Tíminn - 05.03.1992, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 5. mars 1992
Tíminn 3
Landlæknir vitnar til læknisfræðilegra niðurstaðna um að atvinnuleysi leiði til heilsuleysis:
Hækkun streituhormóns
í tvö ár eftir uppsögn
Baltneskir menningar-
dagar um helgína:
Menning
nýfrjálsra
Eystra-
saltsríkja
Menningarmálanefhd Reykjavík-
urborgar gengst á laugardag og
sunnudag fyrir baitneskum
menningardögum að Kjarvals-
stöðum, í samvinnu vift Borgar-
bókasafnið og KjarvalsstaftL T5l-
gangurinn er aft vekja athygU á
bókmenntum og tónlist nýftjálsu
Eystrasaltsríkjanna þriggja, sem
íslendingar urðu fyrstír tíl að við-
urkenna.
Fjöldi tónlistarmanna, skálda og
rithöftmda kemur fram í rocnn-
ingardögunum. Þeirra á meftal
inn frá Litháen, sem flytur tónlist
eítir tónskáld frá löndunum
þrem. Einnig lesa úr verkum sfn-
um skáldin og rithöfundarnir
Jaan Kaplínski frá Eistlandi, DM-
is Berrins frá Lettlandi og Pefras
Dirgéla frá LHháen. Þá segir
sendiherra Eistiands á íslandi frá
þýðingum sínum á mx Grettis
sögu Og bókum eftir íslenska höf-
unda.
Umferðarslys í Lækjargötu:
Drengur hljóp í
hlið bifreiðar
Ungur drengur var fluttur á slysa-
deild eftir að hafa hlaupið inn í hlið-
ina á bíl í Lækjargötu um klukkan
16 í gær. Hafði drengurinn verið að
koma út úr strætisvagni og hlaupið
fram fyrir hann án þess að gá að sér,
með þeim afleiðingum að hann lenti
í hlið bílsins. Eins og áður sagði, var
hann fluttur á slysadeild, en meiðsli
hans voru ekki alvarleg. -PS
Almanna-
, söngurí
Isl. óperunni
í tilefni af Ári söngsins hefur
verið opið hús í ísl. óperunni
kl. 17 þessa viku, þar sem allir
sem vilja geta gengið inn og
sungið nokkur lög sér og öðr-
um til yndis og ánægju. Kór ísl.
óperunnar stendur fyrir þess- !
um söngstundum í samvinnu
við framkvæmdanefnd um Ár
söngsins. Opið hús verður í dag
og á morgun, föstudag, kl. 17,
og það verður áreiðanlega ekki
síður ánægjulegt þá eins og var
í gær, þegar þessi mynd var tek-
in. Tímamynd: Aml BJama
„Atvinnuleysi er félags-, heilsufars- og efnahagsleg vá, sem gerir
fólk ráðþrota og vanheilt í kjölfar þess fylgir sálarkreppa, margir
líkamlegir sjúkdómar og félagsleg einangrun. Leit fólks til heil-
brigðisþjónustu eykst mifáð,“ segir Ólafur Ólafsson landlæknir í
grein, sem hann hefur ritað í Læknablaðið. En þar rekur hann nið-
urstöður margra
heilsuhraustu fólfá bregður við
vinnuleysi.
Trúlega dregur úr kaupkröfum
fólks á atvinnuleysistímum. En
landlæknir bendir á, að ríkissjóður
verði fyrir umtalsverðu tapi vegna
framleiðslutaps, atvinnuleysisbóta
og lífeyristrygginga. Aðstandendur
og börn atvinnulausra fari líka síð-
ur en svo varhluta af afleiðingum
atvinnuleysis.
Ólafur segir niðurstöður margra
rannsókna hafa sýnt það að at-
vinnulausum og þeim, sem eiga yf-
ir höfði sér atvinnuleysi, sé mun
hættara við háþrýstingi en þeim
sem ekki eiga slíkt yfir höfði sér.
Jafnframt hækki blóðfita og
streituhormón (adrenalín) í blóði
og þvagútskilnaði. Viðvarandi
hækkun á streituhormón hafi
fundist í allt að tvö ár eftir að við-
komandi missti vinnu. En eftir að
fólk hóf störf á ný, hafi blóðþrýst-
ingur lækkað og sömuleiðis magn
streituhormóna í blóði.
