Tíminn - 06.03.1992, Side 6
6 Tíminn
Föstudagur6. mars 1992
Tímamótasamning^ir UMFÍ, Apple-umboðsins og Manna og músa hf.:
UMFI tölvuvæðist
Ungmennafélag íslands, Apple-
umboðið og fyrirtækið Menn og mýs
hf. hafa undirritað tímamótasamn-
ing um tölvuvæðingu innan ung-
mennafélagshreyfingarinnar. Samn-
ingurinn er byggður á vinnu sér-
stakrar tölvunefndar, sem undanfar-
ið eitt og hálfa árið hefur unnið að
þarfagreiningu varðandi tölvumál
hreyfingarinnar. Komst nefndin að
þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt sé
að búa til sameiginlegt hugbúnaðar-
kerfi fyrir öll ungmenna- og íþrótta-
félög innan UMFÍ. Samningurinn
gerir aðildarfélögum UMFÍ það kleift
að kaupa búnað frá Apple-umboðinu
á sérstökum kjörum, og geta þeir þá
eignast fullkomið félagaforrit, ásamt
hugbúnaði fyrir fþróttamót, keppnir
og afrekaskrár frá Mönnum og mú-
sum hf.
Gert er ráð fyrir að hugbúnaðurinn
verði tilbúinn til notkunar í maí
næstkomandi og búist er við því að
innan tveggja ára muni allt að 200
félög verða orðin notendur. -PS
Hér undirrita Grímur Laxdal, forstjóri Apple-umboösins, til hægri,
og Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ, til vinstri, samninginn um
tölvuvæðingu ungmennafélagshreyfingarinnar.
Enska knattspyrnan:
Nott Forest þrí-
vegis á Wembley?
Að komast með lið sitt á Wembley
er draumur allra framkvæmdastjóra
knattspymufélaga í Englandi, en
Brian Clough, sem nú þegar hefur
tryggt sér tvo leiki á Wembley í vor,
verður ekki ánægður héðan af nema
leikimir verði þrír.
Þessi litríki framkvæmdastjóri, sem
hefur stjómað Nottingham Forest
Körfuknattleikur:
NBA-úrslit
Úrslit leikja í NBA-deildinni í körfu-
knattleik, sem fram fóru á miðviku-
dag, voru eftirfarandi:
Boston-Orlando Magic...125-100
Detroit-Indiana Pacers.110-107. Frl.
76ers-Atlanta Hawks....107-102
Cha. Homets-Milwaukee ...119-110
Portland-Denver......129-100
Utah-San Antonio Spurs ...102- 93
LA Lakers-New Jersey.101- 92
Cleveland-Sacramento...109-108
frá því elstu menn muna, hefur unn-
ið allt á ferli sínum nema enska bik-
arinn. Möguleika á að komast í úrslit
enska bikarsins á Wembley og það
rætist að leikir Nott. Forest verði
þrír á Wembley í ár, því liðið á að
leika í átta liða úrslitum á laugardag
gegn 2. deildarliði Portsmouth og
verða Clough- drengirnir að teljast
sigurstranglegri.
Liðið hefur þegar tryggt sig í úrslit
í enska deildarbikarnum og í úrslit
annarrar keppni, en úrslitaleikur
þeirrar keppni fer einnig fram á
Wembley. Úrslit enska bikarsins er
stóri draumurinn hjá Clough þessa
dagana, en í fyrra lék Nott. Forest til
úrslita gegn Tottenham, en beið þá
lægri hlut. „Það er frábær tilfinning
að vera á leið aftur á Wembley. Við
þekkjum dyraverðina, afgreiðslu-
fólkið og við kunnum vel við bún-
ingsherbergin," sagði Clough, þegar
Iið hans hafði tryggt sig í úrslit
deildarbikarsins.
En kálið er ekki sopið, þó í ausuna
sé komið. Portsmouth gæti reynst
Nott. Forest erfiður ljár í þúfu, því
gengi liðsins hefur ekki verið upp á
það allra besta í 1. deildinni. Forest
skoraði ekki mark gegn Crystal Pal-
ace á þriðjudag, og er það í fyrsta
sinn sem það gerist í 17 Ieikjum.
Á meðan Clough lætur sig dreyma
um sinn sjöunda úrslitaleik á Wem-
bley á fjórum árum, vonast Ieik-
menn Norwich eftir að þeim takist
að vinna enska bikarinn í fyrsta
skiptið, en liðið leikur gegn Sout-
hampton í átta liða úrslitum. Þá
leika saman Liverpool og Aston Villa
á sunnudag og Sunderland og
Chelsea.
Leeds United fær tækifæri til að
skjótast á toppinn á laugardag, en
liðið misnotaði tækifærið þegar það
gerði jafntefli við Aston Villa á
þriðjudag. Leeds leikur við Guðna
Bergsson og félaga hjá Tottenham,
en Manchester United situr hjá
vegna þess að liðið leikur í undanúr-
slitum deildarbikarsins á miðviku-
dag.
