Tíminn - 23.11.1991, Blaðsíða 2

Tíminn - 23.11.1991, Blaðsíða 2
2 Tíminn Laugardagur 23. nóvembver 1991 Félagsfundur Hestamannafélagsins Fáks samþykkti að breyta nafni fé- lagsins í hestaíþróttafélagið Fák: Gæti skipt sköpum fyrir reksturinn Á félagsfundi hjá Hestamannafélaginu Fáki á dögunum var sam- þykkt tillaga, þess efnis að fela stjórn Hestamannafélagsins Fáks, að breyta nafni félagsins í Hestaíþróttafélagið Fák. Þessi nafnabreyting gjörbreytir rekstri félagsins og með henni verður Fákur aðili að Hestaíþróttasambandi fslands, sem er aðili að ÍSÍ. Þá yrði félagið fullgildur aðili að ÍBR, íþróttabandalagi Reykjavíkur. Það, sem skiptir mestu máli, er að eftir breytinguna gildir það sama um Fák og önnur íþróttafélög, þannig að ríki og bær greiða 80% af allrí mannvirkjagerð á vegum félagsins. Einnig kæmu tekjur félagsins af Lottó til með aukast. Viðar Halldórsson, formaður Fáks, sagði að þessi tillaga væri ekki ný af nálinni. Það væri ekki bara Fákur, sem væri að vinna í þessu máli, heldur væru hestamannafélög al- mennt að vinna í þessu máli. Viðar sagði að breytingin væri ekki mest gagnvart Lottó, heldur lægi mesta breytingin í að komast inn í ÍBR og komast þar með inn í samninga sem gilda um mannvirkjagerð. Matthías Bjarnason um Ólaf Ragnar: „Mikill leikari" „Ólafur Ragnar er mikill leikari og mikill áróðursmaður. Hann er að byggja upp eitthvað utan um sig með því að stilla málum svona upp. Ég held hins vegar að það detti engum í hug að ég sé neitt í námunda við Alþýðubandalagið,“ sagði Matthías Bjarnason alþing- ismaður, í samtali við Tímann, en í ræðu, sem Ólafur Ragnar Crímsson flutti við setningu landsfundar Alþýðubandalagsins, sagði hann m.a. að fólk skoraði á Alþýöubandalagið og Matthías Bjarnason að hrinda frá völdum ríkisstjóm Davíös Oddssonar. Ólafur Ragnar sagði að það hefði verið merkileg reynsla fyrir for- ystumenn Alþýðubandalagsins að fara um landið og heyra fólk, þar á meðal gamla sjálfstæðismenn, segja: „Við heitum á ykkur að hrinda þessari stjórn. Hún er ekki okkar stjórn. Sjálfstæðisflokkur Davíðs er ekki okkar flokkur. Við stöndum með Matta Bjarna og ykkur.“ Ólafur spurði jafnframt: „Hver hefði trúað því á sínum tíma að í ríkisstjórninni sætu þrír krata- strákar frá ísafirði: Jón úr bakarí- inu, Jón Baldvin og Sighvatur skólastjórans, og þeir væru allir þrír komnir langt til hægri við Matta Bjarna?" Matthías Bjarnason sagði að sér væri nokkuð sama hvað Ólafur Ragnar segði. Gagnrýni sín á sum- ar yfirlýsingar Davíðs Oddssonar og aðgerðir ríkisstjórnarinnar væru tilkomnar vegna umhyggju fyrir fólkinu í landinu og vegna þess að þær gengju þvert á grund- vallarlífsskoðanir sínar sem sjálf- stæðismanns. „Ég hef aldrei verið nema í einum flokki allt mitt líf. Ég er sjálfstæð- ismaður og verð það áfram. Hins vegar gagnrýni ég minn eigin flokk og mína menn þegar mér finnst eitthvað fara úrskeiðis eða mál þróast öndvert við mína grundvall- arlífsskoðun," sagði Matthías. Nýlega kannaði Skáís vinsældir stjórnmálamanna fyrir Stöð tvö. Matthías Bjarnason komst þar inn á „topp tíu listanrí* og var álíka vinsæll og forystumenn stjórnar- flokkanna, þeir Friðrik Sophusson og Jón Baldvin Hannibalsson. -EÓ Valdimar Jóhannesson, félagsmað- ur í Fáki og sá sem bar upp tillöguna um að breyta nafni félagsins, sagði að breytingin hefði mikla þýðingu fyrir Fák. Félagið yrði héðan í frá viðurkennt sem íþróttafélag, en ekki klúbbur velstæðra manna sem stunduðu einhvers konar tóm- stundagaman. Ef félag er almennt viðurkennt sem íþróttafélag, þá gildir sú regla að sveitarfélögin Eiður Cuðnason umhverfisráðherra upplýsti það í gær, á ráðstefnu um ferðlög og umhverfísvemd á hálendi íslands, að hann væri með í smfðum frumvarp að lögum um skipulag há- lendisins. í þeim yrði það afmarkað og settar sérstakar reglur