Tíminn - 16.11.1991, Blaðsíða 7

Tíminn - 16.11.1991, Blaðsíða 7
Laugardagur 16. nóvember 1991 HELGIN 15 Mitshubishi L 200 4WD í reynsluakstri: Garpur með góða takta Pailbflar með löngu húsi, extra cap og double cap eins og þeir heita á alþjóðlegu bflamáli, hafa undanfarin misseri verið að ryðja sér til rúms á íslenskum markaði. í síðasta helgarblaði Tímans kynntumst við einum slflnim frá Toyota, Hilux SR5 Extra Cap, en nú er röðin komin að samlanda hans Mitsubishi L 200 4X4 tvíhýs- isvagni. Reyndar eru þessir bflar ekki að öllu leyti sambærilegir. L 200 bfllinn, sem við fengum til reynslu, var fjögurra dyra double cap dieselbfll og kemur upphækkaður og breyttur frá umboð- inu, en Toyotan var tveggja dyra bens- ínbfll með minna aftursæti og mun minna breyttuii Breyttur hjá Benna Þeir hjá Heklu hf. kalla þessa útfærslu af L 200 bflnum fjallagarpinn. Nafnið skýrir sig sjálft, en bfllinn er með sér- útbúnaði og upphækkun frá Bflabúð Benna. Bæði Hekla hf. og Jötunn hf., sem selur Isuzu-bflana, hafa samið við Benna um sérútbúnað á bfla sem seldir eru nýir frá umboðunum. Fjallagarp- urinn er hækkaður upp á boddýi um þrjár tommur og með gúmmíbretta- köntum og gangbrettum úr áli. Það er búið að setja undir hann 32” dekk, álf- elgur og á toppnum er ljósagrind með tveimur 130 W ljóskösturum. Þá er bú- ið að setja hlífðargrind á bflinn að framan og á hana tvo þokuljóskastara og þriggja tonna spil. Inni í bflnum eru síðan slökkvitæki og sjúkrakassi. Þessi pakki breytir Mitsubishi L 200 4WD Double cap heilmikið. Hann verður fyrir það íyrsta öflugri í torfær- um og traustari við erfiðar aðstæður, en útlitið breytist ekki síður til batnað- ar. Útkoman er fallegur og sportlegur íjallabfll. Aksturseiginleikamir halda sér, enda er bfllinn hækkaður upp á grind en ekki fjöðrunum. Það fylgir þessari breytingu þó einn galli og hann er sá að það hvín meira í grófmynstr- uðum dekkjunum, en það verða hvort sem er allir, sem setja jeppana sína á öflugri dekk, að sætta sig við. Tíu gírar áfram Mitsubishi L 200 4WD Double Cap vegur tæp sautján hundmð kfló tómur, byggður á grind og uppgefin burðar- geta er um það bil 1,2 tonn. Vélin er 2,5 Iítra 4 cyl. dieselhreyffll, sem skilar 70 DIN hestöflum við 420 snúninga. Gír- kassinn býður upp á fimm hraðastig áfram, sem gerir tíu gíra áfram og tvo afturábak, þegar hátt og lágt drif er tal- ið með. Að aftan er heil hásing með blaðfjöðmm, en að framan er sjálfstæð snerilfjöðmn á hvom hjóli. Bfllinn er útbúinn með loftkældum diskabrem- sum að framan en skálabremsum að aftan. Innanrými er all gott, það fer mjög vel um ökumann og framsætis- farþega og heili sætisbekkurinn afturí 0 er rúmgóður. Séu framsætin í öftustu stöðu, er fótarými aftursætisfarþega orðið af skomum skammti, sér í lagi ef þeir em meira en meðalmenn á stærð. Sætin sjálf em þægileg, þau em tau- klædd, sem er stór kostur á frostköld- um vetrarmorgnum. Stólamir frammí styðja vel við ökumann og farþega og það er vandalaust fyrir ökumanninn að stetjast inn og fara út, jafnvel þótt veltistýrið sé í neðstu stillingu. Smekklegur