Tíminn - 12.10.1991, Blaðsíða 7

Tíminn - 12.10.1991, Blaðsíða 7
Laugardagur 12. október 1991 Tíminn 7 LAUGARDAGURINN 12. OKTÓBER 1991 gumálun sjávarfoyggöa og heilla landshluta. sannarlega klæða ýmis þeirra í nýtt rekstrarform, ef hægt er að sýna fram á að það sé hagkvæm- ara. Hvað þetta snertir er tæplega um mikinn skoðanamun að ræða milli íslenskra stjómmálaflokka. Þar með er ekki sagt að allir séu tilbúnir til að taka undir áróður nýkapítalistanna um að ráðast skuli að ríkisreknum fyrirtækj- um eftir herútboði hver sem þau eru og hvar sem þau starfa. Slík- ur áróður ber vott um öfgar sem hófsömum mönnum ber að hafa gát á. Og nú er einmitt tími til að ræða þessi mál í grundvallarat- riðum og í einstökum dæmum. “Tímamótafrumvarp“ Hér skal lögð á það sérstök áhersla, að fjárlagafrumvarp nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks er kjörið tækifæri til þess að stjórnmála- menn reyni að átta sig á hvaða pólitískar viðhorfsbreytingar fel- ast í frumvarpinu, ekki síst hvað varðar afstöðu til hinnar viður- kenndu verkefnaskiptingar milli ríkis og einkageirans og að hvaða leyti það snertir lífskjarajöfnuð og velferð almennings. Það er rétt, sem fram hefur komið af hendi ríkisstjómarinn- ar, að þetta fjárlagafrumvarp er tímamótafrumvarp. Ríkisstjórn- in fer ekki í launkofa með í hverju tímamótin felast. Kjami málsins er sá að ríkisstjórn Al- þýðuflokks og Sjálfstæðisflokks ætlar að breyta íslensku þjóðfé- lagi ffá því að vera velferðarþjóð- félag með blönduðu hagkerfi og skynsamlegri verkaskiptingu milli opinbera geirans og einka- geirans. Þessi þjóðfélagsgerð hef- ur tryggt rýmra einstaklingsfrelsi og meira persónuöryggi en nokk- ur önnur tegund þjóðfélags á þessari öld og þótt lengra væri litið. Nú stendur til að breyta þessum þjóðfélagsgrundvelli, af- nema blandað hagkerfi, taka upp nýja verkefnaskiptingu milli op- inbera geirans og kaupsýslunnar, þ.e.a.s. gera velferðarmálin að verslunarvöru, sem er afturhvarf til þjóðfélagsgerðar, sem hafnað var lýrir mörgum áratugum. Þessa grundvallarbreytingu í þjóðfélaginu er reynt að fegra sem sparnaðarstefnu í þjóðarbú- skapnum, því að sífellt er látið að því liggja að sóun fjármuna eigi sér aðeins stað í ríkisrekstri en ekki almennu athafnalífi og milliliðastarfsemi. Þeir, sem standa nú fyrir því að breyta vel- ferðarþjóðfélaginu í óheft at- hafnasvið kaupsýsluafla og milli- liða, þykjast hafa einkarétt á þeirri hugsun að spara þurfí í rík- isrekstri. Slíkan einkarétt hafa þeir auðvitað ekki, því að vilji til sparnaðar í ríkisrekstri er sam- eiginlegur öllum heiðarlegum stjórnmálamönnum. Sparnaðar- og aðhaldsþörfm er alltaf fyrir hendi, en pólitískur ágreiningur hlýtur að verða um það til hvaða verkefna fjárveitingar eigi að taka og þá einnig hvemig standa eigi að sparnaði og aðhaldi. Velferðarkerfið íþyng- ir ekki þjóðarhag Eins og fjárlög benda til og al- menn stefnumörkun ríkisstjórn- arinnar segir til um, er nauðsyn- legt að stjórnarandstaðan geri þjóðinni grein fyrir að foreyðslan í þjóðfélaginu verður ekki nema að hluta til skrifuð á reikning rík- isrekstrar og fjárveitingarstefnu Alþingis. Þegar um það er rætt að þjóðin „eyði um efni fram“, kunni ekki fótum