Tíminn - 16.11.1991, Page 6

Tíminn - 16.11.1991, Page 6
HELGIN Laugardagur 16. nóvember 1991 14 KONUNGUR FJALLANNA Á YAMAHA ertu í öruggri fylgd um fjöll og firnindi. Öryggið felst í hinni vönduðu hönnun og traustu byggingu YAMAHA vélsleðanna. Þeir bila síður en aðrir. LÁG BILANATÍÐNI Lága bilanatíðnin er það sem YAMAHA vélsleðarnir eru löngu orðnir iandsfrægir fyrir. Hún er beinlínis helsta einkenni þeirra og í rauninni sá eiginleiki sem mestu skiptir þegar upp í hálendið er komið. BR 250 TF StaðgreiftsluverO kr.: 399.000 Til björgunarsveita: 205.000 ET410TR m. bakkglr. Staögreiðsluverðkr.: 616.000 Til björgunarsveita: 315.000 ÁREIÐANLEG ÞJÓNUSTA Rekstur og viðhald YAMAHA sleða verður aldrei neitt vandamál heldur. Eigendur þeirra hérlendis skipta hundruðum. Þeir geta fullvissað þig um að varahlutaþjónusta okkar er til mikillar fyrirmyndar. Þessar tvær staðreyndir eru svo undirstöður þriðja aðalkosts YAMAHA sleðanna, sem er: Staðgreiðsluverð kr.: 616.000 HÁTT ENDURSÖLUVERÐ YAMAHA vélsleði er nefnilega afar góð eign. LÁTTU TÆKNIMENN OKKAR KOMA TIL UÐS VIÐ ÞIG. Þeir ráöa þér heilt í vali sleöans og rekstri hans öllum. í vetur bjóðum við sjö gerðir af YAMAHA vélsleðum, þær sem hér má sjá. PHASER II STE Staðgreiðsluverð kr.: 655.000 Til björgunarsveita: 335.000 NJÓTTU FRELSIS FJALLANNA í ÖRUGGRI FYLGD. HANS HÁTIGN SKILAR ÞÉR AFTUR HEIM. ÞVÍ TREYSTA ÞEIR SEM REYNSLUNA HAFA. Staðgreiðsluverð kr.: 670.000 1 VT 480 STE, m. bakkgir. HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670000 Staðgreiðsluverð kr.: 730.000 Til björgunarsveita: 375.000 VK 540E, m. bakkgír ogHi/Lo /f Staðgreiðsluverð kr.: 705.000 Til björgunarsveita: 355.000 Staögreiðsluverö kr.: 740.000 Til björgunarsveita: 375.000 LÁNSKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI. Allt tilgreint verð er miðað við gengi 27. sept. og getur breyst fyrirvaralaust. Hótel Örk í Hveragerði kynnir „gjafalykla“ í Kringlunni: Bjóða Örkina í jóla- gjöf Hótel Örk í Hveragerði hóf all nýstárlega kynningu á þjónustu sinni í Kringlunni í gær. Þar hefur verið komið fyrir svoköll- uðu jólagjafahúsi, en ætlunin er að markaðssetja gistingu og dægradvöl á Hótel Órk sem til- valda jólagjöf. Þetta hefur ekki verið reynt hér- lendis áður, en að sögn Jóns Ragn- arssonar, framkvæmdastjóra Arkar, verður boðið upp á fjóra mismun- andi „lykla" að hótelinu. Mismunur lyklanna felst m.a. í lengd dvalarinnar sem er frá þremur dögum og upp í fimm daga, en verð- ið er frá 6.900-12.900 kr. og er þá morgun- og kvöldverður innifalinn. Þau verð, sem hér eru nefnd, gilda aðeins meðan á sérstöku jólatilboði stendur, en lyklana má hins vegar nota allt næsta ár á þeim tíma sem viðskiptavinurinn óskar eftir. Auk þessa verður sérstök dagskrá á hótelinu um jólin og áramótin og þann 17. janúar verður haldið sér- stakt heilsuteiti þar sem gestum býðst skipuleg þátttaka í ýmiss kon- ar líkams- og heilsurækt. Hótel Örk hefur farið ótroðnar slóðir í markaðssetningu. Undan- farna þrjá vetur hefur hótelið boðið upp á svokallaða sparidaga í miðri viku: eins konar hvíldar- og hress- ingardaga fýrir fólk á öllum aldri, með dvöl frá mánudegi til föstudags að báðum meðtöldum. Innifalið er matur, gisting og kvöldvaka á hverju kvöldi með sérstökum gestgjafa. Sparidagarnir hafa mælst mjög vel fyrir. Fyrsta vika þeirra hefst á mánudag og er þegar uppselt í hana. Hótel Örk er reyndar óvenju vel í stakk búið til þess að taka við fólki til hvíldar og hressingar. Þar er líkams- ræktarsalur, gufubað, sundlaug, vatnsrennibraut, nuddstofa og fleira.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.