Tíminn - 12.09.1991, Blaðsíða 16

Tíminn - 12.09.1991, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGASÍMAR: : 68 2233[ & 686300 RÍKISSKIP NÚTIMA FLUTNINGAR Hatnortiusinu v Tryggvogotu . S 28822 CS3ŒZSJEH r'*ssn Lausnin er: Enzymnl .Alýtt í Evrópu EURO-HfllR á Islandi M aEngin hárigræðsla aEngin gerfihár jæÆ BEngin lyljameðferð ■ Einungis tímabundin notkun Eigid hár med hjálp lífefna-orku P:ÖREte!?Í!íl21 Rvik 091 ■676331e.kl.16.00 ■ ■■■■■■■■■■■■■ Ókeypis augiýsingar fyrir einstaklinga SIMI 91-676-444 Tímiim FIMMTUDAGUR 12. SEPT. 1991 Er ástæða til að óttast að ísland komist í eigu útlendinga? Erlent fyrirtæki að tæplega hálfu kaupir jörð á Snæfellsnesi Alþjóðlegt fyrirtæki í jarðakaupum á íslandi „Ef um er að ræða félag, sem er að meira en 20% í eigu útlend- inga, og félaginu sé einungis ætlað að eiga jörð án þess að stunda eigi á henni atvinnurekstur, þá þarf leyfi dómsmálaráðuneytisins til að félagið megi kaupa jörðina," segir Jón Thors, deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu. Jón kvaðst ekki vita til þess að slík um- sókn lægi fyrir ráðuneytinu. Jón segir ennfremur að kaupi félag, sem er að meira en 20 hundraðshlutum í eigu útlendinga, fast- eign á íslandi, þá fáist slíkum kaupum ekki þinglýst. Sl. sumar var jörðin Innri- Kóngsbakki í Helgafellssveit á Snæfellsnesi seld. Kaupandinn er nýstofnað hlutafélag, sem var stofnað um kaupin á jörðinni. Fé- lagið heitir Arbonne-Kóngsbakki hf. Arbonne International er alþjóð- legt fyrirtæki. Það er skráð í Lúx- emborg. Stjórnarformaður og stofnandi þess er Norðmaöurinn Petter Mörk. Arbonne framleiðir og selur snyrtivörur. Umboðsaðili þess á íslandi heitir Inga Holdö og hún og fleiri íslendingar eru skráðir eigendur 51% hlutafjár í Arbonne- Kóngsbakki hf., en Ar- bonne Holding eigandi 49%. Ein höfuðröksemd, sem höfð hef- ur verið uppi hjá andstæðingum inngöngu Islands í EB og í EES, hefur verið sú að þá muni útlend- ingar með einum eða öðrum hætti ná að komast í fiskimiðin og að kaupa upp land á íslandi, bæði bú- jarðir, laxveiðiár o.fl. Á hinn bóginn hafa þær raddir heyrst að ekki geti verið sérlega eftirsóknarvert fyrir útlendinga að eignast hér land og lítil hætta á að ísland verði keypt upp með þeim hætti. Tálsverð umræða hefur orðið um þessi mál í nágrannalöndunum. Þannig hafa mikil blaðaskrif orðið í Danmörku þegar erlendir auð- menn og - fyrirtæki hafa keypt upp stór svæði. En eru áhyggjur af þessu tagi ástæðulausar hér á ís- landi? í fyrri viku bárust fréttir af því að utanríkisráðuneytið hygðist rann- saka meintan grun um að útlend- ingar væru að laumast bakdyra- megin inn í sjávarútveginn með því að gera útgerðarmenn skuld- bundna sér með ýmsum hætti, svo sem lánafyrirgreiðslu. En hvað með lendur — jarðir — að ekki sé talað um jarðir með hlunnindum, svo sem laxveiði? Er ísland aðeins kaldur klettur norður í Ballarhafi í augum útlendinga, eða staður þar sem eftirsóknarvert er að dvelja á og eiga þar aðstöðu? Jörðin Innri-Kóngsbakki var seld sl. sumar, sem fyrr segir, en áður hafði fyrrverandi eigandi og ábú- andi selt bæði bústofn og fullvirð- isrétt. Hreppurinn neytti ekki lög- bundins forkaupsréttar síns. Inga Holdö segir að Arbonne sé mjög vaxandi fyrirtæki, sem starfi á heimsvísu. Það selji eingöngu vörur úr jurtaríkinu og einvörð- ungu í heimakynningu. Inga hef- ur verið umboðsmaður Arbonne á íslandi undanfarin 5 ár. Stofnandi Arbonne er, að sögn Ingu, íslandsvinurinn Petter Mörk, sem er mikill áhugamaður um náttúruvernd og skógrækt og hefur áhuga á að sinna þeim áhugamálum sínum í verki á Kóngsbakka. Umboðsaðilar fyrir- tækisins hér á landi hafi sömu hugsjónir og hafí t.d. síðustu ár plantað yfir 20 þúsund trjáplönt- um víða um land. Arbonne-Kóngsbakki hf. hafi ver- ið stofnað vegna jarðakaupanna og til þess að styðja frekar og efla þessar hugsjónir, sem komi fram í samþykktum félagsins.