Tíminn - 10.01.1992, Qupperneq 1
Föstudagur
10. janúar 1992
6. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
íslendingar höfðu lengi sérstöðu meðal Norðurlandaþjóða en nú hefur saxast á hana:
Helmingsfjölgun
öryrkja á 6 árum
75% öryrkjum — örorkulífeyrisþegum hefur fjölgaö um 47% á ár-
unum 1984-1990. Á þessu tímabili fjölgaði þjóðinni í heild um rúm
6% Hefði þjóðinni hins vegar fjölgað í sama hlutfalli og örorkulíf-
eyrisþegum á þessu árabili og hlutfall öryrkja og annarra haldist
óbreytt, væru landsmenn nú 360 þúsund en ekki 260 þúsund
Innanlandsflug Flugleiða:
Sprengjuhótun
í Flugleiðavél
Maður sem greinilega var ölvaður
hringdi í skiptiborð innanlands-
flugs Flugleiða og sagði að
sprengja væri um borð í Fokker-vél
félagsins. Ekki kom fram í máli
mannsins hvaða vél væri um að
ræða, en eftir að Flugleiðamenn
höfðu ráðgast við Lögregluna í
Reykjavík var ákveðið að rýma vél
sem var rétt ófarin til Akureyrar og
voru farþegar látnir bera kennsl á
farangur sinn. Ekkert óeðlilegt
kom í ljós og gekk flug hjá Flug-
leiðum eðlilega það sem eftir lifði
dags.
-PS
Skýrsla borgarendurskoðanda um Hitaveitu
Reykjavíkur er gagnrýnd:
Bergur er þögull
Bergur Tómasson borgarendur-
skoðandi vill ekkert segja um þá
gagnrýni sem komið hefur fram á
skýrslu sem hann vann um Hita-
veitu Reykjavíkur og stjórn veitu-
stofnana. Davíð Oddsson, borgar-
fulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri,
hefur gagnrýnt skýrsluna og sagt
m.a. að höfundar hennar hafi farið
út fyrir verksvið sitt. Þeir eigi að
fjalla um tölur en ekki að koma með
tillögur um breytingar á stjórnun
einstakra stofnana borgarinnar.
Gagnrýni Davíðs var borin undir
borgarendurskoðanda í gær, en
hann sagðist þegar hafa lýst því yfir
að hann muni ekki tjá sig um efni
skýrslunnar eða gagnrýni á hana.
Skýrslan hefði verið unnin að
beiðni Markúsar Arnar Antonssonar
borgarstjóra og hún hefði verið af-
hent honum. Þess vegna væri eðli-
legt að borgarstjóri svaraði spurn-
ingum um efni hennar og gagnrýni
áhana
-EÓ
Þessi mikla hlutfallslega fjölgun ör-
orkulífeyrisþega á sér nokkrar skýr-
ingar að sögn Björns Önundarsonar
tryggingayfirlæknis. Örorkulífeyris-
þegar hafi lengi verið hlutfallslega
færri hér en á öðrum Norðurlönd-
um. Það eigi sér m.a. skýringar í at-
vinnuástandi og ýmsum öðrum
þjóðfélags- og umhverfisþáttum
Þegar rýnt er í tölur Trygginga-
stofnunar sést að afar lítill hluti ör-
orkulífeyrisþega er í hjónabandi,
eða aðeins 5%. Hins vegar býr
meira en helmingur annarra þjóð-
félagsþegna í hjónabandi. Hið sama
mun vera raunin á hinum Norður-
löndunum. Því hlýtur sú spurning
að vakna hvort hjónaband sé svo
miklu heilsusamlegra en einlífi?
