Tíminn - 21.09.1991, Síða 7

Tíminn - 21.09.1991, Síða 7
Laugardagur 21. september 1991 HELGIN 15 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL Lisu. Hann féllst á að koma á lög- reglustöðina og gefa staðfesta skýrslu. Ástkona Kosta Maðurinn skýrði frá því að hann hefði um tíma verið í föstu sambandi við tvítuga stúlku að nafni Deidre Michelle Hunt. Eftir að upp úr sam- bandi þeirra slitnaði komst hún í kynni við Kosta Fotopoulos og varð ástkona hans. Hann sagði að þann 30. október hefðu þau skötuhjú haft samband við sig og boðið sér 10.000 dollara fyrir að koma Lisu fyrir kattamef. Það var á allra vitorði að fjölskylda Lisu var vellauðug og nú fór að koma í ljós að Kosta sveifst einskis til að koma höndum yfir þann auð. Deidre bað hann að hitta sig til að ákveða hvemig best væri að drepa Lisu. Hún skýrði honum frá þvf að þetta hefði verið í bígerð í tvo mán- uði og að fyrst hefði hún ætlað að drepa hana sjálf, en síðan brostið kjark. Þess vegna hefði það komið í hennar hlut að útvega mann til verksins. Vitnið skýrði frá því að sér hefði fundist eitthvað gmggugt við þessa málaleitan alla. Hann hafði grun um að þegar Lisa væri öll, myndu þau hjúin ekki skirrast við að senda hann sömu leið. Hann var sannfærður um að Kosta hefði ekki í hyggju að reiða út þá 10.000 dollara sem í boði voru. Hann taldi líka að Kosta vildi ekki hætta á að morðinginn skýrði síðar frá öllu eða reyndi að kúga út úr honum fé vegna vitneskju sinnar. Hann ákvað því að afþakka gott boð. Lögreglan spurði nú hvort hann þekkti Bryan Chase. Jú, vitnið kvaðst þekkja hanna og sagði einnig að vin- ur hans hefði séð Deidre fara heim til Bryans og að þau hefðu eitthvað ver- ið að bralla saman. Næsta morgun kom bróðir Lisu á lögreglustöðina. Honum var illa við að benda á Kosta, þar sem hann væri mágur hans. En hann sagði að Lisu hefði gmnað að Kosta ætti í ástar- sambandi við Deidre og hefði beðið sig um að útvega einkaspæjara til að fylgjast með ferðum þeirra. Lögreglan kallaði nú Deidre til yfir- heyrslu. Hún var hin merkilegasta með sig og þóttist ekkert vita um málið annað en það sem hún hefði lesið í blöðunum. Hún neitaði öllu sambandi við Kosta. Chuck Evens, lögreglumanninn sem stjómaöi rannsókninni, grun- aöi að eitthvað værí bogið við frásögn eiginmannsins. Herbergisfélagi Deidre hafði sam- band við lögregluna og kvaðst búa yfir talsverðri vitneskju og vera reiðubúin til að leysa frá skjóðunni. Hún lofaði að koma á lögreglustöð- ina, en lét ekki sjá sig og Deidre fékk hana til að fara úr bænum. Lögreglan gómaði hana þó innan tíðar og færði hana á stöðina. Hún brotnaði fljótlega saman og skýrði frá því að hún hefði áhyggjur af manni sem væri horfinn. Við nánari yfirheyrslu kom í ljós að kærastinn hennar vissi meira um málið og að umræddur kærasti væri TJ, sá sem hafði oftar en einu sinni veist að Lisu Fotopoulos. Lögreglan lagði nú hart að stúlkunni til að skýra frá því hvar unnusti hennar gæti verið niður kominn, og skýrði henni frá því að líf hans gæti verið í hættu, þar sem hann vissi of mikið um málefni Kosta. Þeir sannfærðu hana um að það væri lífsspursmál að lögreglan finndi hann á undan Kosta. Hún skýrði þeim frá því hvar hann kynni að vera að finna og varð það til þess að lögreglan náði honum bráðlega. Fleiri morð í fyrstu vildi TJ ekkert segja, en þeg- ar minnst var á manninn sem hafði horfið, sagði hann: „Vitið þið um Ke- vin?