Tíminn - 12.10.1991, Blaðsíða 2

Tíminn - 12.10.1991, Blaðsíða 2
2 Tíminn Laugardagur 12. október 1991 Skoðanakönnun Gallups fyrir VSI: MEIRIHLUTIER MEÐ NÝRRIWÓÐARSÁTT Tæp 70% þeirra, sem á annað borð taka afstöðu, eru því fylgjandi að næstu kjarasamningar verði gerðir á svipuðum nótum og þjóðarsáttin frá í febrúar 1990. Kemur þetta fram í skoðana- könnun, sem Gallup á íslandi gerði fyrir Vinnuveitendasamband- ið dagana 18. til 23. september sl. og sagt er frá í fréttabréfi vinnuveitenda, „Af vettvangi**. Svör fengust frá 702 af þeim eitt þúsund sem lentu í úrtaki. í frétta- bréfi vinnuveitenda segir að það endurspegli þjóðina vel með tilliti til búsetu, kyns og aldurs. Það er þó ekki skýrt frekar, um það er ekki getið neinna talna og heldur ekki sagt frá því hvemig úrtakið var tek- ið. Rýrir þetta verulega allar þær upplýsingar sem á eftir koma. Allt um það. Spurt var: Á næstunni verður gengið til kjarasamninga. Ert þú fylgjandi eða andvíg/ur því að samið verði á hliðstæðan hátt og gert var í þjóðarsáttarsamningun- um í febrúar 1990? 42% spurðra játuðu, 19% neituðu, og 39% tóku ekki afstöðu, með ein- um eða öðrum hætti. Sem hlufall af þeim sem afstöðu tóku, 440 manns, eru fylgjendur því tæp 70%, and- stæðingar rúm 30%. Þeir, sem játuðu fyrrgreindri spumingu, vom spurðir frekar. Þessu: Ertu fylgjandi hliðstæðum samningum, jafnvel þótt því fylgi litlar eða engar Iaunahækkanir? 72% játuðu, 19% neituðu og 9% tóku ekki afstöðu. Ekki kom fram marktækur munur á afstöðu opinberra starfsmanna og starfsmanna hjá einkafyrirtækjum. „Af vettvangi" segir þó ekki hvert hlutfallið var. Sé aðeins tekið mið af þeim, sem eru í vinnu, fækkar þeim sem ekki taka afstöðu, en hlutfall fylgjenda og andstæðinga áfram- haldandi þjóðarsáttar helsL Sem fyrr em engar tölur gefnar upp. Þá kemur fram að afstaða fólks er mjög mismunandi eftir því hversu gamalt það er. 72% fólks á aldrinum 16 til 24 ára tekur ekki afstöðu til áfram- haldandi þjóðarsáttar. Fylgi við hana eykst eftir því sem fólk eldist, og em tæp 93% þeirra á aldrinum 60 til 75 ára, sem afstöðu taka, fylgj- andi áframhaldandi þjóðarsátt. Sem fyrr er ekki gefið upp hversu margir standa á baka við svörin. 77% þeirra karla, sem afstöðu taka, em fylgjandi þjóðarsátt áfram, en 57% þeirra kvenna, sem afstöðu taka. Ekki er marktækur munur á afstöðu fólks eftir því hvort það býr á höfúðborgarsvæðinu eða á lands- byggðinni. Sem fyrr fylgja engar töl- ur. -aá. Flugleiðir hf. fyrstu sjö mánuði ársins: Meiri hagnað- ur en í fyrra, en áætlanir stóðust ekki Fyrstu sjö mánuði ársins var hagn- aður af regluiegri starfsemi, rekst- ur og velta fjármuna Flugleiða rúm- Iega 63.2 milljónir króna. Hann var á sama tíma í fyrra 12.9 mil|jónir, framreiknaður til þessa árs. Heildarhagnaður félagsins fyrstu sjö mánuði þessa árs var 61.5 millj- ónir króna. Hann var á sama tíma fyrir ári 347.4 milljónir, framreikn- að. Munurinn stafar af mikilli sölu eigna síðasta ár. Þó afkoma sé betri en í fyrra stóðst rekstraráætlun ekki. Farþegar vom 424 þúsund. Gert var ráð fyrir 466 þúsundum. Tekjur vom því minni en ætlað var, þó 5.3% meiri en í fyrra. Gjöld eru jafn mikil nú sem