Tíminn - 16.11.1991, Page 5

Tíminn - 16.11.1991, Page 5
Laugardagur 16. nóvember 1991 HELGIN — 13 vwW- geti opnað: fjallanefnd óskað eftir að fá að kaupa stólalyftu með fjórum stól- um, sem myndi afkasta jafn miklu og þær tvær sem fyrir eru. Þeirri beiðni hefur verið hafnað. En þar sem fjöldi gesta fer vax- andi, er þá ekki möguleiki á að láta gjöld inn á svæðið borga nýj- ar lyftur? „Það er útilokað," seg- ir Kolbeinn. „Við erum þakklátir ef við náum inn gjöldum sem geta staðið undir daglegum rekstri, og það hefur oftast tekist. Fram- kvæmdirnar hafa verið framlegð sveitarfélaganna. Verðlagið er ekki sambærilegt við það sem ger- ist víða erlendis og við teljum ekki verjandi að hækka það. Að- alvandinn er hvað við erum háð duttlungum veðursins. Á síðast- liðnum vetri gerðum við ráð fyrir að fá 40 milljónir króna í tekjur af aðgangseyri í Bláfjöllum, en þær urðu þegar upp var staðið ekki nema tuttugu og sex. Það var fyrst og fremst vegna veðurs og snjóleysis. í Skálafelli, sem er líka rekið af Bláfjallanefnd, urðu tekjurnar ein milljón króna, en voru áætlaðar ellefu milljónir. Það má segja að það sé útilokað fyrir venjuleg íþróttafélög að reka almenningsskíðasvæði, vegna þeirra sveiflna sem eru í veðurfari á milli ára.“ þeim útbúnaði, sem er nauðsynlegur, er ekki dýrt að stunda þessa íþrótt, en það þarf að leggja í nokkurn kostnað í upphafi. „Það er dýrt að starta, því auk skautanna þurfum við að vera með mikið af hlífðar- brynjum," segir Snorri. „Þetta er annars ekki frábrugðið mörgum öðrum íþróttum að þessu leyti; það kostar peninga að koma sér upp golfsetti, það er dýrt að kaupa skíði og galla, hest og reiðtygi, og svo mætti áfram telja. Við hjá Biminum reynum að fá afslátt á útbúnaði fyrir okkar meðlimi og fengið að panta hann beint frá umboðinu. Þannig höfum við fengið gallann á hag- stæðara verði. En ef ég ætti að giska á hvað þetta kostar, gæti ég trúað að menn gætu fengið íshokkígalla hjá Kringlusporti í Kringlunni fyrir 35 til 40 þúsund krónur fyrir utan skauta. Annars fer þetta allt eftir því hversu mikinn pening þú vilt leggja í þetta; það er hægt að fá skauta á frá fimm þúsund og upp í fjörutíu þúsund krónur." Engin slys hér ennþá Hokkí er mikið stundað í Skandinavíu, og í Svíþjóð til að mynda mætti líkja áhuga al- mennings á þessari íþrótt við áhuga okkar íslendinga á handbolta. Reynslan erlendis hefur sýnt að slysatíðni í greininni er há, en hér hafa menn ekki þurft að kvarta undan því. Snorri segir að menn keyri hvern ann- an að sjálfsögðu niður á svellinu, en þeir séu það vel varðir að það komi sjaldnast að sök. Vegna magninnkaupa okkar fyrir Evrópumarkað á amerísku sólarfilmunni, getum við boðið tíma- bundið þetta frábæra verð. Breidd: 50 cm • Lengd: 1800 m • Litur: Svarttil afgreiðslu strax • Umboðsmenn okkar um land allt annast sölu og taka við pöntunum ■ VIC* • EINKAUMBOÐ FYRIR EVRÓPU Globus? Lágmúla 5, s:681555 RULLUBAGGAPLAST ADEINS KR. 3.999 RULLAN AN VSK.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.