Tíminn - 21.02.1991, Side 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 21. febrúar 1991
l W-m IVIINNINU
Guðríður Guðlaugsdóttir
Fædd 16. apríl 1912
Dáin 13. febrúar 1991
Yndisleg móðursystir er látin.
Glaðvær, kímin og uppörvandi,
sama á hverju gekk. Undir lokin var
heilsan þorrin og hún lést á Land-
spítalanum eftir skamma legu.
Dúa, eins og hún var alltaf kölluð,
fæddist í hjarta Suðurlands, að Götu
í Holtum, og svo var kalt að mamma
hennar tjaldaði yfir vögguna, hrímið
var svo mikið í baðstofunni. Dúa var
tvíburi og tók Ijósmóðirin Ágústa
hana með sér og sagði bændahöfð-
inginn Sigurjón í Raftholti, sonur
Ágústu, að hann liti alltaf á Dúu sem
systur sína.
Ársgömul flutti hún með foreldr-
um sínum, Guðríði Eyjólfsdóttur og
Guðlaugi Þórðarsyni, að Vatnsnesi í
Grímsnesi, þar sem hún ólst upp
fram að fermingu. Þá keyptu for-
eldrar hennar Tryggvaskála á Sel-
fossi og var flutt í Skálann 1925. Á
Selfossi og voru þá fimm hús og
reisti pabbi Dúu það sjötta, Ingólf,
sem stendur við Eyrarveg 1.
Ævintýrið mikla var að byrja, Sel-
foss var að rísa úr öskustónni og allt
tengdist það Tryggvaskála meira eða
minna. Fólkið borðaði þar, skemmti
sér þar og hélt þar til. Fjöldi opin-
berra stofnana byrjaði rekstur sinn í
einhverju horninu á Skálanum.
Plássið sjálft var líka sem ein fjöl-
skylda, húsin spruttu upp, sem og
atvinnufyrirtækin. Mjólkurbúið,
Kaupfélagið, Sláturfélagið, bygging-
arfyrirtæki, verslanir og þjónustu-
stofnanir. Allir áttu leið um Skál-
ann, þar sem Dúa vann og kynntist
þessu öllu. Tugir ungra stúlkna
hvaðanæva að unnu með Dúu og oft
var glatt á Hjalla. Svo komu ungu
mennirnir og slegið var upp balli.
Rómantíkin blómstraði.
Dúa fór í húsmæðraskóla, það var
mikill áfangi og æ síðan unni Dúa
menntun og fræðum. Þótti mjög
gaman að tungumálum og sjálfsagt
hefur það hjálpað þegar breski her-
inn gekk hér á land og Árborgar-
svæðið breyttist nánast í alþjóða-
flugvöll.
Dúa var þá gift Daníel Bergmann
bakarameistara, en yngri systir
hennar Bryndís var gift Grími Thor-
arensen, syni Egils í Sigtúnum.
Var nú hafist handa í samvinnu við
Kaupfélag Árnesinga og bakað bein-
línis fyrir allt Suðurland. Dúa tók á
honum stóra sínum, því Danni var
afburðamaður að dugnaði og hæfi-
leikum. Eiginkonan unga stóð þá
dag og nótt við hlið mannsins síns
við bakaraofninn. Danni var líka
mikill söngmaður og unni leiklist.
Er mér það í barnsminni þegar
pabbi og hann tóku lagið saman,
báðir karlakórsbassar í Karlakór
Reykjavíkur og Fóstbræðrum.
I stríðinu hófst mikil sumarbú-
staðaalda í landinu. Föðurbróðir
minn hafði keypt land við Álftavatn í
Grímsnesi í Þrastarskógi. Pabbi fékk
nú hálfan hektara af þessu landi og
reisti þar sumarbústað með svila
sínum Magnúsi H. Magnússyni.
Skömmu seinna komu Dúa og
Danni og reistu sér bústað þarna hjá
ásamt fleiri vinum. Þetta voru mikil
hamingjuár. Synir Dúu og Danna,
Grétar og Guðlaugur, fóru fyrir
miklum herskara krakka og frænda-
liðs. Farið var um allan skóg, buslað
í vatninu og mjólkurpósturinn frá
Miðengi notaður til útreiða. Svo
sannarlega voru Æsir á Iðavelli og
síðan stungið ofan í bala á kvöldin.
