Tíminn - 16.11.1991, Page 16

Tíminn - 16.11.1991, Page 16
24 HELGIN Laugardagur 16. nóvember 1991 ■Rí TÍMANS RÁSHHHK ATLI MAGNÚSSON: „Hafið þið séð hann Steinþór?" Nú eru ekki þeir b'mar í landi að allt leiki í lyndi. Flest þau auðsöfl- unaráform, sem treysta áttu rið- andi þjóðarhag, hafa brugðist. Eins og gullið undir enda regn- bogans hvarflar bjargræðið und- an, er á að fara að nálgast það. Þegar loðnuflotinn loks siglir úr höfn og menn vænta gnoðanna drekk- hlaðinna heim á hverri stundu, verður aðeins al- dauða sjór fyrir. Sömuleiðis er mannskapur og tól öll tiltæk að hefja byggingu á álveri þegar þeirri fregn lýstur niður að tvær grímur hafi runnið á þá er skyldu reisa það. Jón iðnaðarráðherra má kenna það á sjálfum sér þessi dægrin hvemig Sigurlínu í Mar- arbúð hefúr verið innanbrjósts þegar unnusti hennar hljópst brott á sjálfan brúðkaupsdaginn og ekki var um annað að gera en taka ofan auglýsinguna um hið „stóra halelújabrúðkaup". Hug- stola gekk Sigurlína frá manni til manns og spurði: „Hafið þið séð hann Steinþór?" En allt kom fyrir ekki. Allir geta fúndið til með Sigur- línu, sem af heilu hjarta vildi „koma nafni á hórdóminn í Mar- arbúð“, en veittist það ekki vegna heitrofanna. Aftur á móti er sam- úðin minni með Jóni iðnaðarráð- herra, því margur kveðst hafa varað hann við að treysta um of á stöðuglyndi hinna útlendu ál- greifa. En það er svo með ástina að hún hlýðir engum fortölum og fær sinn framgang, þótt hún sé lamin með lurk og hljóti að leiða til harmrænna örlaga — kannske í flæðarmálinu neðan við Þjóð- hagsstofnun? Náttúrlega biðjum við að ham- ingjan afstýri öðm eins, og að Jón herði upp hugann, en erfitt mun reynast að finna honum huggun. Rétt eins og átti sér stað í sorgar- sögu Sigurlínu í Mararbúð, bjóða sig ffam aðrir kostir, þegar „stóra ástin“ hefur bmgðisL Kvennalist- inn situr undirleitur álengdar í smábandspeysu svonefndrar alís- lenskrar atvinnuuppbyggingar og hyggur víst að senn muni koma að sér að festa búrlyklana við belt- ið. En Kvennalistakonumar skilja ekki að í brjósti Sigurlínu bjó heitt og rómantískt hjarta og hún gat aldrei orðið ástfangin af Jóa- Idm á Kvíum og hún kastaði í hann því „yndislega dömuklæði“, sem hann vildi gefa henni. Því mun Jón áffam mæna til hafs í von um að sjá álverið koma sigl- andi undir ljómandi seglum. En dagamir urðu Sigurlínu langir í vonlítilli bið hennar eftir Steinþóri, og ekki bætti úr skák að samvistir þeirra skötu- h j ú a n n a höfðu ekki orðið ávaxtar- lausar. í dæmi Jóns heitir þessi af- sprengur auð- vitað Blöndu- virkjun, sem nú er sýnt að orðið getur móður sinni hinn mesti kross. Öll sín upp- vaxtarár fylgd- ist blessunin hún Salka Valka með þeim þjáningum sem móðir hennar leið, og skildi að hún leið þær fyrir ástríður sem henni var ómögulegt að hafa stjóm á. Með því að hafa dæmi hennar stöðugt fyrir augunum, varð það henni viðvömn. Hún lærði að hafa sjálf stjóm á eigin örlögum og um síðir var það hún sem vafði Stein- þóri um fmgur sér. Hún hafnaði hinu „þjóðlega" kotahokri Kvía- Jukka og skaut Bogesen ref fyrir rass. Hún skildi kall nýrra tíma og atvinnuhátta og eignaðist hlut í bát — án nokkurra útgerðar- styrkja. Nú bíður þjóðin eftir að einhver Salka komi fram á sjón- arsviðið, svo halda megi sögunni áffam og leiða hana til farsælla lykta. Síðast sáum við á myndinni hér í horn- inu rannsóknastöð- ina að Keldum. Þá er spurt um vel kunnan burstabæ, sem lengi hefur hýst eitt af bycjgðasöfn- um landsins. Hver er hann? □ L 50 & □ •O í- rs £ É "ö 50 a ; 3> ~s> e- rz: P * ■ z> o> □ a □ 3>' P 51 <*> □ a a < I e — < a a 73 c 2 [r — <J> 3d 2. a 3 ri P 3>' r ö ■ Ch nT Ö □ □ LÖ 2 -< F — s a □sa (A a □ S 3 3 icT* V* SBB </> B O: pc * -n Ö □ s B *x o F .2L CJ 73 ÖJ n •»1 — R * 4r- c-. þl ö tn P" F 2 U o> ÖT zz. P LP & cT e U) öönjn VO e- a - F □ H1 'm c- I - H i: □ z. CL & i E a v 3> f - Q 71 ■Z r L 7> * □ S £0 3> r < L J □ B ap* r* ö 2. — Nn'isfl KROSSGÁTA

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.