-PS/Reuter
BAKÚ, Azerbajdsjan — Þúsundir Azera hópuðust saman fýrir framan
þinghúsið I Bakú til að krefjast afsagnar Ayaz Mutalibov forseta, vegna
þess að mannfjöldinn telur hann ekki hafa gert nóg til þess að verja þjóð
sína fyrir árásum Armena. Mótmælin koma í kjölfar drápa á azersku flótta-
fólki, sem reyndi að flýja armenska skæruliða.
JERÚSALEM — Yitzhak Shamir, forsætisráöherra fsrael, hafnaði I gær
tillögu Sýriendinga um að fresta frekari viðraeðum um frið í Mið- Austur-
löndum fram yfir kosningarnar sem halda á þann 23. júní nk. Ástæðan er
talin sú að Shamir vill sýna kjósendum (Israel að hann er ákveðinn í að
reyna þátttöku í friðaráætluninni til þrautar.
KOZLU, Tyrklandi — I gær kom á ný upp magnaður eldur f kolanám-
unni þar sem slys varð fyrr I vikunni. Eldurinn hefur neytt björgunarmenn til
að snúa til baka og fresta um sinn leit sinni að um 150 námuverkamönn-
um, sem enn er saknað (námunni, en nú þegar hafa lík 122 manna fund-
ist.
SARAJEVO, Júgóslavíu — Sériegur sendimaður Sameinuðu þjóö-
anna, Cyrus Vance, hvatti leiðtoga stríðandi hópa í Bosníu til að sýna still-
ingu og gera hvað þeir gætu til að afstýra allsherjar blóðbaði og skálmöld í
héraðinu.
LADYSMITH, S-Afríku — F.W. de Klerk höfðaði til enskumælandi Suð-
ur- Afríkumanna um stuðning við umbótaáætlun sína, sem felur í sér að
komið verði á fót ríkisstjórn með aðild fulltrúa ólíkra kynþátta fyrir árslok.
De Klerk, sem í gær var á kosningaferðalagi að berjast fyrir stuðningi við
stefnu sína í allsherjaratkvæðagreiðslu sem fram á að fara meðal hvítra
manna í landinu þann 17. mars, sakaði hægrimenn um kynþáttahatur.
BONN — Háttsettur rússneskur embættismaður lofaði því f Bonn í gær
að Erich Honecker yrði framseldur þýskum yfirvöldum, eftir að í Ijós hafði
komið að þessi fyrrum leiðtogi Austur-Þýskalands hafði gert sér upp veik-
indi þar sem hann er nú í felum í sendiráði Chile í Moskvu. Að sögn emb-
ættismannsins er nú verið að leita leiða til að koma höndum yfir Honecker,
sem þýskir Ijölmiðlar kölluðu í gær fjöldamorðinga og illmenni.
GENF — Það gæti dregist fram á næsta ár að halda áfram samningavið-
ræðum um GATT, sem nú eru svo gott sem strandaðar, segja samninga-
menn í Genf. Bæði samningamenn og aðrir embættismenn tengdir við-
ræðunum voru þó sammála um það í gær að ef einhver frekari dráttur en
það yrði á því að samkomulag tækist, myndi það stefna samningunum f
heild í algera tvísýnu.
Formaður Nýdemókrata í Svíþjóð skipar þingmanni að halda
sér saman. John Bouvin finnst fé í þróunarhjálp illa varið:
Var betra þegar
Ijón átu bömin?
„Það var betra hér áður fyrr þegar
fólkið dó úr sjúkdómum og ljónin
átu bömin í Afríku." Sá, sem lét
þessi orð falla, er sænski þingmað-
urinn John Bouvin og vildi hann
með þessu móti láta í Ijós skoðun
sína á sænskri þróunaraðstoð.
John Bouvin settist á sænska þing-
ið sl. haust fyrir þá nýstofnaðan
hægri flokk, Nýdemókrata. Flokkur
þessi fékk rúmlega 6% atkvæða í síð-
ustu kosningum, en hefur síðan
aukið fylgi sitt um 2% samkv. skoð-
anakönnunum.
Stefnuskrá flokksins gengur út á
lækkaða skatta, samdrátt hjá hinu
opinbera, ódýrara brennivín og færri
innflytjendur. Sumir vilja þó meira
en aðrir, og þeirra á meðal er John
Bouvin, sem vill hreinar línur í pól-
itíkinni. Hann vill meðal annars taka
upp dauðadóma á ný í Svíþjóð og tel-
ur að landinu verði ekki svo vel sé
stjórnað með lýðræði. Til þess þurfi
einræði.
