Tíminn - 23.11.1991, Page 5

Tíminn - 23.11.1991, Page 5
Laugardagur 23. nóvember 1991 Tíminn 5 Nefnd, sem kannar úrsögn Islands úr hvalveiðiráðinu, skilar skýrslu: Niðurstaðan varð úrsögn Nefnd, sem sjávarútvegsráðherra skipaði í yor til þess að yfírfara ýmsa þætti er lúta að hugsanlegri úrsögn íslendinga úr Alþjóða- hvalveiðiráðinu, leggur til að ísland segi sig úr ráðinu. Nefndin tei- ur ógerlegt að fuliyrða um viðbrögð annarra ríkja við úrsögn íslands úr hvaiveiðiráðinu, en telur vissa hættu á að seljendur íslenskra fískafurða og fyrirtæki í ferðaþjónustu verði fyrir óþægindum vegna úrsagnarinnar. Sjávarútvegsráðherra var afhent skýrslan í gaer. Hann mun leggja hana fyrir ríkisstjórnina á þriðjudag í næstu viku og er reiknað með að stjórnin taki ákvörðun í málinu á næstu vikum. í nefndinni áttu sæti Einar K. Guð- finnsson alþingismaður, Guðmund- ur Einarsson lífeðlisfræðingur, Guðmundur Eiríksson þjóðréttar- fræðingur, Jóhann Sigurjónsson sjávarlíffræðingur, og Kjartan S. Júlíusson deildarstjóri. Formaður nefndarinnar var Einar K. Guð- finnsson. Nefndin leitaði álits hjá fjölda hagsmunaaðila, auk þess sem fyrir hana voru lagðar ályktanir frá samtökum og stjórnum. Flestir, sem nefndi leitaði til, mæltu með úrsögn. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna telur hins vegar varhugavert að ísland segi sig úr hvalveiðiráðinu. Sölustofnun lag- metisins óttast að úrsögn gæti verið túlkuð sem skref í átt til hvalveiða og leitt til aðgerða umhverfissam- taka gegn kaupendum lagmetis. Flugleiðir og Utflutningsráð eru sammála um að ákvörðun um úr- sögn gæti leitt til þess að jákvæð ímynd íslands í umhverfismálum biði hnekki og valdið skaða. Nefndin telur engar líkur á að hvalveiðiráðið muni í framtíðinni taka tillit til álits vísindanefndar ráðsins og leyfa takmarkaðar hval- veiðar. Nefndin telur að hagsmunir íslenskrar þjóðar, sem byggir af- komu sína á skynsamlegri nýtingu lifandi auðlinda sjávar, séu engan veginn tryggðir með þátttöku í störfum Alþjóðahvalveiðiráðsins, eins og starfsemi þess og skipan mála er háttað í dag. „Því miður sýnist eina færa leiðin til að knýja fram breytingar þar á, vera formleg úrsögn úr því. Úrsögn íslands gæti án efa stuðlað að umræðum um bætta starfshætti innan ráðsins, þannig að innganga í ráðið á ný kynni síðar að verða fýsilegur kost- ur,“ segir í nefndarálitinu. Til að íslendingar geti hafíð hval- veiðar að nýju, verða þeir að gerast aðilar að nýrri stofnun um nýtingu auðlinda hafsins. Nefndin telur ekki óeðlilegt að ísland hafí frumkvæði að stofnun samtaka þjóða á N-Atl- antshafi. Nefndin telur útilokað að fullyrða um hver yrðu viðbrögð við úrsögn íslands úr hvalveiðiráðinu. „Vegna reynslu fýrri ára, er það skoðun nefndarinnar að ekki sé unnt að horfa framhjá þeim möguleika, að gripið verði af minnsta tilefni til áróðurs gegn íslandi og íslenskum framleiðsluvörum, af einstökum hvalfriðunar- eða þrýstihópum. Hvort úrsögn ein út af fýrir sig kalli á slík viðbrögð, er ekkert hægt að fullyrða um.