Tíminn - 12.10.1991, Blaðsíða 10
18 Tíminn
Laugardagur 12. október 1991
HHHI MINNING
Kristinn
Finnbogason
ramkwaQmrlQctinri
framkvæmdastjóri
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka (
Reykjavlk 11. tll 17. október er f
Lyfjabúöinni Iðunnl og Garósapótekl. Þaö
apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsl-
una frá kl. 22.00 að kvöldi tll kl. 9.00 að
morgnl virka daga en kl. 22.00 á sunnudög-
um. Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjón-
ustu eru gefnar I síma 18888.
Góður vinur og samstarfsmaður,
Kristinn Finnbogason, bankaráðs-
maður í Landsbanka íslands, er fall-
inn frá langt um aldur fram. Undan-
farnar vikur átti Kristinn við alvar-
leg veikindi að stríða, en slíkur var
kraftur hans og kjarkur að ekki var
öðru trúað en að hann yrði kominn
á fætur aftur innan skamms. Þegar
ég heimsótti hann á sjúkrabeði var í
hans huga einungis um dagspurs-
mál að ræða hvenær hann kæmi til
starfa að nýju. En enginn má sköp-
um renna og Kristinn kvaddi þenn-
an heim að kvöldi 4. október sí.
Þótt ég kynntist Kristni ekki náið
fyrr en á sl. ári, þekktumst við og
áttum stöku sinnum samskipti, þar
sem báðir störfuðum við að fram-
gangi stefnumála Framsóknar-
flokksins. Á sl. ári varð á þessu
breyting og frá upphafi þess árs má
segja, að við Kristinn höfum hist
eða rætt saman daglega, þar sem
störf okkar fóru saman innan veggja
Landsbankans. Ég kynntist Kristni
náið þennan tíma og ekki síst þar
sem við notuðum ýmsar frístundir
til samfunda, bæði í byggð og á fjöll-
um.
Kristinn var um margt sérstakur
maður. Einkennandi fyrir hann var
hinn mikli áhugi hans á mönnum
og málefnum. Hann var hafsjór af
fróðleik og ráðagóður. Skapstór var
hann og staðfastur. Hann var hreinn
og beinn, lá aldrei á skoðunum sín-
um, var óhræddur að setja þær fram
og þeim var ekki hnikað nema fram
kæmu sterkari rök en hann studdist
við. Hann var óhræddur að ræða
ýmis þau mál sem aðra brast kjark
til að vekja máls á. Þrátt fyrir ann-
ríki var með ólíkindum hvað Kristni
tókst vel að sinna því erilsama starfi
sem á honum hvíldi. Þar kom fram
hinn mikli dugnaður hans, kröfu-
harka til sjálfs sín og þrjóskan að
gefast aldrei upp. Hann var mikið
ljúfmenni og undir yfirborðinu sló
stórt hjarta. Hann var hjálpsamur
svo af bar og fullviss er ég um að
margir samferðamanna hans eiga
honum margt að þakka.
Kristinn var bankaráðsmaður í
Landsbanka íslands í áratugi. Hon-
um þótti vænt um bankann og tók
þátt í störfum hans af lífi og sál.
Hann var vel að sér í málefnum
hans, hafði mikið samband við hina
ýmsu starfsmenn hans vítt og breitt
um landið og reyndi þannig að fylgj-
ast betur með starfseminni og því
umhverfi sem bankinn starfar í.
Milli Kristins og bankastjórnar var
mjög náið og gott samband, sann-
kallað vináttusamband. Við höfum
misst mikið við fráfall hans. Fyrir
hönd okkar bankastjóranna vil ég að
leiðarlokum þakka Kristni hið langa
og farsæla starf hans í þágu Lands-
bankans og vináttusamskipti hans
við okkur.
Elsku Guðbjörg mín. Missir þinn
og barnanna er mikill. En minning-
in um góðan eiginmann og föður lif-
ir þegar sorgin líður hjá. Á stuttum
tíma kynntist ég mætum manni og
eignaðist sannan vin. Á kveðjustund
þakka ég honum samferðina. Við
Steinunn sendum ykkur innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Kristins Finn-
bogasonar.
Halldór Guðbjamason
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátlöum. Slm-
svari 681041.
Hafnarfjörður: Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýslngar I simsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartima búöa. Apó-
tekin skiptast á s(na vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgldagavörslu. Á kvöldin er
opið I þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
sima 22445.
Apótek Keflavíkur: Opið virka daga frá k.
9.00-19.00. Laugardaga, helgidaga og al-
menna fridaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá
kl. 8.00-18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opiö til kl. 18.30.
Opið er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjaríns er opið virka daga
til kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekið er opið rúmhelga daga
kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Alnæmlsvandinn. Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann vilja styðja smitaða og sjúka
og aðstandendur þeina, simi 28586.
