Tíminn - 07.04.1992, Qupperneq 2
2 Ttminn
Þriðjudagur 7. apríl 1992
Einkastrætóinn
í Austurbænum:
LeiðA
leggst af
á fimmtudag
Þessar ungu bailerín-
ur voru um helgina að
Ijúka fyrsta ári sínu í Bail-
ettskóla Sigriðar Ármann
í fteykjavík. Þær tóku sig
vel út á sviði Borgarieik-
hússins á sunnudaginn,
þegar lokasýning nem-
enda fór þar fram. Dans-
atriðið, sem sést á þess-
ari mynd, heitir „Ball-
ettskórnir mfnir“.
Tfmamynd: Aml BJama
Næstkomandi fímmtudag verður
tilraunaakstri með litlum strætis-
vagni í gamla Austurfaænum hætt
og svonefnd leið A lögð niður.
Tilraunin hefur nú staðið í hálft ár
og í tilkynningu frá SVR segir að far-
þegar hafi að jafnaði verið einn til
tveir í hverri ferð. Þörfin fyrir þjón-
ustu þessa hafi því reynst miklu
minni en reiknað hafði verið með.
Það er einkaaðili, sem hefur annast
þennan akstur eftir að útboð á veg-
um SVR hafði farið fram. Kostnaður
samkvæmt útboðinu átti að vera um
1,9 millj. kr. á tímabilinu sem hófst
10. okt. sl. Hins vegar hafa fargjalda-
tekjur á móti orðið sáralitlar og að-
eins lítið brot af kostnaðinum. Því
neyðist SVR til að hætta þessum
akstri, eins og segir í fréttatilkynn-
ingunni. —sá
UNNIÐ AÐ VIÐHALDI
Á ÞJÓÐMINJASAFNINU
Þjóðminjasafn íslands verður lokað
dagana 6.-10 apríl nk., vegna lagfær-
inga í forsal safnsins. Þar er verið að
mála loft og endurnýja raflagnir.
Safnið verður síðan opnað aftur al-
menningi laugardaginn 11. apríl og
þann dag verður opnuð sýning í
Bogasalnum á skrúða, áhöldum og
gripum frá Skálholti. Um er að ræða
gripi úr vörslu safnsins, bæði kirkju-
gripi s.s. kaleikinn góða, gripi tengda
einstökum mönnum í Skálholti o.fl.
Síðast en ekki síst má nefna hið
merkilega altari úr kirkju Brynjólfs
Sveinssonar, sem fengið var að láni
fyrir sýninguna úr Skálholtskirkju.
Alþjóðlegur hjartadagur í dag er helgaður endurhæfingu. Kristján Benediktsson:
Endurhæfing hjarta-
sjúkra höfuðnauðsyn
„Það var stórt skref stigið fram á við, þegar farið var að gera hjarta-
skurðaðgerðir hér heima fyrir rúmum þrem árum síðan, en til þess
tíma fóru íslendingar einkum til London í slikar aðgerðir. Til þess
að sjálf aðgerðin beri varanlega góðan árangur er góð endurhæfing
höfuðnauðsyn,“ segir Kristján Benediktsson, félagi í Landssamtök-
um hjartasjúklinga.
í dag, 7. apríl, er alþjóðlegur hjarta-
dagur og Landssamtök hjartasjúk-
linga helga hann endurhæfingu.
Endurhæfingarstöð fýrir hjarta- og
lungnasjúklinga, HL-stöðin, var
stofnuð 1. apríl árið 1989. Hún er
sjálfseignarstofnun, sem komið var
á fót í sameiningu af Landssambandi
hjartasjúklinga, Hjartavernd og
SÍBS. Fulltrúar þessara samtaka
sitja í stjórn stöðvarinnar, en auk
þeirra sitja þar fulltrúar Ríkisspítala,
Listdansskólinn í
Þjóðleikhúsinu:
Aukasýning
í kvöld
Vegna mikillar aðsóknar veröur
aukasýning í kvöld í Þjóðleikhúsinu
kl. 21 á nemendasýningu Listdans-
skólans. í skólanum eru um 870
nemendur á aldrinum 9 til 20 ára,
og taka flestir þeirra þátt í sýning-
unni. Sýningin er 15 stutt atriði,
klassískur listdans, nútímadans og
spuni, sem sýna vel getu nemend-
anna.
Verkin á sýningunni eru eftir kenn-
ara skólans, þau Ingibjörgu Björns-
dóttur, Margréti Gísladóttur, Nönnu
Ólafsdóttur, Árna Pétur Guðjónsson,
Sylvíu von Kospoth, Unni Guðjóns-
dóttur og Ivgeníu Gold. Ljósameist-
ari er Páll Ragnarsson og sýningar-
stjóri er Jóhanna Norðíjörð.
I fyrsta sinn um langan tíma er hóp-
ur drengja í Listdansskólanum, eða
alls 11, og því hægt að hafa sérstakan
karladanshóp. Á sýningunni dansar
hópurinn rússneskan dans sem sér-
staklega er saminn fyrir þá. —sá
Borgarspítala, Landakotsspítala og
Reykjalundar.
