Tíminn - 18.05.1991, Síða 11
Laugardagur 18. maí 1991
HELGIN
19
T
iLMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
Brian Kulka vissi sem var að vændiskonur gátu staðist flest annað
en ríka viðskiptavini á löngum glæsibílum.
líksins og höfðu fundið þau á skrá hjá
sér. Fingraförin höfðu verið tekin í
tengslum við handtöku vændis-
kvenna í Chicago. Sú myrta reyndist
heita Nancy Cruz, 35 ára gömul kona
sem gefið hafði upp heimilisfang í
Chicago.
í skýrslunni var einnig að finna upp-
lýsingar um svæðið þar sem Nancy
hafði stundað starfsemi sína. Lög-
reglustjórinn í Joliet sendi samstund-
is allar upplýsingar til lögreglunnar í
Chicago ásamt beiðni um að fá að
fylgjast með framgangi rannsóknar-
innar.
Eitt kvöld skömmu síðar héldu tveir
lögreglumenn niður á North Avenue.
Það var lítill vandi að þekkja vændis-
konumar, gæsahúðin á nælonklædd-
um fótleggjunum leyndi sér ekki.
Vandinn var að fá þær til að gefa ein-
hverjar upplýsingar.
Sem betur fór fyrir lögregluna höfðu
vændiskonumar fullan hug á að
tryggja öryggi sitt. Lögreglumenn-
imir þurftu aðeins að nefna nafn
hinnar myrtu og hvemig hún hafði
látið lífið til að fá skjót og góð við-
brögð. Vændiskonumar vissu sem
var að þegar ein þeirra hafði verið
myrt vom allar líkur á að fleiri íylgdu
í kjölfarið. Vitanlega þökkuðu sumar
vændiskonumar bara stuttlega fyrir
aðvömnina og lofúðu að gæta sín,
andúð þeirra á yfirvöldum risti dýpra
en löngunin til að aðstoða lögregíuna
við að losna við ógnina. En aðrar ótt-
uðust nægilega um öryggi sitt til að
vera reiðubúnar til samstarfs við lög-
regluna.
Nokkrar þeirra mundu eftir að hafa
séð Nancy við störf sín kvöldið áður en
hún var myrt En þar sem vændiskon-
umar komu og fóru á mismunandi
tímum gat engin munað hvenær eða
hvemig Nancy hafði náð í seinasta
viðskiptavininn eða kunnu á honum
nokkur deili. Jafnvel gat verið að hún
hefði ákveðið að hætta snemma og
halda heim. Og ef svo var, var eins víst
að morðingi hennar hefði ekki verið
viöskiptavinur.
Sally sæta
Þá minntist ein vændiskvennanna,
Sally sæta, á svörtu límósínuna.
Henni hafði verið ekið öðm hverju
um svæðið seinasta mánuðinn, eins
og kyrkislanga í leit að bráð. Flestar
vændiskonumar höfðu haft tækifæri
til að tala við ökumann glæsikermnn-
ar. Sumar þeirra - sem komið höfðu
sér upp sjötta skilningarvitinu í sam-
bandi við kúnnana - neituðu að fara
með honum. Sally sagði að hún hefði
sjálf tekið áhættuna. Límósína var þó
aJltaf límósína.
Þau höfðu ekið inn í fáfama götu.
Dökkar rúður límósínunnar veittu
þeim allt það næði sem þau þörfnuð-
ust. Sally sæta mundi vel hvernig
maðurinn hafði litið út, sem er
óvenjulegt þar sem vændiskonur virð-
ast hafa það fyrir sið að gleyma við-
skiptavinunum strax að verki loknu.
Hún mundi að hann hafði verið dökk-
ur yfirlitum, með yfirskegg og dökkt
hár. Hann var bara helvíti myndarleg-
ur, bætti hún við.
Þau komu sér síðan fyrir í pluss-
klæddu aftursætinu. Áður en þau
tækju til við kynlífið vildi hann að hún
reykti með sér eina hassvefju. Sally
samþykkti það hin ánægðasta.
Fljótlega virtist maðurinn verða sljór
af þéttum reyknum inni í bflnum.
Hann hallaði sér aftur og lokaði aug-
unum.
Sally hélt að hann væri sofnaður,
þegar hann opnaði skyndilega augun.
Breytingin á augnaráði hans var slík
að helst virtist sem hann hefði sett
upp grímu.
Skyndilega teygði hann stórar hend-
umar að hálsi vændiskonunnar og
þegar hann hafði náð taki á honum
byrjaði hann að herða að.
Sally sparkaði í hann og náði að losa
sig. Maðurinn var enn undir áhrifúm
af hassinu og hann reyndi hálfmátt-
leysislega að ná aftur hálstaki á Sally.
En árangurslaust.
Augnabliki síðar var Sally sæta kom-
in út úr bflnum og hljóp sem hún gat
fyrir þröngu pilsinu frá tilræðismanni
sínum. Hún þakkaði máttarvöldun-
um fyrir að hann reyndi ekki að elta
hana.
