Tíminn - 07.12.1991, Síða 4
4 Tíminn
Laugardagur 7. desember 1991
Steingrímur Hermannsson segir bið þjóðarinnar eftir efna-
hagsaðgerðum engan enda ætla að taka:
Þjóðarsátt mun
ekki nást án
vaxtalækkunar
Stjóraarandstaðan gagnrýndi harðlega frumvarp forsætisráðherra um ráð-
stafanir í efnahagsmálum, á Alþingi í gær. Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, sagði að ef ríkisstjómin tæki ekki á vaxtamál-
unum af festu, yrði útilokað að ná nýjum kjarasamningum.
Steingrímur lýsti yfir stuðningi við
efnahagstillögur Þorsteins Pálsson-
ar og sagði að þjóðin öll biði eftir að-
gerðum, sem styrktu rekstrarstöðu
sjávarútvegsins og greiddu fyrir
gerð nýrra kjarasamninga.
Steingrímur gagnrýndi harðlega
vaxtastefnu ríkisstjórnarinnar og
sagði að með ákvörðun hennar um
að hækka vexti hefði minni hags-
munum verið fórnað íyrir meiri.
Hann sagði að smávægilega aukin
sala ríkisvíxla hefði verið of dýru
verði keypt. Raunvextir hefðu hækk-
að um 3% og að mati Þjóðhags-
stofnunar þýddi það þrír milljarðar í
auknar álögur á atvinnulífið í land-
inu. Steingrímur sagði að ef ekki
verði fylgt ráðum aðila vinnumark-
aðarins, stjórnarandstöðu og sjávar-
útvegsráðherra um að vextir verði
lækkaðir, muni verða útilokað að
gera nýja kjarasamninga.
Steingrímur sagði að þjóðin biði
eftir aðgerðum. Ræða forsætisráð-
herra hefði engu breytt þar um.
Þjóðin biði enn. Steingrímur spurði
hvaða meðferð tillögur Þorsteins
Pálssonar hefðu fengið í ríkisstjóm-
inni.
Steingrímur gagnrýndi sölu á rík-
istryggðum húsbréfum erlendis.
Hann sagðist hafa heyrt að menn
væru farnir að kaupa húsbréf með
afföllum hér heima og selja þau með
minni afföllum á erlendum mark-
aði. Steingrímur sagði miklu eðli-
legra að ríkissjóður sjálfur tæki er-
lent lán, heldur en að efnt væri til
erlendrar lántöku í þessu formi.
Steingrímur bar saman framsókn-
arráðin og íhaldsráðin og sagði að
þau fyrrnefndu hefðu reynst þjóð-
inni mun betur í gegnum árin.
íhaldsráð, sem gerðu ráð fyrir mátu-
legu atvinnuleysi, væm hættuleg.
Steingrímur J. Sigfússon, varafor-
maður Alþýðubandalagsins, gagn-
rýndi efnahagsstefnu ríkisstjórnar-
innar harðlega. Hann vakti athygli á
ýmsum staðreyndum sem koma
fram í þjóðhagsáætlun, einkum
þeirri að horfur eru á að fjárfesting-
ar á næsta ári verði þær minnstu í
50 ár eða aðeins 17,7% af landsfram-
leiðslu. Einkaneysla væri að aukast á
sama tíma og almennar launatekjur
drægjust saman. Ástæðan væri að
heimilin fjármögnuðu neyslu sína
með lánum. Steingrímur sagði
þessa staðreynd umhugsunarverða,
þegar tekið væri mið af þeim háu
vöxtum sem hér væm.
Margir fleiri tóku til máls og stóðu
umræður fram eftir kvöldi. -EÓ
Töluvert tjón varð vegna veðurs á bænum Búlandsmúla á Snæfells-
nesi, en útihús skemmdust verulega. Jónína Gestsdóttir var ein á
bænum, þar sem eiginmaður hennar liggur á sjúkrahúsi:
„Eg hélt að ég
sæi ofsiónir"
Hlutar af fjárhúsþaki og hlöðuþaki
fuku á haf út á bænum Búlands-
höfða, sem er skammt vestan
Gmndaríjarðar, en aftakaveður
geisaði þar í gær. Jónfna Gestsdótt-
ir húsfreyja var ein á bænum þegar
óhappið gerðist, en eiginmaður
hennar liggur á sjúkrahúsi, og gat
Jónína ekkert að gert. Féð, um níu-
tíu hausar, þurfti að híma í þak-
lausu fjárhúsinu þar til í gærkvöldi.
