Tíminn - 28.02.1991, Qupperneq 4
4 Tíminn Fimmtudagur 28. febrúar 1991
Irakar fallast á fleiri
skilyrði Öryggisráðsins
Verða að fallast á þau ölI, segja bandamenn
írakar komu með nýjar friðartillögur
í gær. Þeir sögðust vilja hlíta álykt-
unum Öryggisráðs Sþ. númer 662
og 674 auk áiyktunar númer 660
sem þeir höfðu áður samþykkt. Þeir
sögðust ætla að sleppa öllum stríðs-
fongum ef vopnahlé yrði komið á.
Þeir sögðu að þeir gætu ekki gengið
að hinum ályktununum og sérstak-
lega ekki þeim sem settu viðskipta-
bann á írak. Útvarpið í Bagdad sagði
að ákvörðunin um þessar nýju tillög-
ur hefði verið tekin á fundi Bylting-
arráðsins á þriðjudag. Bandamenn
sögðust ekki geta samþykkt þessar
friðartillögur þar sem þær tækju
ekki til allra ályktana Ötyggisráðs-
ins.
Ályktun Öryggisráðsins númer 662
kveður á um að innlimun Kúvæts í
írak sé marklaus og ályktunin númer
674 segir að írakar séu samkvæmt al-
þjóðalögum lagalega ábyrgir fyrir
hvers konar eigna- eða manntjóni
sem þeir valdi, þ.e. þeir þurfi að
greiða stríðsskaðabætur.
„Þeir ganga ekki enn að öllum 12
ályktunum Sameinuðu þjóðanna,"
sagði háttsettur embættismaður hjá
bandaríska vamarmálaráðuneytinu
sem vildi ekki láta nafns síns getið.
Hann sagði að bandamenn gætu ekki
afiétt viðskiptabanninu.
Níu breskir landgönguliðar létu líf-
ið í gær þegar flugmaður bandarískr-
ar orrustuþotu taldi þá vera íraska
hermenn og skaut á þá. Flugvélin
sem skaut á Bretana er af gerðinni A-
10 og hönnuð til að sprengja skrið-
dreka.
Bandamenn hafa umkringt þann
hluta írakshers sem enn er eftir í Kú-
væt og suðurhluta íraks og í gær ein-
beittu herir bandamanna sér að úr-
valssveitum írakshers, Lýðveldis-
hernum, en ógn annarra hersveita er
lítil.
Það sem eftir er af 150 þúsund
manna Lýðveldisher íraka er í suður-
hluta íraks. Hann skiptist í átta her-
deildir en um 500 bandarískir skrið-
Stríðiö heldur áfram þar til Saddam Hussein fellst á að hlíta öllum ályktunum Öryggisráðsins.
drekar gerðu árásir á þrjár þeirra í
gær. Lýðveldisherinn kemst ekkert
frekar til fraks en aðrar hersveitir ír-
aka. Bandamenn hafa eyðilagt allar
brýr yfir ána Efrat og skurðinn Shatt
al- Arab í austri og bandarískar og
franskar hersveitir loka undankomu-
leiðinni í vestri. Failhlífahermenn
bandamanna lentu nálægt írösku
borginni Nassiriya norðvestur af
Basra en aðalflóttaleið íraskra her-
manna liggur um borgina.
Bandamenn náðu fullum yfirráðum
yfir Kúvætborg í gær við mikinn
fögnuð borgarbúa. Tveggja daga
skriðdrekabardögum milli banda-
rískra og íraskra landgönguliða um
flugvöll borgarinnar lauk í gær með
sigri þeirra bandarísku. Að sögn
bandaríska varnarmálaráðuneytisins
þá eyðilögðu bandarísku sveitirnar
um 100 íraska skriðdreka í bardög-
unum. Iðnaðarmenn eru þegar byrj-
aðir að laga til í borginni. Sendiherra
Breta í Kúvæt hélt til Kúvæts í gær
og ætlar að opna sendiráðið í Kúvæt-
borg í dag. Andspymuhreyfmgin sem
starfaði í Kúvætborg tóku um 4.000
íraska hermenn til fanga.
Reuter-SÞJ
Fréttayfirlit
Kúvætborg - Kúvæskir her-
menn tóku völdin í Kúvætborg (
gær og fögnuðu með borgarbú-
um sem hafa mátt þola miklar
þjáningar af völdum íraskra her-
manna. Andspymuhreyfingin í
Kúvæt sagðist hafa tekið 4 þús-
und (raska hermenn til fanga.
