Tíminn - 21.11.1991, Side 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
NtJTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarriusinu v Tryggvagotu
S 28822
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Öðruvísi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SfMI 6T9225
Áskriftarsími
Tímans er
686300
TVÖFALDUR1, vinningur
FIMMTUDAGUR 21. NÓV. 1991
10. landsfundur Alþýðubandalagsins vill nýja ríkisstjórn:
Reiknað er með
rólegum fundi
í dag hefst 10. landsfundur Alþýðubandalagsins með setningu
formanns flokksins, Ólafs Ragnars Grímssonar. Horfur eru á
að fundurínn verði einhver sá rólegasti í sögu flokksins, þrátt
fyrir að fréttir um vilja flokksins til að efna til stjórnarmynd-
unarviðræðna á fundinum hafí borið hátt í ljósvakamiðlum
gærdagsins.
Átök og erjur hafa einkennt
landsfundi flokksins, en þó er bú-
ist við notalegum fundi að þessu
sinni. í drögum að stjórnmála-
ályktun, sem lögð verður fyrir
fundinn, er því lýst yfir að Al-
þýðubandalagið sé reiðubúið til
viðræöna við aðra stjórnmála-
flokka um myndun nýrrar ríkis-
stjórnar á grundvelli stefnuskrár
Alþýðubandalagsins.
Skoðanakannanir sýna að Al-
þýðubandalagið nýtur nú fylgis
tæplega 20% þjóðarinnar. Þessi
staðreynd á vafalítið mikinn þátt
í að sæmileg sátt ríkir um forystu
flokksins og stefnumál. Engar
líkur eru t.d. taldar á að gerð
verði tilraun til að fella formann
flokksins.
Eins og áður segir, hefst fundur-
inn í dag og honum lýkur á
sunnudag með afgreiðslu álykt-
ana.
Á morgun verða umræður um
drög að nýrri stefnuskrá Alþýðu-
bandalagsins. Þar segir m.a.: ,A1-
þýðubandalagið er flokkur jafn-
aðarstefnu og félagshyggju, rót-
tækur flokkur sem byggir á
grunnhugmyndum jafnaðar-
stefnunnar, sósíalismans, um
jafnrétti, lýðræði og félagslegt
réttlæti."
í ftarlegum drögum að stjórn-
málaályktun er komið víða við.
Lýst er árangursríkum efnahags-
aðgerðum síðustu ríkisstjórnar
og fullyrt að núverandi ríkis-
stjórn sé með rangri efnahags-
stjórn og aðgerðaleysi á ýmsum
sviðum að koma efnahagslífinu í
sama farið og það var 1988, þegar
ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar
hrökklaðist frá völdum.
Minnt er á stefnu Alþýðubanda-
lagsins um lífskjarajöfnun, sem
lögð var fram fyrir kosningar.
Síðan segir: „Tíundi landsfundur
Alþýðubandalagsins áréttar enn á
ný þessar víðtæku tillögur og lýs-
ir Alþýðubandalagið reiðubúið til
viðræðna við aðra stjórnmála-
flokka um myndun nýrrar ríkis-
stjórnar sem kæmi þeim í fram-
kvæmd í samvinnu við samtök
launafólks og atvinnulífs."
Sigurður Bogi Sævarsson með fyrsta tölublað Sunnlenska frétta-
blaðsins. Tímamynd: Áml Bjama
Nýtt landshlutafréttablað hefur hafið göngu sína á Selfossi:
Sunnlenska
fréttablaðið
„Sunnlenska fréttablaðið kemur út
í fimm þúsund einstökum og því er
dreift til allra heimila á Suðurlandi.
Það á að koma út vikulega og fram
til áramóta verður því dreift ókeypis
til kynningar, en eftir það verður
það selt til áskrifenda," segir Sig-
urður Bogi Sævarsson.
Sigurður Bogi er einn aðstandenda
hins nýja landshlutablaðs. Það er
gefið út á Selfossi af útgáfufélaginu
Sunnan 4. Sunnlenska fréttablaðið
er óháð og tengist engum hags-
munasamtökum eða stjórnmála-
flokkum. Hlutverk þess er að segja
fréttir af mönnum og málefnum á
Suðurlandi. „Við munum vinna
hlutlaust og íbúum héraðsins til
heilla," segir Sigurður Bogi.
Blaðið er 8 síður að stærð og mun
verða í þeirri stærð að öllu óbreyttu.
Þa') mun segja fréttir af Suðurlandi
öllu, eða frá Hellisheiði í vestri og
austur að Lómagnúpi í austri. Það
verður opið fyrir greinaskrifum ein-
staklinga, hvar í flokki eða stöðu
sem þeir kunna að standa. Ábyrgðar-
maður er Kjartan Jónsson. Aðrir að-
standendur blaðsins eru, auk Sig-
urðar Boga, Bjarni Harðarson og
Gunnar Sigurgeirsson.
