Tíminn - 21.11.1991, Page 1
Dagsbrúnarmenn að
springa á limminu
Á félagsfundi í Dagsbrún í dag
mun stjórn félagsins leita eftir
heimild félaga til verkfallsboðunar.
Áður hafa þrjú verkalýðsfélög á
landsbyggðinni fengið slíka heim-
ild. Það er seinagangur í sérkjara-
viðræðum sem veldur því að verk-
fallsheimilda er aflað, en félags-
menn þessara félaga telja að
vinnuveitendur hafi hug á að beina
samningaviðræðunum í nýjan far-
veg þar sem heildarsamtök aðila
vinnumarkaðarins ræða um al-
mennari samningsgerð og að-
gerðir í efnahagsmálum. Þó að
verkalýðssamtökin telji vaxtamál-
in, atvinnumálin og verðlagsmálin
þýðingarmikil samningsatriði, eru
þau ekki tilbúin til að láta það
verða til þess að sérmálum þeirra
sé ýtt til hliðar.
• Blaðsíða 5