Tíminn - 12.10.1991, Blaðsíða 4

Tíminn - 12.10.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn Laugardagur 12. október 1991 Palestínskur ökumaður ekur á hóp ísraelskra hermanna: Tveir hermenn létust þegar keyrt var á þá Palestínskur ökumaður ók stolnum trukki inn í hóp af ísraelskum hermönnum í gær, með þeim afleiðingum að tveir Iétust og að minnsta kosti 11 slösuðust. Hermennirnir voru að bíða eftir rútu þegar ökumaðurinn ók á þá. „Þetta er enn einn hroðalegur verknaður hryðjuverkamanna og við munum svara í sömu mynt,“ sagði Yitzhak Shamir, forsætisráð- herra ísraels. Árásin verður í sömu viku og vax- andi taugaspennu gætir meðai ísra- ela og Araba á meðan Bandaríkja- menn reyna að koma undirbúningi fyrir friðarráðstefnu á lokastig. Á miðvikudag vöruðu Bandaríkja- menn við því að hryðjuverkamenn kynnu að vinna hermdarverk á síð- ustu stundu fyrir friðarráðstefnuna. Herinn segir að Palestínumaður- inn hafi ekið trukknum, sem vinnu- veitandi hans átti, á hóp hermanna sem biðu á strætisvagnastöð við að- alveginn á milli Tel Aviv og Haifa. Hersveitir segja að ökumaðurinn sé frá þorpi á Vesturbakkanum. Tveir hermenn létu lífíð og 11 voru fluttir á sjúkrahús. Áður sagði her- inn að 18 manns hafi slasast, en leiðréttu þá tölu síðar í gær. Einnig var talið að ökumaðurinn hafi verið fluttur á sjúkrahús og herinn sagði að hann yrði yfirheyrður. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er væntanlegur til ísraels næsta miðvikudag, en hann vonar að með þeirri för sinni verði bundinn endi á lokaundirbúning fyrir friðarráðstefnuna. Þetta verður áttunda ferð Bakers til Miðaustur- landa síðan Persaflóastríðinu lauk, þann 28. febrúar. Baker sagði í Washington í vikunni, að eftir því sem nær drægi mánaða- mótum ykist hættan á að hryðju- verkamenn eða öfgamenn létu til skarar skríða á svæðinu, til að eyði- leggja möguleikana á að friðarráð- stefnan verði haldin. ísraelski herinn og lögreglan hafa verið vel á verði, því að á þriðjudag verður liðið eitt ár síðan ísraelska lögreglan myrti 18 Araba á Muster- ishæð í Jerúsalem. Mikil ólga hefur verið vegna hús- töku nokkurra ísraela í austurhluta Jerúsalem þar sem Arabar eru í miklum meirihluta íbúa. Lögreglan fjarlægði hluta þeirra, sem höfðu verið virkir stuðningsmenn Sham- irs forsætisráðherra, en þeir eru nú komnir í húsnæði nálægt Palestínu- mönnum. Shamir sagði á föstudaginn að ekki væri hægt að banna Gyðingum að búa þarna. reuter-sis Yitzhak Shamir segir að árásinni verði svarað í sömu mynt. Alltaf kemur eitthvað nýtt fram um heilsu og hreysti: Tyggjó er hollt fyrir tennurnar Að tyggja tyggigúmmí eftir hverja máltíð er betri aðferð við að hreinsa tennumar en að bursta þær, og kröftug notkun á tyggjói getur meira að segja byggt upp áður skemmdar tennur. Þetta er að minnsta kosti niðurstaða pró- fessors eins frá Ástralíu. Rory Hume, prófessor við háskól- ann í Sydney, sagði á fundi Al- þjóðasamtaka um rannsóknir á tönnum í Brisbane í síðustu viku, að meira munnvatn myndist í munni fólks þegar það tyggur tyggigúmmí og þaö leiði til þess að tannskemmdir geti lagast. „Sykurlaust tyggjó eykur munn- vatnsframleiðslu og ætti að notast eftir hverja máltíð," sagði Hume í gær. „Þau ólífrænu efni sem er að finna í munnvatni — kalsíum, fosfat og flúoríð — hjálpa til við að byggja upp glerung tannanna," sagði hann. Þá sagði hann að matur eins og epli, perur, gulrætur og salat hefði hvetjandi áhrif á munnvatnsfram- leiðslu og því ætti að borða mikið afþeirri fæðu. Hume sagði að hreinlæti, skyn- samlegt fæðuval, burstun og tyggjónotkun væri forsenda fal- legra tanna. „Við þekkjum öll fyrstu þrjár aðferðirnar og nú bætist tyggjóið við,“ sagði Hume. Hume sagði að batnandi mata- ræði og notkun flúorvatns og flú- ortannkrems hefðu átt stóran þátt í bættri tannheilsu Ástrala síðustu 20 ár. Hann sagði að meðaltal á skemmdum tönnum hjá 12 ára Áströlum væri minna en ein tönn. Fyrir tuttugu árum var meðaltalið í kringum 15 tennur. reuter-sis (rar hafa miklar áhyggjur af sjálfsmorðum fanga