Tíminn - 21.02.1991, Qupperneq 18
18 Tíminn
Fimmtudagur 21. febrúar 1991
ÚR VIÐSKIPTALÍFINU
Markaður hlutabréfa:
ENSKILDA-SKÝRSLAN
Ráðgjafar frá Enskilda Securities
tóku 1988 saman skýrslu um ís-
lenskan hlutabréfamarkað ásamt
fulltrúum frá Iðnþróunarsjóði og
Seðlabanka íslands. Á eftir fara
kaflar úr skýrslunni.
„Þegar við byrjuðum á athugun-
um okkar, gerðum við ráð fýrir því,
að þær mundu fyrst og fremst bein-
ast að viðskiptakerfi og reglum
Verðbréfaþings íslands. Við kom-
umst fljótlega að því, að ... hin lága
velta á þinginu átti sér dýpri orsak-
ir heldur en reglurnar sjálfar og
umhverfi þeirra. Hér á eftir fer út-
dráttur af aðalþáttunum, sem við
teljum, að hafi hindrað þróun á
virkum hlutabréfamarkaði á ís-
landi..." (Bls. 1)
„Bein fjárfesting í atvinnulífinu
gegnum hlutabréfamarkað mundi
verða til að veita atvinnulífinu
meira aðhald og gera það hag-
kvæmara í rekstri auk þess sem
raunhæfari markaðsaga yrði beitt
við val fjárfestinga... Með því að
setja lagaramma utan um núver-
andi markað verður hægt að sjá til
þess, að hann þróist og vaxi á heil-
brigðan hátt ... Með því að beina
öllum viðskiptum í opinberlega
skráðum hlutabréfum á einn mark-
að, mundi vera mögulegt að liðka
markaðinn og að auðvelda kaup og
sölu hlutabréfa. — Virkur innlend-
ur markaður ásamt traustum regl-
um um hann, myndi líklega leiða
til nýrrar fjármagnsuppsprettu."
(Bls. 2)
Eftirspurn
„Á íslandi hafa einstaklingar mun
minna skattalegt hagræði af því að
festa fé í hlutabréfum en skulda-
bréfum. Þótt fjárfesting í hlutabréf-
um í ákveðnum félögum sé frá-
dráttarhæf frá skatti að vissu marki
og arður einnig ... er tekjuskattur
samt lagður á söluhagnað. Þá er
hlutabréfaeign einnig eignaskatt-
skyld sé hún umfram tiltekna fjár-
hæð. Skuldabréf eru á hinn bóginn
skattfrjáls að öllu leyti nema að
skuldabréf önnur en ríkisskulda-
bréf eru eignaskattskyld." (Bls. 3)
„... flestir fjárfestar eiga skuldabréf
sín til gjalddaga fremur en að
breyta samsetningu á skuldabréfa-
eign sinni með hliðsjón af mark-
aðsaðstæðum. Núverandi skulda-
bréfamarkaður er fyrst og fremst
markaður fyrir ný skuldabréf og
viðskipti á eftirmarkaði eru mjög
lítil ... eru skuldabréf, sem gefa af
sér milli 8-14% (skattfrjálst) í
raunvexti skiljanlega miklu meira
aðlaðandi en hlutabréf... hugtakið
um að safna hagnaði (eða tapi)
gegnum breytingar á stofnvirði hef-
ur ekki átt miklum vinsældum að
fagna á íslandi... jafnvel í dag er að-
eins auglýst verð á hlutabréfum níu
stórra fyrirtækja. Minnihlutahlut-
hafar hafa þess vegna í raun verið
lokaðir inni í fyrirtækjum í fjöl-
skyldueigu." (Bls. 3)
„Lífeyrissjóðirnir ráða yfir um
50% af fé því, sem stendur til boöa
til fjárfestingar á íslandi. Þeir eru í
rauninni skyldaðir til að fjárfesta
55% af sjóðsinnstreymi sínu í
Byggingarsjóði ríkisins... Flestir ...
mega ekki samkvæmt reglugerðum
sínum fjárfesta í hlutabréfum ...
eru ríkisskuldabréf meirihlutinn af
verðbréfamarkaðinum og eru þau
auglýst sem öruggasta leiðin til að
fjárfesta peninga."
(Bls. 4)
Framboð
„Fyrirtæki hafa ... fram að þessu
verið treg til að gefa út hlutabréf,
þar eð: Flest fyrirtæki... eru einka-
fýrirtæki í eigu fjölskyldna ...
Stærri fyrirtæki... eru undir stjórn
smárra hópa ... þrátt fyrir hátt
hlutfall skulda gagnvart eigin fé, þá
hefur ekki reynst erfitt að fá lán ...
Það, að enginn virkur hlutabréfa-
markaður er til, hefur torveldað
fýrirtækjum að virða hlutabréf sín
og því er mikil hætta á, að hluta-
bréfaútgáfa sé ranglega verðlögð."
