Tíminn - 25.02.1992, Blaðsíða 6

Tíminn - 25.02.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn Þriðjudagur 25. febrúar 1992 Katrin Krabbe, tvöfaldur heimsmeistari í hlaupum, sem ásamt tveimur öðrum var dæmd í fjögurra ára keppnisbann á dögunum: „Þvagsýnin fölsuð“ FRAKKLAND Jack Lang, menningarmálaráð- herra Frakka, tilkynnti i gær aö hann ætlaöi aö heiöra sérstak- lega bandaríska leikarann Warr- en Beatty fyrir framlag hans til kvikmyndalistarinnar. Warren Be- atty, sem nú er 54 ára, er bæði framleiðandi og leikstjóri myndar- innar Bugsy, sem hefur fengið 10 tilnefningar til Óskarsverðlauna. Franski menningarmálaráðherr- ann hefur hingað til þótt hafa heldur hom í síðu bandarískrar menningarinnrásar í Evrópu. Svo virðist sem afstaða hans hafi mildast í seinni tíð, því að nýlega heiðraði hann poppsöngvarann og lagahöfundinn Lou Reed og svo sjálfan Rocky/Rambo — Sylvester Stallone. AMMAN, Jórdaníu Lömunarveiki hefur skotið upp kollinum (Jórdaníu og í gær höfðu 32 tilfelli verið skráð. Engin lömunarveikitilfelli hafa komið upp sl. þrjú ár. Heilbrígðisyfirvöld segjast munu berjast gegn sjúk- dómnum með öllum ráðum og reyna að koma ( veg fýrir farald- ur. Þau hafa lýst því yfir að um 600 þúsund böm verði bólusett og hófst það verk strax í gær- morgun. Lömunarveiki er veim- sjúkdómur, sem leggst á mið- taugakerfið og veldur lömun og jafnvel dauða. Lömunarveiki leggst einkum á böm. SINGAPORE Evrópska flugvélasamsteypan Airbus tilkynnti um helgina að áætlanir væru um að hefla fram- leiðslu á stærstu farþegaflugvél sem smíðuð hefur verið til þessa. Reiknað er með því að fýrstu ein- tök risavélarinnar komist í gagnið 1996 og taki minnst 600 farþega. Stærstu farþegavélar, sem nú eru I notkun, eru Boeing 747, en stærstu og nýjustu gerðir þeirra véla taka um 400 farþega. Airbus er samsteypa evrópskra flugvéla- ffamleiðenda. Stærstu aðilar í samsteypunni em British Aero- space í Bretlandi, Aerospatiale í Frakklandi, Constmcciones Aero- nauticas á Spáni og Deutsche Airbus í Þýskalandi, sem er í eigu Daimler-Benz. Honecker og Kohl árið 1987 þegar báðir voru þjóðhöfðingj- ar. Nú vill Kohl fá Honecker framseldan frá Moskvu vegna aöildar að manndrápum. MOSKVA Erich Honecker, fyrrum leiðtogi A- Þýskalands, var ( gær lagður inn á sjúkrahús í Moskvu til krabbameinsrannsókna. Hin vandræðalega togstreita um Honecker heldur áfram og i gær (trekaði Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, kröfu um að Honec- ker yrði framseldur til Þýskalands til að svara fýrir ákæmr um morð á þeim sem reyndu aö flýja yfir BerKnarmúrinn á ámnum 1971- 1989. Kohl sagðist ekkert hafa á móti þvi aö Honecker sé á sjúkrahúsi, svo framarlega sem honum verði ekki leyft að flytja til Chile þegar honum skánar. Þýska hlaupadrottningin Katrin Krabbe. Katrin Krabbe, þýska hlaupadrottn- ingin sem þýska frjálsíþróttasam- bandið setti nýlega í (jögurra ára leik- bann, ásamt tveimur öðrum frjáls- íþróttakonum, sagði á sunnudag að hún hefði vitneskju um að átt hefði verið við þvagsýni hennar með það fyrir