„Svo virðist sem stjórnendum
sem standa að fjöldauppsögnum,
oft að nauðsynjalausu, séu ekki
Ijósar þessar afleiðingar," segir Ól-
afur.
Streitu fylgja ýmsir sjúkdómar,
sem m.a. hefur verið staðfest í ís-
lenskum rannsóknum. Af þeim
helstu eru nefndir: Hjartasjúk-
dómar, háþrýstingur/heilablóðfall,
magasár/magabólgur, vöðva- og
bakverkir, þreyta, svefnleysi, höf-
uðverkur og geðtruflanir.
Landlæknir segir niðurstöður
margra kannana hafa leitt í ljós að
sjúkrahúsvistun vegna þunglynd-
is, kvíða, sjálfsmorðstilrauna og
annarra sjúkdóma fjölgi mikið
meðal atvinnulausra, borið saman
við þá sem hafa vinnu, þótt orsaka-
samband hafi ekki verið sannað.
í bresku læknisfræðitímariti hafa
insokna, sem sýna hvernig áður
atvinnuleysi eða yfirvofandi at-
að skýra með áhrifum annarra líf-,
félags- eða heilsufræðilegra þátta.
Enn vitnar landlæknir til breskr-
ar rannsóknar, sem leiddi í ljós, að
samfara hættu á atvinnuleysi með-
al hafnarverkamanna jókst einnig
magn kólesteróls í blóði miðaldra
karla í samanburði við þá sem
höfðu örugga vinnu. Sérstaklega
hafi þessa gætt meðal þeirra sem
þjáðust af svefnleysi. Þessar niður-
stöður geti skýrt aukna dánartíðni
vegna hjarta- og æðasjúkdóma
meðal atvinnulausra.
Ólafur segir því oft haldið fram að
einungis „minni máttar" og þeir,
sem ekki ganga heilir til skógar,
verði atvinnuleysi að bráð og
heilsuleysi sé þess vegna ekki bein
afleiðing atvinnuleysis. Hann telur
framangreindar athuganir hins
vegar renna styrkum stoðum und-
ir þá staðreynd að atvinnuleysi
fylgi vanheilsa, en ekki einungis að
þeir veiku verði atvinnuleysi að
bráð.
„Fólk fer illa út úr því að geta
ekki haft áhrif á gang eigin mála,
þ.e. að komast í vonlitla aðstöðu
eða sjálfheldu. Það hefur ill áhrif á
andlega líðan og heimilislíf," segir
landlæknir. Það sé mikið áfall að
geta ekki séð fjölskyldu sinni
sæmilega farborða. Fólk einangr-
ist, tengsl við vinnufélaga rofni og
það finni fyrir óöryggi, skömm,
vanmætti, firringu og árásargirni.
Þessar kenndir valdi t.d. óbeint
aukinni tóbaks- og áfengisneyslu.
Ástandið komi einnig niður á
börnum atvinnuleysingja. Það Iýsi
sér m.a. í óöryggi og taugaveiklun,
sem aftur komi niður á námi og
daglegri líðan. Þessi börn vistist
mun oftar á sjúkrahúsi, lendi
fremur í atvinnuleysi síðar á æv-
inni, sé hættara við að tapa áttum,
neyta fremur vímuefna og lenda
frekar í vandræðum, m.a. við lög-
reglu, síðar meir.
„I fámennu þjóðfélagi líkt og á ís-
landi, þar sem „allir þekkja alla“,
markar þessi líðan lfklega dýpri
spor í sálarlíf fólks en ella. Trúlega
reynist stjórnendum erfiðara að
segja upp fólki vegna þessa og er
það af hinu góða,“ segir Ólafur ÓI-
afsson. - HEI
nýlega komið fram heimildir fyrir
því, að mikla aukningu, sem varð á
heilablæðingum á 32 heilsugæslu-
stöðvum í London á árunum 1971-
1981, megi tengja miklu atvinnu-
leysi. Tíðni heilablæðinga jókst
um 0,05/1000 íbúa fyrir hvert pró-
sentustig, sem atvinnuleysi jókst.
