Tíminn - 25.02.1992, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 25. febrúar 1992
Tíminn 3
Samtök fiskvinnslustöðva kanna opinber gjöld hjá 27 sveitarfélögum:
Gjöld fiskvinnslu 72% hærri á
Skagaströnd en í Grindavík
Meðalstórt fískvinnslufyrirtæki á Skagaströnd þarf að borga um
72% meira í skatta og þjónustugjöld til sveitarfélagsins heldur en
samsvarandi fyrirtæki í Grindavík þar sem þessum gjöldum virðist
stillt hvað mest í hóf. Samtök fískvinnslustöðva hafa kannað hvern-
ig þessari gjaldtöku er háttað í 27 útgerðarbæjum á landinu.
Könnuð voru: aðstöðugjöld, fast- vatni eða raforku 300 þús. kwh/ári.
ara gjalda á bilinu 9 til 10 milljónir
(talið er frá lægstu tölu og upp):
Grindavík, Keflavík/Njarðvík, Þor-
lákshöfn, Reykjavík og Hafnarfjörð-
eignaskattar, holræsagjöld, vatns-
skattur og gjaldskrár fyrir raforku
og húshitun. Hagstæðast er að reka
fyrirtækið í Grindavík, þar sem sam-
anlögð gjöld nema rúmum 8,9
milljónum kr. Segja má að Skaga-
strönd skeri sig úr fyrir háa gjald-
töku. Þar þyrfti sama fyrirtæki að
borga 15,4 milljónir, eða nær 1,8
millj.kr. meira en þar sem gjöldin
eru næst hæst.
Sem forsendu í þessu dæmi miða
Samtök fiskvinnslustöðva við fyrir-
tæki með eigin hráefnisöflun. Að-
stöðugjaldsstofn er ákveðinn 400
m.kr. hjá vinnslunni og 240 m.kr.
hjá útgerðinni. Miðað er við 100
m.kr. endurstofnverð fasteigna. Raf-
orkunotkun er áætluð 1 milljón
kwh á ári m.v. 4.000 klukkustunda
nýtingu samkvæmt afltaxta. Húshit-
un miðast við 6.500 rúmm. af heitu
Kosið til
Stúdentaráðs
Næstkomandi fimmtudag, 27.
febrúar, fara fram kosningar til
Stúdenta- og Háskólaráðs í Háskóla
íslands. Á kjörskrá eru allir skráðir
nemendur við Háskólann. Tvær
fylkingar bjóða fram í kosningun-
um: Röskva, samtök félagshyggju-
fólks, og Vaka, félag lýðræðissinn-
aðra stúdenta.
í Stúdentaráði sitja 30 manns til
tveggja ára og er kosið um helming
ráðsliða í senn. í síðustu kosningum
sigraði Röskva naumlega og fékk
átta menn kjörna, en Vaka sjö.
Mikil kosningabarátta hefur farið
fram síðustu daga og nær hún há-
marki á morgun, en þá mætast
frambjóðendur á kosningafundi í
Háskólabíói kl. 12:15. -EÓ
Kaldavatnsnotkun er áætluð 40 þús.
tonn.
í mörgum tilfellum munar meira
en helmingi á gjöldum frá einum
stað til annars. í Grindavík og Sand-
gerði þyrfti fyrirtækið samtals að
borga 3,2 millj.kr. í aðstöðugjöld, en
hins vegar rúmlega 8,3 millj.kr. á
Skagaströnd. í Stykkishólmi væru
aðstöðugjöldin 6,4 m.kr. og á milli 4
og 5 milljónir í þeim bæjum á Snæ-
fellsnesi, Vestfjörðum og Austfjörð-
um sem könnunin náði til. Og með-
altalið er líka tæpar 4,7 milljónir kr.
Hæstan fasteignaskatt þyrfti fyrir-
tækið að borga í: Kópavogi, Hafnar-
firði, á Akureyri og Neskaupstað,
1.250 þús.kr. Sú skattheimta er
lægst, 820 þús.kr., á Höfn og 900
þús.kr. í Keflavík/Njarðvík, Sand-
gerði, Grundarfirði og Þorlákshöfn.
Á Ólafsfirði þyrfti fyrirtækið aðeins
að borga hitaveitunni 176 þús.kr.
fyrir upphitun, en nær fimm sinn-
um meira (814 þús.kr.) á Akranesi.