þá. Eigið fé Flugleiða var 4.3 milljarðar króna 31. júlí sl., einum milljarði meira en í fyrra. Heildareignir em metnar á tæpa 24 milljarða. Skuldir em 19.7 milljarðar. aá. Stjórn BSRB: Mótmælir niðurskurði fjár til velferðar „Stjóm BSRB mótmælir harðlega fyrírhuguðum niðurskurði til vel- ferðarmála og áformum um álögur á sjúklinga og skólafólk, eins og fram kemur á fjáríagafrumvarpi. Ljóst er að sá niðurskurður til velferðarkerf- isins, sem ráð er fyrír gert í fjárlaga- firumvarpinu, mun litlu breyta í þjóð- arbókhaldinu. Hann mun hins vegar íþyngja sérstaklega þeim hópum sem standa höllum fæti í samfélag- inu,“ var samþykkt á fundi stjómar BSRB 3. október. Að þessu viðbættu: „Ljóst er að rík- isstjórnin stefnir að umfangsmiklum breytingum á velferðarkerfi lands- manna, sem munu leiða til félags- legrar mismununar. BSRB hefur margoft bent á leiðir til sparnaðar og hagræðingar í rekstri opinberra stofriana, án þess að dregið verði úr þeirri þjónustu sem þar er veitt. ís- lenska velferðarkerfið þarf að bæta, ekki brjóta niður. Stjórn BSRB bendir á að forsendur fjárlagafrumvarpsins eru óraunhæfar að því leyti að ekki er tekið tillit til breytinga á launum vegna komandi kjarasamninga. Stjóm BSRB mót- mælir vinnubrögðum við gerð frum- varpsins og lýsir furðu á yfirlýsingu í greinargerð þess þar sem boðaðar eru breytingar á samningsbundnum og lögbundnum réttindum opinberra starfsmanna án þess að á nokkum hátt hafi verið rætt við samtök þeirra, sem slíkra réttinda njóta eða um þau hafa samið." -aá. Stjórn Heimdallar: Skammar Halldór Blöndal „Stjóm Heimdallar lýsir hins vegar yfír undrun og óánægju með þá ákvörðun samgönguráðherra að hafna betðni flugfélagsins „Scandinavian Airlines System" um að bjóða neytendum svo- nefnt sex nátta fargjald tii Norðurlanda á sama verði og Flugleiðir bjóða fyrir þriggja nátta helgarferöir. Með ákvörð- uninni er veriö að viðhalda óeðlilegri samkeppnisaðstöðu eins flugfélags í flugsamgöngum til landsins og frá því á kostnað neytenda," segir í samþykkt stjóraar Heimdailar, félags ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, frá í fyrra- dag. „Það er ekki hlutverk samgönguráð- herra að standa í vegi fyrir samkeppni í millilandaflugi með því að hindra breyt- ingar á verðlagningu og vemda hags- muni eins fyrirtækis á kostnað neyt- enda. Hlutverk hans hlýtur að vera að gera samgöngur sem greiðastar, en það verður best gert með þvi að efla frjálsa samkeppni í millilandaflugi... Stjómin lýsir og yfir furðu sinni á þeirri ákvörðun samgönguyfirvalda að synja Flugferðum-Sólarflugi um leyfi til þess að bjóða almenningi ódýrt leigu- flug í vetur. Þessi ákvörðun brýtur í bága við hugsjónir sjálfstæðismanna um frjálsa samkeppni, gengur í berhögg við samþykkt landsfundar, æðstu stofnanir flokksins, og er þeim mun óskiljanlegri þegar hafðar em í huga góðar viðtökur almennings við ódýru leiguflugi í sum- ar.