—Sjá einnig frétt á blaðsíðu 2
GRUNUR LEIKUR Á AÐ ÍKVEIKJA hafi verið orsökin þegar eldur kom upp í bílskúr við hús
númer eitt við Skógargerði, en slökkviliðið í Reykjavík var um klukkan 17.00 í gær kvatt að hús-
inu. Þegar slökkviðliðið kom á staðinn var mikill reykur í bílskúrnum, en greiðlega gekk að
slökkva eldinn. Töluverðar skemmdir urðu í bílskúrnum, en eigandi hans var ekki heima þegar
eldurinn kom upp. Þaö óhapp varð þegar slökkviliðið var kallað út að sjúkrabifreið lenti í um-
ferðaróhappi og skemmdist illa. Ökumaður sjúkrabifreiðarinnar ætlaði að flýta fyrir sér með þvi
að stinga sér fram fyrir langa röð á Bústaðaveginum og ók á öfugum vegarhelmingi, en þá vildi
svo illa til að ökumaður jeppabifreiðar kom á móti með þeim afleiðingum að sjúkrabifreiðin lenti
á jeppanum og þaðan á Ijósastaur. Tveir voru í sjúkrabifreiðinni og einn í jeppanum og fóru allir
á slysadeild, en meiðsl þeirra voru talin minniháttar. Töluverðar skemmdir urðu á bílunum tveim-
ur, ásamt Ijósastaurnum. Rannsóknarlögregla ríkisins rannsakar nú eidsupptök í bílskúmum í
Skógargerði. -PS/T(mamynd PJetur
Vaxandi aðsókn að Kvennaathvarfinu:
Mikil aukning alvarlegra áverka
Töluverð aukning varð á þeim fjölda kvenna sem komu í Kvennaat-
hvarfið árið 1991 ef miðað er við árið áður, en 217 konur leituðu ásjár
athvarfsins síðastliðið ár, en 179 árið 1990. Fjöldi bama jókst úr 90 frá
árinu áður i 116. Þá greina starfsmenn athvarfsins mikla aukningu al-
varlegra líkamsmeiðinga og morðhótana miðað við fyrri ár. Dæmi eru
um að kvenfólki sé ógnað með skotvopnum, hrint niður stiga og ógnað
með hnífum. Þetta kom fram á fundi sem forsvarsmenn Samtaka um
Kvennaathvarf héldu með blaðamönnum í gær.
Þar kom fram að aðsókn að Kvenna-
athvarfinu hefði aldrei verið meiri og
Guðrún Ágústdóttir hjá Samtökum
um Kvennaathvarf segir að að ofbeldi
gegn konum sé orðið mun grófara og
sem dæmi um það eru 16 konur sem
komu í athvarfið í fyrra. Áverkar
þeirra voru margvíslegir, allt frá mari
um allan líkamann, til brotinna hné-
skelja, kinnbeina, kjálkabrota og
brunasára. Þá hefur 62 af þeim 217
konum sem í athvarfið komu verið
verið hótað af eiginmönnum sínum
að þeir myndu drepa þær og í flestum
tilvikum verið um alvarlegar hótanir
að ræða.
Við komu í athvarfið útfylla konur
skýrslu og við samantekt á þeim eftir
síðasta ár kemur fram að 128 konur
af 217 segja að þær hafi verið beittar
líkamlegu ofbeldi, eða um 59% af
konunum. Þetta hlutfall er töluvert
hærra en í fyrra.
Um 46% kvennanna, eða 123, komu
í athvarfið í fyrsta skipti á árinu. 39
kvennanna merktu við að þeim hefði
verið nauðgað, 39 konur höfðu orðið
fyrir sifjaspelli og 26 konur segja að
böm sín hafi orðið fyrir sifjaspelli.
Samtökin hafa tekið í notkun nýtt
símanúmer, 99-6205, og er um að
ræða græna línu, sem þýðir að konur
alls staðar á landinu sitja við sama
borð, en um 30% símtala til athvarfs-
ins koma utan svæðisnúmers 91.
Einnig er ástæðan sú að eftir 1. mars
verður hægt að fá sundurliðaða
símareikninga, þar sem fram kemur
hvert hringt er ef hringt er í síma-
númer utan þjónustusvæðis, en
dæmigert er fyrir eiginmenn sem
beita konur sínar ofbeldi að þeir
fylgjast vel með athöfnum konunnar
og koma til með að biðia um sundur-
liðaða símreikninga. I framhaldi af
því komi jafnvel til meira ofbeldis.
-PS