Tíminn - 22.01.1992, Side 1
/
Miðvikudagur
22. janúar 1992
14. tbl. 76. árg.
VERÐí LAUSASÖLU
KR. 110.-
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra kastar „sprengju“
á Alþingi og stöðvar atkvaeðagreiðslu í miðju kafi:
Er Sighvatur aö reyna
aö drepa bandorminn?
Uppnám varð á Alþingi í gær við atkvæðagreiðslu um frumvarp rík-
isstjórnarinnar um ráðstafanir í ríkisfjármálum (bandorminn). Sig-
hvatur Björgvinsson heilbrígðisráðherra sagði að framsóknarmenn
hefðu lagt til að gerðar yrðu sömu breytingar á almannatrygginga-
löggjöfinni og hann legði til og þeir hlytu því að styðja sínar tillög-
ur. Framsóknarmenn sögðu þetta rangt og kröfðust þess að ráð-
herrann bæðist afsökunar á ummælum sínum. Þessu neitaði Sig-
hvatur og neyddist forseti Alþingis þá til að fresta atkvæðagreiðsl-
unni. Óvíst er hvenær henni verður framhaldið.
Bandormurinn er búinn að vera til
umræðu f þinginu síðan í byrjun
desember. Önnur umræða um
frumvarpið hefur staðið í marga
daga og hófst raunar nokkru fyrir
jólahlé þingmanna. í fyrradag tókst
loks samkomulag milli stjórnar og
stjómarandstöðu að ljúka umræð-
unni og afgreiða málið til þriðju
umræðu. Benti því flest til að ríkis-
stjómin myndi ná fram öllum
stærstu frumvörpum sínum sem
varða efnahagsmál í þessari viku.
Auk bandormsins em það lánsfjár-
lög og frumvarp um hagræðinga-
sjóð. Eftir ræðu Sighvats Björgvins-
sonar í gær er Ijóst að þetta mun
ekki takast.
Við atkvæðagreiðsluna í gær sté
Sighvatur í pontu til að gera grein
fyrir atkvæði sínu. f ræðunni réðst
Sighvatur harkalega að Guðmundi
Bjamasyni, fyrrverandi heilbrigðis-
ráðherra, og sagði að hann hefði
lagt til sömu breytingar á ellilífeyri
og verið væri að greiða atkvæði um.
Sighvatur sagði að framsóknar-
menn ættu því að geta stutt þessa
breytingartillögu.
Uppnám varð í þingsalnum við
þessa athugasemd ráðherrans og
neyddist forseti til að gera hlé á at-
kvæðagreiðslunni. Upphófst síðan
orðaskak milli stjórnarandstöðunn-
ar og heilbrigðisráðherra. Guð-
mundur Bjarnason sagði að á síð-
asta þingi hefði hann sem heilbrigð-
isráðherra lagt fram frumvarp um
heildarendurskoðun á almanna-
tryggingalöggjöfinni. Með frum-
varpinu hefði verið stefnt að því að
skerða lífeyri hjá þeim sem betur
mega sín en auka Iífeyri hjá öryrkj-
um og öðmm sem búa við lágar líf-
eyrisgreiðslur. Fleiri þingmenn
bentu á að það væri á engan hátt
hægt að bera saman þá víðtæku
breytingu sem lagt var til að gerð
yrði í fmmvarpi fyrrverandi ráð-
herra og þá takmörkuðu breytingu
um skerðingu á ellilífeyri sem nú-
verandi heilbrigðisráðherra legði til.
Ýmsir gagnrýndu Sighvat fyrir að
koma með efnislega gagnrýni á and-
stæðinga sína á meðan á atkvæða-
greiðslu stæði. Bent var á að á þeim
langa tíma sem umræður um band-
orminn stóðu yfir hafi Sighvatur
ekki séð ástæðu til að blanda sér í
umræður þrátt fyrir að ótal fyrir-
spurnum hafi verið beint til hans.
Á endanum frestaði forseti fundi og
reynt var að ná samkomulagi utan
þingsalarins. Það tókst ekki. Niður-
staðan er að eftir ræðu heilbrigðis-
ráðherra er algjörlega óvíst hvemig
ríkisstjórn kemur þessu máli sínu
fram.
Tíminn spurði Finn Ingólfsson al-
þingismann um muninn á frum-
vörpunum tveimur, en Finnur var
aðstoðarmaður fyrrverandi heil-
brigðisráðherra og átti drjúgan þátt
í að semja frumvarpið sem hann
lagði fram síðastliðið vor.
