Tíminn - 25.02.1992, Síða 8

Tíminn - 25.02.1992, Síða 8
8 Tíminn Þriðjudagur 25. febrúar 1992 Þýskaland Fyrstu þýsku frimeddn á árinu koma út þann 6. febrúar. Þama er um að ræða útgáfu margra frí- merkja og af ýmsu tilefiii. Þar er fyrst að nefna „fþróttamerid 1992“, sem sýnaýmsar ólympískar keppnisgreinar. Fyrsta frímeridð sýnir skylmingar kvenna. Annað meridð sýnir svo kappróður á átta manna bát Þriðja frímeridð sýnir tamningu og það fjórða sldða- keppni — alpnesk. Arihur Honegger er faeddur í Sviss 10. mars 1892. Hann var af foreldrum sem bjuggu í Le Havre og lærði í Zurich og París. Auk fiðlu- Ieiksins var hann mikilvirkur sem tónskáld og nægir þar að nefha óra- tóríó hans „Davíð konungur", óper- una „Amphion", ballettmúsík og fleira. Hann lést í París 27. nóvem- ber 1955. Þýska póststjómin minn- ist 100 ára afmælis hans með 100 pfenniga frímerki þann 6. febr. Greifinn Ferdinand von Zeppelin lést í Berlín 8. mars 1917. Frægð hans stafar mest frá því að hann var sá uppfinningamaður er fyrstur fékk einkaleyfi til að byggja flugskip. Minnast íslendingar enn komu Zep- pelin-flugskipsins á Öskjuhlíð og þess að þar var tekinn og afhentur póstur. Það vom einmitt alþjóðlegar samgöngur og póstflutningar í löfti, sem urðu til þess að hann hóf bygg- ingu hinna stjómanlegu loftskipa, LZ. LZ 1 var byggt hjá Konstanz- vatninu og fór á loft 2. júlí árið 1900. Síðan vom á annað hundrað LZ-skip byggð og öll heitin eftir von Zeppelin greifa. Myndin á frímerkinu sýnir höfúð hans til hliðar við LZ 127, sem auð- vitað hét líka „Graf Zeppelin" eins og öll hin. Það er Emst Junger pró- fessor í Múnchen, sem teiknaði frí- merkið sem er 165 pfennig að verð- gildi. Áland Nú er komið að því að Áland gefi út frímerki án verðgildis. Það er sami háttur og áður hefir verið hafður á Ld. í Bandaríkjunum og í Finnlandi. Þá gilda þessi frímerki aðeins fyrir ákveðna gerð burðar- gjalda. Finnsku frímerkin gilda Ld. fyrir burðargjald fyrsta og annars verðflokks. Það er frímerki með mynd Frans Peters von Knorring, sem er fyrsta ,pilífðarfrímerkið“ sem gefið er út á Álandi. Það gildir sem burðargjald í 2. verðflokki. í fyrsta verðflokki verður gefið út frí- merki með mynd frá „Kap Hom“- kongressinum. Finnsku blómafrí- merkin, sem koma fyrst út án verð- gildis, koma út 2. mars. A. Honegger. Graf von Zeppelin. íþróttamerki. 1. flokkur bréfa verður nú allt að 50 grömm innan Norðurlandanna og landsins sjálfs. Þessi bréf njóta forréttinda í flutningi og útburði og verður að greiða hærra burðargjald undir þau. 2. flokkur aftur á móti er hægfara, sömu vigtartakmörk em en nú kostar minna að senda bréfin á hverjum tíma. Ýmis önnur lönd hafa tekið upp merkingu A, á bréf- um sem hafa forgang, auk franska orðsins Priorité, en aftur á móti merkja þeir hæggeng bréf með B. Því ætti að vera óþarfi að kaupa hrað á bréf í þessum löndum framvegis. Nokkur lönd merkja svo prentað mál C, sem er ekki aðeins hægfara póstur heldur má bíða. Það útskýrir 14. október, með pósti þann 17. ef til vill að ég fékk „Observatore Ro- janúar. mano“ frá Vatikaninu, dagsett þann Sigurður H. Þorsteinsson Ný bók: r Islands- galdrar Nú er hún komin, fjórða bókin í bókaflokknum um Galdrameistar- ann eftir Margit Sandemo. Ber hún nafnið Andlit grimmdar. Við öflun á efni í þennan bókaflokk lá leið Margitar m.a. hingað til íslands. Hún ferðaðist víða, og viðaði að sér efni sem birtist svo í þessum bókum. Einnig hefur hún lesið sér til um galdra, bæði á íslandi og í Noregi, og sem heimildir má nefría: Galdra- Skræða, Galdur og galdramál á ís- landi, Norskar galdraþulur og upp- skriftir, gefið út af Vísindafélagi Kristjaníu 1901 o.m.fl. Allt verður þetta til þess að gefa sögu hennar trúverðugan blæ og sveipar hana jafnframt heillandi dulúð. Eins og lesendum er kunnugt liggur