Tíminn - 21.09.1991, Blaðsíða 1

Tíminn - 21.09.1991, Blaðsíða 1
„Önnurnar þrjár“ og „Sæljónið“ farast Fyrir hundrað og þrjátíu árum voru íbúar Reykjavíkur ekki nema rúm 1100. Fram að þeim tíma höfðu erlendir kaupmenn ráðið hér lögum og lofum og verið mestir virðingarmenn. En nú tók þetta að breytast. Þegar latínuskól- inn var kominn og helstu embættismenn voru sestir að í Reykjavík fór mesti ljóminn af kaup- mönnum. Nú varð embættismannastéttin fremst um allar virðingar. Sú varð og önnur breyting á að íslenskum kaupmönnum fjölgaði smám saman og þótt þeir drægju ekki burst úr nefí hinna rótgrónu selstöðukaupmanna, þá sá almenningur að kaupmennska var engin yfírburðagáfa sem ein- göngu var léð útlendingum. En þrátt fynr þetta höfðu kaupmenn enn mikil völd og álit, eins og fram kom í því að þeir voru öðrum fremur valdir til trúnaðarstarfa. Ýmsir þeirra sátu jafnan í bæjarstjóm og réðu þeir mestu um sfjóm kaupstaðarins. hér 3. nóvember 1857 eftir 30 daga ferð frá Kaupmannahöfn. Þetta varð seinasta ferð skipsins til íslands, því að nú átti gufuskip að taka við sigl- ingum milli landa. Voru á döfinni samningar við C.PA Koch í Kaup- mannahöfn (þann er síðar varð aðal- stofnandi Sameinaða gufuskipafé- lagsins) að hann tæki að sér ferðim- ar framvegis. Áttu þær að vera sex á ári milli Kaupmannahafnar og Reykjavíkur með viðkomu í Leith og Færeyjum. „Sölöven" lá hér þrjár vikur, en 24. nóvember var það ferðbúið. Lágu þá önnur þrjú skip hér einnig albúin til útsiglingar. Eitt skipið hét „Drei Annas". Átti það Moritz Biering kaupmaður og ætlaði það að fara beint til Kaupmannahafnar. Skip- stjóri á því hét Lund. Þriðja skipið var skonnorta sem ,Juno“ hét, og átti hún að fara til Spánar með fisk. Fjórða skipið var einnig skonnorta sem Sveinbjörn Jakobsson átti, og ætlaði hún til Englands. Skipstjóri á henni hét Glud. Skipin höfðu tafíst hér vegna út- synnings storma og rigninga er bönnuðu útskipun dögum saman. En 23. og 24. nóvember hafði verið logn og gott veður og var þá lokið við að ferma skipin. Mundu þau hafa getað lagt af stað daginn eftir, en þá var komið norðanveður svo að þeim leist ekki vel á að leggja úr höfn. Sagt er þó að það hafi ráðið meiru um að þau héldu kyrru fyrir þennan dag að þeir kaupmennirnir Þor- steinn Jónsson og Ditlev Thomsen áttu þá afmæli. Thomsen var þá ráðinn til utanfar- ar með „Sölöven" og einnig Jón Kaupmannaaðall Þegar hér var komið sögu voru þessir helstu útlendir kaupmenn í Reykjavík: Carl Franz Siemsen, Ditlev Thomsen, Moritz Biering, P.C. Knudtzon, Carl 0. Robb, N. Chr. Havsteen, M. Smith, R.P. Tærgesen og W. Fischer. En af íslenskum kaupmönnum má helst nefna Þor- stein Jónsson, Jón Markússon, Sveinbjöm Jakobsson og Hannes St Johnsen. Margir hinna erlendu kaupmanna áttu sjálfir skip, sem þeir höfðu í för- um landa á milli, og vom því ekki upp á aðra komnir með flutning og farmgjöld. Annars var lítið um sigl- ingar til landsins, nema hvað póst- skipið hélt uppi nokkurn veginn reglubundnum ferðum. Póstskipið hét „Sölöven" og hafði verið mörg ár í siglingum hingað. Það var segl- skip. Skipstjóri þess hét Stilhoff. Hann varð fyrstur manna til að benda á þá nauðsyn að koma hér upp siglingamerkjum. Árið 1854 stakk hann upp á því að dufl eða tunna yrði sett upp á Akureyjarrif og viti reistur á Garðskaga. Bæjarstjórn tók það mál til athugunar. Taldi hún sér ekki skylt að sjá um vitabygging- una, en mælti með þeirri hugmynd við stjórnina. Aftur á móti sam- þykkti hún árið eftir að setja dufl á Akureyjarrif. Upp úr því var svo farið að semja hafnargjaldaskrá og sér- stök hafnarnefnd kosin fyrir 1856. Hinsta sigling „Sölövcn“ Póstskipið „Sölöven" hafnaði sig Kaupfar í sjávarháska. Markússon kaupmaður og Snæ- bjöm Benedictsen verslunarstjóri. En Moritz Biering ætlaði ásamt konu sinni og tveimur bömum að