Þó svo að límósínukyrkjarinn væri
ekki eini öfugugginn sem var á ferli á
North Avenue - öfuguggar em fastir
fylgifiskar vændiskvenna - hafði Sally
góða ástæðu til að rifja hann upp
núna; hún vissi að Nancy hafði farið
með honum að minnsta kosti einu
sinni. Sú staðreynd að hún hafði verið
kyrkt gaf tilefni til nánari eftirgrennsl-
ana.
Sally sæta var ekki sú eina sem hafði
slæma reynslu af ofbeldishneigð öku-
manns límósínunnar. Önnur vændis-
kona rifjaði upp svipaða atburði. Hún
hafði farið með honum á ódýrt hótel
þar sem herbergin vom leigð út í
klukkustund í senn. Þar varð hún
vitni að sömu breytingunni á svip
mannsins og Sally hafði skýrt frá. Og
eins og Sally hafði hún orðið fyrir því
að maðurinn reyndi að kyrkja hana.
En sem betur var hún stór og stælt og
nógu sterk til að rífa sig lausa.
Lögreglumennimir tveir sem hlust-
uðu á frásagnir kvennanna sáu fyrir
sér fómarlambið sem var ekki nema
rétt um hálfur annar metri á hæð. í
átökum við stórvaxinn karlmann átti
Nancy Cmz álíka mikla möguleika og
snjóbolti í helvíti.
Svo nú hafði lögreglan komist á slóð;
hún hafði mann gmnaðan sem vitað
var að hafði reynt að kyrkja konur.
Hún vissi að hann var dökkleitur. Hún
vissi að hann ók límósínu. Hún vissi
að hann laðaðist að vændiskonum.
Lögreglumennimir héldu nú til aðal-
stöðvarinnar með þær upplýsingar
sem þeir höfðu aflað. Upplýsingum
þeirra var komið áleiðis til fylkislög-
reglunnar. Og þar höfðu menn heldur
ekki setið iðjulausir.
Hjálmurinn kemur
að góðum notum
Fylkislögreglan hafði athugað með
hjálm slökkviliðsmannsins sem fund-
ist hafði á svipuðum slóðum og líkið.
Lögreglumennirnir höfðu komist að
því að eigandi hans bjó skammt frá
North Avenue þar sem Nancy Cmz
hafði gert sjálfa sig út.
Eigandi hjálmsins reyndist vera á
sakaskrá, en aðeins fyrir minniháttar
yfirsjónir. Þó hafði hann einu sinni
hlotið skilorðsbundinn dóm í eitt ár.
Lögreglumennimir ákváðu að grafa
aðeins dýpra.
Þeir komust að því hjá slökkviliði
Chicago að maðurinn, sem hét Brian
Kulka, hafði starfað hjá þeim í rúm
tvö ár sem sjúkraliði. Þar sem hann
var áfengissjúklingur var hann oft frá
vinnu þegar hann reyndi að ná tökum
á lífi sínu með aðstoð AA-samtakanna.
Kulka var 34 ára gamall og fráskilinn.
Fjórðungurinn af launum hans fór í
barnameðlög. Hann kynni að hafa efni
á því að fá sér vændiskonu endmm og
eins en lögreglumönnunum fannst
límósínan ekki í neinu samræmi við
þau laun sem slökkviliðsmenn höfðu.
En þó að önnur bflaslóðin virtist
enda í blindgötu, gerði hin það svo
sannarlega ekki. Lögreglumennirnir
komust að því að Brian Kulka átti Mu-
stang!
Þeir fengu nú mynd af Brian Kulka
og fóm með hana á fúnd vændis-
kvennanna á North Avenue. Ekki leið
á löngu þar til árangurinn kom í Ijós.
Báðar konurnar sem lent höfðu í
klónum á ökumanni límósínunnar
þekktu manninn á myndinni sem
þann sem ráðist hafði á þær.
Lögreglan í Chicago gaf nú út hand-
tökuskipun á hendur Brian Kulka þar
sem fram kom að hann væri gmnaður
um morð.
Þann 10. mars hélt lögreglan heim til
Brians Kulka og komst þá að því að
fuglinn var floginn. Helst virtist sem
Brian Kulka væri flúinn.
En hann birtist síðan á ólíklegasta
stað - lögreglustöðinni í Northwest
Side. Tveir lögfræðingar tóku mál hans
að sér. Þeir hreyfðu engum mótmæl-
um þegar skjólstæðingur þeirra var
fluttur til fangelsisins í Waukegan þar
sem hann var ákærður um morð að yf-
irlögðu ráði og ákveðið að hann fengi
ekki að ganga laus gegn tryggingu.
Lögreglan fékk síðan vændiskonurn-
ar báðar til að bera kennsl á Brian
Kulka við sakbendingu. Þær bentu
báðar hiklaust á slökkviliðsmanninn.