“ Segir og í sömu samþykkt. -aá. Bílstjórinn stoltur vló nýja strætó horfir á eftir farþeganum Inn. Timamynd: Árnl Bjarna LEIÐ A: LÆKJARTORG-AUSTURBÆK TAFLAN S?NIR MlNOTUR YFIR A 30 MIN FRESTl : HEILA KLUKKUSTUND MÁ-FÖ KL 10-17 FRÁ LÆKJARTORGI 00 30 NJÁLSGATA 03 33 EGILSGATA 05 35 BERGSTAÐASTRÆTI 09 39 Af) LÆKJARTORGI 18 48 LEIÐ A. FYRSTU FEROIR Á MÁNUD-FÖSTUD FRÁ LÆKJARTORGI KL 10 00 OG SÍÐAN Á 30 MÍN FRESTI SlDUSTU FERÐIR Á MÁNUD-FÖSTUD FRÁ LÆKJARTORGI KL 16 00, 16 30 ENDASTÖÐ: NEÐST I HVERFISGÖTU VIÐ STJÓKNARKÁÐ Nýr strætó í vikunni hófst tilraunaakstur með litlum almenningsvagni, strætó, um austurbæ Reykjavíkur. Honum ekur sérstakur verktaki á vegum borgarinnar. Vagninn er 21 sætis af gerðinni Mercedes Benz 0 309. Hann er ræki- lega merktur, en þó ekki í hinum hefðbundnu litum SVR. Fargjöld eru hin sömu og hjá SVR, viðkomu- staðir 20, akstursleiðin hálfur fimmti kflómetri ekinn á 18 mínút- um. Vagninn fer á 20 mínútna fresti frá Lækjartorgi, eða öllu heldur Hverfisgötu við hlið Stjórnarráðs- ins. Mest sótt í nám í hrossarækt og hestamennsku: Bændaskólinn a Hólum byrjaöur Frá Guttormi Óskarssynl á Sau&árkrókl. Bændaskólinn á Hólum var settur mánudaginn 7. október við hátíð- lega athöfn í Hóladómkirkju. At- höfnin hófst með helgistund sem nýkjörinn vígsiubiskup á Hólum, séra Bolli Gústavsson, annaðist. Kirkjukór Hólasóknar sá um söng- inn. Að lokinni helgistund flutti settur skólastjóri, Sveinbjöm Eyjólfsson, skólasetningarræðuna, en hann gegnir skólastjórastarfinu í fjarvem Jóns Bjamasonar skólastjóra, sem er í ársleyfi og dvelur í Edinborg til að kynna sér sérstaklega tilhögun bú- fræðináms í öðmm löndum. Skólastjóri bauð nemendur og aðra viðstadda velkomna, og gat þess í upphafi ræðu sinnar að starfsemi bændaskólans yrði svipuð í vetur og undanfarna vetur. Þó yrðu nokkrar breyttar áherslur í búfræðináminu og bryddað upp á nýjungum í öðru starfi. Mikil aðsókn er að Hólaskóla og ekki hægt að sinna öllum umsókn- um, „því miður", sagði skólastjóri. 52 nemendur stunda nám í almennri búfræði í' vetur: 28 stúlkur og 24 piltar. 23 nemendur em í efri deild og 29 í neðri deild. Flestir nemendanna velja sér hrossarækt og reiðmennsku sem sérgrein. Á Hólum er rekinn öflug- asti reiðskóli landsins og kennsla í hrossarækt verður eitt helsta verk- efni í vetrarnáminu. Vaxandi þáttur í starfi bændaskól- ans er námskeiðahald og endur- menntun. Um 100 manns sóttu námskeið við skólann á síðasta skólaári og hafa þeir aldrei verið fleiri. Skólastjóri gat þess að nokkrar mannabreytingar hefðu orðið við skólann og aðrar stofnanir sem starfa á Hólum. Meðal nýrra kennara við skólann em Guðrún Lárusdóttir og Þórarinn Leifsson, bæði nýút- skrifuð frá búvísindadeild bænda- skólans á Hvanneyri, og Sveinn Kári Valdimarsson líffræðinemi, sem vinnur að rannsóknum í fiskeldi og kennir við fiskeldisbrautina. Þá hefur Grétar Geirsson bústjóri látið af störfum eftir 10 ára starf. Við starfi hans hefur tekið Gunnar Rögnvaldsson, fyrmm nemandi við skólann. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Hólastað á undanfömum árum, og nú í ár hafa verið byggðar tvær íbúð- ir á vegum nemendagarða. Þörf fyrir húsnæði af þessu tagi fer vaxandi, því nú hefur fjölskyldufólk sýnt auk- inn áhuga á að nema við bændaskól- ann á Hólum. Einnig hefur verið unnið að lagfæringum og fegrun á umhverfi og hlaði Hólaskóla.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.