Tíminn - 04.07.1991, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 4. júlí 1991
Tíminn 15
ÍÞRÓTTIR
Wimbledon-tennismótið:
Capriati vann
Navratilovu
- æskan reyndist reynslunni sterkari
Það má segja að eggið hafí
kennt hænunni á Wimbledon-
tennismótinu í gær, þegar hin
15 ára gamla Bandaríkja-
stúlka, Jennifer Capríati, sló
nífaldan Wimbledonmeistara,
löndu sína Martinu Navra-
tilovu, út úr mótinu með 6-4
og 7-5 sigri.
Sterkar uppgjafir og örugg
móttaka Capriati slógu Navra-
tilovu alveg út af laginu. Capri-
ati mun mæta Gabrielu Sabat-
ini í undaúrslitunum, en hin
argentínska Sabatini vann
Lauru Gildemeister frá Perú í
gær 6- 2 og 6-1.
í 4. umferð í karlaflokki urðu
þau úrslit í gær að Thierry
Champion Frakklandi vann
Derrick Rostango Bandaríkjun-
um 6-7, 6-2, 6-1, 3-6 og 6-3.
Guy Forget Frakklandi vann
Tim Mayotte Bandarfkjunum 6-
7, 7-5, 6-2 og 6-4. Andre Agassi
Bandaríkjunum vann Jacco Elt-
ing Hollandi 6-3, 3-6, 6-3 og 6-
4. Boris Becker Þýskalandi
vann Christian Bergstöm Sví-
þjóð 6-4, 6-7, 6-1 og 7-6. BL
Aganefnd KSÍ:
LISTINN LENGIST
Starfsemi aganefndar KSÍ verður
sífellt viðameiri eftir því sem líður
á keppnina á íslandsmótinu í
knattspymu. Leikmenn í 1. deild
eru margir hverjir búnir að safna á
sig guium spjöldum og fara því óð-
um að fá á sig leikbönn. Á fundi
nefndarinnar var þó aðeins einn
leikmaður úr 1. deild dæmdur í
leikbann, en það var Víkingurinn
Hörður Theódórsson, sem rekinn
I »1II
-höfumréttvið!
var út af í leik gegn Fram sl.
sunnudag.
Þrír leikmenn úr 2. deild fengu
eins leiks bann vegna fjögurra gulra
spjalda. Það voru þeir Hólmar Ást-
valdsson Tindastól, Jón Þór Eyjólfs-
son ÍR og Sigurjón Dagbjartsson
Haukum. Einn leikmaður úr 2.
flokki fékk að fylgja með.
Auk Harðar voru 20 knattspyrnu-
menn dæmdir f leikbann vegna
brottvísunar. Úr 2. deild voru Guð-
mundur Magnússon og Guðjón
Þórðarson, þjálfari ÍA, dæmdir í
bann, auk þess sem Guðjón var
dæmdur í 25 þúsund kr. sekt.
Aðrir, sem fengu leikbann vegna
brottvísunar, voru Kristinn Guð-
mundsson Þrótti Nes. úr 3. deild.
Sigmar Helgason Smástund, utan
deilda, sem fékk fjögurra leikja
bann og Guðrún Ríkharðsdóttir
UMFA í 2. deild kvenna. Þá fengu 15
leikmenn úr yngri flokkunum leik-
bann af sömu ástæðu, þar af fengu 3
tveggja leikja bann og 1 þriggja
leikja bann. BL
íslandsmótið
í knattspyrnu:
Stórleikur
í kvöld
Sannkallaður stórleikur verður
í 1. deildinni í knattspymu -
Samskipadeildinni í kvöld, er
Fram og KR mætast á Laugar-
dalsvelli. Á Akureyri leika KA
og Víkingur og í Garði mætast
Víðir og FH.
Staðan í 1. deild -
SAMSKIPADEILDINNI
KR..........7 4 3 0 14-3 15
Breiðablik ...7 4 2 1 13-8 14
ÍBV.........7 4 1 2 12-10 13
Fram........7 4 1 2 11-8 13
Valur .....7 4 0 3 9-7 12
KA..........7 3 1 3 8-8 10
Víkingur ..7 3 0 4 12-14 9
FH..........7 1 2 4 6-10 5
Stjarnan....7 1 2 4 6-12 5
Víðir.......7 0 2 5 5-15 2
Staðan
Akranes.....7
Þór.........7
Þróttur.....7
Grindavík ....7
ÍR............7
Keflavík......7
Selfoss.....7
Fylkir......7
Haukar........7
Tindastóll ....7
í 2. deild:
6 0 1 20-2
1 1
1
2
3
2
3
2
5
6
1 1
0 1
18
15-10 16
10-4 14
10- 7 11
13-1110
11- 9 9
11-11 8
6-9 5
9-25 4
6-24 1
Áföstudagskvöld verður 8. um-
ferðin í 2. deild leikin. Þá mæt-
ast ÍA-Þróttur, Haukar-Fylkir,
Þór-Tindastóll, Keflavík-ÍR og
Grindavík-Selfoss. Leikimir
hefjast allir kl. 20.00.
