Tíminn - 01.04.1992, Qupperneq 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
HEIÐI
BILAPARTASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrífs
HEIÐI ■ BÍLAPARTASALA
Flugumýri 18D • Mosfellsbae
Sfmar 668138 6 667387
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Öðruvísi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
HTNO HJÁ OKKUR ■ BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
ful \ iiC«®briel VéC" HÖGG- DEYFAR 1 Verslió hjá fagmönnum
m c
J varahlutir
WL Hamarsböfóa 1 - s. 67-6744 ]
Tímiiin
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992
Uttekt á áhrifum samningsdraga Dunkels sýnir að stjórnvöld hafa svigrúm til þess að koma í
veg fyrir að röskun af þeirra völdum verði meiri en nemur áhrifum búvörusamningsins:
GATT-boltinn er í höndum
Halldórs og stjórnvalda
Samkvæmt áfangaskýrslu um áhrif hugsanlegs GATT-samkomu-
lags á landbúnaðinn og þjóðarbúið, þurfa samningsdögin eins og
þau eru lögð fyrir ekki að fela í sér röskun í landbúnaði fram yfir
þá sem hvort sem er verður með búvörusamningunum. Þetta
stafar af því að stefnt er að meiri raunlækkun á verði landbúnað-
arvara í búvörusamningnum en GATT-drögin leiða af sér.
Verði ísland aðili að GATT er það lýtur að sauðfjárframleiðslunni gerir
þannig í höndum ríkisstjómarinnar
og landbúnaðarráðherra, Halldórs
Blöndal, hverjar afeiðingar samning-
anna verða fyrir landbúnaðinn og
neytendur. Þetta er ályktað út frá
þeim forsendum að markmið búvöm-
samningsins um lækkun raunverðs á
sauðfjárafurðum náist og svipuð
markmið náist varðandi aðrar búvör-
ur. Sá hluti búvömsamningsins sem
ráð fyrir að raunverð afúrða lækki um
rúmiega 20% á fimm ámm.
Áfangaskýrslan um GATT var kynnt
opinberlega í gær, en hún er unnin af
þriggja manna nefnd, sem landbún-
aðarráherra skipaði í desember síðast-
liðnum. Formaður nefndarinnar er
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar, en auk hans sitja í
nefhdinni Magnús B. Jónsson, for-
stöðumaður Hagþjónustu landbún-
aðarins, og Ketill A. Hannesson, hag-
fræðiráðunautur hjá Búnaðarfélagi
íslands. Ketill skrifaði undir áfanga-
skýrsluna með fyrirvara, þar sem
hann telur að skerðing á innanlands-
stuðningi samkvæmt hugsanlegum
GATT-samningi verði meiri en stjóm-
völd gefa fyrirheit um í búvörusamn-
ingnum.
Nefndin tekur á áhrifum GATT- sam-
komulagsins eins og það var kynnt ís-
lenskum stjómvöldum, þ.e.a.s. tilboði
Dunkels, sem íslensk stjómvöld hafa
þegar sett fram ákveðna fyrirvara við.
Gert er ráð fyrir að breytingamar, sem
samningsdrögin fela í sér, verði í
þremur þrepum á aðlögunartíma frá
mmmmmmm^tmmmmmm
1993 til 1999. Á þessu tímabili eiga
svokölluð tollaígildi innfluttra land-
búnaðarvara, þ.e. mismunur á heild-
söluverði vöm innanlands og cif-
heimsmarkaðsverði, að lækka um
36% að meðaltali. Við skoðun Þjóð-
hagsstofnunar kom í Ijós að verulegt
svigrúm er fyrir „yfirtollun“ á inn-
fluttum vömm, sem gerir þær að
mestu ósamkeppnishæfar við inn-
lenda framleiðslu. Þetta er m.a. hægt
með því að Iækka tolla á vömm sem
GATT-drögin ná til og em ekki fram-
leiddar hér á landi. Þjóðhagsstofnun
reiknaðist það til að hér væri nógu
mikið af slíkum tollum til þess að
meðaltalslækkunin yrði 36%, en þó
þannig að enginn tollur á vöm, sem
ii 11 i'mnawM——
framleidd er hér innanlands lækkaði
um meira en 15%.
Gunnlaugur Júlíusson, hagffæðing-
ur, hjá Stéttarsambandi bænda, segir
að þessi niðurstaða komi talsmönn-
um bænda ekki á óvart Hver áhrif
hugsanlegs GATT- samnings verði
velti á því hvað stjómvöld geri og þess
vegna sé full ástæða fyrir bændur að
vera á varðbergi.
„Skýrsluhöfundar hafa tekið þann
pól í hæðina að gera ráð fyrir að
stjómvöld nýti þá möguleika sem fyr-
ir hendi em, Ld. að skapa svigrúm fyr-
ir yfirtollun,“ sagði Gunnlaugur. „Það
er möguleiki á þessum hlutum. Verð-
ur hann nýttur? Það er spumingin."
-ÁG.
