Tíminn - 22.01.1992, Side 3

Tíminn - 22.01.1992, Side 3
Miðvikudagur 22. janúar 1992 Tíminn 3 Menntamálaráðherra segir um tillöguflutning flokkssystkina sinna í borgarstjórn Reykjavíkur: „Útúrsnúningur af orðum mínum“ „Ég held að þeir hafi ekki athugað sinn gang nægilega vel áður en þeir fóru að álykta svona. Ég hef ekkert nema gott að segja um ályktanir þeirra í hagræðingarmálum, en þeir virðast ekki átta sig á því að mér er gert að ná fram sparaaði á þessu ári. Þeirra hugmyndir eru um sparaað sem er hugsanlega hægt að ná á lengri tíma,“ sagði Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra, þegar hann var spurður álits á ályktun borgarstjóraar Reykjavíkur, en í ályktuninni er niðurskurði rík- isstjóraarinnar í menntamálum mótmælt. í ályktun, sem Árni Sigfusson borg- arfulltrúi lagði fram, segir að niður- skurður ríkisstjórnarinnar leiði til þess að kostnaður sveitarfélaganna vegna grunnskólans muni aukast. Bent er á aðrar Ieiðir til spamaðar s.s. að nota tölvur í auknum mæli við kennslu, en með því mætti kom- ast af með færri kennara. í öðru lagi er lagt til að skólaárið sé lengt og gmnnskólanámið jafnframt stytt um eitt ár. Þá er bent á hættur sem fylgja æviráðningu kennara. Olafur sagðist gjarnan vilja hafa lengri tíma til að ná fram þessum Ólafur G. Einarsson. sparnaði. Um það sé hins vegar ekki að ræða því að Alþingi hafi tekið ákvörðun um að framlög til menntamálaverði lækkuð. „Öll hag- ræðing í skólakerfmu er af því góða. En hún er ekki síst á verksviði sveit- arfélaganna vegna þess að þau ann- ast rekstur gmnnskólans og bygg- ingarframkvæmdir, en ríkið aðeins launakostnað." Félag skólastjórnenda á Suðurlandi mótmælir harðlega niðurskurði á skólakerfinu: Skerðirmöguleika ungra íslendinga Jiú þegar þjóðir Evróðu færast stöð- ugt nær hver annarri og samkeppni eykst á öllum sviðum, leyfir ríkis- stjóra íslands sér að skerða mögu- leika ungra íslendinga til menntunar og koma þar með í veg fyrir að unga fólkið okkar sitji við sama borð og jafhaldrar þeirra í Evrópu," segir í ályktun aðalfundar Félags skóla- stjórnenda á SuðuriandL Ennfremur er harðlega mótmælt fyr- irhuguðum niðurskurði í skólakerfinu sem samþykktur hefur verið í fjárlög- um þessa árs. Skorað er á stjómvöld að endurskoða áform um niðurskurð f skólakerfinu. Fyrir aðalfundinum var ráðstefna um skólamál. Þar fjallaði Jón Hjartarson fræðslustjóri um skólamál í Suður- landsumdæmi, Guðmundur Þor- steinsson um umferðarfræðslu, Re- gína Höskuldsdóttir um stöðu sér- kennslumála, Sigríður Jónsdóttir um jafha stöðu kynja í grunnskólum og Meyvant Þórólfsson og Guðni Olgeirs- son frá menntamálaráðuneytinu greindu frá niðurstöðum könnunar á aldurshópi nemenda sem fæddust 1975. í þeim kemur m.a. fram hve margir af árganginum luku aldrei grunnskólaprófi. —sá Átta fegurðardrottningar landshlutanna valdar í febrúar og íslandsdrottningin í apríl: Feguröardísimar eru auðfundnar Fegurðardrottningar verða líklega miðjum febrúar fram f miðjan ennþá íieiri í vor en venja er 111. mar*. AJlar ábendingar séu þó vel Því Vestmannaeyingar munu nú þegnar. Forkeppni á að fara fram á kjósa sina eigin fegurðardrottn- átta stöðum á landinu: Keflavík, ingu í stað þess að Eyjadísh- Reykjavík, Akranesi, ísafirði, Ak- keppni um titil fegurðardrottning- ureyri, Neskáupstað, Hveragerði ar Suðurlands, eins og undanfarin og Vestmannaeyjum, sem áður ár. Undirbúningur er hafinn fyrir segir. fegurðarsamkeppni íslands sem Fegurðardrottningar íandshlut- áætiað er aö halda í Reykjavík í lok anna taka síðan þátt í fegurðar- apríL Framkvæmdasýóri keppn- samkeppni íslands ásamt stúlk- innar, Gróa Ásgeirsdóttir, segir að um úr nágrannabæjum Reykjavífe- vel hafi gengið til þessa að finna ur, semekki eiga þess kost að fara fcguröardísir til að takaþátt f for- f forkeppnL Reiknað er meö um keppni sem haldin verður í öllum 20 stúlkum í iokakeppninni um Íandshlutum á tímabilinu frá titil íslandsdrottningar. - HEI Dansráð íslands unir illa auglýstri sérhæf- ingu réttindalauss dansskóla: Réttindaskortur í fótamenntinni Árni Sigfússon hefur sagt að tillög- ur menntamálaráðherra muni hafa það í för með sér að útgjöld sveitar- félaganna til menntamála