Ölvir Karlsson
Fæddur 1. febrúar 1915
Dáinn 24. september 1991
Nú þegar Ölvir Karlsson í Þjórsár-
túni er fallinn fram, stendur eftir
stórt og ófyllt skarð í röðum vina
hans og samferðamanna. En starfs-
dagurinn var orðinn langur, miklu
hafði verið áorkað og lögmál lífsins
setur öllu takmörk. Við sem eftir
stöndum lútum því höfði í virðingu
og þökk fyrir mikil og vel unnin
störf, langa og heilladrjúga sam-
fylgd, og árnum þessum brott-
kvadda vini okkar velfarnaðar á ei-
lífðarvegum.
Ölvir Karlsson var Norðlending-
ur að ætt og uppruna og fæddur á
TVrfmgsstöðum í Akrahreppi hinn 1.
febrúar 1915. Hann og kona hans,
Kristbjörg Hrólfsdóttir frá Ábæ,
fluttust suður á land árið 1943 og
hófu búskap í Þjórsártúni í Ása-
hreppi. Þar hafa þau síðan búið af
miklum myndarskap og sannarlega
gert garðinn frægan að ræktun og
byggingum svo að af ber, enda
hvergi dregið af sér í eljusemi og
dugnaði.
En Ölvir var ekki aðeins glöggur
og gildur bóndi, heldur sinnti hann
jafnframt búskap fjölþættari félags-
málum og gegndi fleiri trúnaðar-
störfum fyrir sveit sína, sýslu og
samfélagið í heild heldur en hægt
var að hugsa sér að nokkur einn
maður kæmist yfir. En öll þessi
trúnaðarstörf rækti hann af slíkri
prýði og kostgæfni að fágætt má
kalla og sýndi það augljóslega að
mikið var í manninn spunnið.
Þrátt fyrir krepputíma og fátækt
meðal fólks til sveita tókst Ölvi með
dugnaði og harðfylgi að afla sér
staðgóðrar menntunar á unga aldri.
Meðal annars stundaði hann nám
við Laugaskóla í tvo vetur og síðan í
eitt ár við Lvðháskólann í Askov i
Danmörku. Ásamt með góðum gáf-
um og fjölþættum hæfileikum nýtt-
ist honum þessi lærdómur með
ágætum, þegar hann var kvaddur til
fjölþættustu trúnaðarstarfa á vett-
vangi samfélagsins. Meðal annars
sat hann í stjórn Kf. Rangæinga,
Mjólkurbús Flóamanna og fjöl-
margra annarra félaga og stofnana
um langt árabil. í hreppsnefnd Ása-
hrepps sat hann frá 1954 til 1990 og
var þar af oddviti í 32 ár samfleytt.
Mjög vann hann að stofnun Sam-
taka sunnlenskra sveitarfélaga og
sat í stjórn þeirra frá byrjun. For-
mennsku á þeim vettvangi gegndi
hann frá 1971 til 1980. Jafnframt
þessu sat hann í stjórn Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga um árabil og
gegndi margþættum nefndarstörf-
um á þess vegum. En þótt þetta séu
ærin verkefni, þá er aðeins fátt talið
af þeim fjölþættu trúnaðarstörfum
sem Ölvir gegndi um dagana. Meðal
annars lét hann sér sífellt annt um
öll fræðslu- og menntamál. Kynnt-
ist ég honum ekki hvað síst á þeim
vettvangi, því að hann sat í fræðslu-
ráði Suðurlands um árabil. Þar lagði
hann alltaf ríka áherslu á að búa sem
best í haginn fyrir uppvaxandi æsku
á hverjum tíma. Þessi menntunar-
áhugi hans kom einnig glögglega í
Ijós í góðum störfum hans fýrir
skólann á Laugalandi, þar sem þrjú
sveitarfélög, Holta-, Land- og Ása-
hreppur, byggðu sameiginlega upp
hið myndarlegasta skólasetur.
Ölvir var alla tíð einstaklega lag-
inn við að koma góðum málum
515 t
Skrifstofuhúsnæöi
Óskað er eftir skrifstofuhúsnæði i miðbæ Reykjavíkur eða næsta
nágrenni til leigu eða kaups. Stærö 1000-3000 m2.
Tilboð berist skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík, fyrir
föstudaginn 18/10 1991.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVlK
AUGLYSINGASIMAR TiMANS:
680001 & 686300
áleiðis. Naut sín þar vel Ijúfmennska
hans og sanngirni ásamt með áræði
og festu. Honum varð því yfirleitt
vel ágengt, svo sem dæmin sanna á
vettvangi sveitarstjórnarmála,
menntunar og framfara yfirleitt,
hvar sem leið hans lá, en þó sérstak-
lega að því er tók til fólksins í hinum
dreifðu byggðum landsins.
Ölvir Karlsson hefur iokið ótrú-
lega miklu og góðu ævistarfi og
merkið stendur, þótt maðurinn falli.
Það var mikið lán fyrir Sunnlend-
inga að fá þennan dugmikla, gáfaða
og fjölhæfa liðsmann á sínum tíma,
liðsmann sem aldrei dró af sér og
lagði nótt við dag fyrir bættum kjör-
um og betra og fegurra mannlífi í
byggðum landsins.
Eftirlifandi eiginkonu ÖIvis,
Kristbjörgu Hrólfsdóttur, börnum
þeirra, tengdabörnum, barnabörn-
um og öðrum ástvinum sendi ég
einlægar samúðarkveðjur. Blessuð
sé minning Ölvis Karlssonar.
