Tíminn - 21.11.1991, Blaðsíða 2

Tíminn - 21.11.1991, Blaðsíða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 21. nóvember 1991 Skipaútgerð ríkisins: Ákvarðanir ráðherra byggðar á „Svo virðist sem ráðherra hafi lagt þessa skýrslu til grundvallar ákvörð- unum sínum um framtíð Ríkisskips. Hann hefur oftlega vitnað beint í hana og ákvarðanir um að segja upp Færeyjaflutningunum og setja skip á sölulista, þær ákvarðanir eru til dæmis teknar eftir að þessi áfanga- skýrsla er lögð fram. Þar eru forsendumar greinilega fengnar," segir Hjörtur Emilsson, aðstoðarforstjóri Ríkisskips, í samtali við Tímann. vitleysu? Skýrslan, sem til er vitnað, kall- ast „Áfangaskýrsla varðandi úttekt á rekstri Skipaútgerðar ríkisins og framtíðarskipulag á þátttöku rík- isins í strandsiglingum". Hún var unnin af Endurskoðun Akureyrar hf., dagsett 7. október. Hjörtur vakti athygli á rangfærslum í skýrslunni f grein í fréttabréfi starfsmanna Skipaútgerðarinnar, Þjóðbrautin. Að sögn Hjartar má finna marga villuna í skýrslu Endurskoðunar Akureyrar hf. Sumar þeirra eru mjög meinlegar og hlutur Ríkis- skips allur gerður verri en hann er. Til dæmis að taka er sagt til- tölulega stutt í að fjárfesta verði í skipum og uppbyggingu nýrrar vöruskemmu við Vogabakka; skip- in séu gömul, miðað við skipastól annarra félaga, og samningur um afnot af aðstöðu við Reykjavíkur- höfn renni út næsta haust. Hjörtur segir hvort tveggja rangt. Skip Ríkisskips henti vel til siglinga á ströndinni, enda hafi Eimskipafélagið til dæmis nýverið tekið í notkun strandferðaskip sömu gerðar og skip Ríkisskips. Skipunum sé einnig vel við hald- ið, enda undir stöðugu eftirliti Viðhaldsvakans. Hjörtur segir og að samningur um afnot af hafnar- aðstöðu renni ekki út fyrr en árið 2001. Skipaútgerðinni gefist kost- ur á aðstöðu við Vogabakka, enda liggi þarfir Reykjahafnar að baki flutningum ef til þeirra kemur. Hjörtur segir enn að skýrslan byggi að miklu á meintum tilvitn- unum í erindi, sem flutt var á ráð- stefnu um mönnun, skráningar og rekstur kaupskipa. Endurskoð- un Akureyrar hf. þykist finna þar að nýting og virkni Skipaútgerðar ríkisins sé ófúllnægjandi, miðað við aðra flutningsaðila, og rekstr- arkostnaður hár. Hjörtur bendir á að Samband íslenskra kaupskipa- útgerða hafi mótmælt þessari túlkun Endurskoðunar Akureyrar hf. á áðumefndu erindi og kallað hana grófa fölsun og ósannindi. „Við höfum reynt að koma at- hugasemdum til ráðherra og var- að við að skýrslan sé lögð til grundvallar ákvörðunum um framtíð Skipaútgerðarinnar. Af- staða ráðherra hefur hins vegar ekkert breyst, að því er ég best veit. Þetta eru óskiljanleg mistök. Það hefði verið mjög einfalt að ganga úr skugga um þessi atriði sem Endurskoðun Akureyrar fer vit- laust með. Eitt símtal hefði dugað og við hefðum getað leiðrétt rang- færslurnar. Hitt er víst að okkar staða væri betri, ef skýrslan væri betri,“ segir Hjörtur Emilsson, aðstoðarforstjóri Skipaútgerðar nkisins. -aá. Starfsmenn Skipaútgerðar ríkis- ins undirbúa stofnun hlutafélags: Alltá fullu I gærkvöldi var haldinn fundur til undirbúnings að stofnun hlutafé- lags um rekstur Skápaútgerðar rík- isins. Starfsmenn fyrírtækisins eiga frumkvæðið, eins og komið hefur fram, og að sögn Hjartar Em- ilssonar aðstoðarforstjóra hafa und- irtektir verið mjög góðar. Á fundin- um var kosin undirbúningsstjóm. „Við höfúm fengið mjög jákvæð viðbrögð frá fjölda aðila út um allt land og hér í Reykjavík. Við höfum meira að segja fengið hlutafjárlof- orð, þó ekki sé farið að tala um upp- hæðir. í þeim hópi eru sveitarfélög, kaupfélög og einstaklingar, til dæm- is Matthías Bjarnason alþingismað- ur. Við erum bjartsýn. Það er mikill hugur í starfsfólkinu, mikil sam- staða. Og