um um- gengni hinna ýmsu ferðalanga og far- artækja. Ráðherra benti til dæmis á, að það væri óþolandi að menn gætu fariö um hálendið og byggt sér þar kofa hvar, hvenær og hvemig sem þeir helst vildu. Það voru dómsmálaráðuneytið, sam- gönguráðuneytið og umhverfisráðu- neytið, sem stóðu fyrir ráðstefnunni. Þar mæltu menn úr ferðaþjónustu, áhugafélögum um ferðalög, þeir sem halda uppi eftirliti og þeir sem helst standa í vegagerð á hálendinu. Menn virtust nokkuð sammála ráðherra um nauðsyn þess að skilgreina hálendið og afmarka, setja reglur um um- gengni og ferðalög. Hins vegar voru nokkuð skiptar skoðanir um hvort taka bæri gjald af mönnum fyrir leyfi til að fara um hálendið, og hvort selja bæri aðgang að ákveðnum svæðum. Fyrst allra mælti þó Þóra Ellen Þór- hallsdóttir prófessor. Hún talaði um sameiginleg markmið ferðamennsku og umhverfisverndar. Þóra Ellen rakti fyrst sérstöðu hálendis íslands. Þar væri óbyggt svæði, aö mestu ósnortið, sem vandfundið væri nú á tímum. borga 80% af kostnaði við mann- virkjagerð, bæði við velli og hús. Valdimar sagði að þessa hefðu Fáks- menn ekki notið hingað til, og stað- reyndin væri sú að húsnæði og að- staða á félagssvæði Fáks væri orðin niðumídd. Hingað til hefðu félags- menn greitt allar slíkar fram- kvæmdir úr eigin vasa og með sníkj- um, og það gengi ekki lengur, en fé- lagið hefur orðið að selja eignir upp í skuldir. Valdimar sagðist ekki vita hvað breytingin þýddi í peningum fyrir félagið, en hins væri hann viss um að það skipti stómm fjárhæð- um. Valdimar Jóhannesson sagði að það hefði ávallt verið mikil andstaða við þessa tillögu hjá Fáki og hún hefði komið til umræðu áður, en á félagsfundi á dögunum hefði bmgð- ið svo við hún hefði verið samþykkt einróma. Ástæðan væri líklega sú að Hún sagði síðan að m.a. mætti færa hagræn rök að því að vernda bæri um- hverfið og hálendið sérstaklega. Við reyndum að selja það ferðamönnum, gjama með því fororði að það væri sem upprunalegast, ósnortið. Þóra El- len spurði svo hvort hér væri ekki komin upp mótsögn milli verndar og nýtingar. Hún sagði að svo þyrfti ekki að vera; umhverfisvemd og nýting gætu farið saman, átt sér sameiginlegt markmið, sjálfbæra þróun. Hún sagði og að frekari uppbygging á hálendinu gæti ekki og mætti ekki verða í nánd gróðurvinjanna, sem þær væri að finna og allir vildu nýta. Skilgreina þyrfti svæðið, skipta því niður og byggja aðstöðu til að veita þjónustu til hliðar við helstu vinjarnar, fallegustu perlurnar. Magnús Oddsson hjá Ferðamálaráði, minnti á samþykktir nýafstaðinnar ferðamálaráðstefnunnar um að gera bæri miðhálendið allt að þjóðgarði. Hann rakti aðeins umræður manna um nauðsyn þess að vemda náttúruna og hversu oft menn beittu þá fyrir sig neikvæðum orðum. Þannig væri talað um boð og bönn og að takmarka bæri fjölda þeirra útlendinga, sem leyfi fengju til að ferðast um hálendið. Magnús benti á að sökin væri íslend- inga sjálfra. Þeir væru meirihluti ferðamanna og hefðu haft umsjá með þessu landi. menn væru farnir að gera sér grein fyrir slæmri stöðu félagsins. Þá sagði Valdimar að eftir að félag- ið yrði viðurkennt sem íþróttafélag, fengi félagið beina styrki frá ÍBR til að standa straum af þjálfurum fyrir yngri kynslóðina, og það væri gott mál. Hestaíþróttasamband íslands er í dag aðili að ÍSÍ og fær greitt úr Lot- tó samkvæmt félagatali og umfangi. Það eru þó í dag ekki verulegar fjár- hæðir, þar sem umfang starfsem- innar er ekki mikið, en þegar sú breyting verður komin almennt á að hestamannafélög víðs vegar um land verða orðin að hestaíþróttafé- lögum, þá aukast Lottótekjur veru- lega. Þegar hefur eitt félag breytt nafni sínu og er það Hestaíþróttafé- lagið Hörður í Mosfellsbæ. Magnús varaði við hugmyndum um að taka gjald af ferðum um hálendið, eins og sumir vildu gera. Hann sagði