Tíminn - 29.06.1991, Blaðsíða 6

Tíminn - 29.06.1991, Blaðsíða 6
HELGIN Laugardagur 29. júní 1991 ..... Laugardagur 29. júní 1991 HELGIN T 15 FJALLABILL A FÍNU VERÐI Lada Sport er ódýr 4 manna íerOabíll sem treysta má á jafnt sumar sem vetur. Aldrifið og læsta drifið gera bílinn mjög öruggan og stöðugan í akstri. Hann er með 1600 cnf vél og er fáanlegur bæði með fjögurra og fimm gíra skiptingu. Farangursrými má stækka með því að velta fram aftursæti. Lada Sport er fjallabíllinn í ár. & LADA SPORT BIFHEIDAR S LANDBUHADARVÉLAR HF. Armúla 13108 Reykjavík Símar 681200 & 312 36 Með einleikarann í blóðinu kallast þátturinn í röðinni Fólkið í landinu sem sýndur verður í Sjónvarpinu á laugardagskvöld kl. 21.30. Þar ræðir Sonja B. Jónsdóttir við Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiöluleikara, sem fyrir skemmstu vakti feiknaathygli fyrir frá- bæra frammistöðu í Sibelíusar-tónlistarkeppninni í Helsinki. virtuosoverk. Svo eru inni á milli ljúf og falleg lög, sem eru auðveldari." - Hefur verið gaman að vinna að þessari plötu? „Það var ofsalega gaman. Við Selma Guðmundsdóttir pí- anóleikari fórum í hljóðver í byrjun maí. Svo héldum við tónleika með öllum þessum lögum og maður hefúr aldrei haldið eins skemmtilega tónleika. Þetta eru svo skemmtileg lög og áhorfendum fannst mjög gaman." - Þannig að það er gaman að spila þessi verk? „Það er ofsalega gaman. Verkin á plötunni eru öll verk sem ég fíla alveg í botn.“ - Valdir þú lögin sjálf? ,Já, ég valdi lögin sjálf, safnaði hinum og þessum stykkjum saman.“ - Á að kynna plötuna eitthvað frekar með tónleikum? „Upphaflega, þegar við um jólin ákváðum að gefa út plöt- una, þá áttu þessir tónleikar í maí að vera útgáfutónleikar og þá átti diskurinn að vera tilbúinn. En hann var ekki alveg til- búinn. En nú er hann kominn. Reyndar er ég að fara að halda tónleika á morgun í Hafnarborg í Hafnarfirði með Þor- steini Gauta píanóleikara. Þá ætla þeir hjá Steinum að selja geisladiska á lægra verði." - Spilar þú þá einhver lög af plötunni? „Nei, því miður. Kannski sem aukalög, það er aldrei að vita.“ - Hvaða verk eru á efnisskrá tónleikanna á morgun? „Þetta er dálítið sérstakt prógramm. Til dæmis spila ég Gershwin-prelúdíur. Gershwin skrifaði fyrir píanó, en við ætlum að spila útsetningu fyrir fiðlu og píanó.“ - Verður létt yfir þessum tónleikum? ,Já, frekar létt. En ég spila líka Beethoven-rómönsu og eitt íslenskt einleiksverk. Svo spilum við tvö lög eftir Such og ítalska svítu eftir Stravinsky. Þegar ég valdi verk fyrir þessa tónleika þá hafði ég það í huga að þetta eru sumartónleikar og það má ekki hafa þá of þunga." - Þú spilar verk eftir Gershwin. Eru þau djössuð eins og hans er von og vísa? Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari í viðtali um nýja plötu, Cantabile: „Þetta eru svo skemmth leg lög Tónlistarunnendur geta stungiö sér kollhnís af gleði þessa dagana, því út er aö koma geisladiskur meö Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara og Selmu Guð- mundsdóttur píanóleikara. Diskurinn ber nafnið Cantabile og hefur að geyma léttklassísk verk, þó í erf- iðari kantinum, sem allir ættu að hafa gaman af að hlýða á. Blaðamaður sló á þráðinn til Sigrúnar, þar sem hún dvelst nú um stundarsakir í foreldrahúsum og æsku- stöðvum sínum í Garðabæ. Sigrún var að æfa sig á fiðluna, en tók vel í lítið spjall um plötuna og fleira úr heimi tónlistarinnar. Eftir kynningar og önnur forms- atriði var samþykkt samhljóða að hefja viðtalið. Kaupmannahöfn KR. 17.400 Flogið alla miðvikudaga og föstudaga. Frjálst val um hótel, bílaleigur og framhaldsferðir. — FLUGFEROIR = SULRRFLUC Öl verö eru s Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331 Sniiftaöviö^gengM^jJebLjlugvaHagjöld^ogJortallat^gging^ekkHnnifalinJ^veröurm „Eigum við ekki bara að hespa þetta af?