“ Og síðan opnaðist flóðgáttin og upplýsingar fengust, sem bentu til þess að Kosta og Deidre hefðu myrt Kevin Ramsey, 18 ára að aldri. Til þess að fá skýra mynd af glæpa- ferli þeirra Kosta og Deidre, var ákveðið að hefja yfirheyrslur að nýju yfir Deidre. Hún var handtekin og hún gerði sér grein fyrir því að nú væri öllu lokið og ákvað að skýra frá. Henni voru lesin réttindi hennar og hún undirskrifaði skjal þar sem hún samþykkti yfirheyrsluna. Hún skýrði frá því að hún og Kosta hefðu rekið vændishring, stundað fölsun og eit- urlyfjasölu og oftar en einu sinni framið morð gegn greiðslu. En lög- reglan vildi á þessu stigi málsins ein- beita sér að Kosta og því að hann vildi láta taka konu sína af lífi. Kevin Ramsey virtist fyrsta skrefið í þeirri rannsókn. Deidre sagði að hún og Kosta hefðu tekið Kevin upp í bflinn hjá sér og sagt honum að þau ætluðu að vígja hann inn í glæpahring sinn. Að því loknu keyrðu þau út í skóg og bundu fórnarlamb sitt þar við tré. Kosta sagði Kevin að hann ætlaði að skjóta að fótum hans. Hunt dró síðan upp myndbandsupptökuvél, lét Deidre hafa 22 kalibera skammbyssu og sagði henni að skjóta Kevin. Hún sagði að Kosta hefði miðað á sig riffli til þess að tryggja það að hún hlýddi fyrirmælum hans. Hann tók morðið upp á myndband, en það átti að vera „lokaæfing" til að sanna að Deidre hefði kjark til að myrða Lisu. Hún viðurkenndi að hafa skot- ið Kevin þrisvar í brjóstið og að Kosta hefði skotið hann einu sinni með rifflinum. Hún lofaði Iögregl- unni að vísa á staðinn þar sem líkið var grafið. En myndbandið sagði sína sögu. Kevin hafði greinilega enga hug- mynd um það sem í vændum var. Hvorki var hik né ótta að sjá á Deidre. Hún skaut hann þrisvar sinnum í brjóstið og að því Ioknu gekk hún að honum, tók í hár hans og rykkti höfði hans upp og skaut hann í gagnaugað án þess að depla auga. Síðan kom Kosta til skjalanna og skaut hann í höfuðið með riíflin- um. Leitað að leigumorðingja Eftir að þau höfðu framið þessa dáð fór Kosta að leggja að Deidre um að hún dræpi Lisu. Hann sagði henni frá því að kona hans væri hátt líf- tryggð og að hann fengi 700.000 dollara við lát hennar. Deidre kvaðst ekki hafa treyst sér til að drepa Lisu, en fór þess í stað á stúfana til að reyna að finna leigumorðingja. Hún leitaði til manns að nafni Will Madden. Hann samþykkti í fyrstu, jafnvel þótt hann hefði grun um að hann yrði sjálfur drepinn á eftir. Hann fékk þó ekki tækifæri til að vinna verkið, því hann var handtek- inn skömmu síðar og stungið í fang- elsi fyrir ýmis smáafbrot. Hann var í fangelsi þegar hann frétti af árásinni á Lisu og var sannfærður um að Deidre hefði ráðið Chase til verksins. Hann skýrði lögreglunni frá því að reynt hefði verið að ráða hann til verksins og það fór hrollur um hann þegar honum varð hugsað til örlaga Chase. Næstu tvær tilraunir Deidre mis- tókust einnig og nú var Kosta orðinn virkilega óþolinmóður. Hann setti Deidre úrslitakosti um að hún yrði að vera búin að fá einhvem til að framkvæma verkið innan tveggja klukkustunda. Deidre vissi sem var að hann hafði myndbandið undir höndum og gat notað það gegn henni ef hún hlýddi ekki. Hún hélt því í örvæntingu sinni heim til fyrrum kærasta sem reyndist ekki vera heima, en í hans stað var Chase á staðnum. Deidre sagði að hann hefði áður framið morð fyrir peninga í Ohio. Þau kom- ust fljótlega að samkomulagi sem endaði með dauða Chase. Að lokinni yfirheyrslunni sór Deidre að framburður hennar væri réttur og undirritaði hann. Kosta var nú handtekinn og hnepptur í fang- elsi. Makleg málagjöld Rannsókn á glæpaferli þeirra hélt nú áfram og leiddi í ljós að þau höfðu verið ótrúlega framtakssöm á því sviði. Þann 7. maí 1990 játaði Deidre sig seka um tvö morð. Hún samþykkti að vitna gegn Kosta í von um að þá slyppi hún við rafmagnsstólinn. Henni snerist síðan hugur og bað um að fá að draga játningu sína til baka og fá að koma fyrir rétt án þess að vitna gegn Kosta. Þeirri beiðni var hafnað. Fimmtudaginn 13. septem- ber 1990 var hún dæmd til dauða. Umfjöllunin um málið í fjölmiðlum hafði verið svo mikil að ákveðið var að flytja réttarhöldin yfir Kosta yfir í aðra sýslu. Þann 27. október 1990 var Kosta fundinn sekur um að hafa framið tvö morð, tvær morðtilraun- ir, innbrot og samsæri um morð. Þann fyrsta nóvember sama ár var hann dæmdur til dauða.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.