Tíminn - 28.02.1991, Qupperneq 17

Tíminn - 28.02.1991, Qupperneq 17
Fimmtudagur 28. febrúar 1991 Tíminn 17 Við í Prentsmiðjunni Eddu hönnum, setjum og prentum allar gerðir eyðublaða fVrir tölvuvinnslu. Við höfum einnig úrval af tölvupappír á Iager. Reynið viðskiptín. Smíðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000 BÍLALEIGA AKUREYRAR Traustír hlekkir í sveiganíegri keðju hringinn í kringum lundið JMhtleiga meö útibú altt i kriiigtim landift, gera þér tnuguíegf að leigja bíl á finum stað og skila lionum á öðruiii, Nvjustu MITSUBISHÍ bílarnir alliaf til taks Revkjavik: 91-686915 Akurevri: 96-21715 Borgarnes: 93-71618 ísafjorður: 94-3574 Biömluós: 95-24350 Sauöárkrókur: 95-35828 Egiisstaöir: 97-11623 Vopnafjöröur: 97-31145 Höln i Hornaf.: 97-81303 ÓDÝRIR HKLCARPAKKAR Okeypis HÖNNUN auglýsingar ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í Tímanum AUGLÝSINGASÍMl 680001 VETRARHJÓLBARÐAR Nýir fólksbílahjólbarðar HANKOOK frá Kóreu Gæðahjólbarðar á mjög lágu verði frá kr. 3.180,- Örugg og hröð þjónusta BARÐINN hf. Skútuvogi 2, Reykjavík Símar: 91-30501 og 91-84844 Robirt Rafstöðvar OG dælur FRÁ BENSÍN EÐA DIESEL Mjög gott verð Rafst.: 600-5000 w Dælur: 130-1800 l/mín Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 Simi 91-674000 „Heyrnarleysi er ekkert skemmtiefni,“ - segir Shelley Winters Shelley Winters, 68 ára tvöfaldur óskarsverðlaunahafi, gekk fyrir skömmu út úr kvikmyndaveri í Los Angeles í fússi. Tilefnið var það að hún var ósammála fram- leiðendum myndarinnar um að það væri fyndið að Iáta heyrnar- lausu leikkonuna Marlee Matlin gera grín að fötlun sinni. Shelley segir svo frá, að í einu fyrsta atriði myndarinnar hefði hún átt að leika einhvers konar galdrakerlingu og vera að gefa Marlee, gengilbeinu á ítölskum veitingastað, ráð. Einhver mis- skilningur kæmi upp á milli þeirra og Marlee hefði átt að segja: Því miður, ég á ekki meira „linguini". En svarinu var breytt í: „Því miður, ég er heyrnarlaus." Marlee þótti þetta miður og Shelley varð reið. Þær fóru fram á að atriðinu yrði breytt. En þá tók ekki betra við, Marlee átti nú að taka heyrnartækið sitt og sýna Shelley það. Þá fór að suða í því og síðan sprakk það. Það gerði Shelley líka og rigsaði út úr upptökusalnum. Shelley segir að upphaflega hafi handritið verið fyndið og hún hefði tekið að sér hlutverkið vegna þess að hún vildi kynnast unga fólkinu sem leikur í mynd- inni. Handritsbreytingarnar hafi hins vegar verið móðgandi. Auk þess hafi vinnuaðstaðan verið ómöguleg og helst minnt hana á ástandið þegar hún var að byrja í kvikmyndum, það hefði verið líkast því sem var á kreppuárun- um. „Eg varð hrædd,“ segir hún. Og ekki bætti það sálarástand hennar að hún hafði nýlokið við að leika í kvikmynd með Lizu Minnelli og var dauðþreytt. „Ég var einfaldlega of þreytt til að takast á við alla erfiðleikana sem mættu mér,“ segir hún. Við hlutverki hennar tók Viveca Lindfors og helstu mótieikarar hennar eru Rosanna Arquette og David Bowie. Shelley Winters vildi ekki vera með í kvikmynd þar sem gert var grín að heymarleysi fólks. Maríee Matlin er sjálf heymarlaus og átti að leika atriði þar sem gert var grín að heymaríeysi hennar. Neglurnar kostuðu hana starfið Hún Helen Brooks álítur það fórnarinnar virði þegar henni var sagt upp starfinu í fatahreinsun í Fort Worth í Texas þegar hneyksl- aðir viðskiptavinir höfðu kvartað undan nöglunum á henni. Helen ákvað að komast að því hvað hún gæti látið neglurnar vaxa langt fyrir sjö árum, þegar hún lagði það á sig að hætta að naga þær. Og hún hefur staðið við heitstrengingu sína. Það er að vísu ekki alveg þrautalaust og dýrt er það. Helen fer til handsnyrtingar- dömu á þriggja vikna fresti og borgar 30 dollara í hvert skipti. Þá fær hún snyrtar löngu negl- urnar, sem eru allt frá 12 1/2 cm til 20 cm. Tvær, á þumalfingri og vísifingri hægri handar, eru snyrtar til í skikkanlegri lengd, og segir Helen það til gert til að hún eigi auðveldara með t.d. að snyrta sig og opna bflhurðina. Hálft glas af naglalakki fer til að fullkomna listaverkið, þ.e.a.s. enn fullkomnara verður það við hátíðleg tækifæri þegar Helen málar myndir í stíl við tilefnið á neglurnar. Helen er ósköp hreyk- in af nöglunum sínum og segir lítið mál að lifa með þetta skart. Það sé einna helst þegar hún er að koma sér í lífstykkið á sunnu- dögum að hún þurfi hjálp! Helen Brooks hefur safnað nögtum í sjö ár og er stolt af árangrín- um. Hún vill heldur vera atvinnulaus en skerða neglumar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.