Tíminn - 07.04.1992, Side 3
Þriðjudagur 7. apríl 1992
Tlminn 3
Steingrímur Hermannsson segir yfirlýsingu fgrsætisráðherra Noregs engu þurfa
að breyta um stefnu íslendinga:
Gróa vill aö Norö-
menn gangi í EB
Gro Harlem Brundtland, forsætísráðherra Noregs, lýsti því yfir á
fundi norska Verkamannaflokksins um helgina að hún teldi að
Norðmenn ættu að ganga í Evrópubandalagið. Steingrímur Her-
mannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir það eigi ekki að
hafa áhríf á afstöðu íslendinga þó að Norðmenn gangi í EB. Hann
segist hins vegar reikna með auknum þrýstingi hér á landi við að ís-
land geríst aðili að EB ef ekkert verði af evrópska efnahagssvæðinu
(EES).
Steingrímur segir að þróist mál á
þennan veg eigi fslendingar ekki að
ganga í EB heldur gera tvíhliða
samning við EB.
„Staða Norðmanna er allt önnur en
okkar. Þeir eru að sækjast eftir allt
öðrum hlutum en við með því að
ganga í EB. Þeir sækjast eftir því að
geta haft áhrif á framtíðarþróun EB,
utanríkisstefnu þeirra o.s.frv. Staða
norsk iðnaðar skiptir einnig máli í
þessu sambandi.
Ef við fáum samning um evrópskt
efnahagssvæði, eins og við lögðum
hann fyrir í síðustu ríkisstjóm, þá er
hann fullnægjandi fyrir okkur. Við
erum bara að sækjast eftir að ná við-
skiptasamningum við EB,“ sagði
Steingrímur.
Umræðan á íslandi um evrópska
samvinnu hefur verið að breytast
síðustu dagana. Steingrímur var
spurður hvort þróun mála í Noregi
muni breyta umræðunni hér heima.
Hann kvað það ekki eiga að vera.
„Ég hef það á tilfinningunni að ef
ekkert verður af evrópsku efnahags-
svæði þá kunni umræðan hér heima
að verða töluvert heit um þessi mál.
Ef ekkert verður af EES og Norð-
menn ganga í EB em þeir komnir
inn fyrir tollmúra EB en við ekki. Ef
EES verður að vemleika verður
staða íslensks og norsks sjávarút-
vegs svipuð.
Ef ekkert verður af EES á ég frem-
ur von á því að hér verði vaxandi
krafa um inngöngu okkar í EB. Að
mínu mati kæmi það ekki til greina
jafnvel þó svo færi. Við yrðum aldrei
í EB annað en Nýfundnaland er í
Kanada, eins og er ágætlega lýst í
Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins
um helgina."
Það hafa ýmsir bent á að EES sé
bara stundarfyrirbrigði þar sem flest
EFTA-löndin séu á leið inn í EB.
Kvennalistinn hefur m.a. oft bent á
þetta í sínum málflutningi um þessi
mál. Þetta var borið undir Stein-
grím.
„Ég hef ekki séð nein rök sem
sannfæra mig um það að EES-
samningurinn geti ekki orðið tví-
hliðasamningur okkar og EB ef hin
EFTA-löndin ganga í EB. Það er hins
vegar ljóst að það þyrfti að endur-
semja um stofnanir EES og um
stjórn svæðisins," sagði Steingrím-
ur.
Ekki náðist í Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra til að fá
viðbrögð hans við yfirlýsingu
Bmndtlands . -EÓ
Egils páska-
bjór er
oröinn klár
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefur
nú í annað sinn bruggað páskabjór
en erlendis er löng hefð fýrir slíku.
Páskabjórínn er millidökkur á lit og
bmggaður samkvæmt gömlu lög-
unum þýsku sem mæla fyrir um að
aðeins skuli brugga bjór úr vatni,
malti, humli og ölgeri.
Nýjung í íslenskum greiðslukortum:
Samkort sem
tengikort við
Eurocard
Nýtt Samkort sem er tengikort við
Eurocard og þannig fullgilt greiðslu-
kort á alþjóðavísu hefur nú verið gef-
ið út í samvinnu Kreditkorta hf. og
Samtaka samvinnuverslana, sem í
em öll kaupfélög á landinu sem reka
smásöluverslun.
