Tíminn - 05.03.1992, Síða 2

Tíminn - 05.03.1992, Síða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 5. mars 1992 Á þingi Norðurlandaráðs er fjallað um framtíð norrænnar samvinnu eftir að meirihluti norrænna þjóða verður kominn í EB: Framtíð norrænnar sanv vinnu er efst á baugi Halldór Asgrímsson alþingismaður segist vera bjartsýnni á framtíð nor- ræns samstarfs nú en fyrir nokkrum mánuðum. Hann telur að ef Sví- þjóð, Finnland og Noregur ganga í Evrópubandalagið, verði enn brýnna fyrir ísland að eiga gott samstarf við bræðraþjóðir á Norðurlöndum. í gegnum þær geti Island komið sjónarmiðum sínum á framfæri varðandi mál sem eru til umíjöllunar á vettvangi evrópskrar samvinnu. Umræður á þingi Norðurlanda- ráðs endurspegla óvissu um fram- tíð norræns samstarfs nú, þegar allt útlit er fyrir að fjórar af fimm aðildarþjóðum Norðurlandaráðs verði orðnar aðilar að Evrópu- bandalaginu innan fárra ára. Flest- ir eru sammála um að norrænt samstarf muni breytast og þurfi að breytast í takt við breytingar í heiminum. Halldór sagði að menn séu enn ekki komnir að niðurstöðu um hvers konar breytingar sé rétt að gera á Norðurlandaráði né hvers konar norrænt samstarf menn vilja sjá í framtíðinni. Halldór sagði ekki ólíklegt að nor- rænt samstarf verði í framtíðinni óformlegra en það er í dag. Draga muni úr mikilvægi umræðna á vettvangi þings Norðurlandaráðs. en starf nefnda muni styrkjast. Á síðustu árum hafa bræðraflokkam- ir í löndunum verið að auka sam- vinnu sína. Halldór sagðist telja að þetta samstarf eigi eftir að aukast enn frekar. „Ég tel að það sé meiri áhugi fyrir Halldór Ásgrímsson. að halda sterku Norðurlandasam- starfi núna en var fyrir nokkrum mánuðum. Mér finnst umræðan hafi heldur gengið í rétta átt,“ sagði Halldór. „Ég tel það afar mikilvægt fyrir okkur að hafa sterkt Norðurlanda- samstarf, ekki síst út af því sem er að gerast í Evrópu. Við þurfum á góðum bandamönnum að halda í sambandi við okkar samskipti við EB. Því tel ég að sterk norræn sam- vinna sé okkur mikilvægari en oft- ast áður.“ Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur sagt að mikil hætta sé á að ís- land verði meira og minna utan- veltu í norrænu samstarfi í fram- tíðinni, vegna þess að samstarfið muni í framtíðinni fyrst og fremst snúast um afstöðu til mála sem upp koma á vettvangi EB, þ.e. ef Noregur, Svíþjóð og Finnland ganga í bandalagið á næstu árum, eins og flest bendir til að þau geri. Halldór var spurður um þetta at- riði. „Ég var nú þeirrar skoðunar að það væri mikil hætta á þessu, en ég er miklu bjartsýnni í dag. Ég held líka að það sé mjög mikilvægt fyrir ísland að vera með hinum Norður- löndunum í umfjöllun um Evrópu- málin, vegna þess að með þeim hætti getur ísland haft nokkur áhrif og komið sjónarmiðum á framfæri með aðstoð hinna Norð- urlandaþjóðanna. Ég held að nor- ræna samstarfið geti orðið til að styrkja okkar stöðu gagnvart þró- uninni í Evrópu." -EÓ Matthías Bjarnason alþingismaður er ekki ánægður með ríkisstjórnina eða stefnu þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Matthías segir í viðtali við Heimsmynd: Gengum of fíjótt til samstarfs við krata Matthías Bjarnason, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum, fer ófögrum orðum um ástandið í þingflokki Sjálfstæðisflokksins og um ríkis- stjómarsamstarfið í viðtali við tímarítið Heimsmynd, sem kom út í gær. Matthías segist telja að sjálfstæðismenn hafl verið of fljótir á sér, þegar þeir gengu til samstarfs við kratana síðastliðið vor. Matthías segir í viðtalinu að stefnumið Sjálfstæðisflokksins hafi breyst og flokkurinn sé ekki sá flokkur, sem hann gekk í fyrir 50 ár- um. Hann gagnrýnir harðlega frjáls- hyggjuliðið f flokknum og segir: „Þessir Heimdallarstrákar skilja ekki út á hvað lífsbarátta fólksins í landinu gengur. Við, sem erum bún- ir að fara í gegnum þykkt og þunnt, kynnast kjörum þjóðarinnar, teljum okkur vita töluvert. Þessir aðilar álasa mönnum eins og mér fýrir að standa vörð um mína kjósendur, kalla mig kjördæmapotara eða fyrir- greiðslupólitíkus. Ef við lands- byggðarmennirnir erum að hugsa of mikið um okkar byggðarlög á kostn- að heildarinnar, hvernig stendur þá á því að allt fólkið er að flýja til höf- uðborgarsvæðisins? Landsbyggðin hefur verið arðrænd áratugum sam- an og á töluverða sök á því sjálf með því að geta aldrei staðið saman.