Þjálfunardagskrá sjúklinga í endur-
hæfingarstöðinni er í höfuðdráttum
í tvennu lagi, eftir því hvort um er
að ræða lungna- eða hjartasjúk-
linga. Lungnasjúklingar í endur-
hæfingu eru nú um 70 talsins og
skiptast í þrjá hópa, sem hver um sig
mætir þrisvar í viku.
Hjartasjúklingar eru þjálfaðir með
tvennum hætti: Annars vegar fer
fram frumþjálfun, en hins vegar við-
haldsþjálfun. Frumþjálfunin er ætl-
uð þeim, sem nýiega hafa gengist
undir skurðaðgerð eftir hjartaáfall.
Þrek og ástand hvers einstaklings er
sérstaklega metið af læknum og
sjúkraþjálfurum og mjög vel fylgst
með öllum breytingum og framför-
um.
Kristján hefur gengist undir
hjartaaðgerð og lokið frumþjálfun
og stundar nú viðhaldsþjálfun. „Ég
hef náð upp jafn miklu þreki og vel-
líðan eins og ég bjó við löngu áður
en ég fór að finna fyrir þrengslum í
kransæðum," segir hann.
Kristján Benediktsson.
Tryggingastofnun greiðir kostnað
við frumþjálfun þeirra, sem gengist
hafa undir hjartaaðgerð á sama hátt
og hún greiðir fyrir sjálfa aðgerðina.
Að sögn Kristjáns teldist það vart
skynsamlegt að eyða stórfé í aðgerð-
ina sjálfa, en gera síðan ekkert til
þess að árangurinn verði sem allra
bestur og sjúklingurinn geti á ný
orðið nýtur þjóðfélagsþegn. Fram-
haldsþjálfun verða sjúklingar hins
vegar að standa straum af sjálfir.
Kostnaði við hana er þó haldið í lág-
marki og í HL-stöðinni kostar tími í
framhaldsþjálfun um 500 kr.
— En hvernig finna menn að
kransæðar þeirra eru að þrengjast?
Kristján, sem er gamall íþrótta-
maður og íþróttakennari, hefiir alla
tíð verið í ágætri þjálfun. Hann
kveðst hafa fundið fyrir sjúkdómn-
um þannig að hann varð óeðlilega
mæðinn. „Mér datt aldrei í hug að
ég ætti eftir að fara í hjartaaðgerð og
enginn í minni ætt hefur kvartað
undan því að vera slæmur fyrir
hjarta. Mér hætti hins vegar að lítast
á blikuna, þegar ég þurfti að stansa í
miðju Bankastrætinu til þess að
kasta mæðinni. Ég fór því til hjarta-
sérfræðings, sem sagði mér að ég
væri kominn með þrengsli í krans-
æðarnar utan á hjartavöðvanum. Þá
fór ég í svonefnda þræðingu og þar
greindust þrengingar, en þó ekki svo
miklar að talin væri ástæða til að
skera mig upp.
Síðan liðu nokkrir mánuðir, en
ástandið versnaði, því við bættist að
ég byrjaði að fá verk út í handlegg.
Þá leitaði ég aftur til læknis og 15.
janúar 1990 gekkst ég undir aðgerð
á hjartadeild Landspítalans, sem
gekk mjög vei og ég útskrifaðist af
spítala eftir tíu daga. Skömmu síðar
hófst frumþjálfunin og síðar við-
haldsþjálfunin, sem ég stunda enn.
Og árangurinn er, eins og ég sagði
áður, sá, að þrek mitt og almenn líð-
an er eins og hún var löngu áður en
ég tók að finna fyrir sjúkdómnum,"
segir Kristján Benediktsson.
Krabbameinsfélag Reykjavík-
ur skorar á útgefendur:
Reykjandi
fólk burt
úr
Aðalfundur Krabbameinsfélags
Reykjavíkur, sem haldinn var
fyrir skömmu, sendi frá sér
ályktun þar sem heitið er á út-
gefendur og ljósmyndara blaða
og tímarita að forðast að birta
myndir af reykjandi fólki, ekki
síst ef um er að ræða áhrifamikl-
ar fyrirmyndir ungs fólks, s.s.
vinsæla tónlistarmenn, sýning-
arfólk og leikara. Sömu áskorun
er beint til allra þeirra, sem
framleiða efni til sýningar í sjón-
varpi og í kvikmyndahúsum.
„Fundurinn lýsir einnig þeirri
skoðun að reykingar á leiksviði
séu úrelt fyrirbæri og ekki leng-
ur verjandi, bæði vegna þess að
um er að ræða neyslu á hættu-
legu ávanaefni og vegna þess að
þær fara í bága við rétt meðleik-
ara og áhorfenda á reyklausu
andrúmslofti,“ segir í ályktun fé-
lagsins. Jafnframt samþykkti að-
alfundurinn ályktun þar sem
aukinni umræðu um stöðu og
réttindi barna er fagnað, og á
það er minnt að brýnt sé að verja
ungu kynslóðina fyrir hvers
kyns ávana- og fíkniefnum, og
áfengi og tóbak fylli flokk ólög-
legra fíkniefna þegar böm eiga í
hlut.
Á aðalfundinum var Jón Þor-
geir Hallgrímsson yfirlæknir
endurkjörinn formaður Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur.