Tíminn - 21.09.1991, Blaðsíða 6

Tíminn - 21.09.1991, Blaðsíða 6
14 HELGIN Laugardagur21. september 1991 „ „ivJ SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL Deidre Hunt missti kjarkinn, en tók það að sér að finna mann sem var reiðubúinn að drepa gegn greiðslu. Það er vandasamt verk að fremja morð svo vel fari. Þess vegna ákváðu Deidre og Kosta að halda lokaæfingu og tóku hana upp á myndband. Það er alltaf betra að koma vel undirbúinn að því sem gera þarf. En þrátt fyrir æfinguna lifði fórnarlambið af árásina og allt fór út um þúfur. Konstantinos Fotopouios var gráðugur með afbrigðum og leigu morðingjarnir treystu honum ekki. Bærinn Daytona Beach á Flórída var svo friðsæll laugardagsmorguninn 4. nóvember 1989 að það virtist með ólíkindum. Allir nátthrafnamir voru horfnir til síns heima og meira að segja vændiskonurnar höfðu ákveðið að nú væri komið nóg. Vegalögreglumaður nokkur geisp- aði og var ánægður með að ekkert hefði gerst um nóttina til að raska rónni. En hann hafði varla hugsað þessa hugsun til enda þegar tilkynn- ing um skotárás barst honum um talstöðina. Hann var sendur til 2505 North Halifax, en það heimilisfang var í auðmannahverfi. Þegar lögreglu- maðurinn kom á áfangastað minnti húsið ffemur á höll en venjulegt heimili. Hann hafði varla náð að leggja bif- reiðinni þegar maður á nærfötunum einum fata hentist út úr húsinu. Hann hrópaði eitthvað um að systir hans hefði verið otin. Erfitt var að fá samhengi í ,ö sem maðurinn hrópaði, en eitt! íð var það um að mágur hans hefði skotið einhvem. Smám saman tókst að fá botn í sundurlaust tal mannsins og var helst á honum að heyra að „einhver" hefði komist inn í húsið og hefði skotið systur hans í höfuðið. Síðan hefði eiginmaður fómarlambsins (mágur æsta mannsins), Konstant- inos Fotopoulos, skotið innrásar- manninn. „Hann er ennþá inni,“ bætti hann við. Skaut á skuggamynd Að þeim orðum töluðum kom Foto- poulos út úr húsinu og slóst í hópinn sem hafði safnast þar saman, rann- sóknarlögreglumenn og starfsmenn tæknideildar voru komnir á staðinn. Fotopoulos vísaði lögreglunni inn í húsið og inn í svefnherbergið þar sem Lisa kona hans var. Lögreglan hafði þegar girt af svæð- ið og lögreglumenn sáu til þess að sjúkralið ætti greiðan aðgang að húsinu til að sækja Lisu. Þó svo að Lisa hefði verið skotin í höfuðið var ennþá lífsmark með henni og læknar töldu við fyrstu sýn að hún ætti þó nokkra möguleika á að lifa af. Tæknimennirnir hófust nú handa við að rannsaka vettvang. Innrásar- maðurinn lá látinn á svefnherbergis- gólfinu. Hann var með litla skamm- byssu í hægri hendi og með fingur á gikknum. Eftir að tæknimennimir höfðu ljós- myndað og skoðað herbergið tók rannsóknarlögreglumaður byssuna varlega úr hendi hins látna og sendi hana til rannsóknarstofunnar. Fjög- ur tóm skothylki fundust á gólfmu. Skilríki fundust í veski hins látna og leiddu þau í Ijós að hann var frá Ohio, hét Bryan L. Chase og var 18 ára. Lögreglan hóf nú að yfirheyra Kosta Fotopoulos. Kosta, sem var af grísk- um ættum og 30 ára gamall, skýrði frá því að hann hefði verið sofandi ásamt konu sinni, sem var 29 ára og einnig af grískum ættum. Hann sagðist hafa vaknað við skothvelli. Hann kvaðst strax hafa gert sér grein fyrir að Lisa hefði verið skotin, og við rúmið hennar megin sá hann skuggamynd af manni. Hann teygði sig varlega niður á gólfið þar sem byssan hans lá. Hann vatt sér síðan eldsnöggt við og hleypti af fimm skotum á skuggamyndina. Síðan kveikti Kosta Ijósið. Rúmið var þakið blóði Lisu. Innrásarmaðurinn hafði fallið fyrir skotunum og lá á gólfinu. Kosta sá að hann hreyfði sig og skaut því einu skoti til viðbótar. Um leið hrópaði hann til mágs síns og bað hann um að hringja á lögreglu og sjúkralið. Nágrannakona úr næsta húsi gaf sig fram við lögregluna og kvaðst hafa heyrt hávaða; hún vildi þó ekki sverja að um skothvelli hefði verið að ræða, en sagðist örugg um að það hefði verið klukkan 4:52. Lögreglan ræddi við bróður Lisu. Hann sagði að hann hefði ekki getað sofið og hefði því farið niður í eldhús til þess að fá sér mjólkurglas. Hann hefði síðan farið inn til sín og sofnað. Skömmu síðar hefði hann vaknað við byssuskot, sem hann taldi að væru utandyra þar til Kosta hrópaði til hans og bað hann að kalla á hjálp. Þá komst hann að því að systir hans hafði orðið fyrir skoti og meira sagð- ist hann ekki muna. Paul Crowe lögregluforingi hafði verið utanbæjar þegar árásin átti sér stað, en um leið og hann kom aftur og frétti af atburðum hraðaði hann sér til sjúkrahússins til fundar við Lisu. Hann þekkti hana og fjölskyldu hennar vel. Þau höfðu eitt sinn starf- að saman að bæjarmálum og honum var annt um heilsu hennar. Lisa skýrði honum frá því sem gerst hafði og lagði til mikilvægar upplýsingar fyrir rannsóknina. Næstu klukkustundir fóru í það að afla margvíslegra gagna. Slóð byss- unnar var rakin. Það tók talsverðan tíma, því byssan hafði gert víðreist og oft skipt um eigendur. Þó komst það upp að lokum að henni hafði verið stolið úr bifreið síðasta eig- anda. Ekki er allt sem sýnist Chuck Evans hafði nú tekið við rannsókn málsins og það var margt sem honum fannst ekki koma heim og saman. Honum fannst það grun- samlegt hversu snöggur Kosta hafði verið til að skjóta á skuggamynd í herberginu, og einnig það að hann hafði haft hlaðna byssu til taks við rúmstokkinn. Það var ekki eðlileg framkoma að maður skjóti fleiri skotum í dimmu herbergi þegar hann veit að hans nánustu ættingjar eru í húsinu. Ekki var það heldur eðlilegt að innbrotsþjófurinn skyldi láta öll verðmæti á neðri hæð húss- ins ósnert, en halda rakleitt upp í svefnherbergið og skjóta Lisu — og engan annan. Crowe lögregluforingi var sammála Evans um að þama væri ekki allt sem sýndist. Einnig rifjaði lögreglan nú upp að ítrekaðar tilraunir höfðu verið gerð- ar til að ræna verslun sem Lisa rak í miðbænum. Lífi hennar hafði tví- vegis verið ógnað og hún var þess fullviss að sami maðurinn hefði ver- ið að verki í öll skiptin. Þegar hún var fengin til að skoða myndasafn lögreglunnar bar hún samstundis kennsl á manninn, svertingja sem gekk undir nafninu TJ. Seint um kvöldið hafði maður sam- band við lögregluna og kvaðst hafa ýmsar upplýsingar um skotárásina á

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.