„Fmmvarp núverandi ráðherra,
Sighvatar Björgvinssonar, gerir ráð
fyrir því að skerða elli- og örorkulíf-
eyri einhliða og spara þannig fyrir
ríkissjóð 260 milljónir króna. Frum-
varp Guðmundar Bjarnasonar, fyrr-
verandi heilbrigðisráðherra, gerði
ráð fyrir því að þeim hugsanlega
sparnaði, sem af tekjutengingu elli-
lífeyris hefði hlotist, yrði ráðstafað
til að hækka lífeyri og tekjutengingu
örorkulífeyrisþega um 14%, hækka
örorkustyrk um 7%, hækka frítekju-
mark hjóna úr 70% í 75%, afnema
10% skerðingu á lífeyri hjóna,
lækka skerðingarhlutfall tekju-
tryggingar úr 45% í 40%, hækka
vasapeninga þeirra sem eru inni á
stofnunum um 58%, gert var ráð
fyrir að uppihaldsstyrkur yrði
greiddur til sjúklinga ef fylgdarmað-
ur þyrfti að dvelja 14 daga eða leng-
ur vegna lækningar utan heima-
byggðar, ekkju- og ekkilsbætur líf-
eyristrygginga átti að hækka og
bótatímabil átti að lengja, nýr bóta-
flokkur, umönnunarbætur vegna
elli- og örorkuþega, var inni í frum-
varpinu, barnalífeyrir átti að hækka
um 25% og sjúkra- og slysadagpen-
ingar áttu að hækka um 55%.
Það hefur alltaf verið grundvallar-
atriði í tekjutengingu lífeyrisins af
hálfu Framsóknarflokksins að um
heildarendurskoðun á almanna-
tryggingalöggjöfmni væri að ræða
og að þeim ábata, sem af tekjuteng-
ingunni hlytist, yrði ráðstafað innan
almannatryggingalöggjafarinnar,"
sagði Finnur. -EO
Eiöur klippir á
Vestmannaeyingar bíða nú eftir svari varðandi júgóslavnesk-
an leikmann sem þeir vilja fá til að sleika með (BV:
borða í Vilnius
Upplýsingaskrifstofa norrænu bæði til reksturs og styrkja.
riðherranefndarinnar í Vilnius í Hlutverk skrifstofanna er fyrst
Litháen var opnuð við hátíðlega og fremst að velta upplýslngar
athöfn í gær. Það er Eiður um NorðurlBnd í Eystrasalts-
Guðnason, umhverfis- og sam- ríkjunum ásamt því að styrkja
starfsráðherra, sem opnaði einstaklinga jafnt sem félaga-
skrifstofuna formlega. Sams samtök á ýmsa vegu, aðallega á
konar skrifstofur í Tallin og sviði upplýsingar- og mennta-
Riga voru opnaðar á síðasta ári. mála.
Fjárveiting til skrifstofanna var Samtfmis opnun skrifstofunn-
um 150 milijónir kr. á síðasta ar tók SAS upp beint áætlunar-
árí en hækkar í 300 mOljónir á ílug milii Kaupmannahafnar og
þessu ári. Sú upphæð er ætluð Viinius. - HEI
29 ára örvfættur
miðjuleikmaöur
Vestmannaeyingar vinna þessa dag-
ana að því að fá til Iandsins júgóslav-
neskan leikmann til að leika með
liði sínu í 1. deildinni í knattspyrnu
í sumar. Á vegum félagsins er stadd-
ur maður f Júgóslavíu og hafa þeir
augastað á ákveðnum manni þar.
Hann er miðjuleikmaður, 29 ára
gamall og örvfættur. Það skýrist þó
ekki fyrr en um mánaðamót hvort
hann kemur til Iandsins. Síðustu
þrjú árin hafa Vestmannaeyingar
verið með Júgóslava í sínum her-
búðum. Andreij Jerina var hjá félag-
inu fyrstu tvö árin og stóð sig frá-
bærlega. Samkvæmt heimildum
blaðsins hafa Vestmannaeyingar
reynt að fá hann aftur til félagsins,
en ekki tekist. Jerína var nýlega
kjörinn besti leikmaður fyrri um-
ferðar slóvensku 1. deildarinnar og
er því eftirsóttur þar. Fyrir síðasta
keppnistímabil fengu Eyjamenn
Júgóslava, en hann stóð ekki undir
vonum þeirra. Hann fór þó ekki
heim á leið, heldur var áfram við
vinnu í eyjum. -PS