augum að fá hana dæmda í keppnisbann fýrir neyslu ólögiegra lyfja, og því séu þau fölsuð. Hún neitaði að segja til um það, hvern hún grunaði um verknaðinn. í viðtali á sunnudag sagði Krabbe að komið hefði ffam ýmislegt athuga- vert við lyfjapróf sem gerð væm í Suður-Afríku, sem gæti þýtt að átt hefði verið við þvagsýnin. .Auðvitað höfum við okkar gmn, en málið er í rannsókn og því megum við ekki segja neitt um málið,“ sagði Katrin Krabbe. Hún ásamt Grit Breuer og Silke Möller var dæmd í keppnisbann eftir að þýskur sérfræðingur sagði að þvagsýni keppniskvennanna þriggja væm úr sömu manneskjunni. Lög- maður þýska frjálsíþróttasambands- ins segir að málatilbúnaður sá, sem leiddi til keppnisbannsins, væri óað- finnanlegur, en Katrin Krabbe segir að hún sé tilbúin að sverja þess eið og bera þess vitni að hún hefði ekki átt við þvagsýnin. Hún segir að það óvenjulega hafi gerst, þegar þvagsýn- in vom tekin 24. janúar nærri Höfða- borg, að þau hafi ekki verið innsigluð áður en þau vom send til Þýskalands. „Vandamálið fýrir okkur er að við för- um svo oft í lyfjapróf; það er orðið svo venjulegt fýrir okkur og því treystum við því fólki, sem við höfum fýrir framan okkur, þ.e.a.s. læknunum. Kannski vomm við of skeytingarlaus- ar, þegar við hugsum um það eftirá, því það vom nokkur atriði við fram- kvæmd lyfjaprófsins sem vom öðm- vísi en við emm vanar í Þýskalandi. Við tókum ekki eftir því í fýrstu, en þegar við fómm að tala saman um það, þá kom í ljós að það hefði getað verið eitthvað að, til dæmis sú stað- reynd að flöskumar vom ekki innsigl- aðar.“ Lögfræðingur þremenninganna seg- ir að heimsókn lögfræðings þýska frjálsfþróttasambandsins til Suður- Afríku þýði að sönnunargögn sam- bandsins séu ekki eins ömgg og full- trúar þess hafi hingað til sagL „Hvemig getur allt verið í lagi, þegar sambandið veit að flöskumar vom ekki innsiglaðar. Það er staðreynd, en samt sem áður er því haldið fram að ekkert óvenjulegt hafi verið í fram- gangi málsins. Þetta mál er einsdæmi í Þýskalandi. Ef athugasemdir okkar reynast eiga við rök að styðjasL þá á þýska frjálsíþróttasambandið engan annan kost en að aflétta keppnisbann- inu,“ segir lögfræðingur frjálsíþrótta- Sænsk samtök, sem styðja fórnar- lömb glæpaverka, hafa óskað eftir því við sambærileg evrópsk samtök að þau hundsi alþjóðlega ráðstefnu, sem halda á á írlandi, nema írskir dómstólar heimili 14 ára fómar- lambi nauðgunar að fá fóstureyð- ingu. Á ráðstefnunni á að fjalla um aðstoð við fómarlömb glæpaverka. Sænsku samtökin segja í yfirlýs- ingu að þau muni hætta við þátt- töku í ráðstefnunni, sem halda á á írlandi 19.