(Samsvarar því t.d. að 2% aukning
atvinnuleysis mundi fjölga heila-
blæðingatilfellum um 26 hér á
landi).
Um rannsókn á dánartíðni 30-54
ára launþega í Finnlandi 1980 var
einnig nýlega grein í sama læknis-
fræðitímariti. Hún leiddi í ljós
verulega aukna dánartíðni (vegna
hjarta-/æða- og öndunarfærasjúk-
dóma, sjálfsmorða og slysa) meðal
atvinnulausra, sem ekki var hægt
Námskeið í landbúnaði
að Skriðuklaustri?
Uppi eru hugmyndir um aft koma á fót Þróunardeild í rannsóknum og leið-
beiningum á Austurlandi að Skriðuklaustri í Fljótsdal. Landbúnaðarráðu-
neytið hefur tekið jákvætt í málið og hefur því verið vísað til Búnaðarþings.
Sveitarstjóm Fljótsdalshrepps hefur nú boðist til að byggja íbúðarhúsnæði
fyrir staðarhaldara, ef samþykkt verður að stofna Þróunardeildina.
Lengi hefur verið unnið að því að klaustri verði föst búseta og lifandi
uppfylla óskir skáldhjónanna Gunn-
ars og Franziscu Gunnarssonar um
framtíðarhlutverk Skriðuklausturs.
Markmiðið hefur verið að á Skriðu-
starfsemi. Verið er að vinna að því
að útbúa þar gestaíbúð fyrir fræði-
og listamenn. Þar er öflugt bóka-
safn, sem að stofni til er gjöf Páls
Norrænir utanríkisviðsklptaráðherrar á fundi í Helsinki:
GATT þarf ekki að vera strand
Utanríkisviðskiptaráðherrar
Finnlands, íslands, Noregs og
Svíþjóðar rsddu á sameiginleg-
am frrndi í gær um stöðuna í
GATT-viðræðunum. Fundurinn
fór fram í Heisinfá og það var ut-
anríkisviðskiptaráöherra Finn-
iands, Pertti Salolainen, sem
stýrðl honum.
Fram kom á þessum fundi að
Norðurlöndin eru fús til að beita
sér fyrir því að finna lcið í GATT-
viðneöunum, sem tryggi að
ósamkomuiag á nokkrum sviðum
viöræðnanna verði eldd til þess að
koma i veg fyrir framgang þeirra
á öðrum sviðum. Ráðherrarnir
lögðu á það áhersiu að þau mál,
sem enn bíða úrlausnar, þyrftu
ekki að koma í veg fyrir að við-
ræðunum mætti ljúka á næstunni
með góðum árangrí. Þeir voru
sammála um að slík niðurstaða
myndi hleypa nýju lífi í miUiríkja-
viöskipti og glæða þannig bag-
vöxt í heiminum.
Auk finnska utanríkisviðskipta-
ráðherrans sátu fundinn Jón Sig-
urðsson, Bjern Tore Godal og Ulf
Dinkelspiel.
Pálssonar frá Aðalbóli. Verið er að
koma upp svokallaðri Gunnarsdeild
um verk og starf Gunnars Gunnars-
sonar. Þá hafa verið uppi hugmynd-
ir um að á Skriðuklaustri verði 1-2
sumarhús á vegum Stéttarsam-
bands bænda.
Fyrirhugað er að Þróunardeild,
sem staðsett verði á Skriðuklaustri,
standi fyrir námskeiðum um marg-
vísleg efni, bæði bóklegum og verk-
legum, sem tengjast landbúnaði og
fleiri viðfangsefnum í dreifbýli.
Skólastjórar bændaskólanna á
Hólum og að Hvanneyri og Garð-
yrkjuskólans á Reykjum, auk for-
stöðumanna annarra stofnana land-
búnaðarins, hafa gefið fyrirheit um
að standa að námskeiðum á vegum
sinna stofnana. Gert er ráð fyrir að
námskeiðin verði haldin í samvinnu
við Búnaðarsamband Austurlands.
Miðað er við að námskeiðin hefjist í
apríl og standi fram eftir sumri.
Stofnun Þróunardeildar á Skriðu-
klaustri er háð því að Framleiðni-
sjóður landbúnaðarins veiti fé til
verkefnisins. -EÓ