Tíminn - 28.02.1991, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
AKTU EKKI ÚT
f ÓVISSUNA. AKTUÁ
SUBARU iHSlf
a Ingvar | Itt Helgason hf. Sævartiöfða 2 Higpp S(m| 91.674000
0
I í niiim
FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1991
Þórarinn Tyrfingsson segir nútímaáfengismeðferð byggja á mörgum úrræðum:
Hefur færst í vöxt að
ófullir fari í meðferð
Það hefur færst í vöxt að óvirkir alkóhólistar leiti á náðir SÁA áð-
ur en þeir detta í það, ef löngunin í brennivín ætlar að verða þeim
ofviða. í flestum tilfellum er þeim sinnt á göngudeild samtak-
anna, en fyrir kemur að þeir leggjast inn á Vog.
Samkvæmt Þórami Tyrfingssyni hefur það nú færst í vöxt að óvirkir
alkóhólistar fari inn á Vog áður en þeir detta í það.
Leitað var álits Þórarins TVr-
fingssonar yfirlæknis á Vogi:
„Málið er náttúriega að fólkið
okkar, sem er orðið ansi margt,
lendir nú í ýmsum áföllum í líf-
inu, t.d. veikindum. Við höfum
auðvitað þurft að grípa inn í
þetta með fólkinu og reynum að
hjálpa þegar því líður illa. Það
höfum við yfirleitt gert á göngu-
deildinni, en jafnvel hefur það
farið svo að við höfum stundum
tekið fólk hér inn á Vog í stuttan
tíma, nokkra daga, þegar svona
stendur á.“
Hvað með AA-fundi, eiga þeir
ekki að hjálpa óvirkum alkóhól-
istum að halda sér á sporinu?
„Við erum að tala um að grípa
inn í hættuástand, þegar sjúk-
lingi líður verulega illa, er kom-
inn í tilfinningalegt uppnám.
Með allri virðingu fyrir AA-fund-
um þá lækna þeir ekki allt.“
Er eðlilegt að taka ófulla menn
í afvötnun?
„Þetta er bara hluti af nútíma-
áfengismeðferð. Það verður að
taka tillit til þess að fólkið sem
við erum að fást við er misjafnt
og sjúklingahópurinn er að
breytast. Að taka inn ófulla
menn, til að koma í veg fyrir að
þeir detti í það, er bara einn af
þeim hlutum sem heyra til þegar
við erum farin að þjónusta svona
stóran hóp af ólíku fólki. Við get-
um hugsað.okkur óvirkan alkó-
hólista sem hefur verið úti í tvö
ár. Síðan fær hann kransæða-
stíflu. Þetta er auðvitað mikið
áfall í hans lífi; hann þyrfti að
vera á lyfjum og svo fram eftir
götunum og mjög auðvelt fyrir
hann að fara út af sporinu við
þessar aðstæður. Það er ekki
nema eðlilegt að við reynum að
halda honum á sporinu. Og þetta
hefur færst í vöxt, nútímaáfeng-
ismeðferð er ekki bara afvötn-
un.“
Kemur til ykkar fólk til að losna
við lyf sem það hefur vanist á
inni á sjúkrahúsum?
„Hér erum við komnir inn á
mjög viðkvæmt svið og ég er oft
hissa á því hvað menn fara í vit-
lausar áttir í lyfjaumræðunni.
Það er eins og menn átti sig ekki
á því að það er til tvenns konar
fólk í þjóðfélaginu; það er fólk
sem þú myndir gefa áfengi ef þú
byðir því í afmælið þitt, og fólk
sem þú myndir alls ekki gefa
áfengi, vegna þess að það kostar
það fjórtán daga í afvötnun að
drekka. Sama gildir með svefn-
lyfin og róandi ávanalyfin, sem
notuð eru til þess að koma
mönnum yfir kvíða og svefnleysi.
Sumu fólki, og kannski flestu, er
hægt að hjálpa með þessum lyfj-
um án þess það hafi nokkur eftir-
köst. Síðan er ákveðinn hluti af
fólki sem má ekki nota þessi lyf,
án þess að venjast á þau.
Segjum að inn á sjúkrahús
komi óvirkur alkóhólisti með
sprunginn maga. Hann er vita-
skuld svæfður. Eftir aðgerðina
getur hann verið mjög kvalinn
og þá er ekkert annað að gera, en
gefa honum kvalastillandi lyf, þó
í því felist áhætta. Ég get ekki
séð að sjúkrahúsin séu að búa til
dópista í stórum mæli," sagði
Þórarinn Tyrfingsson að lokum.
-aá.