“ Nefndin telur að íslensk stjórnvöld verði að vera tilbúin til að bregðast við slíkum áróðri, t.d. með auglýs- ingum og skipulagðri fræðslustarf- semi. -EÓ Milljónatjón varð í bruna á Selfossi Frá Sigurði Boga Sævarssyni, fréttarit- ara Timans á Selfossi. Milljónatjón varð á Selfossi í fyrrinótt þegar húsið að Eyrar- vegi 59 brann. Þetta er stálgrind- arhús þar sem þrjú fyrirtæki hafa haft aðstöðu sína til þessa, þar á meðal eina fískbúðin á Suður- landi. Slökkviliðið var kallað út rúmar 20 mínútur í fjögur í fyrrinótt. Þá var mestur eldur í vesturenda hússins, en þar er fiskbúðin til húsa. Það tók slökkviliðið um tvær klukkustundir að ráða niðurlögum eldsins. Mestar skemmdir urðu í vesturenda hússins þar sem fisk- búðin var. Vörubirgðir hennar eru ónýtar, þar á meðal Þorláks- messuskatan sem Guðmundur Hansson fisksali var nýlega búinn að setja í kæsingu. Þak hússins er ónýtt. Lögreglan í Árnessýslu og RLR vinna sameiginlega að rannsókn eldsupptaka. Hergeir Kristgeirs- son lögreglufulltrúi vildi ekkert segja um málið annað en að það væri í rannsókn. { húsinu voru, auk fiskbúðarinn- ar, byggingafýrirtæki og gröfu- þjónusta. Óverulegar skemmdir urðu þar, ef frá eru taldar reyk- og vatnsskemmdir. Borgin seldi skuldabréf upp á rúman milljarð í Landsbankanum í sumar. Sigrún Magnúsdóttir: Versnandi staða þrátt fyrir 762 m.kr. „búbót“ Sem svar við fýrirspum í borgarstjóm kom fram að yfirdráttur borgarinnar í Landsbanka þann 1. nóvember nam tacpum tveim milljöröum króna, sem er um það bil 500 miHjónum króna meira en á sama tíma í fýrra, þrátt fýrir að Reykjavíkurborg hefði í laumi framselt skuldayfiriýsingu ríkisins vegna þjóð- vegaframkvæmda. Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir að þetta sýni best hve staða borgarinnar fari versn- andi. Hún gagnrýnir vinnubrögð sjálf- stæðismeirihlutans harðlega. Það kom fram á borgarstjómarfúndi sl. miðvikudag, sem svar við fýrirspum, að yfirdráttur Reykjavíkurborgar á hlaupa- reikningi 1.11.1991 var um 500 milljón- um króna hærri en á sama tíma árið áð- ur. Yfirdrátturinn nam um 1919 milljón- um króna. Fyrirspum Sigrúnar Magnúsdóttur er til komin vegna fréttar í DV á laugardag, en þar segir að yfirdráttur borgarinnar hjá Landsbankanum nemi um 2,9 millj- örðum króna. í svari við fýrirspum Sigrúnar Magnús- dóttur kom fram að Reykjavíkurborg hafi selt skuldaviðurkenningu ríkisins, sem dagsett er 3. apríl 1991, vegna fram- kvæmda við þjóðvegi í Reykjavík. Heild- arskuldin vegna þeirra framkvæmda var 1.025 millj. kr. og skal skuldin greiðast á gjalddögum í júlímánuðum áranna 1992-1996. Skuldayfirlýsingin var fram- seld íLandsbankanum 1. júlí 1991 ogvar raunvirði hennar miðað við kjörvexti um 772 millj. kr. Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks, vakti fýrst athygli á miklum yfirdrætti borgarsjóðs í Lands- banka íslands lýrir nokkrum vikum. Hún sagði í samtali við Tímann að sér heföi þótt sérkennilegt að borgarráðs- mönnum, sem eiga að hafa umsjón með fiárreiðum borgarinnar, hafi ekki verið greint frá sölu skuldaviðurkenningar- innar fýrir tæpar 800 milljónir, fýrir utan að þær miiljónir virtust ekki koma fram í bættri skuldastöðu borgarinnar við Landsbankann. í stað þess að yfirdráttur- inn lækki miðað við árið í fýrra, þá hækki hann verulega. Sigrún segir að þetta sýni glöggt verulega versnandi stöðu borgar- innar, sem rekja mætti beint til stórhýsa- bygginga borgarinnar. —PS Borgarhagfræðingur lýsir ákveðinni andstöðu við afnám aðstöðugjalds: Borgin meö 54% aöstöðugialda Reylqavíkurborg innheimör í ár rúm- lega 54% af öllu aðstöðugjaldi, sem lagt er á í landinu (2.685 