—sá
Ingi Björn Albertsson er ekki sammála ríkisstjóminni
um að leggja skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði:
INGI BJORN
ER Á MÓTI
Ingi Björn Albertsson (Sjfl.) er á
móti áformum ríkisstjómarinnar
að leggja sérstakan skatt á verslun-
ar- og skrifstofuhúsnæði. Hann
leggur til að skatturinn verði lagður
niður í tveimur skrefum og það
fyrra verði stigið strax á næsta ári
og álagningarstuðullinn verði lækk-
aður úr 1,5% í 0,5%.
Sérstakur skattur á verslunar- og
skrifstofuhúsnæði var fyrst lagður á
árið 1979 og hefur verið framlengd-
ur árlega síðan. Álagningarhlutfallið
var í upphafi 1,4% af fasteignaverði
verslunar- og skrifstofuhúsnæðis.
Árið 1984 var skatturinn 1,1% af
fasteignaverðinu og hélst svo til árs-
ins 1989, en þá var hann hækkaður í
2,2%. í fyrra var hlutfallið lækkað í
1,5%.
Ríkisstjórnin hefur lagt til að skatt-
urinn verði innheimtur á næsta ári
með sama hætti og í ár og hlutfallið
verði 1,5%. Jafnframt hefur fjár-
málaráðherra lýst því yfir að ríkis-
stjórnin muni leggja skattinn af á
árinu 1993, en ráðherra og flokks-
bræður hans hafa lengi barist gegn
þessum skatti. Ingi Björn sættir sig
hins vegar ekki við þessa málsmeð-
ferð og vill lækka álagningarhlut-
fallið strax á næsta ári. Verði sú til-
laga felld, leggur Ingi Björn til að
frumvarp fjármálaráðherra um
þennan „vonda skatf ‘ verði fellt.
SÁÁ lækkar meðalneyslu áfengis á mann með því að:
Jóhann Guðmundsson umboðsmaður Pirelli, dr. Giuseppe Bazzi yfirverkfræðingur Pirelli, Peter
Sheperd sölustjóri, og Gianfranco Acquaotta sölustjóri Pirelli. Tímamynd: Ámi
Pirelli kynnir Landsvirkjun sæstreng:
Tilboð eftir nokkra mán.
Taka boltana í meðferð
Þórarinn Týrfingsson, yfirlæknir á
Vogi, segir að þó framboð á áfengi
hafa aukist mikið síðustu ár, m.a.
með tilkomu bjórsins, fjölgun veit-
ingastaða og útsölustaða, hafi með-
alneysla hvers íslendings ekki auk-
ist að marid.
Gera megi ráð fyrir að vel virkir
alkahólistar drekki um 50 lítra af
áfengi á ári. Þórarinn segir að SÁÁ
hafi tekist að lækna kannski um
3000 til 5000 slíka á liðnum árum.
Heildarneyslan hafi því minnkað um
150.000 til 250.000 lítra. Það sé
meira en næg skýring. Þeir sem
drekki, drekki kannski meira, eins
og vera bæri miðað við aukið fram-
boð, en þeim hefði fækkað sem
drykkju illa.
-aá.
Forsvarsmenn Pirelli-fyrirtækisins
ítalska áttu í gær fund með for-
svarsmönnum Landsvirkjunar og
kynntu þeim möguleika þess og
kosti að leggja sæstreng frá íslandi
og flytja eftir honum orku til út-
landa. Pirelli og Landsvirkjun urðu
ásátt um að halda málinu opnu og
gott betur en það: næstu mánuði
ætlar Pirelli að sýna fram á þetta er
tæknilega mögulegt og æskilegt.
Það var líka tilgangur þeirra með
blaðamannafundi, sem haldinn var í
gær. Pirellimenn segjast vilja sýna
fram á að þeir geti framleitt sæ-
strenginn og lagt hann og að þeir
séu best til þess fallnir.
Tilraunir Pirellimanna hafa leitt í
ljós að strenginn þeirra má leggja á
2.000 metra dýpi, en strengur frá ís-
landi lægi líklega á um 1.000 metr-
um. Og ef tilraunir, sem nú standa
yfir, ganga eftir, má auka burðargetu
hans um 25%. Strengurinn flytur
nú 400 kW af 750 mw orku.
Eins og áður sagði ætla Pirelli-
menn nú að vinna að frekari gangi
málsins og ætla að leggja fyrir
Landsvirkjun skýrslu með tillögur
um lausn helstu tæknilegu vanda-
málanna sem við blasa. Ef Lands-
virkjun líst á, verður farið í að skoða
m.a hluti eins og staðsetningu
strengsins. Og síðan verða menn
bara að bíða og sjá hvort orkan verð-
ur samkeppnishæf. Þar skiptir
nokkru hvort EB leggur sérstakan
skatt á olíu og kol.
-aá.