Það var um miðjan dag sem Jónína
uppgötvaði að stóra hluta vantaði í
útihúsin. „Ég sá ekki þegar þegar
þetta gerðist, en þegar ég leit út um
gluggann, þá sá ég út á hafið í gegn-
um hlöðuna. Tilfinningin var hræði-
leg. Ég hélt fyrst að ég væri hrein-
lega að sjá ofsjónir og það var ekki
íyrr en ég sótti sjónaukann, sem ég
var örugg um að það vantaði stóra
hluta í húsin. Ég gat ekkert gert, því
ég er ein heima. Maðurinn minn er
sjúklingur og liggur á spítala og
sonur okkar, sem er á fermingar-
aldri, er staddur á Akranesi. Þó ég
hafi verið ein á bænum, þá held ég
þrátt fyrir allt að ég hafi þó verið
heppin að vera ein heima, því það
hefði verið slæmt fyrir feðgana að
horfa upp á þetta gerast. Þá hefði
drengurinn örugglega viljað hlaupa
út og reyna að gera eitthvað," sagði
Jónína í samtali við Tímann í gær-
kvöldi.
Að sögn Jónínu var lítið hey í þeirri
hlöðu, sem skemmdist í óveðrinu í
gær, því önnur hlaða er á bænum
þar sem megnið af heyinu er geymt.
Fjárhúsið skemmdist töluvert, hlut-
ar þaksins fúku af og eystri hlið
hússins gekk inn. Féð varð þó að
dvelja í húsinu fram á kvöld, þar sem
veðurhamur hamlaði aðgerðum. í
gærkvöldi átti Jónína von á flutn-
ingabifreið, sem flytja átti féð á aðra
bæi, en bændur á nágrannabæjum
ætluðu að hlaupa undir bagga með
Jónínu og hýsa féð. Jónina sagði að
svona lagað hefði ekki gerst áður í
Búlandsmúla og sagði jafnframt að
svona veður væru sem betur fer ekki
algeng. Ekki er Ijóst hvað gert verð-
ur við húsin, en þau eru vátryggð.
„En ég vil þakka mínum sæla fyrir
að skepnurnar sakaði ekki. Því ef svo
hefði farið, þá hefðum við verið illa
sett. Féð er það eina sem maður hef-
ur, og á því verður maður að lifa,
hvort sem manni líkar betur eöa
verr,“ sagði Jónína Gestsdóttir að
lokum. - PS
Ungmennahreyfing Rauða kross fslands heldur Afríkubasar í Perlunni alla sunnudaga fram að jólum. Á basarnum eru seld- ar vörur frá þróunarlöndunum, sem keyptar eru milliliðalaust af handverksmönnum. Allur ágóði rennurtil þróunarverkefnis, sem Ungmennahreyfingin fer af stað með í Gambíu á vestur- strönd Afríku í byrjun næsta árs. Margs konar varningur er á boðstólum: dúkar, sjöl, töskur, föt, hljóðfæri, skartgripir. Verði er stillt í hóf
Sighvatur Björgvinsson heilbrígðisráðherra og Ólafur Ólafsson
landlæknir á blaðamannafundi í gær þar sem reglugerðin um hlut-
deild sjúkratryggðra í kostnaði við heilbrigðisþjónustu var kynnt.
Tfmamynd Aml Bjama
Ríkisstjórnin kynnti í gær þær ráðstafanir,
sem hún ætlar að gera til að draga úr kostn-
aði í heilbrigðiskerfinu. Heilbrigðisráðherra
kynnti í gær nýja reglugerð um kostnaðar-
hlutdeild sjúklinga:
Aukin hlutdeild
sjúklinga og
minni þjónusta
Forsætisráðherra gerði í framsögu-
ræðu sinni á Alþingi í gærmorgun
grein fyrir ráðstöfunum þeim, sem
ríkisstjórnin ætlar að grípa til til
lækkunar útgjalda í heilbrígðismál-
um. Þær ráðstafanir miða flestar að
aukinni kostnaðarhlutdeild sjúk-
linga og niðurskurði á þjónustu. Þá
var í gær kynnt ný reglugerð, sem
fjallar um kostnaðarhlutdeild
sjúkratiyggðra í kostnaði vegna
heilbrígðisþjónustu.
