Tíminn - 08.08.1991, Síða 8
8 Tíminn
Fimmtudagur 8. ágúst 1991
Forsetafrú meö hugsjón
Nýlega var Danielle Mitterrand, forsetafrú Frakklands, veitt heiðurs-
nafnbót við Edinborgarháskóla. Breska blaðakonan Valerie Grove tók
þá við hana viðtal það sem hér birtist
Svo notuð séu orðin sem Francois
Mitterrand notaði um Margaret
Thatcher (hún hefur munn eins og
Marilyn Monroe og augun hans
Kaligúla) og þeim snúið upp á
Danielle, konuna hans, þá hefur
hún munn eins og Marilyn Monroe
og augu eins og tígrisdýr. Þessi sér-
staklega glæsilega kona með þykka
brúna hárið er orðin 66 ára, þótt
ótrúlegt sé. Það sem dró hana yfir
Ermarsund að þessu sinni var að
henni var veitt heiðursnafnbót við
háskólann í Edinborg. Nafnbótin
var veitt við mikla viðhöfn í þétt
setnum sal sem kenndur er við
McEwan.
Danielle Mitterrand var vel heima í
hópi skóla- og fræðimanna, enda
voru foreldrar hennar báðir kennar-
ar, en það sem gladdi hana mest var
að verið var að heiðra hana fyrir það
sem hún hafði numið í l’école de la
vie. Það var skóli lífsins sem hvatti
hana til þess að setja á stofn Dani-
elle Mitterrand sjóðinn sem aðstoð-
ar hrjáða alls staðar í heiminum í
gegnum France- Libertés, hjálpar-
samtök sem hún helgar 80% af
starfstíma sínum.
Blaðamaður hitti hina óþreytandi
forsetafrú Frakklands skömmu eftir
athöfnina. Tvö önnur mikilmenni
höfðu verið heiðruð þennan sama
dag: Sir Claus Moser, rektor Wad-
ham háskólans í Oxford, og Lord
Soulsby dýrameinafræðingur. Að-
eins Danielle Mitterrand krafðist
þess að stíga í pontu og ávarpa nem-
endur háskólans, ræðuna hélt hún
á frönsku (hún talar ekki stakt orð í
ensku) af gallískri ástríðu. Ræðan
var áhrifamikil, en að eigin sögn
getur hún aðeins talað opinberlega
þegar orðin koma beint frá hjart-
anu.
Virk í andspymu
gegn Þjóðverjum
Frú Mitterrand gekk aldrei í há-
skóla; hún var 17 ára gömul þegar
Þjóðverjar hernámu Frakkland og
fjölskylda hennar tók virkan þátt í
andspyrnuhreyfingunni. Skóla-
stjórinn faðir hennar var handtek-
inn árið 1942 vegna þess að hann
neitaði að gefa upp nöfn nemenda
og kennara við skólann sem voru af
gyðingaættum. Fjölskyldan faldi
andspyrnumenn og Danielle fékk
hlutverk sendiboða og einnig
hjúkraði hún særðum. Hún fékk
orðu fyrir störf sín í stríðinu og
gleymir aldrei frelsisbaráttu Frakka
á meðan á hersetunni stóð.
Árið 1942 hitti Christine systir
hennar, sem nú er kvikmyndafram-
leiðandi, einn af leiðtogum and-
spyrnuhreyfingarinnar sem gekk
undir nafninu „Morland kafteinn"
og hafði nýlega flúið úr þýskum
fangabúðum, maðurinn hét réttu
nafni Francois Mitterrand. Sagt er
(frú Mitterrand brosir þegar hún er
minnt á það) að hann hafi séð
mynd af Danielle og ákveðið þegar
að giftast henni. Tveimur árum
síðar kynntust þau, hann minnti
hana á argentínskan tangódansara.
Þau voru gefin saman nokkrum
mánuðum síðar í hinni nýfrelsuðu
París.
„Ég hefði aldrei kynnst manninum
mínum ef andspyrnuhreyfingin
hefði ekki verið til. Það voru engar
líkur á því að leiðir okkar skærust.
Hann var eldri og hafði lokið námi;
mitt nám var ekki hafið. Allt gekk
svo hratt fyrir sig á þessum tíma;
fólk kynntist, trúlofaðist, giftist. Ég
var ung dama í takt við tímann.
Manni lá svo á að halda lífinu
áfram.“ Hún brosir geislandi Leslie
Caron brosi og segir að hjónaband
hennar og Francois hafi verið ráðið
af örlögunum.