Nú hefur formaður Nýdemókrata,
greifinn Jan Wachtmeister, bannað
Bouvin að tala opinberlega nema
með leyfi og eftir ritskoðun flokks-
forystunnar. Vart hafði flokksfor-
maðurinn gefið þessi fyrirmæli, þeg-
ar upp komst að Bouvin hafði lánað
skrifstofú sína í sænska þinginu ein-
um viðskiptafélaga sínum. Sá hafði
síðan bæði notað síma og bréfsefni
þingsins í þágu sameiginlegra við-
skipta þeirra félaganna mánuðum
saman.
Skrifstofustjóri þingsins fann að
þessu við Bouvin, sem brást hinn
versti við og sagði skrifstofustjóran-
um að fara til helvítis. Nú er beðið
eftir viðbrögðum Wachtmeisters
flokksformanns. —I.VJ., Svíþjóð
MERKIÐ VIÐ 13 LEIKI 7. mars 1992 Viltu gera uppkastað þinni spá?
1. Everton - Oldham □ SS[2]
2. Luton Town - C. Palace y mmíTi
3. Q.P.R. - Manch. Citv Q mmm □ mmm
4. Sheff. Wed. - Coventry City
05. Tottenham - Leeds United u mmm
6. Wimbledon - Notts County Bmsm
7. Bristol Rovers - Blackburn Hmmm
8. Charlton - Millwall Hmmm
9. Grimsby Town - Barnsley ammm
10. Newcastle - Brighton □ mr x im
11. Oxford United - Swindon Town Q I 1 II x |f2l
12. Plymouth - Derby County e 11 ii x im
13. Wolves - Bristol City œmmm
FJÖLMIÐLASPÁ
Z Z S Q. OC < 4 z s 3
S 1 2 5 | I | FM95.7 SAMTALS
s * *- O s 1 á I 3 1 xl 2
11 1 X 1 1 1 1 1 1 1 9 1 0
2 2 2 2 2 X 1 2 X X 1 2 3 5
3 X X X 1 2 1 2 2 2 2 2 3 5
4 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
5 1 X 2 2 2 2 X X 2 2 1 3 6
6 1 1 1 1 1 X 1 1 1 1 9 1 0
7 2 2 2 2 2 X 2 2 X X 0 3 7
8 X 1 1 1 X 1 1 1 X 1 7 3 0
9 X 1 X 1 1 1 1 X 1 X 6 4 0
10 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
11 1 2 2 2 2 2 2 2 2 1 2 0 8
12 1 2 X 2 1 2 2 2 2 2 2 1 7
13 1 1 1 1 X 1 1 1 1 1 9 1 0
STAÐAN í 1. DEILD
Manchester Utd. 30 17 11 2 51-22 62
Leeds ...31 16 13 2 55-24 61
Manchester City .31 15 8 8 45-35 53
Sheffield Wed. ...30 15 8 7 49-41 53
Liverpool ...30 12 13 5 35-27 49
Arsenal ...30 11 11 8 51-35 44
Aston Villa .. 31 12 6 13 35-35 42
Chelsea ...31 10 11 10 40-45 41
Everton ...30 10 10 10 39-34 40
Norwich ...30 10 10 10 40-41 40
Crystal Palace . ...30 10 10 10 42-51 40
Wimbledon ..30 9 11 10 36-36 38
Oldham ...31 10 7 14 45-50 37
QPR ..31 7 15 9 30-36 36
Tottenham ..28 10 5 13 36-36 35
Nottingham For. 27 9 7 1142-42 34
Coventry ...29 9 7 13 28-29 34
Sheffield Utd. ...30 9 7 14 44-50 34
Notts County .. ...29 7 8 14 30-40 29
Luton ...31 7 8 16 25-55 29
West Ham ...28 6 9 13 26-42 27
Southampton ...29 5 10 14 27-45 25
STAÐANí 2 . DEILD
Blackbum .33 18 8 7 53-31 62
Ipswich .32 17 8 7 51-35 59
Cambridge ...33 16 10 7 49-31 58
Southend .34 15 81149-4153
Middlesbro ..30 15 7 8 37-28 52
Leicester .32 15 6 11 42-39 51
Derby ..32 15 6 11 42-33 51
Portsmouth .... ...32 14 8 10 43-34 50
Swindon ...32 13 10 9 52-39 49
Charlton ..33 14 7 12 40-38 49
Millwall ..33 13 7 13 52-52 46
Wolves ...31 12 7 12 41-36 43
Sunderland ..33 12 7 14 47-46 43
Bamsley ...34 20 8 15 36-44 41
Bristol Rovers ...34 10 10 14 41-54 40
Tranmere ...30 8 15 7 32-33 39
Grimsby ...31 10 9 12 37-46 39
Watford ...32 10 7 15 34-39 37
Newcastle ...34 8 12 14 49-63 36
Bristol City ...32 8 11 13 34-50 35
Plymouth ..32 9 7 16 32-48 34
Port Vale ...34 7 13 14 32-44 34
Oxford ...33 9 6 18 47-54 33
Brighton 34 8 9 17 44-55 33