Tíminn - 09.03.1991, Side 6
14 T HELGIN
Laugardagur 9. mars 1991
'i \
Homo sapiens
Fyrir 100 þúsund árum
Ramapithecus
Fyrir11miljónumára
Homo erectus
Fyrir1,5
FyrrSmlljónumára
Sfi IHiÍII
Homo habilis f | Fyrif 2-3 fnfljónum ára }
ÆSr ^ Hk * RTl
„kælikern"
heilans úrslitum
um
þróun mannsins?
Pólski rafeindafræðingurinn
Konrad Fialkowski segir að þróun
mannsheilans á síðasta þróunar-
skeiði hans hafi gerst með „æðis-
legum hraða“. Frummenn af teg-
undinni Australopithecus höfðu
heilabú er var um 450 rúmsenti-
metrar. Homo erectus, sem uppi
var fyrir einni og hálfri milljón ára,
hafði nær helmingi stærri heila.
Afkomandi hans, Homo sapiens, er
loks með heilbú sem er um 1200
til 1300 rúmsentimetrar.
Sú vera sem helst má teljast elsti
ættfaðir mannsins er Homo habil-
is. Þetta var flatnefja náungi sem
telst hafa verið maður og dýr í
senn. En þarna var afturhallandi
ennið tekið að bólgna fram á við.
Heilabörkurinn og taugamassinn
var að stækka. Australopithecus-
arnir virðast hins vegar ekki hafa
átt sér framþróunarmöguleika. í
stað þess að heilinn yxi og gerðist
margflóknari er að sjá sem þróun
þeirra hafi endað í blindgötu.
Bandaríski mannfræðingurin De-
an Falk hefur nú komið fram með
forvitnilega skýringu á hinni ólíku
framþróun frummanna. Hún álít-
ur að hinir útdauðu tvífætlingar
hafi goldið þess að blóðrásin um
heila þeirra var of frumstæð. Þann-
ig hafi ekki verið unnt að kæla hin-
ar mjög svo viðkvæmu taugafrum-
ur nægilega. Viðleitni náttúrunnar
til þess að stækka í þeim heilabúið
hafi fallið um sjálfa sig af þessum
sökum: Of lítill kælivökvi miðað
við hitann er heilmassinn þurfti að
losna við.
Við athuganir á höfuðbeinum frá
forsögulegum tímum rakst Falk á
æðarákir innan á hauskúpunni.
Hjá Australopithecus virðist blóð-
inu hafa verið dælt um miðtauga-
kerfið, uns það safnaðist saman í
tvær gildar æðar neðan hnakkans.
f mannsheilan-
um, sem vegur
um eitt og hálft
kíló, er að finna
um það bil 100
milljarða tauga-
fruma. Þrír og
hálfur milljarð-
ur ára leið áður
en náttúran
hafði lokið við
að skapa þetta
margsíungna
listaverk úr ein-
frumungi fortíð-
arinnar. Tölva er
réði yfir sömu
getu og heiiinn
mundi þurfa
200 hæða háa
byggingu, sem
væri á stærð við
Þýskaiand að
flatarmáli.
Þama hægði á blóðrennslinu —
blóðið kólnaði og rann þannig um
heilann og aftur til hjartans.
Homo habilis hafði öllu þróaðara
hitastýrikerfi. Um taugakerfí hans
greindist net ótal fíngerðra æða
sem lá út í háls og nefgöng. Þetta
kerfí, sem líkja má við kælipípunet
í kæliskáp, gat betur losað þann
hita er í heilanum skapaðist og án
þess að sífellt svalara blóð þyrfti að
berast með aðflutningskerfí hjart-
ans.
í læknisfræðilegu tilliti stendur
kenning Falks völtum fótum.
Fram til þessa hefur vísindakonan
ekki haft nema eina athugun að
styðjast við, en hana framkvæmdi
kanadíski heilalíffræðingurinn
Michel Cabanach. Hann álítur að
taugavefir heilans séu það við-
kvæmir að auk svitakirtla og húð-
útgufunar verði blóðkæling að
koma til. En sönnun fyrir kenn-
ingu Dean Falk getur þetta þó ekki
talist.
En það kemur ekki í veg fyrir að
mannfræðingar eru yfir sig hrifnir
af tilgátunni. Heilalíffræðingurinn
Harry Jerison í Kalifomíu álítur að
hún muni verða höfð að leiðarljósi
á ókomnum tímum. Bandaríski
læknirinn Maurice Abitbol álítur
að hér sé sprottin fram ný vísinda-
grein — „blóðrásar- mannfræði-
rannsóknir".
Þessi hrifning er skiljanleg. Nýir
beinafundir hafa nefnilega komið
mannfræðingunum í bobba. Ætt-
artré mannsins er greinilega ekki
jafneinfalt að gerð og álitið var
fyrrum. Líkur benda til að fímm
tegundir apamanna hafi verið á
ferli á jörðinni fyrir tveimur millj-
ónum ára. En engin þeirra nema
Homo habilis varð sífellt greindari
og hélt sigrandi inn í nýja öld.
A PASKATILBOÐI
MIKIÐ ÚRVAL
VERÐ FRÁ KR. 9.900
PÖNTUNARSÍMI: 91 - 82265
Faxaten 10 - Húsi Framtiöar ■ 108 Fteykjavik
Laugardagur 9. mars 1991
HELGIN
15
Mannfiræðingurínn Dean Falk. Kenning hennar þykir sæta stórtíðindum.
: < f IS' T/
■»/.
V :v.
í
• í-
O rj,
- ~V
\J
-VJ
11
íý <5./ y' ' / 50 Selárí
—tv r* /O ■ o- - -K ' %
%
ik <r 'S ..r o
sameinast Samvinnubankinn
á Patreksfírði
Landsbankanum á staðnum.