Flugleiðir:
STJÓRNIN VILL
HLUTAFJÁRBOÐ
Stjóm Flugleiða fer fram á hve mikil hlutafjárauknlngin
heimild aðalfundar félagsins verður að þessu sinni og ekki
þann 21. mars nk. til að auka hefur verið ákveðið hvenær út-
hlutafé í félaginu, segir í frétt frá boðið fer fram, þó er gert ráð fyr-
Flugleiðum. Þetta er í samræmi ir að það verði í vor.
við stefnu Flugleiða að stærri Hluthafar í Flugleiðum eru nú
hluti fjármagns vegna kaupa á tæpiega 4200. Meðal þeirra sem
nýja flugflotanum komi úr eigin eiga verulegan hlut í félaginu eru
sjóðum fyrirtækisins, segir í lífeyrissjóðir og íjárfestingasjóð-
fréttinnl. ir með um 80 þúsund félags-
í fyrrahaust var hlutafé í Fiug- menn og hluthafa. Flest bendir
leiðum auldð um 330 mil|jónir til að Flugielðir skjli rekstrar-
króna að nafnvirði. Það seldist hagnaði fyrir árið 1990 og auld
fýrir um 730 milljónir króna á hagnað vegna sölu flugvéla, segir
markaðsverði. Ekki er ákveðið jafnframt í fréttinni.
Formannsslagurinn í Sjálfstæðisflokknum:
KOSNINGASKRIF-
STOFUR OPNAÐAR
Stuðningsmenn Þorsteins Páls-
sonar og Davíðs Oddssonar, sem
eins og kunnugt er sækjast báðir
eftir því að verða valdir formaður
Sjálfstæðisflokksins, hafa opnað
kosningaskrifstofur. Kosninga-
skrifstofa Þorsteins er á Suður-
götu 7, rétt hjá tilvonandi ráð-
húsi Reykvíkinga, en kosninga-
skrifstofa Davíðs er í Hekluhús-
inu að Laugavegi 172 og er hún
rekin undir formerkjunum
„Framboð ‘91“. Víglundur Þor-
steinsson stjórnar kosningabar-
áttu Þorsteins en Friðrik Frið-
riksson er við stjórnvölinn hjá
Davíð.
—SE
J^wtsbókasafniÖ
& flkuv^n
VÖKUBLAÐIÐ, BLAÐ
ALLRA STÚDENTA
Það hefur vakið athygli að forseti
íslands, Vigdís Finnbogadóttir,
sendir Háskólanum kveðju í blaði
Vöku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta við H.í. Vaka er önnur af
tveimur pólitískum hreyfingum
innan Háskólans.
Þegar forsetinn var beðinn um að
skrifa í blaðið var honum sagt að
það væri afmælisblað allra stúd-
enta, gjöf þeirra til Háskólans á 80
ára afmælinu. „Okkur var ekki
kunnugt um að þetta væri eitthvert
sérstakt Vökublað. Af því sem okkur
var sagt var ekki um annað að ræða
en afmælisblað allra stúdenta, við
gátum ekki tengt það neinni pólit-
ískri fylkingu," sagði starfsmaður
forseta, þegar málið var lagt fyrir
hann.
Tíminn hefur fyrir því heimildir að
sumir þeirra sem auglýstu í blaði
Vökumanna hafi gert það í þeirri
trú að þar færi blað allra stúdenta.
Kosningar verða í Háskólanum um
miðjan mars. Þeim fylgja mikil út-
gjöld og greinilegt að Vökumenn
ætla að kosta öllu til að halda völd-
um.
-aá.
Vilhjálmur Egilsson um samkeppni bjórframleiðenda og innflytjenda:
011 meðul reynd til
að koma vörunni út
„Ég mundi nú ekki fordæma
þetta,“ sagði Vllbjálmur Egilsson,
framkvæmdasfjóri Verslunarráðs
íslands, þegar hann var inntur
eftir því hvort lánastarfsemi og
peningagreiðsiur bjórinnflytjenda
til veitingahúsaeigenda gæti
flokkast undir eðlilega viðskipta-
hætti.
„Þetta er spuming um hvaða
form samkeppnin tekur. Sam-
keppnin milli innflytjendanna
birtist í þessum myndum og í
rauninni sé ég ekkert ólöglegt við
þetta við fyrstu sýn,“ sagði Vil-
hjáimur. „Ef að mennimir vilja
fóma fjárfúlgum til að ná í við-
skipti þá er það náttúrlega þeirra
mál. Maður sér þetta form af sam-
keppninni birtast vegna þess
hvemig viðskiptahættirnir em
með áfengi hér á landi.“
Hann sagði að svona samkeppni
ætti sér margar hliðstæður og
tíðkaðist erlendis og því væri eðli-
legt að hún kæmi einnig fram hér.
,„Menn reyna öll meðul í sam-
keppninni til þess að koma sinni
vöm út," sagði VHhjálmur.
—SE