Bakaríið á Selfossi var selt, Dúa og
Danni fluttu til Reykjavíkur og
keypt var bakarí á Nesveginum og
seinna Tjarnarbakarí. Hlutirnir voru
stundum erfiðir, þungur rekstur og
hjónabandið gliðnaði. Dúa missti þó
aldrei móðinn, enda stóðu synir
hennar með henni sem klettar. Hún
elskaði þá út af lífinu.
Aftur fór að birta til. Dúa sneri sér
að vinnumarkaðinum og Gulli
stofnaði Karnabæ. Átti tugi versl-
ana, saumastofu og innflutningsfyr-
irtæki. Grétar gerðist hugsjónamað-
ur fyrir SÁÁ. Það var yndislegt að sjá
hvað þeir voru góðir móður sinni,
enda hafði hún fórnað þeim öllu og
tók nú þátt í velgengni þeirra af lífi
og sál. Mamma mín fylgdist líka allt-
af með, enda tvíburasystir. Svo lentu
þær saman í Hátúninu. Önnur
mjaðmarbrotin, hin með sjúk lungu
og hjarta. Þær fylgdust hvor með
annarri, tóku þátt í lífi hvorrar ann-
arrar, nákvæmlega eins og þær
höfðu alltaf gert. Stundum fannst
manni að það hlyti að vera eitthvað
undursamíegt við það að vera tví-
buri. Amma átti tvenna tvíbura og
svo var elsta systir. Allar lifðu þær
sínu eigin lífi, en líka lífi hinna.
Systur eru ef til vill bara svona. Ein-
drægnin algjör.
Dúa laðaði alla að sér og öllum
þótti vænt um hana. Stundum átti
hún sínar erfiðu stundir, en oft var
hún líka mjög hamingjusöm. Þá
geislaði hún af hamingju og gleði.
Hún var vinamörg og með afbrigð-
um trygglynd.
Algóður Guð taki hana að hjarta sér
og styrki synina í mikilli sorg,
tengdadæturnar, barnabörnin og
barnabarnabörnin. Nú hrímar ekki
lengur á hana Dúu mína.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka i
Roykjavik 15. til 22. febrúar er i Ðreiðhoits-
apótekl og Apóteki Austurbæjar. Þaó apótek
sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna frá kl.
22.00 að kvöldi til kl. 9.00 að mongni virka daga
en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um
læknis- og lyfjaþjónustu eru gefnar I
sfma1SS88.
Neyðarvakt Tannlæknafélags fslands
er starfrækt um helgar og á stórhátiðum. Sim-
svari 681041.
Hafnarfjörðun Hafnarfjarðar apófek og Norður-
bæjar apótek eru opin á virkum dögum frá kl.
9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laugar-
dag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar i simsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartlma búða. Apó-
tekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið I þvl apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
slma 22445.
Apótek Keffavíkur Opið virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna fri-
daga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Oplð virka daga frá kl.
8.00-18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Setfoss: Selfoss apótek eropið til kl. 18.30. Op-
ið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-
12.00.
Akranes: Apótek bæjaríns er opið virka daga til
kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabær Apótekið er opið rúmhelga daga kl.
Læknavakt fyrir Reykjavfk, Settjamames og
Kópavog er I Heilsuverndarstöð Reykjavíkur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög-
um og helgidögum allan sólarhrínginn.
Á Settjamamesi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaöá
sunnudögum.
Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og timapantan-
ir I síma 21230. BorgaspftSinn vaktfrá kl 08-17
alla virka daga fyrir fölk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (slmi
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (simi 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúðirog læknaþjónustu erugefnar I slmsvara
18888.
Ónæmisaögerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt
' *f;; ' BÓKMENNTIR
Wí-./Sv: .. ./ . í IW Bm K B«i 1^1 ■ ■ ■ «
fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur á
þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmissklrteini.
Vaxandi höfundur
Mette Nygaard nefnist norskur
höfúndur sem sendi frá sér sína
fyrstu bók árið 1988. Var það bókin
„Hvílíkt nunnulíf", sem út kom á
forlaginu Adventura, sem síðan hef-
ur gefið bækur hennar út. Næsta
bók kom svo 1989 og nefnist hún
„Maðurinn án ári“. Nýjasta bókin er
„Shamrock hraðlestin", 1990.
Metta Nygaard er læknir og sál-
fræðingur að mennt og vinnur sem
geðlæknir. Hún er frá Bærum og
gerðist kaþólsk er hún var um tví-
tugt í læknisnámi, en hún er fædd
1935. Skömmu síðar tók hún þá ör-
lagaríku ákvörðun að gerast nunna.
