leik undanúrslitanna í Eyjum í gærkvöld. Staðan í leikhléi var 14-13 ÍBVívil. Þar með er Ijóst að Víkingar og Vest- mannaeyingar leika til úrslita í bikar- keppni HSÍ 2. mars nk. ÍBV leikur þá sinn fyrsta bikarúrslitaleik í hand- knattleik. BL Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu: Frakkar með góða stöðu eftir 3-1 sigur á Spánverjum Frakkar unnu Spánverja 3-1 í 1. riðli undankeppni Evrópumóts landsliða í knattspymu í París í gærkvöld. Frakkar hafa þar með tekið afgerandi forystu í riðlinum. Hetja Frakka í gær var Jean- Pierre Papin sem skoraði stórkostlegt mark úr vonlausri aðstöðu á 58. mín. Þá var staðan 1-1 eftir að Jose Maria Bakero Franck hafði komið Spánverjum yfir á 11. mín. og Franck Sauzee jafnað fyrir Frakka á 15. mín. Síðasta markið í leiknum gerði síðan Laurent Blant fyrir Frakka á 77. mín. Frakkar eru nú svo til öruggir um að komast í úrslit keppninnar, sem fram fara í Svíþjóð á næsta ári. Staðan í 1. riðli er nú þessi: Frakkland....4 4 0 0 8-3 8 Spánn........4 2 0 2 14-7 4 Tékkóslóvakía ..3 2 0 1 5-4 4 ísland...... 4 1 0 3 4-5 2 Albanía......3 0 0 3 0-12 0 Næsti leikur verður 26. maí, en þá mætast Albanía og ísland ytra. BL Tennis: Björn Borg leikur gegn Jimmy Connors Eins og skýrt hefur verið frá í fjölmiðlum hefur sænski tennis- leikarinn Björa Borg ákveðið að hefja keppni á ný eftir 8 ára fjar- vem frá stórmótum. Borg æfir nú af kappi og í apríl nk. mun hann leika tvo sýningarleiki gegn fyrrum keppinaut sínum, Bandaríkjamanninum Jimmy Connors. Fyrri leikurinn verður í London og sá síðari í Mflanó. Björn Borg, sem er aðeins 34 ára gamall, tekur þátt í sínu fyrsta stórmóti síðar í mars. Það er Opna Monte Carlo mótið sem hefst 22. aprfl. BL Hjólreiðar: „Hætti keppni um leið og ég tel mig ekki geta unnið siguríTour de France" Fremsti hjólreiðakappi Frakka, Laurent Fignon, segir að um leið og hann telji sig ekki geta sigrað í Tour de France keppn- inni, muni hann hætta keppni. Fignon, sem er 30 ára, sigraði í keppninni 1983 og 1984. „Frammistaða mín síðustu ár hefur takmarkast af meiðslum sem hafa hrjáð mig. Ef ég hef heppnina með mér get ég ekki séð annað en ég geti endurtekið leikinn frá 1983 og 1984. í keppninni 1989 tapaði Fignon fyrir Greg Lemond frá Bandaríkj- unum og aðeins munaði 8 sek- úndum á þeim í lokin. Nýlega sagði Lemond í viðtali að hann væri mjög bjartsýnn á að hann sigraði í keppninni í ár. Þessi mesta hjólreiðakeppni árs- ins er mjög umtöluð þessa dag- ana þegar keppnistímabil hjól- reiðamanna er að hefjast, en keppnin er ekki á dagskrá fyrr en íjúlí. BL NBA-deildin: Sixers-sigur á Seattle í framlengdum leik Það var hart barist í NBA- deild- inni í fyrrínótt og fá stig skildu Iiðin að þegar upp var staðið. Framlengingu þurfti til aö fá fram úrslit í leik Philadelphia 76ers og Seattle Supersonics í Spectrum höllinni, en Barkley og félagar fögnuðu sigri að lok- um. Úrslitin urðu sem hér segir: NY Knicks-Atlanta Hawks .......102-110 NJ Nets-Sacramento Kings........97- 83 Philadelphia-Seattle Supers....107-104 Charlotte Homets-Indiana......102-115 Chicago Bulls-Washington......118-113 Milwaukee Bucks-Miami Heat.....116- 90 Houston Rockets-LA Lakers.....103-112 Phoenix Suns-Boston Celtics ...109-105 Portland TVail Blazers-Dallas.107-100 BL Körfuknattleikur: Haukar-KR í kvöld í kvöld er einn leikur á dagskrá f deildinni. Haukar og KR eig- ast við í íþróttahúsinu við Strandgötu kl. 20.00. Haukar verða að sigra í leiknum til að halda í vonina um sæti í úr- slitakeppninni, en KR-ingar geta tryggt sér sætið með sigri. Staðan í úrvalsdeildinni í körfuknattleik: A-riðill: Njarðvík ... 22 18 4 2096-1677 36 KR ....... 22 14 8 1850-1769 28 Haukar ... 22 11 11 1859-1869 22 Snæfell ...22 5 14 1711-1952 10 ÍR ........21 4 17 1699-1968 8 B-riðill: Keflavík .... 22 16 6 2172-2021 32 Tindastóll . 23 15 8 2162-2072 30 Grindavík. 23 16 7 1977-1877 30 Valur.....23 7 16 1896-1216 14 Þór .......22 5 17 2077-2118 10 BL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.