Mat forseta ASÍ á því sem atvinnurekendur vildu bjóða:
Obreyttur kaup-
máttur í boði
Samkvæmt nýju fréttabréfi ASÍ lagði forseti ASí mat sitt á það, áð-
ur en viðræðuslit urðu í samningum, hversu langt atvinnurekendur
myndu lengst vilja ganga, og var þetta mat sent atvinnurekendum til
að fá úr því skorið hvort rétt væri metin þeirra afstaða. í fréttabréfi
ASÍ segir að þetta mat hafi atvinnurekendur ekki fengist til að stað-
festa með tilboði og að frést hafi af ágreiningi í þeirra hópi. Þetta
stöðumat forseta ASÍ þótti launþegum ekki vera tilefni áframhald-
andi viðræðna.
Samkvæmt mati forseta ASÍ var
heildarniðurstaðan sú að kaup-
mátturinn myndi að meðaltali
haldast óbreyttur innan ASÍ á
samningstímabilinu, raunar hækka
um 0,4%. Kaupmáttarþróunin
hefði hins vegar orðið mjög mis-
munandi eftir tekjuhópum. Kaup-
Fjórir nýir
sýslumenn
Forseti íslands skipaði í gær
þrjá sýslumenn frá 1. júlí nk.
Þeir eru Guðmundur Sophus-
son, aðalfulltrúi bæjarfógeta í
Hafnarfirði, sem verður sýslu-
maður í Hafnarfirði, Þorleifur
Pálsson, skrifstofustjóri í dóms-
málaráðuneytinu, sem verður
sýslumaður í Kópavogi og Ólafur
K. Ólafsson, bæjarfógeti í Nes-
kaupstað, sem verður sýslumað-
ur í Stykkishólmi.
Þá hefur forseti íslands áður
skipað Jón Skaptason, yfirborg-
arfógeta í Reykjavík, til að gegna
embætti sýslumanns í Reykjavík
frá sama tíma. —sá
máttur þeirra sem eru með tekjur
undir 80 þús. kr. á mánuði hefði að
meðaltali aukist um 1,8%, sem
hefði þýtt að þeir hefðu endurheimt
þann kaupmátt sem var í ágúst
1991. M.ö.o. þeir hefðu náð svipaðri
stöðu og var þegar þjóðarsáttin
rann út eða aðeins rúmlega það.
Þeir sem höfðu allra lægstu tekj-
urnar, eða undir 60 þús. kr., hefðu
hins vegar náð þeirri kaupmáttar-
stöðu sem var í júní 1991, en þá var
kaupmáttur einna mestur á þjóðar-
sáttartímabilinu.
Forsendurnar sem gert var ráð fyr-
ir í þessu mati voru þær að gengi
yrði óbreytt á samningstímanum,
vextir á ríkisskuldabréfum yrðu
lækkaðir í stórum skrefum. Þá eru í
gangi viðræður við bændur um
þróun búvöruverðs og það ásamt
því að verðbólgan yrði innan við 2%
frá upphafi til loka ársins gaf mögu-
leika á að semja um áðurnefnda
kaupmáttarniðurstöðu.
Þetta stöðumat forseta ASÍ var lagt
fyrir stóru samninganefndir ASÍ,
BSRB og KÍ. í fréttabréfi ASÍ segir
að fljótt hafi komið í ljós að þetta
var ekki eina stöðumatið sem var í
gangi auk þess sem ekki náðist
samstaða um viðræður á þessum
grundvelli og að þær hafi því ekki
getað haldið áfram.
Síðasta redding fyrir refabúin?
Tillögur nefndar um úrbætur í
loðdýrarækt eru nú til umfjöllunar
innan stjórnarflokanna. Þær gera
m.a. ráð fyrir ríkissjóður taki á sig
260 til 300 milljón króna skuld
loðdýrabænda hjá Ríkisábirgða-
sjóði gegn því að Stofnlánadeild
landbúnaðarins afskrifi a.m.k. jafn-
háa upphæð.
Verði farið eftir tillögum nefndar-
innar á rekstrarstaða loðdýrabúa
að jafnaði að vera þannig að grein-
in standi undir sér. Þetta á sér í lagi
við refarækt þar sem verð skinna
hefur hækkað og á yfirstandandi
söluári er spáð 100% sölu og
hækkandi verði. Spáð er a.m.k.
sambærilegri sölu minnkaskinna
og á síðasta ári, en skiptar skoðan-
ir eru um hvort verð hækki eða
standi í stað.
-ÁG.
Nýir dómarar
Dómsmálaráðherra hefur skipað
eftirfarandi menn til að gegna
embættum í dómskerfmu þegar
nýtt fyrirkomulag þess tekur gildi
1. júlí nk:
Frey Ófeigsson héraðsdómara í
embætti dómstjóra héraðsdóms
Norðurlands eystra til sex ára frá
og með 1. júlí nk., Jónas Jó-
hannsson héraðsdómara við hér-
aðsdóm Vestfjarða frá 1. des.
1992, Ólaf BÖrk Þorvaldsson
héraðsdómara við héraðsdóm
Austurlands frá 1. júh' 1992 og
Ólaf Ólafsson héraðsdómara við
héraðsdóm Norðurlands eystra
frá 1. júh' 1992.