Það gefur því auga leið að hún
skrifar um það sem hún þekkir af
eigin raun er hún skrifaði bókina
„Hvílíkt nunnulíf". Hún fann sér
klaustur á írlandi, Medical Mission-
aies of Mary, eða MMM eins og regl-
an nefnist, var í stöðugum vexti og
þarfnaðist einmitt fólks eins og
hennar. En þrautagangan varð of
erfið og hún hætti að starfa sem
nunna og fór í framhaldsnám og
starfar nú á norsku sjúkrahúsi.
Hún hefur hins vegar ekki skipt um
trú á ný, þrátt fyrir erfiðleikana. Á
Gaustad í Oslí starfar hún sem sál-
arlækni, eins og einn gagnrýnand-
inn sagði um hana. Bók hennar
vakti mikla athygli og jafnvel svo að
sumir gagnrýnendur sögðu: „Meg-
um við fá meira að heyra." Ekki
hefur staðið á því og hver bókin er
annarri betri. Maðurinn án áru er
saga manns sem hefur drepið ann-
an mann. Hann berst í gegnum erf-
itt líf án áru og mest hvílir á honum
hvernig honum leið í seinni heims-
styrjöldinni, í Finnlandi og Norður-
Noregi. Það er svo ekki fyrr en í ell-
inni að hann leitar svara við spurn-
ingum sínum hvort tveggja með
því að segja frá fortíðinni og tengja
hana lífinu sem hann lifir í Noregi
1980. Hann hafði alltaf verið einn,
aðrir voru honum ekki raunveru-
legir.
Síðasta bók hennar fjallar um
prest sem lagður er inn á sjúkrahús
systra á írlandi, svo að enn er hún á
Mette Nygaard.
þekktum slóðum. Sagt er að hann
hafi lent í slysi á reiðhjóli. Hvers
vegna er hann þá með skotsár á
fæti? Það er ein af þessum gömlu
athugulu systrum, systir Olga, sem
fær ekki dæmið til að ganga upp.
Þrátt fyrir samviskubit út af for-
vitni sinni heldur hún áfram að
grennslast fyrir um eitt og annað.
Hún veit að IRA er mjög sterkur í
nágrenningu, á jafnvel vini innan
sjúkrahússveggjanna. Þarna lýsir
hún á mjög raunsannan hátt bar-
áttu systurinnar. Baráttu fólksins í
nágrenninu, þar sem IRA-menn
eru í augum þess hetjur en jafn-
framt slær samviskan illa þegar
valdi er beitt. Má segja að þarna sé
hún í essinu sínu, þar sem hún lýs-
ir sálarstríðinu og jafnframt óvæg-
inni hörku hermdarverkamann-
anna. Þá er stíll hennar og frásögn
með afbrigðum góð. Hafa sumir
sem um hana hafa skrifað sagt að
ljóst sé að hún hafi verið fæddur
rithöfundur en hvorki læknir né
nunna.
í fáum orðum má segja að Metta
takist alveg einstaklega vel að sam-
eina starf og reynslu geðlæknisins
og rithöfundarins í bókum sínum.
Sigurður H. Þorsteinsson.
SeHjamames: Opið er hjá Tannlæknastofunni
Eiðistorgi 15 virka daga kl. 08.00-17.00 og 20.00-
21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Simi 612070.
Garðabær Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, simi 656066. Læknavakt er I
síma 51100.
Hafnarfjöröun Heilsugæsla Hafnarfjaröar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, simi 53722. Læknavakt simi 51100.
Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Slmi 40400.
Keflavflc Neyðarþjónusta er allan sólartiringinn á
Heilsugæslustöð Suðumesja. Slmi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sál-
fræðilegum efnum. Slmi 687075.
Landspftallnn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til
kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild. Alla daga vikunnar kl. 15-
16. Heimsóknartimi fyrir feður kl. 19.30-20.30.
Bamaspftali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga.
Öldrunaríækningadoild Landspítalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotssprtall: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30
til 19.00. Bamadeild 16-17. Heimsóknartimi
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg-
arspitalinn I Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 til 19.30ogeftirsamkomulagi. Álaug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafriarbúðir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvíta-
bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavlkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspftalí: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16ogkl. 18.30 tilkl. 19.30.
- Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa-
vogshæiið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vifflsstaðasprtall: Heimsóknar-
tlmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St
Jósepsspftali Hafnarfiröi: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30.