“ Matthías gefur forystumönnum í íslenskri pólitík ekki háa einkunn og svarar, þegar hann er spurður hvaða stjórnmálamenn séu hæfastir til að leiða þjóðina í dag: „Það sorglega er að ég sé þá ekki.“ Matthías gagnrýnir Þorstein Páls- son m.a. fyrir þá sjávarútvegsstefnu, sem hann fylgir, og fyrir að hafa leyft frjálshyggjuliðinu að ná sterkum tökum í Sjálfstæðisflokknum. Hann gagnrýnir sömuleiðis Davíð Odds- son fyrir hroka, en virðist þó vera sáttari við hann nú en í fyrrasumar og haust, þegar þeim lenti saman út af byggðamálum. Hann segir að hrokinn sé sömuleiðis að fara með Jón Baldvin Hannibalsson. Sumir menn þoli illa að verða ráðherrar. Matthías segist hafa stutt Þorstein, þegar hann var kjörinn formaður flokksins árið 1983. Hann segist hugði. Mér fannst margt benda til þess að við þingmenn Sjálfstæðis- flokksins höfum verið einum of fljótir að ganga til samstarfs við krata. Ég hef orðið fyrir vonbrigðum með ráðherra Alþýðuflokksins og finnst einstakir menn úr þeirra röð- um hafa sent okkur kaldar kveðjur." Matthías gagnrýnir einnig ýmsar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar, m.a. breytingar á almannatryggingalög- gjöfinni. Hann segir um ákvarðanir þingflokks sjálfstæðismanna: „Ég reyni eins og ég get að hafa áhrif og stundum felli ég mig við niðurstöð- una. En því miður gerist það oft, og æ oftar, að ég er mjög óánægður." -EÓ Kvölda tekur, sest er sól Kvölda tekur, sest ersól, sígur þoka’á dalinn. Komið er heim á kvíaból kýmar, féð og smalinn. Senn er komið sólarlag, sést á norðurtindum. Líður á þennan dýrðardag; drottinn stýri leiðum. Senn er komið sólarlag, sést á norðurtindum. Líður á þennan dýrðardag; drottinn hjálpi' oss öllum. Senn er komið sólarlag, sendi’ oss drottinn friðinn, og oss gefi annan dag eftirþennan liðinn. Þjóðvísa Matthías Bjarnason alþm. einnig hafa stutt hann á síðasta landsfundi flokksins. ,Á fundum Davíðs um landið, eftir að hann var kjörinn formaður, lýsti hann ýms- um viðhorfum sem ég var sammála. Eftir að hann myndaði ríkisstjóm, fór ýmislegt á annan veg en ég Nefnd í framhalds- og grunnskólalögin Ólafur G. Einarsson menntamála- ráðherra hefur skipað nefnd til að endurskoða lög um grunnskóla og framhaldsskóla, en nefndinni er ætlað að skila drögum að frumvörp- um til ráðherra fyrír 1. september n.k. Eftirtaldir aðilar hafa veríð skipaðir í nefndina: Sigríður Anna Þórðardóttir, alþm., formaður; Arnar Þórisson, fram- kvstj. Félagsmálastofnunar stúd- enta; Árni Sigfússon, form. skóla- Knattspyrna: Leikið um sæti í þriðju deild Uð Hattar firá Egilsstöðum og Magna frá Grenivflr koma til með að leika um laust sætí í þríðju deild á komandi keppnistímabili. Leikurínn fer fram næstkomandi laugardag klukkan 14, á sandgras- vellinum f Kópavogi. Málið er til- komið vegna gjaldþrots ÍK, íþróttafélags Kópavogs, en Iiðið áttí rétt til setu í þriðju defld. Stjóm KSf samþykkti að lið í 9. sæti 3. deildar, sem féU í Qórðu defld, og það lið, sem næst var því að komast upp úr Qórðu deild, lékju um sætið. Félögin mega elngöngu nota þá leikmenn í þessum leik, sem voru lÖglegir með félögunum f lok sept- ember, og þeir, sem höfðu fengið úrskurðað leikbann, taka það út f leiknum. Það verður því fjóst á laugardag hvort þáð verður Höttur firá Egilstöðum sem leikur í þriðju deild, eða hvort Magna tekst að forða sér frá falli, en leikið verður tfl þrautar. -PS málaráðs Reykjavíkur; Björn Búi Jónsson, kennari í M.R.; Bjöm L. Halldórsson lögfræðingur; Halldóra Rafnar BA; Haukur Helgason, skóla- stjóri í Hafnarfirði; Helgi Jónasson, fræðslustjóri á Reykjanesi; Ingibjörg Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi MFA; Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í Garðabæ; Linda Rós Mikaelsdóttir, kennari í Reykjavík; María Gunnlaugsdóttir aðst.skóla- meistari í Hafnarf.; Ólafur Jóhann- esson, endurmenntunarstjóri K.Í.; Sigurveig Sæmundsdóttir kennari í Garðabæ; Sólrún B. Jensdóttir skrif- stofustjóri; Stefán Baldursson, fram- kvstj. rannsóknarsviðs H.Í.; TVausti Þorsteinsson, fræðslustjóri Nl. eystra; Þórleifur Jónsson, framkvstj. Landssambands iðnaðarmanna. Starfsmaður nefndarinnar verður Guðríður Sigurðardóttir, skólaráð- gjafi og uppeldisfræðingur.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.