Knattspyrnu-
punktar
• Leeds United bætti enn við sig
nýjum leikmanni í gær, er
ákveðið var að enski landsliðs-
maðurinn Steve Hodge kæmi til
liðsins frá Nottingham Forest.
Kaupverðið mun vera í ná-
grenni við 700 þúsund pund.
• Ron Atkinson, hinni nýi stjóri
Aston Villa, keypti nafna sinn
Dalian frá Real Sociedad á Spáni
í gær fyrir 1,6 milljónir punda.
Þegar Atkinson var við stjóm-
völinn hjá Sheffield Wed. keypti
hann Ron Dalian til liðsins, en
varð síðan að sjá á eftir honum
til Spánar. Þar með em báðir
Englendingarnir farnir frá
spænska liðinu, því áður hafði
John Aldridge snúið aftur heim
til Englands. BL
Íþróttahátíð HSK:
ÞORDIS OG PETUR
UNNU MESTU AFREKIN
Á HÉRAÐSMÓTINU
Íþróttahátíð HSK var haldið um
síðustu heigi f góðu veðri á
Hvolsvelli. Um 650 keppendur
tóku þátt í hátíðinni, sem skipt-
ist í aldursflokkamót - 14 ára og
yngri og unglingamót 15-18 ára
- og héraðsmót. Keppt var í
frjálsum íþróttum, sundi,
starfsíþróttum, knattspyrnu og
íþróttum fatlaðra. Auk þess voru
golf og skotfími sýningargrein-
ar.
Stigahæstu einstaklingar í frjáls-
um íþróttum vom Sólon Morthens
UMF Selfoss 14 ára og yngri og Ró-
bert Einar Jensson UMF Biskups-
tungna 15-18 ára. á hérðasmótinu
hlutu þau Þórdís Gísladóttir UMF
Selfoss og Ólafur Guðmundsson
UMF Selfoss 24 stig hvort.
Mestu afrek unnu, 14 ára og
yngri: Sólon Morthens UMF Sel-
foss, sem hljóp 60m á 8,6 sek. og
fékk 1000 stig. 15-18 ára: Róbert
Einar Jensson UMF Bisk., sem
hljóp lOOm á 11,5 sek. og hlaut
1010 stig. Héraðsmót: Þórdís
Gísladóttir UMF Self., sem stökk
l,75m í hástökki og hlaut 944 stig,
og Pétur Guðmundsson UMF
Samhygð, sem kastaði kúlu
19,08m og hlaut 1015 stig fyrir.
Framfarabikarinn fékk UMF Vaka.
í stigakeppni félaganna var UMF
Selfoss hlutskarpast í öllum mót-
unum þremur.
í starfsíþróttunum urðu úrslit
þau að Pétur Guðmundsson Dags-
brún sigraði í dráttarvélarakstri,
Hildur Ágústsdóttir sigraði í
pönnukökubakstri og í tveimur
aldursflokkum í starfshlaupi sigr-
uðu Egill Ámi Pálsson UMF Bisk.
og Ágúst H. Guðmundsson UMF
Hmn.
í sundkeppninni varð UMF Self.
stigahæst, en UMF Bisk. kom
næst. Mesta afrekið í sundinu vann
Sigurlín Garðarsdóttir, sem synti
lOOm skriðsund á 1:05,5 mín.
í knattspymukeppninni sigraði
UBH, en UFHÖ kom næst í öðru
sæti. Prúðasta lið keppninnar var
knattspymulið UMF Vöku. BL
Sumar og sól við Svartahaf
Nánari upplýsingar á skrifstofunni síma 62-44-80
Sumartími skrífstofu
Framsóknarflokksins
Frá 15. mal verður skrífstofa okkar I Hafnarstræti 20, III hæð, opin frá kl. 8:00-16:00
mánudaga-föstudaga.
Verið velkomin.
Framsóknarilokkurinn
Þórsmörk
F.U.F. Ámessýslu gengst fyrir Þórsmerkurferð helgina 13.-14.
júlí. Tjaldað verður í Slyppugili. Ferð verður frá B.S.Í. kl. 19.00
föstudaginn 12. júli. Skráning I síma 91-624480 hjá Önnu eöa hjá
Sigurði í slma 98-34691 á kvöldin.
Undirbúnlngsnefnd.
5. landsþing LFK
5. landsþing Landssambands framsóknarkvenna verður haldið I
Reykjavík 4.-5. október n.k. Nánar auglýst síðar.
Konur em hvattar til að taka þessa daga frá.
Framkvæmdastjórn LFK.
Póstur og sími óskar
að ráða
umdæmistæknifræðing til afleysinga,
með þekkingu á veikstraum. Verður að hafa
aðsetur á Akureyri.
Upplýsingar gefur umdæmisstjórinn
á Akureyri í síma: 96-26000.
PÓSTUR OG SÍMI