Jón R. Hjálmarsson
UA LA
Rannsóknastofnun
landbúnaðarins auglýsir:
Fóðurfræðingar, búfræði-
kandídatar, dýralæknar og
líffræðingar, takið eftir!
Rannsóknastofnun landbúnaðarins auglýsir eftir sér-
fræðingi á Tilraunastöðina á Möðruvöllum í Hörgárdal.
Aðalviðfangsefni verða fóðurtilraunir með nautgripi.
Æskilegt er að viðkomandi hafi framhaldsmenntun í
fóðurfræði eða skyldum greinum.
Skriflegar umsóknir skulu berast Rannsóknastofnun
landbúnaðarins, Keldnaholti, 112 Reykjavík, eigi síðar en
15. nóvember.
Nánari upplýsingar gefa Þóroddur Sveinsson tilraunastjóri
Tilraunastöðvarinnar á Möðruvöllum í síma 96-24477 og
Þorsteinn Tómasson forstjóri í síma 91-812230.
íí
Utför
Ingibjargar E. Kristinsdóttur
Hlemmiskeiöi
sem lést á Borgarspítalanum 4. október verður gerð frá Ólafsvallakirkju
15. október kl. 14.00.
Kristtn Eiríksdóttir Ingólfur Bjarnason
Vilhjálmur Eiríksson Ásthildur Sigurjónsdóttir
Leifur Eiríksson Ólöf S. Ólafsdóttir
Guðrún Eiríksdóttir Steingrímur G. Pétursson
barnabörn, tengdabörn og barnabarnabörn
Læknavakt fyrir Rcykjavík, Seltjamames og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavlkur
alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar-
dögum og helgldögum allan sólarhringinn.
Á Seltjamames! er læknavakt á kvöldin ki.
20.00-21.00oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá
sunnudögum. Vitjanabeiðnir, simaráðleggingar
og tlmapantanir I slma 21230. Borgarspltalinn
vakt frá kl. 08-17 alla virka daga fyrir fölk sem
ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans
(simi 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysa-
deild) sinnirslösuðum og skyndiveikum allan sól-
arhringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúðir og læknaþjónustu emgefnar í sím-
svara 18888.
Ónæmlsaðgerðirfyrirfullorðna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavikur á
þriðjudögum kf. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmisskírteini.
Garðabær: Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, sfmi 656066. Læknavakt er f
sima 51100.
Hafnarfjörður Heilsugæsla Hafnarfjaröar.
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, slmi 53722. Læknavakt simi 51100.
Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Simi 40400.
Keflavfk: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn
á Heilsugæslustöö Suðumesja. Slmi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I
sálfræðilegum efnum. Slmi 687075.
Landspltalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19
til kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadelld: Alla daga vikunnar kl.
15-16. Heimsóknartlmi fyrir feður kl. 19.30-
20.30. Barnaspítali Hrlngslns: Kl. 13-19 alla
daga. Öldrunarfækningadeild Landspítal-
ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu-
lagi. - Landakotsspftali: Alla virka kl. 15 til kl.
16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17.
Heimsóknartími annana en foreldra kl. 16-17
daglega. - Borgarspítalinn f Fossvogi: Mánu-
daga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir
samkomulagi. Á laugardögum og sunnudögum
kl. 15-18.
Hafnarbúðir: Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvfta-
bandið, hjúkmnardeild: Heimsóknartlmi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnudaga
kl. 14-19.30. - Heilsuvemdarstöðln: Kl. 14 til
kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavikur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspftali:
AJIa daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl.
19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl.
17. Kópavogshællð: Eftir umtali og kl. 15 til kl.
17 á helgidögum. - Vífilsstaöaspítali: Heim-
sóknartími daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. -
SL Jósepsspftali Hafnarfirðl: Alla daga kl.
15-16 00 19-19.30.
Sunnuhlfð hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heim-
sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavikuriæknlshéraös og
heilsugæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólar-
hringinn. Sími 14000. Keflavfk-sjúkrahúsið:
Heimsóknartími virka daga kl. 18.30-19.30.
Um helgar og á hátiöum: Kl. 15.00-16.00 og
19.00-19.30. Akureyri - sjúkrahúslð: Heim-
sóknartlmi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-
20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra
Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusími frá
kl. 22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akra-
ness: Heimsóknartlmi Sjúkrahúss Akraness er
alla daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavík: Neyðarsimi lögreglunnar er 11166
og 000.
Seltjamames: Lögreglan slmi 611166,
slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100.
Kópavogur: Lögreglan slmi 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreið simi 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan sfmi 51166, slökkvi-
liö og sjúkrabifreið slmi 51100.
Keflavik: Lögreglan slmi 15500, slökkviliö og
sjúkrabill slmi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjar: Lögreglan, slmi 11666,
slökkvilið simi 12222 og sjúkrahúsiö sfmi
11955.
Akúreyri: Lögreglan slmar 23222. 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabifreið simi 22222.
[safjörður Lögreglan sími 4222, slökkvilið sfmi
3300, brunasimi og sjúkrabifreið simi 3333.