söguþráður bókaflokksins allt aftur til fyrri hluta sautjándu aldar. Sagan hefst hér á íslandi, en þá kem- ur til sögunnar Móri, íslenskur galdrameistari, sem er ein af höfuð- persónum sögunnar. En eins og for- GAIDRAMEISTARINN % MargiC Sandemo AXDLII IGRIMMDAR feður hans er hann ofsóttur af yfir- völdum, sem leiðir til þess að hann heldur til Noregs. Þar hittir hann Tiril, unga norska stúlku, sem örlög- in hafa leikið grátt. Fortíð hennar, sem öllum er hulin, virðist vera or- sök þess að líf hennar og annarra er í hættu. Hrakin á brott frá Noregi halda Tiril og Móri ásamt vinum sín- um í leit að sannleikanum um fortíð Tirilar. Útgefandi er Prenthúsið. (Fréttatilkynning) Frönsk tónlist Sinfóníutónleikamir 20. febrúar voru helgaðir franskri tónlist: Mil- haud, Debussy, Berlioz. Stjómandi var Frakkinn Jacques Mercier „sem stjómar reglulega öllum helstu hljómsveitum Evrópu", en einleik- ari á píanó finnsk kona, Maritu Vi- itasalo. Langveigamesta verkið þama var Symphonie fantastique eftir Hector Berlioz (1803-1869), samið árið 1830. Skráin segir frá tildrögum sinfóníunnar: Berlioz var 24 ára nemandi við Tónlistar- háskólann í París þegar þangað kom breskur leikflokkur og sýndi Hamlet. Berlioz fór á sýninguna og var sem lostinn eldingu, af aðdáun á Shakespeare og ást á írskri leik- konu sem lék Ófelíu, Henriette Smithson. Berlioz lét ekki þar við sitja að elska úr fjarlægð, en leik- konan vildi ekkert með hann hafa, og samdi hann þá sinfóníu þessa, sem er e.k. martraðardraumur; fyrsti kaflinn af fimm heitir .Ástríðudraumar", hinn næstsíð- asti „Gengið að höggstokknum“ og hinn síðasti „Nomagleðirí' — „Nornir og óvættir umkringja tón- skáldið með óhljóðum og hlátra- sköllum. Hin heittelskaða gengur í nornadansinn við mikinn fögnuð, Djöfullinn syngur messu; kaþólsk kirkjutónlist er skrumskæld á áhrifamikinn hátL“ segir þar. Fyrri hluti sinfóníunnar er venjuleg rómantísk tónlist, en í síðustu tveimur köflunum gerist hún all- æðisgengin með mikilli ólman í slagverkinu — mjög mögnuð tón- list. Samt fer ekki hjá því, að Berlioz hefði getað gert þessari hugmynd ennþá betri skil hefði hann haft tónmál 20. aldar á valdi sínu, en til þess samdi hann sinfón- íuna tæpri öld of snemma. Stjóm- andinn lagði sig mjög fram um þennan flutning, sem tókst í alla staði afar vel. Symphonie fantastique var síð- ust á efnisskránni, en tónleikamir hófust með sveitamannagríni, Su- ite provencale eftir Darius Milhaud (1892-1974). Líklega þykir verk þetta fremur léttvægt, en mjög er það skemmtilegt áheymar og lit- ríkt. Sama verður tæplega sagt um Fantasíu fyrir píanó og hljómsveit eftir Claude Debussy (1862-1918), sem þó var vafalaust eitt merkasta tónskáld Frakka og mikill áhrifa- valdur í þróun evrópskrar tónlistar, enda segir skráin að Debussy hafi hafnað verkinu — strikað það út af lista yfir verk sín. En fyrst hann brenndi handritið ekki, hlutu menn að grafa það upp og taka til flutnings; það var gert í fyrsta sinn 1918, árið sem skáldið dó. Frá sjón- armiði stórpíanista er tæplega eftir miklu að slægjast í Fantasíu þess- ari, því píanóið er í aðalatriðum hluti af hljómsveitinni fremur en einleikshljóðfæri. Maritu Viitasalo spilaði hins vegar af miklu öryggi, og kunnáttumenn segja að hún hafi hrifið hljómsveitina með sér til listrænna átaka. En þessi Fantasía er semsagt meðal fáheyrðari verka þessa tónskálds, þótt hún beri mjög greinileg ættarmót skapara síns. Sú var tíð að íslendingar þekktu lítið annað en þýska tónlisL en Sin- fóníuhljómsveit íslands og margir aðrir hafa gengið fram fyrir skjöldu til að rétta þann skakka: nú er víð- ar leitað fanga, jafnvel til enskra, sem Brahms þó kallaði „þjóð án tónlistar“, að ekki sé talað um franska tónlist, eins og nú. Sig.SL

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.