Á hinu nýja greiðslukorti er mynd af
Heklu á framhliðinni en íslenskar
landslagsmyndir em jafnan á
greiðslukortum Kreditkorta. Nýja
Samkortið er hið fyrsta í röð tengi-
korta hjá Kreditkortum hf. en tengi-
kort em gefin út í samvinnu fyrirtæk-
isins og ýmissa félaga og samtaka.
Nýja Samkortið er þó sérstakt að því
leyti að auk þess sem það er alþjóðlegt
greiðslukort, er það jafnframt félags-
mannakort í kaupfélögunum. Sem
slíkt veitir það handhöfum sínum
ýmis hlunnindi, svo sem aðgang að
sértilboðum og afslætti auk þess sem
handhafar þess fá sent fréttabréf Sam-
taka samvinnuverslana. Nýja Sam-
kortið gildir í heimabyggð og í heim-
inum öllum. —sá
Gunnar Bæringsson, framkvæmdastjórí Kreditkorta hf., til hægri,
afhendir Þórí Páli Guðjónssyni, kaupfélagsstjóra í Borgarnesi og
formanni Samtaka samvinnuverslana, fyrsta nýja Samkortið.
Ýsuveiöar í net
Sjávarútvegsráðuneytið hefur apríl 1992. Ákvörðunin tekur til
ákveðið að leyfa notkun á sex ýsuveiða í net í Faxaflóa og fyrir
þumlunga netum frá og með 4. Suðurlandi.
Macintoshtölva
númer 10 þúsund
Nýlega seldist Macintoshtölva núm-
er tíu þúsund hjá Apple umboðinu,
Radíóbúðinni hf.
Tölvan er af gerðinni Macintosh
Classic og það var fimm manna fjöl-
skylda í Reykjavík sem hugðist
kaupa hana en fékk hana í staðinn
gefna í tilefni af þessum tímamót-
um. Að auki fékk fjölskyldan með
tölvunni Apple Stylewriter blek-
prentara, forrit og músarmottu.
Á myndinni afhendir Sveinn Orri
TVyggvason, verslunarstjóri Apple
umboðsins, þeim Hjalta Þórissyni
og Guðrúnu Björk Tómasdóttur og
bömum þeirra, Teiti, Margréti og
Guðnýju, Classic tölvuna ásamt
fylgihlutum. —sá
Reykjavíkurdeild RKÍ endurnýjar tækjakostinn:
Tveir nýir sjúkrabílar
Reykjavíkurdeild RKÍ hefur tekið í
notkun tvær nýjar og fullkomnar
sjúkraflutningabifreiðar. Bifreið-
arnar eru af gerðinni Ford Econo-
line og eru búnar öflugum dísilvél-
um en önnur auk þess búin fjór-
hjóladrifl sem gerir sjúkraflutn-
ingamönnum kleift að komast til
torfærari staða en ella.
Bflarnir voru fluttir til landsins
sem venjulegir sendiferðabflar en ís-
lenskir iðnaðarmenn hafa breytt
þeim í fullkomna sjúkrabíla. Þak bfl-
anna var hækkað og soðið á á ný
með leysigeislatækni og þeir síðan
innréttaðir. Það verk önnuðust bif-
reiðasmiðirnir Óskar Halldórsson
og Gunnlaugur Einarsson. Fyrir-
tækið Fjallabflar, stál og stansar
setti síðan framdrif í annan bflinn.
—sá
Frá afhendingu nýrra sjúkrabíla. Frá vinstri Sigurður Kr. Bjöms-
son, markaðsstjóri Globus hf, umboösaöila Ford á íslandi, Davíö
Davíösson, deildarstjóri bíladeildar Globus, Þór Halldórsson,
varaformaöur Reykjavíkurdeildar RKÍ, Torben Friðriksson, gjald-
keri Reykjavíkurdeildar RKf, Gunnlaugur Einarsson og Óskar Hall-
dórsson bifreiöasmiöir og Jón Hólm framkvæmdastjóri Fjallabíla,
stáls og stansa hf.