það ósanngjamt. Aðrir atvinnuvegir, landbúnaður og iðnaður, væru til dæmis ekki krafðir gjalds fyrir sín not af hálendinu. Halldór Bjarnason frá Félagi ís- lenskra ferðaskrifstofa, minnti á þá staðreynd að ferðaþjónusta er nú orð- in undirstöðuatvinnuvegur á íslandi og því væri nauðsynlegt að vemda þær auðlindir sem hún nýtti. Hann varaði mjög við því að hið opinbera reyndi að arðræna ferðaþjónustu, eins og það hefði arðrænt alla aðra atvinnuvegi í landinu, og þar með koma henni eins og þeim á kné. Hann benti á að ferða- mannaþjónusta væri náttúruvemd; þeir sem ynnu við hana skildu best nauðsyn þess að vernda náttúruna, auðlindir sínar. Við nokkuð annan tón kvað í erindi Steinunnar Harðardóttur frá Félagi leiðsögumanna. Hún sagði ekki annað en rétt og sjálfsagt að taka gjald af þeim, sem skoða vildu náttúmperl- umar. Það væri alls staðar gert og meira að segja væru menn krafðir gjalds fyrir leyfi til að ganga í gegnum eldgamla kastala úti í löndum. Stein- unn benti og á nauðsyn þess að skipta landinu upp og skilgreina svæði og hvað skyldi fara fram á hverju svæði. -aá. Heilbrigðisráðherra um hagræði af sameiningu spítala í Reykjavík: Spörum strax á næsta ári Heilbrigðisráðherra telur að sameining Landakotsspítala og Borgarspítala muni spara vem- legar fjárhæðir strax á næsta ári. Hann vonast til að fyrstu skref í átt til sameiningar verði stigin á fyrstu mánuðum næsta árs. Nefnd, sem vinnur að sam- einingu spítalanna, hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem mótmælt er ummælum Skúla G. Johnsen, héraðslækn- is í Reykjavík, um að samein- ingin sé nær óframkvæmanleg sökum kostnaðar. í fréttatilkynningunni segir að Skúli hafi ekkert komið nálægt vinnu nefndarinnar og þær kostnaðartölur, sem hann nefndi í frétt Ríkisútvarpsins, séu í engu samræmi við þær úrlausir sem nefndin leggur til grundvallar vinnu sinni, að öðru leyti en því að kostnaður við lúkningu B-álmu Borgar- spítalans er um 400 milljónir króna og lok þeirrar fram- kvæmdar eru óháð hugsanlegri sameiningu spítalans. Sighvatur Björgvinsson heil- brigðisráðherra sagðist engu hafa við yfirlýsingu nefndar- innar að bæta. Hann sagðist eiga von á tillögum nefndar- innar innan skamms, og í framhaldi af því verði tekin ákvörðun um hvort spítalamir verði sameinaðir. Sighvatur sagði að auðvitað kostaði sam- eining spítalanna peninga. í fjárlagafrumvarpinu væri gert ráð fyrir að verja 188 milljón- um króna til þessa verks á næsta ári. Sighvatur sagðist telja að hagræði af sameining- unni muni skila beinum sparn- aði strax á næsta ári. -EÓ Umferðaróhapp á Reykjanesbraut: Ók undir vörubíl Þrennt var flutt á sjúkrahús í Keflavík og Reykjavík eftir um- ferðaróhapp á Reykjanesbraut við afleggjarann til Grindavík- ur laust eftir klukkan 15.00 í gær. Slysið varð með þeim hætti að vörubifreið, sem ók eftir Reykjanesbraut, ætlaði að beygja inn á Grindavíkuraf- leggjarann, en ökumaður fólksbíls, sem á eftir honum kom, gætti ekki að sér, með þeim afleiðingum að hann ók undir vörubílinn. Þrennt var í fólksbfínum og eins og áður sagði voru þeir allir fluttir á sjúkrahús. Ékki var vitað um meiðsl þeirra. Fólksbifreiðina þurfti að fjarlægja með krana. Aðstæður til aksturs vom ágætar á Reykjanesbraut þegar slysið átti sér stað. -PS Einn fluttur á slysadeild Umferðarslys varð á horni Bú- staðavegar og Litluhlíðar um klukkan 8 í gærmorgun. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar var fluttur á slysadeild, en meiðsli hans voru Þetta umferðarslys er ekki það fyrsta á þessum gatnamótum, en þau þykja mjög varasöm og eru slys og árekstrar tíðir. -PS -PS Frá ráöstefnunni um ferðalög og umhverfisvernd á hálendinu. Tímamynd: Aml BJama Ferðalög og umhverfisvernd á miðhálendi íslands: LÖG UM HÁLENDIÐ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.