Upphitunarkostnaður er einnig 730-
750 þús.kr. frá hitaveitum á Siglu-
firði, Akureyri og Seyðisfirði og upp-
hitun með raforku kostar álíka upp-
hæð. Meðaltalið er 555 þús.kr. fyrir
upphitun.
I Sandgerði og Þorlákshöfn væri
kaldavatnskostnaður þessa fyrirtæk-
is aðeins 110 þús.kr. í vatnsskatt. í
Vestmannaeyjum þyrfti það að
borga nær fjórtán sinnum meira,
eða samtals 1.518 kr., í vatnsskatt og
notkunargjald. Víða er þessi kostn-
aðarliður nokkurn veginn þarna
mitt á milli, enda meðaltalið 677
þús.kr.
Einna minnstur munur er á raf-
orkukostnaðinum, sem er í sumum
tilfellum stærsti kostnaðarliðurinn.
Rafmagnið er ódýrast á Akranesi,
tæpar 3,7 milljónir, en dýrast í Vest-
mannaeyjum, rúmar 4,8 milljónir.
Meðaltalið er 4,4 milljónir á þessum
lið.
Fimm staðir eru með samtölu þess-
Ábilinu 10-11 milljónirvoru:Akra-
nes, Kópavogur, Höfn og Húsavík.
Á bilinu 11-12 milljónir eru: Ólafs-
fjörður, Vestmannaeyjar, Stokkseyri,
Sauðárkrókur, Akureyri og Eski-
fjörður.
Á bilinu 12-13 milljónir eru:
ísafjörður, Þórshöfn, Seyðisfjörður,
Siglufjörður, Rif, Bolungarvík, Nes-
kaupstaður, Grundarfjörður og Pat-
reksfjörður.
í Stykkishólmi þyrfti fyrirtækið að
borga samtals 13,6 milljónir í skatta
og þjónustugjöld, en á toppnum
trónir Skagaströnd með 15,4 millj-
ónir sem fyrr segir. - HEI
Leikarar í uppfærslu leikfélags Menntaskólans við Hamrahlíð á Upphafi og endi Mahagonnyborgar
eftir Bertold Brecht og Kurt Weill.
Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð með frumsýningu í
kvöld á söngleik eftir Bertold Brecht og Kurt Weill:
Upphaf og endir Mahagonnyborgar
Leikfélag Menntaskólans við
Hamrahlíð frumsýnir annað kvöld,
þríðjudagkvöld kl. 20, óperettuna
Upphaf og endir Mahagonnyborgar
eftir Bertold Brecht og Kurt Weill í
þýðingu Böðvars Guðmundssonar.
Verídð var fyrst sett upp í Þýska-
landi nasismans árið 1939 og vakti
þá upp ýmsar blendnar tilfinningar.
Halldór E. Laxness er Ieikstjóri, en
Guðni Franzson stjómar 35 manna
hljómsveit. Sylvia von Kospoth
danshöfundur sér um hreyfistjórn-
un, og Egill Ingibergsson um lýs-
ingu. Sýningar verða í hátíðasal
Menntaskólans við Hamrahlíð
þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga
og sunnudaga.
Landsbréf hf.
kaupa skuldabréf
útgefin vegna kaupa
á fullvirðisrétti af bændum
Kaupgengi í dag er:
92,26 miðað við uppreiknað verð og
96,83 miðað við nafnverð.
Gengi tekur mið af markaðsaðstæðum
á hverjum tíma.
Ráðgjafar Landsbréf hf. og umboðsmenn
í útibúum Landsbanka íslands um allt land
veita fúslega frekari upplýsingar og ráðleggingar.
LANDSBRÉF H.F.
Landsbankinn stendur með okkur
Sudurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598.
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
LOGSUÐUTÆKI
MARGAR GERÐIR
argon- og propangas-
mælar
súr- og gasmælar,
tvöfaldar slöngur,
kveikjur,
logsuðugleraugu,
einstreymislokar,
logsuðutæki í settum,
súr- og gaskútar.
Varahlutaþjónusta.
ÁRVÍK
HF.
ÁRMÚL11 ■ PÖSTHÓLF 8000 • 128 REYKJAVÍK ■ SlMI 687222 • TELEX 3012 •