(Bls. 4)1
Skráning verðbréfa
„Meirihluti núverandi skulda-
bréfaútgefenda telur skráningu
skuldabréfa á Verðbréfaþinginu
ekki mikils virði. Margar útgáfur
eru því ekki skráðar á þinginu ...
stór hluti af þeim viðskiptum, sem
nú eiga sér stað á eftirmarkaði, fara
fram utan þings nema þau sem
Seðlabankinn stundar..." (Bls. 5)
Hlutabréfamarkaður
á íslandi
Ráðgjafar Enskilda Securities og
starfsmenn Iðnþróunarsjóðs og
Seðlabankans drógu saman tillögur
s.ínar í stuttu máli:
„Lífeyrissjóðirnir ráða yfir u.þ.b.
50% af því fé, sem fýrir hendi er til
fjárfestingar í verðbréfum á íslandi.
Því er virk þátttaka þeirra á hluta-
bréfamarkaðnum óhjákvæmilegur
hluti af þróun hans... Samkvæmt
frumvarpsdrögunum yrði lífeyris-
sjóði heimilt að fjárfesta allt að 5%
af árlegu greiðsluflæði sínu í hluta-
bréfum. Við ... erum þó þeirrar
skoðunar, að lífeyrissjóðum ætti að
vera heimilt að fjárfesta allt að 25%
af árlegu greiðsluflæði sínu í hluta-
bréfum. — Hvetja ætti stjórnir líf-
eyrissjóða til að framselja vald sitt
til almennra verðbréfaviðskipta-
ákvarðana í hendur hæfra starfs-
manna, sem annast daglega fram-
kvæmdastjórn þeirra."
„Við teljum það vera til hagsbóta
að skrá verðbréfasjóði á verðbréfa-
þinginu. Hægt er að höndla með
hlutdeildarbréf sjóðanna á sama
hátt og hlutabréf..."
„Okkur hefur verið tjáð, að skatt-
lagning tekna af skuldabréfum
væri ólíkleg á næstunni, og því
höfum við gert ráð fýrir ... að
skattameðferð verði jöfnuð með
því að veita frekari ívilnanir á tekj-
ur af fjárfestingu í hlutabréfum ...
Við höfum lagt til ákveðin mörk
fýrir skattundanþágur ... eftir að
hafa litið yfír þau mörk, er tíðkast
annars staðar í Evrópu ... Undan-
þiggja ætti skattlagningu sölu-
hagnaðar frá tekjuskatti hjá ein-
staklingum upp að árlegu hámarki,
er nemur 400.000 kr. (11.000 doll-
urum)... Til að hvetja einstaklinga
til fjárfestingar í ákveðnum einka-
fýrirtækjum leggjum við til... „við-
skiptahvatningu" („business exp-
ansion scheme“) ... fjárfesting án
áhrifa („arm’s- length" invest-
ment“) í fyrirtækinu yrði frádrátt-
arbær frá skatti að hámarki 1 millj-
ón króna (28.000 dollara) á ein-
stakling á ári... Við teljum, að út-
gáfa jöfnunarhlutabréfa sé tíma-
frek og ónauðsynleg... frádráttar-
hæfni arðgreiðslna verði aukin í
15% af nafnvirði hlutabréfa... Sá
arður, sem Ieyfður er skattfrjáls hjá
einstaklingum, ætti að hækka í
150.000 kr. (4.200 dollara) eða 15%
af nafnvirði slíkra fjárfestinga,
hvort sem lægra yrði... Stimpil-
gjald er nú 2% á útgáfu nýrra
hlutabréfa. Við leggjum til, að
stimpilgjaldið verði lækkað í 1/2%
... undanþága vegna hlutabréfa frá
eignaskatti ætti að vera aukin í 2
millj. kr. (56.000 dollara) ... þeir,
sem ekki eru heimilisfastir hér á
landi, verði algjörlega undanþegnir
eignaskatti ... þegar markaðurinn
er kominn vel á skrið, teljum við,
að leggja mætti á veltuskatt, er
nemi 0,5% á innlend verðbréfavið-
skipti..."
„Við teljum það mikilvægt að
hvetja til aukins áhuga hjá erlend-
um fjárfestum... Þeir, sem ekki eru
heimilisfastir á íslandi, geta nú í
raun ekki átt meira en 50% af
hlutafé í ákveðnum íslenskum fýr-
irtækjum ... til viðbótar hafa mörg
fyrirtæki frekari takmarkanir í
samþykktum sínum, sem útheimta
samþykki stjórnar fyrir sölu hluta-
bréfa til útlendra fjárfesta ... Er-
lend eignaraðild í slíkum fýrirtækj-
um ætti frekar að vera takmörkuð
við ákveðið hlutfall atkvæða eða
hlutabréfa, eins og nú er alls staðar
á Norðurlöndum ... Sá möguleiki
að gefa út hlutabréf með takmörk-
uðum atkvæðisrétti er þegar fyrir
hendi í íslenskum lögum og ...
hvetja (á) fyrirtæki til að nota sér
þessi ákvæði." (Bls. 5-11)
J6n Helgason
Guðnl Ágústsson
Unnur Stefánsddttír
Reykjanes
Skrífstofa Kjördæmlssambandsins aö Hamraborg 5, Kópavogi, er opin
mánudaga til fimmtudaga kl. 17-19. Sími 43222.