við bíðum spennt eftir því að sjá hversu góð mætingin verður og síðan hver niðurstaðan verður af þessu," sagði Hjörtur Emilsson í samtali við Tímann fyrir undirbún- ingsfundinn í gær. -aá. Þingsályktunartillaga: FERÐAÞJÓNUSTA VERÐIEFLD Eigendur Sam-útgáfunnar/Korpus hf.; Helgi Agnarsson, Sigurður Bjarnason, Þórarinn J. Magnússon og Sigurður F. Þorleifsson. Hagræðing í rekstri útgáfufyrirtækis og auglýsinga- stofu ber ávöxt: Sam-útgáfan og Korpus sameinast Sam-útgáfan hf. og Korpus hf. eru að sameinast. Samútgáfan gefur út tímaritin Vikuna, Bleikt og blátt, Samúel og Hús og híbýli. Korpus starfrækir umfangsmikla prent- þjónustu og prentmiðlun og vinnur fyrir auglýsingastofur, prentsmiðj- ur, og útgefendur. Markmiðið með sameiningunni er að ná fram hagræðingu í rekstri. Um leið er fyrirhugað að auka um- svifm, til dæmis með útgáfu vasa- brotsbóka. Nýja fyrirtækið mun bera nöfn beggja fyrirtækjanna og heita Sam- útgáfan/Korpus hf. Sameiningin gengur í gildi um áramót. Starfsem- in fer fram að Ármúla 22. Lögð hefur veríð fram þingsáiykt- unartillaga á Alþingi um eflingu ferðaþjónustu. Tillagan gerir ráð fyrir að ríkis- stjórninni verði nú þegar falið að gera athugun á því hvaða fram- kvæmdir í feröaþjónustu eru brýn- astar og skila mestum árangri til að gera kleift að taka á móti fleiri ferða- mönnum og fá þannig betri nýtingu á mannvirkjum og arð af rekstri fyr- Satt er það víst í tilkynningu frá stjórn Lands- banka ísíands er staðfest að skuld Reykjavíkurborgar við bankann er 1.556.412,- — fimmtán hundruð fimmtíu og sex milljónir fjögur- hundruð og tólf þúsund krónur. Bankastjórnin staðfestir þetta að ósk Reykjavíkurborgar. irtækja sem þegar eru fyrir hendi í landinu. Flutningsmenn eru alþingismenn- irnir Jón Helgason, Guðmundur Bjarnason og Stefán Guðmundsson. Tillagan gerir ráð fyrir að á grund- velli athugunarinnar verði þeim að- ilum, sem ráðast vilja í þessi verk- efni, veittur nauðsynlegur stuðning- ur þegar á næsta ári. í greinargerð með tillögunni segir að í umræðum um atvinnumál að undanförnu hafi komið skýrt fram að aukin ferðaþjónusta sé vænleg- asti kostur til eflingar íslensku at- vinnulífi. Ríkisstjórnin fylgi hins vegar stefnu, sem sé ekki fallin til að styrkja þessa atvinnugrein. Bent er á áform forsætisráðherra um að svipta Byggðastofnun fjárræði og tillögur í fjárlagafrumvarpi um að skera niður lögbundið framlag til Framleiðni- sjóðs landbúnaðarins, en sjóðurinn hefur veitt mikilvægan stuðning til verkefna í ferðamannaþjónustu. Flutningsmenn telja mikilvægt að Alþingi breyti stefnu ríkisstjórnar- innar í þessu efni. -EÓ Siewerth Karlsson, aöalframkvæmdastjóri Ansvar- samsteypunnar, og Benedikt Sveinsson, stjómar- formaður Sjóvár-Almennra, handsala samstarfssamninginn. Að baki bíða Áke Lindgren, Ólafur Jón Ingólfsson, Sveinn H. Skúlason, Benedikt Jóhannesson, Einar Sveinsson, Sigurjón Pétursson, Krist- ján Þorsteinsson, Jóhann E. Björnsson og Sigurður R. Jónmundsson. Sjóvá-Almennar og Ábyrgð hf.: Samstarfið aukið og eflt Ábyrgð hf„ tryggingafélag bindind- ismanna, og Sjóvá-Almennar hafa ákveðið að auka samstarf sín í milli. Undanfarin ár hafa félögin hafa sam- starf um rekstur Tjónaskoðunar- stöðvarinnar, sem leitt hefur til hag- ræðingar í rekstri. Þá hefur verið ákveðiö aö auka hlutafé Ábyrgðar og munu Sjóvá-Almennar eiga 49% hlutafjárins eftir aukninguna. Það er í Ijósi fyrri reynslu sem fyrir- tækin ætla að auka samvinnuna, m.a. á sviði tölvuvinnslu, bókhalds, innheimtu og tjónaafgreiðslu. Frá áramótum verður öll tjónaþjónusta fyrir Ábyrgð í Tjónaskoðunarstöð- inni að Draghálsi 14 til 16. Þannig má draga úr rekstrarkostnaði beggja féiaganna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.