Tíminn - 21.09.1991, Blaðsíða 8
16
Laugardagur 21. september 1991
í TÍMANS RÁS
Vandi
Nú þegar margt er um rekstrar-
erfiðleika dagblaða rætt — sum-
ir segja „litlu“ eða „minni" blað-
anna eða þá „flokksblaðanna" —
til aðgreiningar frá öðrum blöð-
um, sem eru stór og ofan í kaup-
ið fullkomlega óháð flokkum,
kvikna margar velviljaðar hug-
myndir í öllum áttum þeim fyrr-
nefndu til viðreisnar. Þeir virð-
ast nefnilega fleiri sem ekki vilja
að þau hverfi með öllu, þótt þeir
séu auðvitað nokkrir, sem óska
þeim fj... til, segja að það sé al-
veg nóg af þessum blöðum og
sér í lagi eigi flokksblöð ekki að
fyrirfinnast í allri „óhæðinni“.
Það skiptir kannske litlu í þess-
ari umræðu þótt hér sé fullyrt
að „flokksblöðin“ svonefndu séu
alveg jafn opin öllum sjónar-
miðum og hin. Þetta vita reynd-
ar allir, sem vita vilja. Það hrekk-
ur raunar einu dagblaði skammt
þótt útgefandinn kalli sig
Herðubreið hf. en ekki Lýðræð-
isflokkinn eða annað ámóta. Það
er skrifað ekki minna af svarta-
galli og bulli í blöð í eigu ein-
staklinga eða sameignarfélaga
en í blöð sem flokkar eiga.
„óhæðið" eintómt virðist því
ekki einhlítur vegvísir á braut-
inni til þroskaðra vitsmunalífs í
fjölmiðlun. Þessi er heldur ekki
undirrót vanda „flokksblaðanna"
og enginn keypti þau hóti frekar
þótt þau skiptu um eigendur.
Blaðrið um „flokksblöð" er mas
manna sem ekkert vita um
markaðsmál og mundu fjárfesta
„flokksblaðanna"
á vitlausum forsendum ef þeir
kæmu nærri dagblaðaútgáfu og
sennilega hverju öðru sem væri
líka. Ástæða rekstrarvanda
„flokksblaðanna" er sama eðlis
og ef gömul sjoppa fer á hausinn
af því að það er búið að stofna tíu
nýjar sjoppur í kringum hana.
Öllum er sama hver á gömlu
sjoppuna eða nýju sjoppumar.
Aftur á móti má vera að ein-
hverjar af nýju sjoppunum (þær
sem ekki fara strax á hausinn —
nb!) eigi sér betri ísvél og hafi
meira úrval af ávaxtasósum. Úr
slíku er þó hugsanlegt ef bæta,
ef ráðrúm gefst, sem auðvitað er
þó ekki alltaf sjálfgefið að gerist.
En margir vilja verða vitni að
áframhaldandi útgáfu „flokks-
blaðanna“ í einhverri mynd,
þrátt fyrir ljandskapar- og úr-
töluhjal sumra. Sérstaklega
viðra nú margir þá gömlu hug-
mynd upp á nýtt að stjómmála-
flokkar sameinist um eitt blað,
þar sem pólitíkusar láta móðan
mása hver á sinni afmörkuðu
síðu. (Ekki er nú andstyggðin á
flokkapólitíkinni meiri — þrátt
fyrir ailt!) En sennilega er hug-
mynd þessi ekki alveg raunsæ,
þótt hún sé falleg. Skrif um
hreina flokkapólitík í „flokks-
blöðunum" em jafnaðarlega svo
lítil að vöxtum að þau dygðu
ekki á daglega síðu, nema sér-
stakt átak yrði gert til þess. Önn-
ur þjóðmálaskrif gætu nefnilega
átt heima í hvaða blaði sem vera
vildi og em jafn opin og blöð nú
em — og þyrftu þess vegna enga
flokkssíðu. Meiru mundi þó
skipta að blaði sem þessu yrði
óstjómandi. Hversu óháð, sem
það að öðm leyti skyldi vera,
yrði svo fjölbreytilegum að-
standendum aldrei gert til geðs.
Ekki aðeins vegna þess að pólit-
ískir flokkar ættu í hlut. Stefna
og áherslur í dagblaði koma svo
ótal mörgu fleiru við en stjóm-
málum. Blaðið yrði fyrr en varði
einhvers konar óskapnaður, sem
enginn vissi hvað sneri upp eða
niður á og starfsliðið lenti á
taugahælum, það af því sem
ekki forðaði sér í tíma. Hver sem
úrræði aðstandenda „flokksblað-
anna“, „minni blaðanna" eða
„litlu blaðanna“ verða, em þessi
úrræði ekki meðal hinna álitleg-
ustu. En sem betur fer ætti að
vera um marga aðra kosti að
ræða...
Gettu nú
Sei, sei, jú. Það var hótelið
í Borgamesi sem við
spurðum um fyrir viku.
Þá er það tígulegt fjall,
sem skartar háreistari
hamrabeltum en önnur
fjöll. Við rætur þess efndu
reykvískir verslunarmenn
gjama til útiskemmtana
seint á fyrri öld og fram á
þessa.
er OC £ 0 cc C2 «-s 3
<TZ t- cc cr *D
ÞC cr X CP o
-«C •2. v> 2 cc E
o cr 2 «e PÍ
o 21 > —
Gx t- u- ~2 10 3
<c 2 H V-U Z. Q o B
<n >> — 0 s P£ o Q c Q
3: U 0 »-» <r- oc
U <T> •3: o [.) | Oj
UJ c- •z: T
tc uA — Q «
c* - L/JH cc w
£ ul 0 S VT «c Ul
*-> iO E »_ 2 1
3^ l>lq- a: p- 2 r
t- u1 VJ VI
rO iT) * t’* */) Z JZ. B u. cc
b~ <x ftc
0 o V? oq '0 2
E co
KROSSGÁTA