m.kr. af alls 4.952 m.kr.). Því ekki er nóg með það að nær helmingur af aðstöðugjalds- stofni landsins sé til húsa í Reykjavík, heldur finnst aðeins eitt sveitarfélag í landinu (Hveragerði með 1,19%), sem notar hærri álagningarprósentu heldur en höfuðborgin. Þessi pró- senta er 1,16% í Reyiqavík, en undir 1% í flestum öðrum sveitarfélögum landsins. Af þessu leiðir að aðstöðu- gjaldið eitt slrilar Reykjavíkurborg um 27.500 kr, tekjum á hvem borgarbúa, borið saman við 14.400 kr. að meðal- tali í öðrum kaupstöðum (Ld. aðeins 6-7 þús. í nágrannasveitarfélögum borgarinnar). Það þarf því ekki að koma á óvart að borgarhagfræðingur Reykjavíkur, Eggert Jónsson, svaraði ákveðið neit- andi spumingu um hvort Reykjavík- urborg heföi efni á niðurfellingu að- stöðugjalda, eins og ríkisstjómin stefnir að. Rökstuddi Eggert neitun sína m.a. þannig, að Reykjavík sé okk- ar helsta von til þess að mæta harðn- andi samkeppni erlendis frá. „Og af hverju þarf líka alltaf að jafna alla hluti?“ spurði borgarhagfræðingur- inn. ,Ætlum við kannski aö breyta veðrinu næst?" Þessi umræða fór fram á fiölmennri ráðstefnu um fiármál sveitarfélaga, í kjölfar þess að Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sagði það yfirlýsta stefnu beggja ríkisstjómarflokkanna að leggja aðstöðugjaldið niður og það verði vafalaust gert, aðeins væri spum- ing um hvenær. Til að bæta sveitarfé- lögunum þetta upp telur Jóhanna hvað helst koma til álita að þau fái í staðinn stærri hlut í staðgreiðsluskatt- inum. Virðist ljóst að Reykjavíkurborg mundi missa stóran spón úr „aski sín- um“ við þau skipti, þar sem hún mundi þá sitja uppi með hlutfallslega svipaðan skattstofn og önnur sveitarfé- lög. Það vakti einnig nokkra undrun ým- issa ráðstefnugesta, að borgarhag- fræðingur vék ekki einu orði að því efni sem hann átti að hafa framsögu um, samkvæmt prentaðri dagskrá ráð- stefnunnar: „Breytingar á helstu tekj- um og gjöldum á fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar milli áranna 1991 og 1992“. Á hinn bóginn tókst honum með fá- um orðum að aflétta um stund þeim þungbúna alvörusvip, sem einkenndi marga ráðstefnugesti. Eggert gerði m.a. að umræðuefni þann grundvall- armun, sem hér hafi orðið hvað varðar íslenskt skömmtunarkerfi. Áður fýrr hafi stjómvöld skammtað gjaldeyri og innflutning, en framleiðslan verið frjáls. Nú skömmtum við aftur á móti framleiðsluna, en gefum allan inn- flutning frjálsan og sláum bara erlend lán til að borga mismuninn. Borgarhagfræðingur var þó aldeilis ekki á þeim buxunum að taka undir söng „kreppukórsins“ þessa dagana. „Sú kreppa, sem nú er talað um, er hreint hugarfóstur ofdekraörar kyn- slóðar, sem ekkert vill missa og leggur oft harðar að sér í frístundunum held- ur en í vinnunni." Á ráðstefhunni kom fram að sveitarfélögin hafa teygt sig stöðugt lengra og lengra í skattheimt- unni undanfarinn áratug. Árin 1980- 81 vom tekjur sveitarfélaganna 6,8% og 6,9% vergrar landsframleiðslu. Ára- tug síöar em þær 7,8% og 7,9% VLF. Hlutfallslega er þetta um 14-15% hækkun á áratug. Skattheimta með útsvari, fasteigna- sköttum og aðstöðugjöldum hefúr þó vaxið ennþá hraðar, því öll hafa þessi gjöld vaxið sem hlutfall af heildartekj- um. Aftur á móti hefur hlutfall Jöfnun- arsjóðs minnkað um helming. - HEI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.