fara með „Drei Annas" til Kaup- mannahafnar og dveljast þar vetrar- langt. Bæði þessi skip voru mjög hlaðin haustvörum og meðal annars voru á „Sölöven" fjórir móálóttir hestar. „Sölöven" var stórt og gott skip, eitt hið besta sem þá hafði verið í sigl- ingum hér við land. „Drei Annas“ var miklu minna og meira hlaðið. Hafði það meðferðis 144 tunnur af saltkjöti, mikið af ull og tólg og fiski og auk þess var þar húsbúnaður Bi- erings og allir dýrgripir hans í gulli, silfri og gersemum, því að hann ætl- aði að taka á leigu íbúð í Kaup- mannahöfn og hafa þar sinn eigin húsbúnað. Undir kvöld hinn 25. nóvember tók veðrið að lægja og gekk vindur þá til suðausturs eða suðurs, en loftvog Síðla í növember 1857 fórst póstskipið „Sölöven" undir JÖkii og í sama veðri brotnaði kaupskipið „Önnurnar þrjár“ á Mýrum á sama stað og „Pourquoi Pas?“ fórst síðar. Með skipunum fórust fjórir helstu kaup- menn i Reykjavík var fallandi. Þrjú skipin fóru þá að búa sig til ferðar, en skonnorta Sveinbjarnar sýndi ekkert ferðasnið ásér. Það var engu líkara en að ferðalag- ið legðist illa í Biering og vildi hann ekki fara um borð um kvöldið. En konan rak hart á eftir og sagði að þau mundu verða allt of sein fyrir daginn eftir ef þau svæfu í landi um nóttina. Og er hún nú sótti þetta svo fast sagði Biering: „Þú skalt þá ráða því.“ Fóru þau hjónin svo um borð kl. 8 um kvöldið og tvö börn hans af fyrra hjónabandi, piltur og stúlka. Hét pilturinn James og var á 19. ári, hið mesta mannsefni. Hafði hann stundað nám í latínuskólanum í 3 vetur og nú ætlaði faðir hans að koma honum að verslunarnámi í Kaupmannahöfn, svo að hann gæti síðar orðið sín önnur hönd við versl- unina. Stúlkan hét Valgerður Inger Margrét og var 16 ára að aldri, „gáf- uð vel og mannvænleg". Það er mælt að þegar báturinn lagði frá landi með þau, hafi Biering sagt: „Guð gefi íslandi góðar nætur“. Um kl. 5 um morguninn létti skip- ið akkerum. Var þá enn svartamyrk- ur, því að ekki var tunglsljós. En byr var hagstæður til að sigla út flóann. Er mælt að Lund skipstjóri hafi sagt hafnsögumanni áður en þeir skildu að hann mundi fyrst sigla djúpt vestur flóa, því að hann byggist við að veður mundi ganga til vesturs eða suðvesturs og vildi hann þá vera sem lengst frá landi. Bendir þetta til að honum hafi ekki þótt útlitið tryggilegt. Uggvænlegt veðurútlit Nú er að segja frá þeim á hinum skipunum. Þegar Stilhoff skipstjóri vaknaði var enn myrkt af nótt. Varð honum fyrst fyrir að athuga loftþyngdar- mælinn og sá að hann hafði mjög fallið um nóttina. Leist honum þá ekki á blikuna og sýndist vænlegast að fara hvergi. Vildi hann nú ná tali af Lund og ráðgast um við hann hvað gera skyldi. Fer hann í bát og lætur róa með sig þangað sem hann átti von á að „Drei Annas“ lægi, en þá var Lund lagður af stað fyrir stundu. Fer Stilhoff nú aftur til skips sfns. Er haft eftir honum að hann hafi þá sagt að ekkert vit væri í því að leggja af stað, þvf að veður væri í nánd og þegar skollið á úti fyrir. En stýrimaður eggjaði fast að lagt væri af stað og kvað það illt af- spurnar að þeir lægju þar eftir, þeg- ar miklu minna og lakara skip hefði lagt út. Varð skipstjóri þá reiður og skipaði að hefja upp akkeri. Og svo var hann hastur og hámæltur, er hann var að skipa fyrir, að köllin heyrðust í land. Um þetta leyti létti „Juno“ akker- um, en tókst svo slysalega að það hrakti og var að því korpið að reka upp á örfiriseyjargranda. Brá Stil- hoff þá við og kom því til hjálpar, en þetta tafði hann um tvær stundir og lagði hann því ekki á stað fyrr en um kl. 8. Hafnsögumaður fylgdi honum út fyrir Gróttu. Heyrði hann Stilhoff segja að hann ætlaði sér að vera sem næst suðurlandinu, því að úr þeirri átt ætti hann stórviðris von. Sást það til hans, að þegar hann var kom-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.