“ - Jú, endilega, platan fyrst. Hvers konar plata er þetta? „Þetta er svona plata með eintóm- um aukalögum, ef svo má að orði komast. Þetta eru óskaplega skemmtileg lög og falleg. Lög sem maður spilar gjaman sem aukalög á tónleikum. Þetta er mjög skemmti- leg plata og það er gaman að hlusta á hana. Þama em til dæmis nokkur spönsk lög, mjög melódísk og mót- tækileg." - Þessi tónlist kemur þá til með að falla í kramið hjá hlustendum? ,Já, einmitt. Það var einmitt það sem þeir hjá Steinum hf. vom spenntir fyr- ir. Það þarf einhvem veginn að brjót- ast í gegn til fólksins. Þessi plata er mjög sniðug að því leyti." - Hvað em þetta mörg lög? „Þetta em sextán lög. Þar af em tvö íslensk." - Nú já, eftir hverja? „Eitt er eftir Þórarin Jónsson og heit- ir Húmoreska. Það er mjög fallegt. Svo er hitt eftir Jón Nordal og heitir Ása systir í Garðshomi. Það er mjög þjóðlegt og skemmtilegt." - Em þetta erfið stykki í heildina séð? Já, frekar. Þessi hraðari stykki em dálítið erfið. Þetta em einskonar - Er það nýtt fyrir þér að spila djöss- uð stykki? ,Já, já, einmitt." - En aftur að plötunni, hvað vomð þið lengi að taka hana upp? „Við gerðum þetta á mettíma. Við tókum upp á þremur eða fjómm dög- um í byrjun maí. Við gerðum þetta mjög fljótt." - Og þú ert ánægð með árangurinn? ,Já, já, platan er alveg ágæt. Það er æðislega gaman að eiga hana. Ég vona bara að hún seljist." - Býst þú ekki alveg eins við því? ,Jú, en maður veit aldrei, þetta er frumraun Steinars á þessu sviði." - Og þá líka fmmraun þín á plasti? Já, já, einmitt. Þetta er alveg minn diskur. Það er líka fínt að eiga þennan disk til að geta kynnt sig með honum." - Em fleiri plötur í bfgerð? „Ekki eins og er, en það er aldrei að vita.“ - Hvað er annars á döfinni hjá þér? „Ég er alltaf að spila á tónleikum. Nú, svo fer ég út aftur bráðum, þangað sem ég bý.“ - Hvar er það? „í Indiana, eða Indianapolis heitir það. En svo kem ég heim í ágúst og fer til Skotlands með strengjasveit. Ég spila einleik í verki með þeirn." - Em fleiri keppnir eins og Sibelius- arkeppnin á næstunni? „Það em, að ég held, þrjú ár í næstu stóm keppnina. Ég er að spá í að fara.“ - Krefst þátttaka í slíku mikils og langs undirbúnings? Já, það er langur undirbúningur, og þó, maður fær náttúrlega ekkert að vita hvað maður á að spila fyrr en um það bil hálfu ári fyrir. Maður þarf bara að vera sniðugur og vera búinn að æfa og spila öll þessi verk áður.“ - Þú æfir alla daga, er það ekki? Jú, ég æfi ofsalega rnikið." - Hvað æfir þú mikið á dag að meðal- tali? „Svona fimm tíma að meðaltali, stundum fer ég upp í átta þegar ég er að fara í keppnir eða spila á tónleik- um.“ - Hefurðu fulla atvinnu af tónleika- haldi? „Nei, ekki enn þá. Ég fékk sem betur fer starfslaun, þannig að ég lifi á þeim núna. En ég get ekki einungis lifað á tónleikum enn sem komið er.“ -Á að nota starfslaunin í einhver sér- stök verkefni? Já, t.d. að fara í keppnir. Nú er þetta allt saman að byrja hjá mér, fólk er að byrja að heyra í mér og nú má ekki láta deigan síga.“ - Er stefnan tekin á heimsfrægð? „Nei, ég held bara að það gangi ekki. En bara það að fá að spila nógu mikið og að fólk viti af manni er nóg. Mér finnst eins og ég hafi mikið fram að færa. Það má að minnsta kosti reyna þetta.“ - Og það er alltaf jafn gaman að þessu? Já, veistu, það er alltaf jafn gaman að þessu. Alveg meiriháttar." GS. London KR. 16.900 Flogið alla miðvikudaga. | Frjálst val um hótel, bílaleigur og framhaldsferðir. = FLUGFEROIR = SGLRRFLUG Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331 Öjhgrö^erujtaSgraiasju^ 1, leb. llugvallagjóld og forfallatrygging ekki innifalin i verflum. 5 MANNA FÓLKSBÍLL MEÐ VÖRUPALLI TRAUSTUR OG ENDINGARGÓÐUR Kjörinn bíll fyrir: B Vinnuflokka ■ Bændur ■ Iðnaðarmenn ■ Útgerðarmenn ■ Verktaka ■ Fjallamenn Verð kr. 1.394.880.- m.vsk. ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ Búnaður: ■ Dieselhreyfill ■ Tengjanlegt aldrif ■ Tregðulæsing á afturdrifi ■ Framdrifslokur BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG a m MITSUBISHI HEKLA MOTORS LAUGAVEGI 174 SÍMI695500

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.