í framhaldi af kaupum Landsbankans á Samvinnu-
bankanum flytur starfsfólk Samvinnubankans
á Patreksfiröi yfir í húsnæöi Landsbankans að
Aðalstræti 75 og gengur til liðs við starfsfólkið þar.
Upprétt staða getur ekki ein skýrt hina afar hröðu
þróun heilans. Margir sérfræðingar höfðu samt tal-
ið að með því að rísa upp og ganga á tveimur fótum
hefðu hendurnar verið fríar til annarra nota og það
hvatt Homo habilis til þess að beita huganum við
notkun og gerð ýmissa verkfæra. Slík einbeiting
hefði svo smátt og smátt gert heilann að flóknara
tæki.
Beinafundir í Eþíópíu röskuðu þessu áliti. Á ámn-
um eftir 1970 fundust á Afar-svæðinu í Eþíópíu bein
af konu, sem verið hefur um metri á hæð. Þessi litla
kona, sem nefnd er Lucy, var á dögum fyrir um
þrem milljónum ára. Hún hefur verið orðin kyn-
þroska og hefur kunnað að beita steinverkfæmm.
Höfuðkúpan sýnir samt að heilinn hefur ekki verið
stærri en í górillu.
Nýir fundir gefa og sýn lengra aftur í tímann. Fyrir
fimm milljónum ára hafa fyrstu mennimir er
kunnu að nota verkfæri stigið niður úr trjánum. En
varla stóðu þeir fyrr á jörðinni en fyrir þeim urðu
eldri frændur þeirra — Ramapithecus. Þessi loðni
apamaður hafði greinst frá fjölskyldu apanna fyrir
um það bil tíu milljónum ára. Hann var álútur og
með afar langa handleggi og minnti á hringjarann
frá Notre Dame.
Hraðasta þróunarskeiðið í átt til nútímamannsins
hófst fyrir 2,5 milljónum ára. í A-Afríku, en þar
stendur vagga mannkynsins, áttu afar miklar lofts-
lagsbreytingar sér stað. Það hætti að koma dropi úr
lofti og fmmskógar Eþíopíu, Uganda og Tánsaníu
tóku að hverfa. Eftir var þurr steppa og hávaxið gras
spratt þar sem fmmskógartrén létu undan síga.
Er þessar breytingar urðu reyndi mjög á hæfileika
einstaklinganna til að komast af og nú kom náttúm-
valið til sögunnar sem oftar. Þannig varð fmmskóg-
urinn að nokkurs konar tilraunastofú. Afkomendur
Lucyar litlu og Ramapithecinanna urðu að finna sér
kjörsvæði. Fyrir vikið urðu til ný „mannkyn".
Australopithecus africanus elti hörfandi skóginn til
suðurs og hélt sig í skugga trjánna. Greining á tönn-
um hans sýnir að hann hefur nærst á safaríkum
ávöxtum, rótum og berjum, en einnig bjöllum og
lirfum. Australopithecus boisei, riðvaxinn náungi
með mikinn brjóstkassa, nautssvíra og afturhallandi
enni, valdi sér heimkynni á þurri steppunni. Með
sterkum jöxlunum gat hann brotið hnetur og fræ og
lagði sér lauf og aðrar plöntur til munns. Svipuð
tegund, Robustus, bjó í S- Afríku.
En forfaðir nútímamannsins, Homo habilis, hætti
sér út á graslendumar, sem var hættulegasta svæð-
ið. Hann var varnarlaus og sífellt í matarleit, og
gerðist líkami hans smám saman fjaðurmagnaður
og varð æ tígulegri. Vegna skipulegra veiða í hóp-
um, barnauppeldis á steppunni og annarra allflók-
inna athafna er kröfðust einbeitingar fór heilinn að
stækka. Þegar fyrir 1,6 milljónum ára hafði Habilis
breyst í Homo erectus. Þessi tegund lifði einkum á
hræjum og veiðum.
Förin út á graslendurnar og hlaupin í brennandi
sólinni — svo álítur Falk — gerði það nauðsynlegt
að Homo habilis hefði vel þróað kælikerfi fyrir heil-
ann. Þar komu og nauðsynlegar forsendur fyrir
stækkun heilans til sögu. Þetta
kælikerfi var og vörn gegn sólst-
ing. Meðan Africanus úðaði í sig
ávöxtum og Boisei bruddi hnetur,
lagði Habilis grundvöllinn að al-
ræði sínu á jörðinni.
Þótt það ætti fyrir Boisei að liggja
að deyja út, þá telur mannfræðing-
urinn David Pilbeam að hann hafi
markað tímamót í þróunarsög-
unni, en hann var við lýði í Afríku í
eina milljón ára.
Homo sapiens hefur hins vegar
ekki verið til nema í 100 þúsund ár.
Því segir Pilbeam að það sé varla að
við komumst á blað í þróunarsög-
unni.
Landsbankinn býður alla Patreksfirðinga, nær-
sveitunga og starfsfólk Samvinnubankans hjartan-
lega velkomið.
Afgreiðslutími Landsbankaútibúsins er alla
virka daga frá kl. 9:15 -16:00. Síminn er 1314.
L
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna
ilmandi
Þeir rækta kaffijurtina af aldagamalli hefð við bestu
aðstæður í frjósömum fjallahlíðum Colombiu.
Við veljum bestu baunirnar þeirra.
Þú færð ilmandi nýbrennt Colombiakaffi í
stjörnuflokki nánast beint úr kvörninni - njóttu þess.
H
KAFFIBRENNSLA AKUREYRAR HF