Tíminn - 29.06.1991, Blaðsíða 8

Tíminn - 29.06.1991, Blaðsíða 8
16 JL HELGIN L V í TÍMANS RÁS m WKj i ATLI MAGNÚSSON: „Enginn þekkir álfakóngsins mæðu“ Það lítur ekki út fyrir að vera næðissamur starfí að vera land- læknir á íslandi. Fyrir nokkru varð hann að hlaupa í vörn fyrir kollega er áttu um sárt að binda eftir viðskipti við „sérviskufólk" í heilbrigðismálum, þ.e. þá heilsuhælismenn í Hveragerði, sem stuggað höfðu tveimur læknum (öðrum þeirra doktor), út af stofnun sinni. Læknunum hafði orðið það á að vega beint eða óbeint að ýmsum þeim kenningum er stórdrekar Nátt- úrulækningafélagsins töldu bera uppi grundvöll reglu sinn- ar og fengu þeir sína „Behandl- ung“ í samræmi við það—voru reknir á dyr á miðri kvöldvakt. Af svipaðri vandlætingu sveiaði Frelsarinn víxlurunum út úr musterinu, er þeir höfðu gjört hús föðurins að ræningjabæli. En ekki hefur landlækni fyrr tekist að bera klæði á vopnin í Hveragerði, en enn ein ólukk- ans vandræðin knýja dyra. Nú er það Seltjarnarnesið, sem er sögusvið atburða. Á sína vísu er það táknrænt, því þar er sjálf Nesstofa, aðsetur fyrstu lyfsala og landlækna vorra. En nú eru hinir leiku fríir af allri sök, og valdur að vandræðunum er sprenglærður doktor, sem óvænt hefur tekið upp á að pakka niður gömlu patólógí- unni og lyfjaskránni og taka þau fræði er honum voru fyrr kennd til gagngerrar endur- skoðunar. Hefur hann að sögn fundið sér nýja meistara, sem vér kunnum ekki upp að telja, en virðast sumir af skóla þeirra manna er gerðu veg Nesstofu sem mestan með bíld og iglur að vopni. Meðal þeirra gæti ver- ið Jón gamli Hjaltalín sem fyrir miðja síðustu öld rak vatns- lækningar á Klampenborg. Hann pakkaði fólki inn í lök langtímum saman, eins og nú heyrist að sé orðinn mikill sið- ur á Seltjarnarnesi. Þá sætir ekki minni tíðindum, ef satt er, að sér til ráðuneytis hafi lækn- irinn mann af indíánaættum, sem þá býr líklega yfir eldfornri kunnáttu úr fórum þeirra „Sitt- ing Bull“ og „Gömlu krumlu“ og hvað þeir gömlu og vísu menn nú annars hétu. Ekki er umtalsvert að þessi siðbótar- maður í læknavísindum á Nes- inu iðkar nálastungulækningar, eins og Kínverjar, enda munu þær hafa öðlast nokkra viður- kenningu meðal starfbræðra hans er enn halda sig við „gömlu“ aðferðirnar. í hnotsk- urn virðist sem læknirinn vilji hafa við sem náttúrlegastan máta bæði í fræðum sínum og dagfari öllu. Segir enda sagan að hann hafi lýst yfir í sjónvarpi að hann hafi ímugust á allri sápu, einkum þegar hann fer í sundlaugarnar, enda noti hana ekki aðrar skepnur en maður- inn. Þessi yfirlýsing var þó ekki beint heppileg í ljósi nýjustu at- burða, því hún hefur tryggt landlækni atfylgi allra sund- laugabaðvarða í höfuðborginni. Landlæknir á þó sem skilja gefur úr vöndu að ráða. Hann hefur sem starfsbróðurlegast reynt að fá „kollegann" á Nes- inu til að fallast á það með sér að hann sé tjúllaður (þ.e. sá á Nesinu), en ekki hefur heyrst að greiðlega hafi gengið saman með þeim í því efni hvað komið er. Annars væru þá hæg heima- tökin á Nesinu, því það var al- geng og gild aðferð hér fyrrum að vefja þá inn í lök, sem eitt- hvert rutl var komið á. En svo er ekki að vita nema lækninga- aðferðir þessar eigi sér formæl- endur fleiri en margur rennir grun í og að það sannist að vís- indi þeirra gamla Jóns og Gömlu krumlu boði „nýtt“ skeið í læknavísindum. Hver veit. — En margt á landlæknir vor við að rjá og gæti hann tek- ið undir með harmkvælaskáld- inu: „Enginn þekkir álfakóngs- ins mæðu.“ Má enda hamingjan vita hverjum verður á endanum pakkað inn í lak... Gettu nú Laugardagur 29. júní 1991 Við sáum kirkjuna á Reynistað í Skagafirði á mynd- inni hér á dögun- um. Nú er spurt um vatnsfall sunnan- lands, sem fjöllin í norðri gefa vís- bendingu um hvert muni vera. KROSSGÁTA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.