þar í landi: Vilja afstýra því að fleiri fangar fremji sjálfsmorð á írlandi Fangelsisyfirvöld, fangaverðir og læknar á írlandi vilja að eitthvað verði gert til að afstýra því að fleiri fangar fremji sjálfsmorð í írskum fangelsum. Alls hafa 23 fangar stytt sér aldur í írskum fangelsum á árunum 1975- 1990, samkvæmt skýrslum. Einn þriðji þeirra voru fangar í gæslu- varðhaldi, sem áttu eftir að koma fyrir rétt. Flestir hengdu sig í gluggarimlunum. Skýrslur um sjálfsmorð fanga segja að 12 fangar hafi fyrirfarið sér síð- ustu þrjú ár, en þaö er helmingi fleira en í breskum fangelsum, mið- Mannræningjar á Ítalíu rændu átta ára dreng: HANN FANNST HEILL Á HÚFI Átta ára dreng var skilað, degi eftir að honum var rænt í Róm á Ítalíu. Mannræningjamir sögðu við dreng- inn, að þeir hefðu rænt honum til að reyna á hversu mikið foreldrar hans elskuðu hann. Francesco Rea var rænt af vopnuð- um mönnum frá heimili sínu í Róm á miðvikudagskvöldið. Hann fannst svo heill á húfi daginn eftir í stolnum bíl, sem hafði verið lagt í miðborginni. Francesco, sem er sonur efnaðs byggingafyrirtækiseiganda, sagði blaðamönnum að mannræningjamir Fréttayfirlit ZAGREB, Júgósiavíu - Kró- atískar harsveitir afléttu fjögurra vikna umsátri við aðalbækistööv- ar júgóslavneska hersins i gær. ANKARA - Átta tyrkneskar flug- vélar vörpuðu sprengjum á stöðv- ar tyrkneskra Kúrda I Norður-írak f gær, að sögn Mesuts Yilmaz, forsætisráðherra Tyrklands. JÓHANNESARBORG - Skot- árás var gerð á heimili Nelsons Mandela í gæmótt. Mandela var heima, en sakaði ekki. Afriska þjóöarráöið hefur fordæmt árás- ina og sagt að lögreglan eigi að rannsaka þetta nánar. að við fjölda fanga í fangelsum. í frétt frá fangelsisyfirvöldum segir: „Við stöndum frammi fyrir mjög al- varlegu vandamáli þar sem er fjöldi sjálfsmorða í fangelsum landsins." Stefnt er að því að veita þeim föng- um meiri sálfræðihjálp, sem á því þurfa að halda, og stofna sérstakt fé- lag fyrir fanga í sálarerfiðleikum. reuter-sis hefðu sagt honum að vera rólegur og fá sér að borða. „Þeir sögðu að þetta væri bara próf til að athuga hvað mömmu og pabba þætti vænt um mig,“ sagði drengurinn í gær. „Ég fékk pasta og banana aö borða. Menn- imir sögðu við mig að ég fengi að fara heim fljótlega." Drengurinn var heill á húfi, en ennþá skelkaður eftir þessa lífsreynslu. Lögreglan vildi ekki segja hvort lausnargjald hefði verið greitt né hvemig rannsókn málsins gengi. Tálið er að mafían á Ítalíu standi að baki ráninu, en mafían er talin hafa að minnsta kosti fimm manns í haldi sínu, og em þetta allt manneskjur frá ríkum fjölskyldum þar sem krafist hefur verið lausnargjalds. Nokkuð óvenjulegir foreldrar í Bandaríkjunum eiga í deilum: Deilt um yf' irráðarétt Kynhverfur karlmaður íBandaríkj- unum, sem gaf lesbiskri vinkonu sinni sæði úr sér til að hún gæti eignast bam, féllst á sættir án þess að til réttarhalda kæmi, eftir illvíg- ar deilur um yfirráðarétt yfir bam- inu. Steve Wittmann, 41 árs, sagði í gær að hann hefði alltaf viljað vera faðir bamsins sem Andra Northup, 39 ára vinkona hans, fæddL Baraið er aðeins 19 mánaða, en Northup og sambýliskona hennar hafa hingað til alið það upp ánþess að hafa leyft honum að taka þátt í því. Konumar segja að jafnvel þó þær hafl fengið Wittmann, sem er vin- ur þehra og fyrrum vinnufélagi. til að gefa úr sér sæði, haíi þær ekki viljað að hann tæki þátt í foreldra- hlutverkinu líka. RéttarhöM í máUnu áttu að byija næsta miðvikudag, en þrenningin féUst á sættir áður en fU þess þurfti aðlcoma. í samkomulaginu felst að Andra Northup hefur yfirráðarétt yfir barainu. Mary Northup verður fósturforeldri bamsins, en Witt- mann fær leyfi tU að hafa bamið tvisvar í mánuði, átta túna í senn. ,Atér þykir afar vænt um bamið mitt og ég er feginn að við kom- umst að niðurstöðu. Ég vona að við getum farið að tifa venjulegu Ufi aftur á ný,“ sagði Wittmann. Konurnar tvær sögðust vera fegn- ar að deUumál þeirra fór ekki fyrir dómstóla. reuter-sis reuter-sis

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.