K.F.R.
Kópavogur
Opiö hús aö Hamraborg 5 alla laugardaga kl. 10-12. Heitt á könnunni.
Fulltrúaráðið
Hraungerðishreppur -
Sandvíkurhreppur
Ártegur stjórnmálafundur að
Þingborg fimmtudaginn 21. febrúar kl. 21.00
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Síminn er 22547.
Norðuriand vestra
Skrífstofa Einherja, kjördæmisblaðs framsóknarmanna, hefur veriö flutt frá
Sauöárkróki á heimili ritstjóra aö Ökrum I Fljótum.
Hægt er að ná I ritstjóra alla daga I slma 96-71060 og 96-71054.
K.F.N.V.
Keflavík - Opin skrifstofa
Félagsheimili framsóknarmanna aö Hafnargötu 62 er opiö alla virka daga
milli kl. 17 og 18.
Starfsmaður framsóknarfélaganna, Guöbjörg, verður á staðnum.
Siml 92-11070.
Framsóknarfélögin.
Félagar eru hvattírtíl að lita inn.
KS.F.S.
Konur-
Námskeið - LFK
Námskeið vegna undirbúnings kosninganna veröur haldið dagana 20., 26.,
febrúar og 5. mars aö Hafnarstræti 20 kl. 20.30-22.30.
Nánari uppl. hjá Þórunni I sima 91-624480.
Framkvæmdastjóm LFK
Kópavogur
Skrifstofa Framsóknarfélaganna I Kópavogi er opin á mánudags- og miö-
vikudagsmorgnum kl. 9-12. Slmi 41590.
Sljóm fulltrúaráðs
Framkvæmda-
stjómarfundur SUF
veröur haldinn 25. febnjar aö Hafnarstræti 20, 3. hæö, kl. 20.00.
Félagsvist
Spiluö veröur félagsvist aö Eyrarvegi 15, Selfossi, þriöjudagskvöldin 19.
febr., 26. febr. og 5. mars kl. 20.30.
Kvöldverölaun — Heildarverölaun.
Fjölmennum.
Framsóknarfélag Selfoss
Noröuriandskjördæmi
eystra
Skrifstofa Kjördæmissambands framsóknarmanna I Noröuriandskjördæmi
eystra veröur opin alla virka daga frá 11. febrúar nk., kl. 16-18, aö Hafnar-
stræti 90, Akureyri, sími 21180.
Létt spjail á laugardegi
Ný stefna
í landbúnaðarmálum
Laugardaginn 23. febrúar kl. 10.30 veröur haldinn fundur I húsnæði Fram-
sóknarflokksins að Hafnarstræti 20, III. hæð, um nýja stefnu I landbúnaö-
armálum.
Á fundlnn mæta fulltrúar sjömannanefndarínnar.
B-listlnn I ReykjavUc
Ungir framsókn-
armenn
Félagsmálanámskelö verður haldið á Blfröst dag-
ana 22.-24. febrúar.
Leiðbelnandl veröur Egill Helöar Gislason.
Ungir framsóknarmenn á listum fyrir komandi al-
þingiskosningar eru sérstaklega hvattir til aö mæta.
Skráning fer fram á skrifstofu flokksins eöa I síma
624480.
_______________________________SUF
Kópavogur
Fundur I Bæjarmálaráöi fimmtudaginn 21. febrúar kl. 20.30 að
Hamraborg 5.
Nefndarmenn beönir aö mæta. __, ,
Stjomin
Egill Heiöar
Aðalfundur Framsóknarfé-
lags Sauðárkróks
verður haldinn fimmtudag 21. febrúar kl. 20.30 að Suöurgötu 3.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning Bæjarmálaráös.
3. Önnurmál. _ ,, ,,, _ .,,
Framsoknarfelag Sauðarkmks
Framsóknarfólk Sauðár-
króki og Skagafirði
Framvegis veröur skrifstofan ( Framsóknarhúsinu opin á laugardags-
morgnum milli kl. 10-12.
Komiö og takiö þátt I undirbúningi kosninganna. Kaffi á könnunni.
Framsóknarfélag Sauðárkróks.
MUNIÐ
að skila tilkynningum í flokks-starfið íímanlega -
þ.e. fýrir kl. 4 daginn fyrir útkomudag.
Borgnesingar —
Nærsveitir
Spiluð veröur félagsvist I Félagsbæ föstudaginn 22. febrúar kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Borgamess.
Varafonmaður SUF.