sínum forráð í fjárhagssökum, fjárfesti heimskulega í fyrirtækjum og mannvirkjum og geri hvaðeina sem foreyðir efnum og eignum þjóðarbúsins en ávaxtar ekki þjóðarauðinn, þá er ekki um að kenna því velferðarkerfi sem byggt hefur verið upp í almenn- ingsþágu og ríkinu hefur verið falið að annast. Þegar öllu er á botninn hvolft, verður aðeins smávægilegri sök komið á þenn- an þátt þjóðarbúskaparins, miðað við óreiðuna á öðmm sviðum hans, ekki síst í einkageiranum, í atvinnulífinu og milliliðastarf- seminni. Að vísu er ekki hægt að fría stjórnmálamenn af því að hafa leiðst út í heimsku fjárfestinga- ræðisins með óheppilegri löggjöf og stjórnvaldsákvörðunum. Dæmi þess blasa víða við. Þar má ekki síst nefna fáránlega stefnu í húsnæðismálum síðustu ár, hvort heldur um er að ræða byggingarhætti eða fjármögnun. Offjárfesting í verslunar- og skrif- stofuhúsnæði og óhóflegur milli- liðakostnaður í verslun og þjón- ustu er brýnt þjóðfélagslegt vandamál sem ekkert er sinnt. Þótt ráðstöfunarfé launþega renni að mestum parti viðstöðu- laust gegnum verslunarkerfið, linnir ekki kveinstöfum þeirra sem fást við verslun og vörudreif- ingu. Maður hefur á tilfinning- unni að samkeppniskerfið, hindr- unarlaus vöruinnflutningur, kaupgleði almennings og annað, sem stuðlar að fjöri milliliða- starfseminnar, dugi ekki til að halda uppi áfallalausum verslun- arrekstri á fslandi. Nema það sé samkeppniskerfið sjálft með sín- um sérstöku og innbyggðu sóun- araðferðum, sem mæðir á versl- uninni í stað þess að veita henni þá festu í rekstri og afkomu sem yrði verslunareigendum og neyt- endum jafnt að gagni. Hluti af heild Síst skal það lastað að miklar umræður eigi sér stað um fjár- mál ríkisins í tilefni fjárlaga- frumvarpsins. En ríkisfjármál og verkefni ríkisvaldsins þarf auðvit- að að ræða sem einn hluta þjóð- arumsvifa og þjóðarbúskapar. Þátt ríkisins í starfsemi þjóðfé- lagsins verður að setja í rétt sam- hengi við heildarbúskap þess og átta sig á að ríkisumsvifin eru að- eins partur af því sem þjóðfélagið í heild fæst við. Eins og háttar grundvallarstefnu ríkisstjómarinnar, hefur aldrei verið meiri ástæða en nú til að fylgjast með fjárlagastefnunni. Að hvaða leyti ætlar ríkisstjórnin að beita fjárveitingavaldi til þess að breyta pólitískum áhersluatrið- um? Hvert stefnir um viðtekna verkaskiptingu milli opinbera geirans og einkageirans, þ.e.a.s. hverju á ríkið að sinna af nauðsyn- legri þjóðfélagsstarfsemi og hvað á að fela atvinnurekendum og kaup- sýslustéttinni? Um þetta hefur verið tiltölulega gott samkomulag milli íslenskra stjómmálaflokka í marga áratugi. Stjórnarandstöð- unni ber að fylgjast vel með því, hvort nú skuli stefnt að því að hverfa frá viðtekinni verkaskipt- ingu að þessu leyti. En það á ekki síður við stuðningsmenn ríkis- stjórnarinnar að þeir átti sig á hvaða grundvallarbreytingar em hafðar í huga með þeirri stefnu sem fólgin er í fjárlagafrumvarp- inu. Gera þessir menn sér grein fyrir að ríkisstjórn Davíðs Odds- sonar er að taka upp fjárlagastefnu thatcherismans löngu eftir að hægri menn í Bretlandi hafa áttað sig á skammsýni stefnunnar og telja hana ekki til frambúðar?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.