Heilbrigðisráðherra hélt í gær fund
með blaðamönnum þar sem hann
kynnti reglugerð þá, sem gefin var
út í gær um hlutdeild sjúkra-
tryggðra í kostnaði vegna heilbrigð-
isþjónustu. Hann sagði að með
breytingum þessum myndi ríkis-
stjórninni að öllum líkindum takast
það ætlunarverk sitt að varðveita
velferðarkerfið, án þess að komandi
kynslóðir þurfi að borga brúsann.
Hann sagði jafnframt að ekki yrðu
tekin upp gjöld af neinni þjónustu,
sem ekki hefðu verin tekið áður.
Það kom fram á fundinum að taka
á aftur upp gjald það, sem fellt var
niður í upphafi síðasta árs, á þjón-
ustu heilsugæslustöðva og heimilis-
lækna. Gjald fyrir hverja heimsókn á
dagvinnutíma verður samkvæmt
frumvarpinu um 600 krónur, en þó
munu lífeyrisþegar einungis greiða
200 krónur. Gjaldið er hærra, ef
sjúklingur leitar aðstoðar utan
venjubundins dagvinnutíma, eða
1000 krónur. Elli- og örorkuþegar
greiða 350 krónur. Undanþegnar
gjaldskyldu eru komur vegna
mæðra- og ungbarnaverndar,
heilsugæslu í skólum og vegna
bólusetningar og ónæmisaðgerða.
Þá verður gjald fyrir komu til sér-
fræðings hækkað úr 900 krónum í
1500 krónur og gjald fyrir rann-
sóknir hækkað í 600 krónur úr 300
krónum.
Því hámarksgjaldi, sem sjúkra-
tryggður einstaklingur á aldrinum
16-67 ára þarf að greiða á hverju ári
vegna heimsókna á heilsugæslu-
stöð, til heimilislæknis, vitjana
lækna og sérfræðihjálpar, hefur ekki
verið breytt og verður áfram 12.000
krónur. Sú breyting hefur þó verið
gerð að allir einstaklingar undir 16
ára, sem tilheyra sömu fjölskyldu,
þ.e.a.s. hafa sama fjölskyldunúmer,
teljast einn einstaklingur, þannig að
hámarksgreiðsla fyrir t.d. fimm
manna fjölskyldu er 36.000 krónur.
Eftir að einstaklingur hefur einu
sinni greitt 12.000 krónur fyrir
framangreinda þjónustu, fær við-
komandi fríkort. Það þýðir þó ekki
að hans greiðslum sé lokið, heldur
minnka þær til muna. Eftir verða
greiðslur fyrir læknisvitjun, en hún
verður 400 krónur á dagvinnutíma
og 900 krónur utan dagvinnutíma.
Innan ekki langs tíma verða hafnar
svokallar glasafrjóvganir, en hingað
til hefur fólk, sem hefur þurft á þeim
aðgerðum að halda, þurft að leita til
útlanda. Hlutdeild hjóna eða fólks í
sambýli, fyrir fyrstu meðferð, verða
105 þúsund krónur. Inni í þeirri
greiðslu felst kostnaður vegna nauð-
synlegra rannsókna, lyfja og heim-
sókna til sérfræðinga á glasafrjóvg-
unardeild. Fyrir aðra og þriðju með-
ferð skal greiða 60.000, og fyrir
meðferðir umfram það verður að
greiða fullt gjald, eða 200.000. Þá er
hámarksgjald fyrir greiðslu á sjúkra-
flutningum á sjúkrahús og af
sjúkrahúsi hækkað í 2.400 krónur.
Frumvarp ríkisstjórnarinnar tekur
einnig til fleiri þátta íhlutdeild sjúk-
linga í greiðslu fyrir læknishjálp.
Gert er ráð fyrir 10% kostnaðarhlut-
deild barna og aldraðra í tannvið-
gerðum og þá verður dregið úr
greiðslum vegna tannréttinga.
-PS
Óveður á Snæfellsnesi:
RÚTA Á HLIÐINA
Áætlunarbifreið lagðist á hliðina Grundarfjarðar. Brotnuðu nánast
undan óveðri því, sem geisaði á vest- allar rúður á annarri hlið bifreiðar-
anverðu landinu og á Snæfellsnesi í innar og þurfti að flytja tvo af þrem-
gær. Óhappið átti sér stað skömmu ur farþegum á sjúkrahús í Stykkis-
eftir hádegið. Áætlunarbifreiðin var hólmi, en þeir fengu báðir að fara
á ferð um Helgafellssveit á leið til heim að lokinni skoðun. -PS