-24 maí nk., og hafa farið fram á við 12 önnur sams konar samtök að hundsa einnig ráðstefn- una. Foreldrar írsku stúlkunnar óskuðu eftir því við hæstarétt ír- lands að hann ógilti dóm undirrétt- ar, sem bannar stúlkunni að fá fóst- ureyðingu á írlandi. kvennanna. Frjálsíþróttakonunar þrjár segja að ásakanir um að hafa tekið inn ólögleg lyf hafi sett þær undir mikla pressu, en stuðningur almennings og ann- arra íþróttamanna hafi hjálpað mikið. Þær sögðu jafnframt að þeirra aðal- takmark væri að hlaupa á sumar- ólympíuleikunum í Barcelona í sum- ar. „Það er ekkert eins mikilvægt fýrir okkur og að hlaupa í Barcelona í sumar. Það, sem við höfum gengið í gegnum og komum til með að ganga í gegnum, hefur sett okkur í mikla pressu. Þessu linnir að lokum og það er okkar ósk að það verði sem fyrsL svo við getum undirbúið okkur í friði fýrir ólympíuleikana," segir tvöfáldur heimsmeistari, Katrin Krabbe, þýska hlaupadrottningin sem dæmd var á dögunum í fjögurra ára keppnisbann. -PS/Reuter Talsmenn sósíaldemókrata í Sví- þjóð, sem eru í stjórnarandstöðu, sögðu í gær að ríkisstjórninni bæri að aflýsa heimsókn sænsku kon- ungshjónanna til írlands, sem ráð- gerð er í byrjun aprílmánaðar. Nokkrir ráðherrar sænsku hægri- stjórnarinnar hafa gagnrýnt írska fóstureyðingalöggjöf harðlega. Þeir segjast hins vegar efast um að rétt sé að aflýsa heimsókn sænsku kon- ungshjónanna. Aftonbladet í Svíþjóð birti í gær á forsíðu áskorun til írskra stjórn- valda um að ógilda dóminn um að stúlkunni sé óheimilt að fá fóstur- eyðingu í Englandi. Lesendur blaðs- ins eru beðnir að undirrita áskorun- ina og senda hana írska sendiráðinu í Svíþjóð. svo um ágæti þessara almennu að- vinnutryggingasjóður haföi áður, getða að hann er farinn að setja fram ýmsa fyrirvara við stefnuna, „Þetta er aDt Steingrími og hinum framsóknarmönnunum að kenna." Nokkum veginn svona hljóma við- brögð manna í AlþýðuHokknum við erfiðri stöðu sjávarútvegsins, en í þeirri grein stefnir nú í fjöldagjald- þrot Sá, sem valinn hefur verið til að flyfja landslýð þessa nýju stefnu flokksins, er enginn annar en Þröstur Ólafsson, fýrrum forstjóri og allabaDi en núverandi aðstoðar- ráðherra og kratL Klárað í nokkrum hrínum Þröstur, sem er annar af tveimur formönnum nefndar ríkisstjómar- innar sem móta á stefnuna í sjávar- útvegsmálum, hefur nú sldlað sinni fýrstu persónulegu áfanga- skýrslu. Niðurstaðan en Það á að Íáta sjávarútvegsfýrirtækin fara á hausinn. Samkvæmt hugmyndum Þrastar er óvíst hvort það hefst að greiða greininni rothöggið i fyrstu, annarri eða þriðrju lotu, en hann segir í DV um helgina: „Láta þau verst settu rúlla fyrsL sjá til með önnur. Fari þau áfram niður á við verða þau gjaldþrota í næstu hrinu.“ Þessi gjaldþrotastefna, sem ann- ar formaður nefndar um stefnu- möricun í sjávarútvegl hefur nú kynnLersögðhafaþaösértilágæt- is að vera almenn aðgerð þar sem marioðsgrunnur atvinnugreinar- fyrri rðdsstjómar, sem voru sér- tækar og fóhist í því að skuldbreyta hjá þeim fyrirtækjum sem gátu sýnt fram á að rekstrargrundvöllur væri fyrir hendi. Nú her svo við að Þröstur virðist ddd sannfærðari en sem eldd komu fram í málflutningi hans til að byrja með. Þessi var- nagli, sem hann slær nú, er svo sér- tækur að vafamál hfytur að tefjast hvort hinar almennu aðgerðir eru almennilega almennar lengur. Landsbankinii í lykilhlutveríd Þröstur hyggst handstýra gjald- þrotahrinunum þannig að aldrei verði fleiri fyrirtæki gjaldþrota í einu en sem nem- ur því