komi til með að aukast. „Þetta er útúrsnúningur af mínum orðum þegar ég var að svara ákveð- inni spumingu í útvarpsþætti um akstur nemenda milli skóla. Þar sagði ég eingöngu að til þessa gæti komið á stað eins og Reykjavík, sem er stórt sveitarfélag með mörg skólahverfi. Ég sagði að ég sæi ekk- ert í veginum fyrir því að þetta mætti ekki ræða. Það eru hins vegar engin áform uppi af ráðuneytisins hálfu um skipulagðan akstur skóla- bama milli skólahverfa. Sveitarfélög geta skoðað þetta ef þau kjósa það. Þau þurfa að sjá skól- unum fyrir húsnæði. Ég nefndi þetta sem leið til að koma í veg fyrir skiptingu bekkja, sem hefur í för með sér kostnað fyrir alla aðila,“ sagði menntamálaráðherra. - EÓ „Dansráðið vill að gefhu tilefhi ít- reka þá skoðun ráðsins að eina tryggingin fyrir réttri tilsögn í dansi er að starfandi skólar séu í dans- kennarafélögum landsins," segir í tilkynningu frá Dansráði íslands. Tilefnið er sú fullyrðing eins dans- skóla í auglýsingu nýlega að hann sé eini dansskólinn á landinu sem sér- hæfi sig í dönsum fyrir börn og ung- linga. Þar sem börn og unglingar séu stærsti hluti nemenda allra dansskóla í landinu sé sú fullyrðing ekki rétt. „Hins vegar er rétt að um- ræddur dansskóli er ekki í FÍD og DSÍ vegna réttindaskorts." í Dansráði íslands eru fulltrúar beggja danskennarafélaganna, Fé- lags íslenskra danskennara (FÍD) og Danskennarasamband íslands (DSÍ). Dansskólar í landinu em 15 starfandi um allt land. Fram- kvæmdastjóri DÍ er Hermann Ragn- ar Stefánsson. Fyrir danskennara- próf á íslandi þarf fjögurra ára nám og að standast þær prófkröfur sem gerðar em. Mynd: Kaffistofa Listasafns íslands er í fögru umhverfi. Á veggjum hanga listaverk sem eru líkleg til að Örva matarlystina. Tfmamynd Aml Bjama Níu sérsýningar hafa verið ákveðnar hjá Listasafni íslands á þessu ári: NYR MATSEÐILL HJÁ LISTASAFNI s Kaffístofa Listasafns íslands hef- ur tekið upp þá nýbreytni að bjóða gestum sérstakan hádegisverð á til- boðsverði. Listasafnið leggur áherslu á að fá fólk sem leið á um miðbæinn til að líta við á safninu þar sem það getur borðað ódýran málsverð í fögru umhverfi. Jafn- framt er boðið upp á leiðsögn um safnið í fylgd listfræðings. Listasafn íslands hefur þegar ákveðið að setja upp níu sérsýningar á þessu ári. í febrúar verður sett upp sýning á verkum Edvards Munch. Sýningin verður opnuð 8. febrúar og stendur í einn mánuð. Þá tekur við sýning á verkum Finns Jónsson- ar. Sýnt verður úrval úr gjöf lista- mannsins, en aldarafmæli hans er á árinu. 11. apríl verður opnuð sýning á úrvali höggmynda eftir Nínu Sæ- mundsson, en Nína á einnig aldaraf- mæli á árinu. í júní og júlí verður sýning í og við Listasafnið á verkum Daniels Buren. Sýningin er í sam- vinnu við Listahátíð í Reykjavík og Gallerí 11. í sömu mánuðum verður sýning í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík á breskum bókverkum og einnig sýning á listaverkum ættuð- um frá Jórdaníu. í ágúst og septem- ber tekur við sumarsýning á verkum úr eigu safnsins. Þar verður að finna verk eftir nokkra af okkar þekktustu og viðurkenndustu listamönnum. í lok september verður sett upp sýn- ing á verkum eftir Jóhann Eyfells. í lok ársins verður síðan sett upp sýn- ing á finnskri aldamótalist. Listasafnið býður nú upp á sérstak- an hádegisverð á tilboðsverði. í til- boðinu er heimalöguð súpa úr úr- vals hráefnum, með heimabökuðu brauði, osti og salati á kr. 390 (kaffi innifalið). Kaffistofan er opin alla daga nema mánudaga, kl. 12-18, eða á sama tíma og sýningarsalir safns- ins eru opnir. Safnið býður hópum upp á Ieiðsögn um safhið í fylgd list- fræðings. Lágmarksverð Verðlagsráð sjávarútvegsins hef- ur ákveðið lágmarksverð á rækju og hörpudiski. Ákvörðun þessi náðist með samkomulagi. Miðað við fisk í vinnsluhæfu ástandi gilda eftirfarandi verð frá 1. jan. sl. til 31. maí nk. Rækja, óskelflett: 1. 200 stk og færri í kg. 75 kr/kg 2.201 til 230 stk. í kg. 70 kr/kg 3.231 tíl 290 stk. í kg. 57 kr/kg 4.291 til 350 stk. f kg. 50 kr/kg Undirmálsrækja, 351 stk o.fl. 27 kr/kg Hörpudiskun 1. 7 cm á hæð og yfir 31.60 kr/kg 2. 6 cm að 7 cm á hæð 24.00 kr/kg

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.