Tíminn - 10.01.1992, Side 9
Föstudagur 10. janúar 1992
Tíminn 9
Gjöf barnanna á barnasjúkrahúsinu í San Diego til þjáningasystkina
sinna í London var ágætisauglýsing fyrir góögerðaplötuna.
Þær Lorna Luft og Liza Minnelli
eru bara hálfsystur, en mestu
máli skiptir aö þær eiga báöar
sömu mömmuna, Judy
Garland. Þangaö sækja þær
sönggáfuna.
Dætur Judy
Garland
halda tón-
leika í London
Þær söngglöðu hálfsystur Lorna
Luft og Liza MinnelÚ voru fyrir
skemmstu báðar staddar í London
sömu erinda: að gleðja augu og
eyru tónleikagesta; reyndar hvor í
sínu lagi, en á sama tíma. Þær
notuðu auðvitað tækifærið til
kærkominna endurfunda.
Reyndar átti Lorna annað erindi
líka til Englands. Þannig er mál
með vexti að hún beitir sér mjög
fyrir fjársöfnun til að gleðja böm
sem neyðast til að leggjast á
sjúkrahús, enda er henni í bams-
minni hversu skelfilegt það var
þegar hún varð sjálf fyrir þeirri
reynslu aðeins átta ára gömul,
þegar hún varð að gangast undir
botnlangauppskurð.
Nú færði hún bömunum á bama-
sjúkrahúsi í London að gjöf vegg-
spjald frá börnum á samsvarandi
sjúkrahúsi í San Diego, þar sem
þau höfðu skráð texta við lagið tr\
Gift of Hope“ og staðfest með lófa-
fömm sínum. Þetta lag syngur
Lorna á samnefndri plötu, sem
gefin var út fyrir jólin í fjáröflunar-
skyni fyrir sjúk börn, en þar eiga
framlag fleiri frægir söngvarar en
Lorna, t.d. Frank Sinatra og Barry
Manilow. Sjálf á Lorna tvö böm.
Monica Seles lokar sig gjarnan inni, svarar ekki f síma og reynir aö
slappa af frá hinu hversdagslega amstri.
MONICA SELES hin 18 ára ungverska
tennisstjarna, segist vera eins og aörar
stúlkur á hennar aldri, en frægðin getur
veriö erfið:
Gengur undir
dulnefni á krít-
arkortinu sínu
Fremsta tenniskona heims nú á
tímum, hin 18 ára ungverska
Monica Seles, segist vera ná-
kvæmlega eins og aðrar stúlkur á
hennar aldri.
Seles segist vera þekkt sem
nokkurs konar jámfrú, vegna þess
að þegar hún er á tennisvellinum
þá gæti hún virst ágeng og ein-
beitt. Hún segist ekki vilja brosa of
mikið, því þá vilji fólk fá eitthvað
frá henni. Þess í stað vill Seles
halda fjarlægðinni, en frægðin geti
stundum verið erfið. Þá loki hún
sig inni í herbergi, hlusti á tónlist
og jafnvel þó að síminn hringi, þá
láti hún hann hringja. Þá komi
tímar sem hún gengur dúlbúin um
götur til að forðast aðdáendur, og
segist eiga um 15 hárkollur í þeim
tilgangi.
Monica hefur gaman af því að
versla og þá sérstaklega föt, en til
að dylja hver hún sé, þá hefur hún
krítarkort með dulnefni, svo ekki
verði uppi fótur og fit.
Það dylst engum að Monica Seles
er milljónamæringur, en hún er
nú tekjuhæst kvenna í íþróttum.
Henni finnst það ekki vera eðlilegt
að 18 ára unglingur sé svona flug-
rík og segist núna einungis þurfa
að undirrita pappírssnifsi til að
vinna sér inn meira en margt fólk
gerir alla ævina.
Þess má geta að Monica Seles er
ólofuð og er tvímælalaust hinn
besti kvenkostur, svo vísað sé til
meðfylgjandi mynda og bankabók-
ar hennar. Reyndar hefur hún dá-
litlar áhyggjur af karlamálunum,
því að annaðhvort eru karlarnir
skrefí á eftir henni, eða þá svo
frægir að þeir geta ekki látið sjá sig
meðal fólks. Ægilegt vandamál.
Þennan Jagúarbll vann Seles á
tennismóti á New York undir lok
síöasta árs.
Willem de Klerk, sonur forseta Suður-Afrlku, haföi tilkynnt um brúö-
kaup sitt og litaörar stúlku, Ericu Adams, sem fram átti að fara í
desember sl. Þvl hefur nú veriö slegið á frest og er foreldrum brúö-
gumans kennt um.
Blandað hjónaband í
s-afrísku forseta-
fjölskyldunni úr sögunni?
Willem de Klerk er sonur F.W. de
Klerks, forseta Suður-Afríku, og
konu hans Marike. Hann tilkynnti
fyrir nokkrum vikum að hann
hygðist ganga að eiga gamla skóla-
systur sína, Ericu Adams, og átti
brúðkaupið að standa í desember
sl. Það hefði ekki þótt tíðindum
sæta nema vegna þess að Erica er
ekki af sama kynstofni og Willem,
hún er ekki hvít.
Faðir Ericu, Deon Adams, er einn
forystumanna í Verkamanna-
flokknum og hann hefur lýst þvf yf-
ir að eftir því sem hann viti best,
séu giftingaráformin ekki úr sög-
unni, þeim hafi einfaldlega verið
frestað. „Þau eru kornung og þau
eru undir miklu álagi," segir hann
og býst við að þau tilkynni brúð-
kaupsdaginn á nýbyrjuðu ári.
En sá orðrómur gengur fjöllun-
um hærra í Suður-Afríku að Will-
em hafi kiknað undan þrýstingi
fjölskyldu sinnar. „Mamma Will-
ems, Marike, hefði gert hvað sem er
til að koma í veg fyrir brúðkaupið,“
segir vinur frúarinnar. Unga parið
kynntist 1989 þegar bæði stund-
uðu nám í Cape Town. Þegar Will-
em hélt til framhaldsnáms við há-
skólann í Cambridge, fylgdi Erica
honum og þau búa nú saman.