ÚR VIÐSKIPTALÍFINU
- í öörum gír eða þriðja?
EMU
Á fundi stjórnarleiðtoga að-
ildarlanda Efnahagsbanda-
lags Evrópu í Róm í desem-
ber 1990 var sett upp nefnd
(í orði kveðnu ráðstefna) til
að fjalla um tilhögun annars
áfanga í efnahagslegri og
peningalegri samfellingu
(Economic and Monetary
Union, EMU) aðildarlanda.
Og er vænst, að hún hafí
gengið frá tillögum sínum í
haust. Annar áfanginn er
eins konar millistig á milli
núverandi stöðu, fyrsta
áfanga, og þriðja áfanga, —
sem hefjast skal 1994 að
ályktun Evrópuráðsins í
Róm í október 1990, — er
upp verði tekinn sameigin-
legur gjaldmiðill aðildar-
landa og evrópskur seðla-
banki taki að fullu við hlut-
verki sínu.
Fyrir nefnd þessa eða ráð-
stefnu hafa verið lagðar
tvær tillögur. Önnur þeirra
er frá framkvæmdastjórn
EBE (þótt ekki njóti ein-
róma stuðnings hennar), en
hin er frá bresku ríkisstjórn-
inni. Að hinni fyrrnefndu
skal evrópskur seölabanki
hefja störf á öðrum áfanga
og koma á vaxandi sam-
vinnu á milli seðlabanka að-
ildarlanda; undirbúin skal
upptaka hins sameiginlega
gjaldmiðils og unnið að
samfellingu peningamála
aðildarlanda; og frá fram-
kvæmdastjórninni skulu
koma ábendingar um efna-
hagslega stefnumörkun,
sem aðildarlönd geti þó
hafnað. í bresku tillögunum
er alls ekki vikið að þriðja
áfanga, en lagt til, að þegar
verði upp tekinn sameigin-
legur gjaldmiðill („hard
ecu“), sem gangi í aðildar-
löndum ásamt gjaldmiðlum
þeirra, en komi ekki í þeirra
stað. Gjaldmiðil þennan skal
Evrópski peningasjóðurinn
gefa út og láta í skiptum fyr-
ir gjaldmiðla aðildarlanda.
Þessar bresku tillögur hafa
nær engar undirtektir hlot-
ið, þótt Frökkum og Spán-
verjum Iítist vel á notkun
slíks gjaldmiðils á öðrum
áfanganum.
Aftur á móti eru sammæli
um, að á þriðja áfanga verði
á vegum EBE reglulega
samdar skýrslur um efna-
hag aðildarlanda ásamt til-
mælum um stefnumótun,
þótt ekki um, hve langt þau
skuli ganga. Þýskaland og
Holland vilja jafnvel, að
sektuð verði aðildarlönd,
sem hafni EBE- tilmælum
um minnkun fjárlagahalla
síns, en önnur aðildarlönd
vísa því á bug. Þótt framlög
EBE til byggðamála skuli
endurskoðuð 1992, vilja
Spánn, Portúgal, írland og
Grikkland setja ákvæði um
aukningu þeirra upp í tillög-
ur nefndarinnar, en önnur
aðildarlönd hafa lagst gegn
því.
Sunnuhlíð hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavíkuriæknishéraðs og heilsu-
gæslustöövar: Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Slmi 14000. Keflavfk-sjúkrahúslð: Heim-
sóknartimi virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgarog á hátíðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-
19.30. Akureyri- sjúkrahúsið: Heimsóknartimi
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á
barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1:
Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusimi frá kl.
22.00- 8.00, simi 22209. Sjúkrahús Akraness:
Heimsóknartlmi Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavík: Seltjamames: Lögreglan simi
611166, slökkvilið og sjúkrabifreið slmi 11100.
Kópavogun Lögreglan simi 41200, slökkvillö
og sjúkrabifreið simi 11100.
Hafnarfjorður Lögreglan sími 51166, slökkvilið
og sjúkrabifreið sfmi 51100.
Keflavik: Lögreglan slmi 15500, slökkvilið og
sjúkrabill simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjar Lögreglan, simi 11666,
slökkvilið simi 12222 og sjúkrahúsið simi
11955.
Akureyri: Lögreglan slmar 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 22222.
Isaflörtur: Lögreglan slmi 4222, slökkvilið slmi
3300, brunasimi og sjúkrabifreið simi 3333.