Ekki hluti
af farangri forsetans
Þegar hann var kosinn fyrsti sósí-
alíski forseti Frakklands árið 1981
hefði hún getað rennt sér Ijúflega í
hlutverk það sem forsetafrúnum
hefur yfirleitt verið ætlað; glæsileg-
ur gestgjafi og fulltrúi Frakklands í
veislum. Þess í stað hefur hún gefið
stöðunni nýja ímynd, ólíka þeirri
sem frúrnar Giscard d’Estaing og
Pompidour gáfu henni á sínum
tíma. „En engin kona gerir ekki
neitt," mótmælir Danielle. ,AHir
haga sér í samræmi við persónu-
leika sinn. Þegar ég var komin í
þessa aðstöðu fannst mér ég verða
að gera eitthvað jákvætt og láta til
mín taka.“ Hún sagði eitt sinn að
hún hefði enga löngun til að „láta
koma fram við mig eins og hluta af
farangri forsetans" — þá yfirlýsingu
setti hún fram í sjónvarpsviðtali. Nú
er það almennt viðurkennt að hún
sé sjálfstæð persóna.
Uppeldi hennar bjó hana undir það
að stíga fram í sviðsljósið, eins og
staða hennar sem forsetafrúar
krefst. Ef hún hefði sjálf verið kosin
forseti („en ég hef hvorki hæfdeika
né getu til þess") hefði hún ekki
getað gert helminginn af því sem
hún hefur framkvæmt. „Ég hef eng-
in völd,“ staðhæfir hún. „Aðeins
réttláta reiði og sannfæringu."
Mitterrand hjónin nota Elysée höll
sem skrifstofu, þau búa enn í stóra,
gamla húsinu sínu í Latínuhverfmu.
Á hverjum morgni eyðir hún einni
til tveimur klukkustundum í höll-
inni til að lesa og svara bréfum. Að
því loknu heldur hún til síns eigin-
lega vinnustaðar, skrifstofú France-
Libertés samtakanna og með henni í
för er hundurinn hennar Upsilon.
En hvað með þær skyldur sem fylgja
stöðu forsetafrúarinnar. „Púff,“ segir
hún. „Fólk ímyndar sér að það séu
veislur á hverju kvöldi, en þær eru
aðeins tvær til þrjár í hverri viku.“
Þau hjónin fara aðeins í tvær til
þrjár opinberar heimsóknir á ári.
Sjálf fer hún utan mun oftar, að
minnsta kosti einu sinni í mánuði
til að kanna hvar hjálpar er þörf og
taka þátt í aðgerðum France Liberté;
á sjúkrahús í Afríku, í flóttamanna-
búðir Kúrda, indversk þorp.
Hjálparstarfíð
„Ég er ekki virk í stjórnmálum,"
segir hún. „Ég reyni aðeins að
hjálpa fólki við að endurheimta
virðingu sína." Starfsvið samtak-
anna er ótakmarkað, þau eru alls
staðar þar sem fólk er þrúgað af fá-
tækt eða er hindrað í að láta í sér
heyra. Þau skipulögðu tvo mikil-
væga fundi í París með hvítum og
svörtum Suður- Afríkönum. Einnig
ættu þau til að endurbyggja brunna
í Timbuktú.
Hvað hjálparstarfið varðar má
nefna sendingu kennslubóka til
Kongó og byggingu heilsugæslu-
stöðvar í suður-afrísku þorpi. Blóð-
banki hér, barnaheimili þar, einnota
sprautur til Afríku. France Liberté
fjármagnaði gerð erfðafræðilegs
gagnabanka til þess að unnt væri að
koma börnum, sem horfið höfðu í
Argentínu, aftur til fjölskyldna
sinna. En samtökin styrkja einnig þá
sem á því þurfa að halda heima fyrir,
því þrátt fyrir velmegun er þar
vandamál að finna; þau útvega föt,
mat og húsaskjól til handa þeim
sem orðið hafa undir í lífinu og hafa
fjármagnað herferð gegn ólæsi.
Hún getur ekki breytt heiminum
með því að færa öllum hamingjuna
á silfurfati, segir hún. Það sem hún
vill gera er að minna stöðugt á þá
fjóra fimmtu hluta mannkyns sem
ekki eiga þess kost að njóta velmeg-
unar og framfara. Hún vinnur að-
Danielle Mitterrand segist vllja gera fólkl þaö mögulegt aö endurhelmta vlrðlngu sína.
eins með samtökum sem eru ótengd
stjómvöldum og mælir aldrei með
hugmyndum sem stríða gegn
menningu og siðvenjum á hverjum
stað. „Að ætla að segja fólki hvað það
á að gera er fyrirfram dauðadæmt”
Hún fullvissar þá sem gefa peninga
(frönsk skattalög bjóða fólki upp á
að gefa allt að 5% tekna sinna skatt-
frjálst) um að gjafimar fari í það sem
þeim er ætlað.
Hún segir að hennar eigið líf hafi
varla verið byrjað þegar formlegri
menntun hennar lauk og hún varð
að horfast í augu við óréttlæti
heimsins. Þrjóska hennar við að
berjast fyrir málstað sem hún trúir á
er orðin alkunn. Hver getur setið f
makindum í Elysée höll, tekið á
móti mektarmönnum, eða jafnvel
gefið sér tíma til að velta fyrir sér
nýju lögunum sem EB hefur gefið
út varðandi kynferðislega áreitni —
sem hún segir þó að gangi ekki
nærri nógu langt — þegar alls stað-
ar biasir við sárasta fátækt, grimmd,
harðræði og örvænting?