frágangur Allur frágangur að innan er með ágætum og útsýni úr húsinu er gott. í mælaborðinu em hraðamælir og snúningshraðamælirfyrirferðarmestir, en auk þeirra eldsneytis- og vatnshita- mælir. Fyrir smurþrýsting og hleðslu em viðvömnarljós. Á bflum eins og þessum, sem em notaðir til flutninga og í torfæmakstri, þyrfti að vera smur- þrýstingsmælir og jafnvel mælir fyrir hitann á smurolíunni líka. Það skiptir miklu máli að geta fylgst með því hvemig bfllinn smyr sig undir álagi eða þegar keyrt er í hliðarhalla og brattlendi, því ljósarofinn í mælaborð- inu varar þig ekki við fyrr en eftir að vélin er hætt að smyrja sig. í akstri er þessi tvíhýsisvagn ljúfur sem lamb. Vökvastýrið mátulega þungt, aflbremsumar sömuleiðis og öll stjómtæki rétt staðsett. Gírskiptingin er sérlega ljúf og ekkert basl við að skipta á milli drifa. Vegna þess að bfll- inn, sem Tíminn fékk til pmfú, var á 1545 stærri dekkjum, virkaði hann latur á fjórða og sér í lagi fimmta gír, en hraðahlutfallið út í hjól hækkar um 20% við þessa breytingu. Þetta kemur þó ekki að sök, því drifhlutfallið er lækkað til að vega upp á móti stærri dekkjum áður en Fjailagarpurinn fer frá umboðinu. Eftir þá breytingu verð- ur bfllinn að öllum líkindum bara nokkuð snarpur af dieselvagni að vera. Mætti leggja meira á Garpurinn er nokkuð seigur þegar kemur að akstri í snjó og eríiðum skil- yrðum. Þar munar mikið um 75% tregðulæsingu á afturöxlinum og sá útbúnaður nýtur sín enn betur þegar komin er einhver þyngd á pallinn. Að framan er hins vegar ekki læsing. Drif- lokumar em handvirkar, sem er kostur ffernur en galli. Einum galla er ekki hægt að Iíta fram- hjá við akstur Mitsubishi L 200, en hann er sá að beygjuradíusinn er of lít- ill. Þvermál beygjuhringsins er heilir 12 metrar á þessari útgáfu og það háir THOMSON O SJÓNVÖRP RYMINGARSALA lO-25%afsláttur nM8§3 SAMBANDSINS Miklagarði S. 692090 bflnum þegar beygja á fyrir kröpp hom. Þetta er aðal ókostur bflsins. Ókostur númer tvö er hvað hávaðinn frá vélinni heyrist inn í húsið. Það má þó laga með því að leggja smá vinnu í að einangra hvalbakinn betur. Þegar á heildina er litið er þessi tví- hýsisvagn góður kostur þegar menn em að leita sér að duglegum torfæm- og vinnubíl, með möguleika fólksbfls. Fjallagarpurinn er ákjósanlegur fyrir bændur, trillukarla og smærri verktaka og alveg sérstaklega ef litið er á verðið, sem er um 1.400 þúsund miðað við staðgreiðslu. Því miður hefur skatt- lagning stjómvalda á dieselbflum orðið þess valdandi að þeir em dýrari í rekstri heldur en bensínbflar, nema virðisaukaskattur af olíunni fáist end- urgreiddur. Setji hinn almenni jeppa- áhugamaður það ekki fyrir sig, er þetta bfll fyrir hann líka. -HEÍlSUFjJk ÞAÐ ERU EKKI FOTIN SEM MENN VIUA HELDUR ÞAÐ SEM ÞAU HYUA! BJOÐUM UPPA LIKAMSRÆKT, ÞOLFIMI UÓS OG SKVASS. MORGUN, HÁDEGIS, SÍÐDEGIS OG KVÖLDTÍMAR. SKRÁNING HAFIN í JAZZ-FUNK NÁMSKEIÐ HJÁ DÍSU. OPIÐ KL. 7-22 VIRKA DAGA, 9-16 LAUGARDAGA OG 13-16 SUNNUDAGA. World Class SKEIFUNNI 19, SÍMAR 30000 OG 35000

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.