sem Lands- bankinn nær að safna í afskriftar- sjóði. JEf geyst er farið gætí Lands- bankinn farið á hausínn og þá myndi margt í þessu þjóðfélagi fylgja með,“ segir hann tfl nánari velta á afkomu Landsbankans og ákvörðunum bankastjóra og banka- ráðs hvort og hvemig gjaldþrota- stefnan viritar eða eldd. ÞrÖsturvill með öðrum orðum láta Landsbank- anum eftir það hlutverk sem At- nema hvað að allsendis óljóst er hvernig Landsbankínn á aö fjár- magna slíka starfsemi. Hver svo sem endanleg útfærsla á sjávarútvegsstefnu krata veröur, fer hins vegar ekkert á mifli mála að niðurstaðan er sú að þeir vilja fækka sj á varú tvegs fýrirtæ kj u m með því að knýja fram fjöldagjald- þrot í greininni. Þetta er stefnu- breyting hjá krötum og þeir gangast í þessu máli, eins og svo mörgum Öðrum, inn á stefnu frjálshyggju- arms Sjálfstæðisflokksins. Hins vegar er ljóst að þessari stefnu- breytingu fylgir nokkur breyting á styrkleikahlutföU- um einstakra manna innan flokksins og svo viröist sem menn ætli að nota þessa nýju stefnu til aö stifla formanni flokksins upp við vegg og má m.a. sjá þetta á því hvemig Þröstur ÓI- afsson hefúr lagt málin upp. Stjóraarslitin 1988 Hann tekur það nefnflega skil- meridiega fram að stefna fjölda- gjaldþrota og almennra aðgerða að taka haustið 1988. Einmitt sú yfiriýsing er áhugaverð í ljósi þess að Jón Baldvin Hannibalsson, ráð- herra Þrastar, defldi hart við Þor- stein Páisson, þáverandi forsætis- ráðherra, um hvort almennar að- gerðir myndu duga til að bjarga sjávarútveginum fri hruní. Niður- staðan var sú að Jón Baldvm ásamt framsóknarmönnum rauf stjómar- samstarfið vegna þessa ágreinings. Nú hlns vegar kemur aðstoðarmað- ur Jóns BaMvins og segir að ein- mitt vegna þeirra aðgerða, sem gripið var tfl 1988, sé ástandið í dag mMu verra en annars heföl orðið. Málatilbúnaður Þrastar undanfama daga er mjög athyglisverður, því hann heföi auðveldiega getað mælt fyrir gjaidþrotastefnu sinni án þess að ráðast að Atvinnutryggingasjóði og þeim björgunaraðgerðum sem gripið var tit í tíð sfðustu ríkis- stjómar, og raunar hefði það verið mun trúverðugra. En hann kýs að ráðast að framsóknarmönnum og skamma þá, þo Öllum sé það Ijóst að hann er f raun að ráðast á Jón Baldvin fyrir að ganga út úr rQás- stjóm Þorsteins Pálssonar og standa að þeim aðgerðum semgrip- ið var til í sfðustu rikissljóm. Garri treystir sér ekki tii að meta ná- kvæmlega hvað það er sem Þresti gengur til með þessum árásum sín- um á formann Alþýðuflokksins, en aðferðin er vel þekkt og hefúr geng- ið undir nafninu „aö skamma Alb- aníu“ og ætti að vera manni með bakgrunn Þrastar vel kunn. Hitt virðist nokkuð Ijóst að þegar flokksmenn eru famir að ráðast með þessum hætti að formanni sínum, má búast við að tíl tíðinda fari að draga í Alþýðuflokknum. Garri innar er látinn ráða því hver lifir og bver ekki cða hvort einhver lifir yfir útskýringar í viðtali við DV. Það höfuð. Hún er því ólík aðgerðum kemur samkvæmt þessu til með að Konungsheimsókn aflýst?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.