Rísandi stjama
Mitterrand forseti er stoltur af eig-
inkonu sinni. Hann virðir rétt
hennar til að segja álit sitt, jafnvel
um viðkvæm málefni sem stundum
hafa komið honum illa stjórnmála-
lega séð. (Hún hefur ergt margan
diplómatann og hefur stundum tek-
ið skakkan pól í hæðina; eins og
fleiri lét hún blekkjast af Winnie
Mandela og skrifaði formála að bók
um hana.) En hún skiptir sér aldrei
af málefnum ríkisins. Hún er ekki
þátttakandi í neinum kvenréttinda-
hreyfingum og engum dettur í hug
að hún hafi átt þátt í þeim aðgerð-
um til aukins jafnréttis sem maður
hennar hefur beitt sér fyrir.
í veislum f höllinni gengur hún
alltaf tveimur skrefum á eftir forset-
anum í virðingarskyni og þrátt fyrir
að sívaxandi orð fari af kvensemi
forsetans er sagt að greinilega sé
gott samband milli þeirra hjóna.
Hún er virt fyrir einlægni sína en
hann er fremur álitinn séður tæki-
færissinni. Sósíalískar skoðanir
hennar hafa frá barnæsku veri ein-
dregnari heldur en hans.
Undanfarin fjögur til fimm ár hefur
stjarna Danielle Mitterrand risið
smátt og smátt. í sjónvarpsviðtali
nýlega skýrði hún frá því hversu
stolt hún væri enn af starfi sínu með
andspyrnuhreyfingunni; hvernig
hún hefði hjúkrað ungum dreng,
sem Þjóðverjar höfðu skotið í háls-
inn, aftur til heilsu. „Drifkraftur
hennar er enn andi frönsku and-
spyrnunnar. Enginn glatar honum;
hugrekkið býr með mönnum að ei-
lífu,“ segir franskur rithöfundur.
„Hún er enn sama stúlkan í hjarta
sínu og berst af sömu ákefðinni fyrir
málstað Kúrdanna." Reyndar snerti
hjálparbeiðni Kúrda í tyrkneskum
flóttamannabúðum hana svo djúpt
að hún sótti 300 þeirra og lét þá setj-
ast að í Auvergne-héraði, þetta var
ekki sérstaklega vinsælt árið 1989,
en eins og hún segir sjálf lætur hún
stjómast af hjarta sínu og skoðun-
um.
Eftir athöfnina í Edinborg flaug
forsetafrúin til Bristol til að heim-
sækja sonardóttur sína, sem er þar
á reiðnámskeiði. Mitterrand hjónin
eiga tvo syni, annar þeirra er blaða-
maður og hinn þingmaður. Fyrir
þremur árum slösuðust tvær sonar-
dætur hennar í bílslysi ásamt föður
sínum. Danielle gekk nær fram af
sér við að hjúkra þeim aftur til
heilsu.
Forsætisráðherra Frakka, Edith
Cresson, hefur aflað sér nokkurra
óvinsælda með yfirlýsingum sínum
upp á síðkastið, einkum og sér í lagi
þegar hún hefur alhæft um eigin-
leika nokkurra þjóða, s.s. að 10%
Breta séu kynhverfir, Japanir iðnir
eins og maurar og Þjóðverjar gjör-
samlega húmorslausir.
Aðspurð hvort hún væri sammála
forsætisráðherranum sagðist for-
setafrúin vera alveg undrandi
hversu mikið væri gert úr þessu sem
sagt hefði verið í einkasamtali fyrir
löngu. En jafnframt því sem óvin-
sældir Cressons aukast dafnar aðdá-
unin á Danielle Mitterrand, áhuga
hennar og dugnaði. Þar sem Dani-
elle er dæmigerð fyrir alþekktan
þokka franskra kvenna varð ekki hjá
því komist að spyrja hana hver
leyndardómurinn væri að baki því
að eldast vel. lrAð halda hæfileikan-
um til að komast við,“ sagði hún,
„og láta sér koma það á óvart sem
gerist."
Ekki ómissandi
Þegar forsetatímabili manns henn-
ar lýkur árið 1995 verður Danielle
orðin sjötug. Hún brosir ánægju-
lega og segir að ef hún verði þá ekki
orðin algerlega elliær fái hún enn
meiri tíma til að sinna hugðarefnum
sínum og berjast fyrir þann málstað
sem hún trúir á. Hún tekur bækling
frá France Liberté samtökunum
sem ber undirtitilinn Danielle Mitt-
errand sjóðurinn. Hún hylur nafn
sitt á bæklingnum. Þessi samtök
voru stofnuð með það í huga að þau
störfuðu áfram eftir að hennar nyti
ekki lengur við. „Ég stofnaði þetta
til að skilja eftir mig starfsemi sem
þarf ekki á mér að halda til að starfa
áfram og lifir mig.“