í þeim seg- ir m.a. að viðhalda eigi byggingum á jörðinni, stunda skógrækt, menningarstarfsemi, námskeiða- og ráðstefnuhald. í lögum um eignarrétt að fast- eignum segir að enginn, sem ekki er íslenskur ríkisborgari, megi öðlast eignarrétt eða afnotarétt af fasteignum nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, sem eru m.a. að hafa átt lögheimili á ís- landi í samfleytt fimm ár. Útlendingur, sem ekki hefur átt lögheimili á íslandi í fimm ár, en hefur rétt til að stunda atvinnu- starfsemi á íslandi, má öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fast- eign til eigin nota og/eða til afnota fyrir atvinnurekstur sinn, fylgi eigninni einungis venjuleg lóðar- réttindi, en ekki önnur réttindi, svo sem veiði- eða vatnsréttindi. Alla slíka samninga skal þó senda dómsmálaráðuneytinu til yfir- lestrar, að sögn Jóns Thors. —sá Halldór Ásgrímsson alþingismaður um hugmyndir um skyldusölu alls fisks á innlendum uppboðsmörkuðum: ALMENNAR ADGERÐIR VÆNLEGRI EN BANN Frá aöalfundi Félags kaupenda á fiskmörkuðum. „Þær almennu aðgerðir, sem grip- ið var til og voru í undirbúningi, skipta langmestu máli í þessu sambandi. Ef menn ætla að fara að banna það algerlega að sigla með físk beint af miðunum, þá er ljóst að sumt af þeim físki, sem kemur á erlendan markað, mun verða mun verri að gæðum en ella,“ sagði Halldór Ásgrímsson, alþing- ismaður og fyrrum sjávarútvegs- ráðherra, í samtali við Tímann í gær, en hann var einn þeirra sem þátt tóku í pallborðsumræöum á aðalfundi Félags kaupenda á físk- mörkuðum, sem haldinn var í Hafnarfírði í gær. Yfirskrift pallborðsumræðnanna var: „Hvað er í veginum fyrir því að óunninn fiskur til EB-íanda fari fyrst inn á innlenda fiskmarkaði?" Þær almennu aðgerðir, sem Hall- dór vísar þarna til, eru álagið í kvóta vegna útflutnings á ferskum fiski, sem nú er 15-20%, en Halldór lagði til sem sjávarútvegsráðherra að yrði 25%. Þá vísar Halldór til þeirra áforma, sem boðuð höfðu verið og verða væntanlega tekin upp, að allur fiskur, sem landað yrði hérlendis, yrði vigtaður hér heima. Halldór telur að ekki sé fullreynt hvort almennar aðgerðir af þessu tagi muni skila þeim árangri sem stefnt er að, en bendir á að það magn, sem skilar sér á fiskmarkaði hér heima, hafi þrátt fyrir allt farið vaxandi. „Mér finnst nær að menn haldi sig við efnið og ljúki því sem þeir hafa byrjað á, en stökkvi ekki til og byrji sífellt á nýjum hlutum, eins og nú virðist uppi hjá Sam- bandi fiskvinnslustöðvanna, sem krefjast þess að ýsa og þorskur veröi alls ekki flutt út óunnin. Ég hélt að þeirra aðaláhersluatriði á sínum tíma hafi verið að allur fisk- ur, sem landað er hér heima, verði vigtaður hér og því kemur mér á óvart að þeir skuli ekki leggja meg- ináhersluna á að það komist í framkvæmd." Sem kunnugt er rýrnar fiskurinn á leið á erlenda markaði og vegur því minna er- lendis en ef hann væri vigtaður hér heima og því gengur hægar á kvóta skipanna. Á aðalfundinum í Hafnarfirði í gær var samþykkt að breyta nafni félagsins úr Félag fiskkaupenda á fiskmörkuðum í Félag kaupenda á fiskmörkuðum, og auk þess var samþykkt ályktun þar sem skorað var á stjórnvöld að selja allan fisk, sem veiddist á íslandsmiðum, á uppboðsmörkuðum hér heima. -BG Ekki meiri- hluti fyrir skólagjöldum Horfur eru á að ríkissjóður verði af 250 m.kr. sértekjum vegna skólagjaida á næsta fjár- lagaári, vegna ósættis innan stjórnarflokkanna um málið. Össur Skarphéðinsson, formað- ur þingflokks Alþýðuflokksins, upplýsti í þætti Páls Heiðars Jónssonar „í vikulokin" sl. laugardag, að ekki væri þing- meirihiuti fyrir slíkri gjald- töku, vegna andstöðu a.m.k. fjögurra þingmanna Alþýðu- flokksins. Áður hafði komið fram að þrír þingmenn gerðu fyrirvara um samþykkt skóla- gjalda, en það hefði ekki dugað til að fella málið. í gær lýsti Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra því síðan yfir formlega, að úr því að ekki væri þingmeirihluti fyrir mál- inu þýddi lítið að halda því til streitu. í viðtali í ríkissjónvarp- inu lýsti hann því yfir að ekki væri hægt að spara meira í menntamálaráðuneytinu, þannig að líklega kæmu þær 250 milljónir, sem annars hefðu náðst inn með skóla- gjöldum, fram sem meiri halli á ríkissjóði. - BG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.