Hvað límósínuna varðaði kom í ljós
að Kulka hafði komist yfir hana á full-
komlega löglegan hátt. Hann hafði
starfað um tíma sem bflstjóri hjá fyrir-
tæki sem leigði slíka bfla og hafði
starfsemi sína á flugvellinum. Þar sem
hann vissi að slíkar glæsibifreiðir voru
vænlegar til árangurs meðal vændis-
kvennanna notaði hann bflinn sem
svefnherbergi á hjólum hvenær sem
tækifæri gafst.
En hafði hann einnig notað bflinn
sem aftökuklefa, vildi Iögreglan fá að
vita.
Kulka neitaði því staðfastlega.
Þannig stóðu málin þegar mál Kulka
var tekið fyrir dóm þann 16. mars og
hann opinberlega ákærður fyrir morö
að yfirlögðu ráði. Tryggingarfé var
ákveðið tvær milljónir dollara. Lím-
ósínuferðimar vom úr sögunni hvað
Kulka varðaði.
Að kjafta sig í fangelsi
Kulka mótmælti harðlega og hélt
fram sakleysi sínu. Hann var fluttur
aftur til klefa síns og undirbúningur
réttarhaldanna hófst.
Saksóknari taldi sig vera með nokk-
uð ömggt mál í höndunum, en varð
að viðurkenna að málið væri að mestu
leyti byggt á líkum. Það yrði erfitt að
sanna að um morð að yfirlögðu ráði
væri að ráða án þess að hafa til þess
óhrekjanlegar sannanir á borð við
sjónarvott eða fingraför sakbornings á
vettvangi.
En að lokum var það sakbomingur
sjálfur sem gaf lögreglunni það vopn í
hendur sem hún þurfti á að halda.
Þar sem samskipti fanga em eins og
þau em komst Kulka ekki hjá því að
komast í tæri við þau. Afleiðingin varð
sú að hann var svo barnalegur veita
samfanga sínum trúnað sinn. Hann
talaði um að hafa pikkað upp litla sæta
hóm og farið með hana í ökuferð. En
hún var með stæla, sagði hann, og
reyndi að ræna hann þegar hann sá
ekki til. Ef hún hefði ekki reynt að
koma höndum yfir veskið hans, hefði
hann ekki kyrkt hana.
Hinum fanganum var rétt sama um
ástæður Kulka til morðsins. Hann sá
sér leik á borði að nota þessar upplýs-
ingar til þess að reyna að fá eigin dóm
styttan eða einhver forréttindi innan
fangelsisins.
Saksóknari var fljótlega farinn að
nota frásögn kjaftasksins gegn Kulka.
Hann varaði hann við að með þessum
upplýsingar væri unnt að fella mun
þyngri dóm yfir honum ef hann yrði
fúndinn sekur án játningar.
Brian Kulka var skyndilega orðinn
mikill talsmaður játninga og samn-
inga. Hraðritarar höfðu nóg að gera
við að taka niður framburð Kulka,
sem fossaði nú fram eins og vatn í
leysingum. Hann skýrði frá því að
hann hefði notfært sér þjónustu þá
sem Nancy Cmz hafði á boðstólum
oftar en einu sinni. Seinasta skiptið
hafði verið 3. mars, kvöldið áður en
líkið fannsL Hann hafði ekki verið á
límósínunni það kvöld svo hann hafði
notað Mustanginn sinn.
Á meðan þau óku um sagðist Kulka
hafa orðið þess var að hönd stúlkunn-
ar seildist eftir seðlaveskinu hans. Þá
sleppti hann sér alveg. Öllu var lokið
innan fárra mínútna. Hann hafði
kyrkt Nancy Cruz með bemm hönd-
unum.
Hann varð heltekinn örvæntingu
þegar hann gerði sér grein fyrir því
hvað hann hafði gert. Hann fór út á
hraðbrautina til þess að losa sig við
líkið. Það var farið að birta og hann
gat ekki átt á hættu að umferðarlög-
reglan stöðvaði hann með líkið í bfln-
um.
Hann beið þar til færi gafst og ók þá
útafveginum, svipti upp hurðinni far-
þegamegin og ýtti líki Nancyar út úr
bflnum.
Tvíeggjað samkomulag
Gegn því að fá aðeins 5-15 ára fang-
elsisdóm samþykkti Brian Kulka að
játa sig sekan um manndráp.
Vera má að Brian Kulka hafi virst
samkomulag þetta vera vænlegur
kostur. Ef hann fengi fimm ára dóm
með möguleika á reynslulausn vegna
góðrar hegðunar var óvíst að hann
þyrfti að sitja svo mjög lengi á bak við
lás og slá. En hann gleymdi að gera
ráð fyrir dómaranum, Harry Hartel.
Þann 16. janúar 1990 starði Hartel
dómari stranglega á sakborning og
lýsti því yfir að hann væri dæmdur til
15 ára fangelsunar.
Það er langur fangelsisdómur, hversu
vel sem fanginn hagar sér.