Bandarískir hermenn náðu flug-
vellinum í borginni eför að hafa
eyðilagt um hundrað íraska skríð-
dreka að sögn bandaríska vam-
armálaraðuneytisins.
Bagdad - írakar sögðu í gær aö
fallhlífahenmenn bandamanna
heföu lent i borginni Nassiriya,
sem er norövestur af borginni
Basra, til þess að loka helstu
flóttaleið íraskra hermanna frá
Kúvættil íraks.
Riyadh - Iraskar herdeildir
streymdu fra Kúvæt til borgarinn-
ar Basra í frak svo hálfgert öng-
þveiti skapaðist Bandamenn
héldu áfram árásum á herdeild-
imar vegna þess að þær voru
vopnaðar og bandamenn sögð-
ust ekki vílja hætfa eigin öryggi.
En bandamenn sögðust mundu
hætta árasunum um leið og
írösku hermermimirafvopnuðust
París - Háttsettur franskur hers-
höfðingi sagði að sjö bandarískir
og tveir franskir hermenn hefðu
látið líflð þegar þeir hertóku
íraska bækistöð. Talsmaður
breskra heryflrvalda sagði að tíu
breskir hermenn hefðu látið Irflð
og sex særst í átökum síðan
landbardagamir hófust á sunnu-
dag.
Riyadh - Bandarískir hermenn
hafa fúndiö mikið magn af írösk-
um efnavopnum í Kúvæt en eng-
ar fréttir hafa boríst um að (raskir
hermenn hafi beitt slíkum vopn-
um. Heryfirvöld bandamanna
telja að skemmdir á fiarskiptabún-
aði irakhers, sem loftárásir und-
anfama 38 daga hafa ollið, eigi
mikinn þátt i að þeim hafl ekki
verið beitt
París - Francoís Mitterand fórseti
Frakklands sagði f gær að það
Sti ekki orðið vopnahlé fýrr en
tar gengju að öllum samþykkt-
um Örygglsráðs Sþ. Hann útilok-
aði að bandamenn myndu sækja
fram til Baghdad.
Ankara - Tyrkir styðja þá kröfu
bandamanna að frakar gangi að
ödum samþykktum Öryggisráðs-
ins til að vopnahlé geti oröið.
London - John Major forsætis-
ráðherra Bretlands sagði í gær að
það væri ekki f áfbrmum banda-
manna að hertaka svæði í irak né
lima landið í sundur.
Bagdad - Það mun taka a.m.k.
eitt ár að koma rafmagnsveitu
Bagdadborgar í fullt lag, að sögn
írasks verkfræðings, en sprengjur
bandamanna hafa unnið mikið
tjón á henni.
Kaupmannahöfh - Leiðtogar
Eystrasaltslýðveldanna hvöttu til
að haldin yrði alþjóðleg ráðstefría
tn að þrýsta á kröfur þeirra um
sjáifstæði.
Dhaka - Fyrstu frjálsu kosning-
amar í Bangladesh (tuttuga ára
sögu landsins vom haldnar í gær.
Óvenjulega margar konur tóku
þátt í kosningunum. Reuter-SÞJ
Enginn vill kaupa Wartburg.
Austur-Þýskaland:
Kraftmeiri bflar
fleiri dauðaslys
Dauðaslysum í Austur-Þýskalandi
fjölgaði 'um 75% á síðasta ári og á
sama tíma hafa þau ekki verið færri í
Vestur-Þýskalandi síðan árið 1953, að
sögn samgöngumálaráðherra Þýska-
lands, Guenther Krause. Aðalorsökin
fyrir þessari fjölgun í Austur-Þýska-
landi er talin vera sú að Austur-Þjóð-
verjar eigi nú mun kraftmeiri bíla en
fyrir sameiningu ríkjanna og vegimir
eru jafnslæmir og áður.
Gífurleg sala varð á notuðum vest-
rænum bílum til Austur- Þýskalands
eftir að Berlínarmúrinn féll haustið
1989 og þá sérstaklega vestur-þýsk-
um s.s. Bens og BMW sem eru mun
kraftmeiri og hraðskreiðari en aust-
ur-þýsku bílamir.
Krause sagði að Austur-Þjóðverjar
vildu sýna að þeir ættu kraftmikla bfla
og kynnu að aka þeim. Kraftmiklir
bflar þurfa góða vegi og vegakerfið í
Vestur-Þýskalandi er með því betra
sem gerist í heiminum en það sama
er ekki hægt að segja um vegakerfið í
Austur-Þýskalandi. Reuter-SÞJ